Morgunblaðið - 13.09.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.09.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR13. SEPTEMBER1983 KRISTJflfl SIGGEIRSSOfl HF LAUGAVEGI 13, REYKJAVIK. SIMI 25870 Opið á fimmtudögum til kl. 21, á föstudögum til kl. 19 og til hádegis á laugardögum. Tvær Amsterdam - París Vikuferð 30. sept. Nú sláum viö saman tveimur skemmtilegustu borgum megin- landsins og kynnumst þvi besta sem hvor um sig hefur upp á að bjóöa Verökr. 16.350.- miöað við gistingu í 2ja manna herbergi. Innifaliö: Flug til og frá Amsterdam, gisting í 3 nætur á Victoria hóteli i Amsterdam, 4 nætur á Mondial hóteli í París, skoðunarferöir um París og til Versala, rútuferð Amsterdam-París-Amsterdam og íslensk fararstjórn Barnaafsláttur kr. 4000.- Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 « AF ERLENDUM VETTVANGI eftir BJÖRN BJARNASON Stórveldatortryggni og sameiginlegt öryggi Káðstefnan um sameiginlegt öryggi sem haldin var í Stokkhólmi 2. til 4. september í vegum alþjóðlegu friðarrannsóknastofnunarinnar — SIPRI — leiddi ekki til þess að þátttakendur yrðu sammála um skilgrein- ingu á hugtakinu „sameiginlegt öryggi“. Það er ekki á næsta leiti að vígbúnaðarkenningar, sem kenndar eru við ógnarjafnvægið, víki fyrir sameiginlegu öryggi, eða með öðrum orðum að friðurinn hætti að styðjast við kjarnorkuodda í austri og vestri. Egon Bahr, hugmyndafræð- ingur vestur-þýskra jafnað- armanna í utanríkis- og örygg- ismálum, er höfundur hugtaksins „sameiginlegt öryggi". En það var haft að leiðarljósi í störfum al- þjóðlegrar og sjálfstæðrar nefnd- ar um öryggis- og afvopnunarmál undir forsæti Olof Palme. Á ráðstefnunni í Stokkhólmi lýsti Egon Bahr „sameiginlegu öryggi" sem hernaðarlegum þætti slökun- arstefnunnar og eðlilegu mark- miði þeirra sem vildu hrinda henni í framkvæmd. í ráðstefnulok komst Lennart Bodström, utanríkisráðherra Svf- þjóðar, þannig að orði, að Svíar hefðu í nokkra áratugi fylgt utan- ríkisstefnu sem skilgreina mætti á þann veg, að hún félli vel að því sem nú væri farið að kalla sam- eiginlegt öryggi. Taldi sænski utanríkisráðherrann að samvinna Norðurlanda væri góð fyrirmynd að því sem stefnt væri að með sameiginlegu öryggi. Vadim Zagladin, miðstjórnarmaður í kommúnistaflokknum og fyrirliði Sovétmanna á ráðstefnunni, sagði, að sovéska stjórnin væri hlynnt sameiginlegu öryggi og utanríkisstefna hennar bæri þess glögg merki. Á blaðamannafundi í ráðstefnulok velti einn fyrirspyrj- anda því þess vegna fyrir sér, hvort Svíar og Sovétmenn fylgdu þá svipaðri utanríkisstefnu. Zagladin lagði þá áherslu á að stefna Sovétríkjanna væri sam- stiga hugmyndunum um sameig- inlegt öryggi — að vísu með fyrir- vara. í hópi Bandaríkjamanna á ráðstefnunni var Richard Perle, aðstoðarvarnarmálaráðherra. í ræðu sinni benti hann á að það væri rangt að halda því fram, að bandarískar kjarnorkuvopna- birgðir hefðu aukist jafnt og þétt undanfarna tvo áratugi. Mega- tonnin í kjarnorkuvopnabúrum Bandaríkjanna væru til dæmis núna aðeins einn fjórði af því sem þau voru fyrir tuttugu árum. Eyð- ingarmáttur einstakra vopna hefði aukist, en hins vegar ættu Bandaríkjamenn 8000 færri kjarnorkuvopn núna en á sjöunda áratugnum. Bandaríkjastjórn hefði markvisst unnið að því að fækka kjarnorkuvopnum. Perle taldi, að annað hefði orðið upp á teningnum í Sovétríkjunum og þar hefði verið lögð mun meiri áhersla á kjarnorkuhervæðingu en unnt væri að réttlæta með því að Sovétmenn væru að brúa bilið gagnvart Bandaríkjamönnum. I frásögn af fundum í einni af nefndum ráðstefnunnar sem sam- in var af Johan Jörgen Holst, for- stjóra norsku utanríkismálastofn- unarinnar, sagði, að Bandaríkja- menn teldu það mikið áhyggjuefni að heræfingar Sovétmanna gæfu til kynna að þeir væru að búa sig undir að heyja takmarkað kjarn- orkustríð í Evrópu. Sagði síðan í frásögn Holst að í nefndinni hefði þessari fullyrðingu verið harðlega andmælt af öðrum fundarmanni og síðan stendur: „Sovétríkin hefðu neyðst til að auka hernað- armátt sinn til að brúa bilið". Eftir að þessari frásögn hafði verið dreift til • blaðamanna í ráðstefnulok, var hún innkölluð og þegar við ráðstefnugestir ætl- uðum að ná í hana, var sagt að það hefði orðið að skrifa hana upp aftur vegna „villu“. Nánari athug- un leiddi hins vegar í ljós, að Sov- étmenn höfðu krafist þess að frá- sögnin yrði dregin til baka af því að í henni væri fleiri línum varið til að lýsa viðhorfi Banda- ríkjamanna en Sovétmanna! Þessi litli atburður á ráðstefnu sem efnt var til í því skyni að ræða leið út úr því kerfi sem nú er búið við í alþjóðlegum öryggis- málum þar sem samkeppni risa- veldanna í austri og vestri og gagnkvæmur fælingarmáttur kjarnorkuherafla þeirra er burð- arásinn, sýnir að það eru margar hindranir í veginum, smáar og stórar, þar til tortryggninni er rutt á brott og traust kemur í staðinn. Hitt er svo annað mál, hvort það sé besta leiðin til að eyða þessari tortryggni að láta undan öllum kröfum Sovétmanna sama hve vitlausar þær eru. En á ráðstefnunni í Stokkhólmi kom fram, að Sovétmenn eru með öllu blygðunarlausir í fullyrðingum sínum um stöðu eigin kjarnorku- herafla. Það er sama hve mjög þeir fjölga til dæmis SS-20-kjarn- orkueldflaugunum sem ógna Vestur-Evrópu, þeir eru alltaf að stefna að „jafnræði" eða „jafn- stöðu“ gagnvart Vesturlöndum, sem eiga þó engin sambærileg vopn og viðurkenna ekki síðari tíma skilgreiningar Sovétmanna um að SS-20-eldflaugarnar séu andsvar við frönskum og breskum kjarnorkuvopnum sem hingað til hefur verið litið á sem hluta af „strategískum" kjarnorkuherafla, en hann er ekki til umræðu þegar fjallað er um Evrópueldflaugarn- ar á fundum Sovétmanna og Bandaríkjamanna í Genf — mik- ilvægasta lota þeirra viðræðna hófst 6. september síðastliðinn. Verulegur tími fór í það á ráðstefnunni í Stokkhólmi að ræða Genfarviðræðurnar um Evr- ópueldflaugarnar, en nú á næstu mánuðum verður hafist handa við að koma fyrir bandarískum Pershing II-eldflaugum og stýri- flaugum í Vestur-Þýskalandi, ít- alíu og Bretlandi, náist ekki samkomulag í Genf. Zagladin sagði f Stokkhólmi, að það jafn- gilti einhliða riftun á viðræðunum í Genf, ef hafist yrði handa um að koma bandarísku eldflaugunum fyrir. Hann sagði þó jafnframt að Sovétmenn myndu engu að síður halda áfram friðarbaráttu sinni og skynsamlegast væri að fresta uppsetningu nýju eldflauganna um 10 mánuði, svo að meiri tími gæfist til samningaviðræðna, eða þau fjögur ár sem menn gátu vænst samkvæmt ákvörðun utan- ríkisráðherra NATO um málið í desember 1979. Richard Perle sagði hins vegar að það breytti engu þótt eldflaugunum yrði kom- ið fyrir í Vestur-Evrópu, það yrði bæði fljótlegt og auðvelt að fjar- lægja þær ef nauðsyn krefði. Ráðstefnan um sameiginlegt öryggi snerist því frekar um hefðbundinn ágreining austurs og vesturs, en það sem sameinar bandalögin f austri og vestri. Þeg- ar kynnt var það sem fram fór í þeirri nefnd ráðstefnunnar þar sem fulltrúar frá rikjum þriðja heimsins sátu, kom glögglega fram, að þá fyrst væri að vænta breytinga, þegar áhrifum risa- veldanna hefði verið útrýmt. En hvenær og með hvaða ráðum tekst það? í janúar 1984 hefst í Stokk- hólmi ráðstefna um afvopnun og leiðir til að skapa traust í hernað- armálum á milli ríkja. Þátttak- endur í þeirri ráðstefnu verða fulltrúar frá ríkjunum 35 sem rætt hafa um öryggi og samvinnu í Evrópu í rúman áratug innan ramma ráðstefnunnar sem lauk í Madrid nú 7. til 9. september og haldin var á grundvelli loka- skjalsins frá Helsinki 1975. Var helst að skilja á forráðamönnum SIPRI, að ráðstefna þeirra um Palme-skýrsluna myndi verða gagnlegt framlag til Stokkhólms- ráðstefnunnar sem hefst í janúar. Hitt er einnig ljóst, að sænska ríkisstjórnin undir forsæti Olof Palme ætlar að nýta sér fyrirhug- aða ráðstefnu til hins ítrasta í því skyni að ítreka ágæti sænskrar utanríkisstefnu. SIPRI-ráðstefn- an einkenndist af stórveldator- tryggni en ekki markvissri sókn að sameiginlegu öryggi. Líklegt er að hið sama verði upp á teningn- um á Stokkhólmsráðstefnunni. Og sé það óaðskiljanlegur liður í því að ná markmiðum sameiginlegs öryggis að trúa öllu því sem Sov- étmenn segja gagnrýnilaust, er betra heima setið en af stað farið. Við skilgreiningu á hugtakinu „sameiginlegt öryggi" geta menn ekki leyft sér að horfa framhjá staðreyndum og þeirri tortryggni sem ríkir. Frá Madrid-ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu. í kjölfar hennar verður meðal annars efnt til nýrrar ráðstefnu í Stokkhólmi um hernaðarlegar hliðar evrópskrar samvinnu. Á SIPRI-ráðstefnunni um sameiginlegt öryggi töldu ýmsir að þar hefði verið safnað saman gagnlegu efni sem kæmi að notum í umræðum um nýja skipan öryggismála, en allir eru sammála um að hún sé næsta fjarlægur draumur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.