Morgunblaðið - 13.09.1983, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983
Valgeir G. Vilhjálms-
- sextugur
son kennari
I dag, 13. september 1983, er
Valgeir G. Vilhjálmsson kennari,
Djúpavogi, sextugur. Ég get ekki
látið hjá líöa að senda þessum
ágæta vini mínum og starfsfélaga
um fjölda ára bestu afmæliskveðj-
ur. Valgeir hefur ákveðið að láta
af störfum sem kennari við
grunnskóla Djúpavogs á þessu
hausti eftir 37 ára starf í þessu
byggðarlagi og flytjast til Kópa-
vogs í nágrenni við flest sitt skyld-
fólk og tengdafólk. Já, það eru orð-
in 37 ár sem Valgeir hefur gegnt
störfum í þessu byggðarlagi, alltaf
með sömu trúmennskunni hvort
hann var settur yfir mikið eða lít-
ið. Mörg eru þau félagslegu störfin
sem hann hefur unnið í þágu þessa
byggðarlags, oft án þess að nokkur
fjárhagsleg umbun kæmi í stað-
inn. Ég var ungur maður þegar
Valgeir kom hér fyrst sem 23 ára
gamall kennari og ég man vel eftir
honum á þeim árum. Hann kom
mér þannig fyrir sjónir að maður-
inn væri þéttur á velli og þéttur í
lund. í öllu bar hann með sér fas
íþróttamannsins, enda lét hann
sig ekki muna um að ganga á
höndunum eftir endilöngum
skólaganginum þegar ég kom til
starfa við skólann 9 árum síðar.
Ég kynntist Valgeiri ekki mikið á
þessum fyrstu árum hans á
Djúpavogi. Leið mín lá brátt að
heiman og ég get ekki sagt að ég
kæmi hér heim í ein sjö ár, nema
til að vinna eitthvað yfir hásum-
arið. Ég man þó að við tefldum
eina skák í tjaldi fyrir sunnan
Hamarsfjörð sumarið 1949 eða ’50,
en ég var þá þar í vegavinnu og
Valgeir gestkomandi hjá okkur
tjaldbúum. Ég tel víst að Valgeir
hafi unnið skákina. Hann var
oftast öðrum snjallari þegar um
einhverja tölfræði var að ræða.
Svo var það að við Valgeir byrjuð-
um að vinna saman hér í skólan-
um haustið 1955. Hann sem þaul-
reyndur kennari og félagsmála-
maður en ég sem hálfgerður ný-
græðingur. Það er skemmst frá
því að segja að samvinnan við
Valgeir var hin ágætasta alla tíð,
enda ekki hægt að fá betri mann
að vinna með. Svo mikið er víst að
ekki hefur hann hlíft sjálfum sér.
Var hann alltaf reiðubúinn að
taka sjálfur upp stærsta og
þyngsta baggann og leggja á eigin
herðar. Vil ég á þessum tímamót-
um í ævi hans þakka honum ára-
tuga ágætt samstarf, margvísleg-
an vináttuvott og mörg góð ráð er
hann veitti ungum, fávísum kenn-
ara. Þeir eru orðnir æði margir
sem Valgeir hefur rétt hjálpar-
hönd við ýmis tækifæri, og hrædd-
ur er ég um að byggðarlaginu
bregði við að missa hann. Slíkan
sess hefur hann skipað í litlu sam-
félagi. Ég ætla þó ekki að rökræða
meira um það, árin líða og rás
tímans verður ekki aftur snúið.
Ævisögu Valgeirs ætla ég ekki að
rekja í smáatriðum, enda er mér
hún ekki svo nákunnug til þess
tíma er hann flytur til Djúpavogs.
Veit ég þó að hann er fæddur á
Nesi í Norðfirði, sonur hjónanna
Vilhjálms Stefánssonar útvegs-
bónda og konu hans Kristínar
Árnadóttur. Börnin voru mörg og
snemma varð Valgeir að fara að
heiman og vinna fyrir sér. Dvald-
ist hann í sveit á Stóra-Sandfelli í
Skriðdal og einnig í Helgustaða-
hreppi þar sem hann byrjaði
barnakennslu 18 ára gamall áður
en hann fór í Kennaraskólann.
Mun hann hafa lent hjá góðu fólki
og minnist oft þessara staða
beggja með hlýhug. Átti hann oft
leið þar um síðar, sérstaklega í
Stóra-Sandfelli. enda er staðurinn
í alfaraleið. Á Valgeir hlóðust
snemma mörg trúnaðarstörf og
varð vinum hans og kunningjum
oft að umræðuefni hve mörg þau
væru. Komust menn ekki ailtaf að
sömu niðurstöðu. Má nefna að
hann var um skeið bæði oddviti og
hreppstjóri í Búlandshreppi. Auk
þess í ýmsum nefndum og stjórn-
um margra félaga. Sýslunefndar-
maður og endurskoðandi Kaupfé-
lags Berufjarðar árum saman,
formaður slysavarnafélagsins og
svo mætti lengi telja. Tæpast
hlífði hann heilsu sinni sem skyldi
þegar um það var að ræða að gera
fólki í sínu byggðarlagi greiða.
Jafnvel matartímarnir fóru í að
vinna þörf verk í þágu nágrann-
ans. Hann hefur ekki að öllu leyti
gengið heill til skógar síðustu ár-
in, en það er fjarri Valgeiri að
kvarta. Gengið hefur hann hress
og kátur um víkur, fjöll og eyjar
þegar færi hefur gefist, enda
ávallt lifað eftir forskriftinni eigi
skal haltur ganga á meðan báðir
fætur eru jafn langir. Hann hefur
tekið ástfóstri við náttúru þess
byggðarlags sem hann ungur mað-
ur tók sér bólfestu í. Valgeir hefur
glöggt auga fyrir sérkennum
fjalla, kletta og kamba þar sem
fólk í fortíð og nútið hefur séð dul-
arfullar verur og furðuljós. Það er
gaman að setjast inn i bíl hjá
Valgeiri á góðum degi og aka með
honum um sveitir. Hann kann öðr-
um betur skil á örnefnum og
íbúum byggðarlaga Austurlands
og jafnvel þótt víðar sé farið.
Sitt aðalstarf, kennsluna, hefur
Valgeir rækt af sérlegri samvisku-
semi og má ekki’vamm sitt vita í
því efni. Hann er frábærlega nat-
inn og glöggur íslenskukennari og
ég held að flestum foreldrum beri
saman um að áhugasamari og
betri lestrarkennara sé vart hægt
að fá.
Valgeir giftist árið 1974 önnu
Magnúsdóttur úr Hafnarfirði.
Hafa þau búið á Djúpaogi síðan en
ákváðu að flytjast suður í Kópa-
vog á þessu hausti enda átt við
nokkra vanheilsu að stríða. Veit
ég að ég mæli fyrir munn allra
sveitunga Valgeirs um fjölda ára
er ég óska honum allra heilla á
þessum tímamótum ævi hans og
þakka þeim hjónum báðum og
óska þeim velfarnaðar á nýjum
slóðum.
Ingimar Sveinsson
„Hlutur Sjálfstæðisflokksins
að leiða þjóðina úr ógöngum“
Aðalfundur kjördæmaráðs Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi
Ein meginskylda ráðherra og al-
þingismanna Sjálfstæðisflokksins
hlýtur nú sem jafnan áður að vera sú
að draga úr forsjá og afskiptum hins
opinbera. Við uppbyggingu efna-
hags- og atvinnulífs á Islandi ber að
virkja orku einstaklingsins til at-
hafna, og það verður einungis fært
með því, að fólk og fyrirtæki fái að
ráðstafa sjálfsaflafé sínu.
Efla þarf einstaklingsframtak í at-
vinnuuppbyggingu til íands og sjáv-
ar, en til þess að það sé mögulegt
þarf að létta sköttum af hlutafé og
arði af því og leyfa því að njóta
skattfríðinda á sama hátt og sparifé.
Samfara auknu atvinnufrelsi þarf
að koma meiri ábyrgð aðila vinnu-
markaðarins. Kjördæmisráð leggur
áherslu á það, að í samningum laun-
þega og atvinnurekenda verði aðilar
gerðir ábyrgir gjörða sinna, og að
aðgerðir ríkisvaldsins verði ákveðn-
ar fyrir samningsgerð.
Slík stefna hlyti um leið að verða
farsælasta og raunhæfasta byggða-
stefnan. Afleiðing frjálslyndrar efna-
hagsstefnu í anda Sjálfstæðisflokks-
ins yrði sú að verðmætasköpunin
sem á sér stað úti á landsbyggðinni
yrði þar eftir, hjá þvi fólki sem þar
starfar.
Ályktun um atvinnumál
1. Sjávarútvegur:
Gera verður ráð fyrir að útgerð og
vinnsla sjávarafla verði hér eftir sem
hingað til burðarás atvinnulífs á Vest-
fjörðum. Leggja ber höfuðáherslu á
fullvinnslu sjávarafla hér heima og
skapa þar með aukin atvinnutækifæri
og kanna verð fyrir afurðir okkar.
Bent skal á það alvarlega ástand, sem
ríkir með viðhald og viðgerðir á skipa-
flota okkar, þar sem ekki er til staðar
dráttarbraut né skipalyfta, sem tekur
upp stór fiskiskip. Við þetta flyst mik-
ið fjármagn og atvinna úr fjórðungn-
um svo óviðunandi er.
2. Landbúnaður:
Auka þarf fjölbreytni i landbúnaði
og eru þar álitlegustu kostirnir fiski-
rækt, loðdýrarækt og ylrækt, til við-
bótar þeim hefðbundnu búgreinum
sem fyrir eru.
3. Iðnaður:
Fagna ber sérstaklega því forystu-
hlutverki, sem Vestfirðingar hafa náð
í þróun og framleiðslu á rafeindabún-
aði fyrir sjávarútveginn. Efla ber létt-
an iðnað eins og kostur er.
4. Ferðamannaþjónusta:
Leggja ber aukna áherslu á bætta
þjónustu við ferðamenn sem hingað
koma og líta skal á þessa starfsemi
sem alvöru atvinnugrein.
5. Verslun:
Harma ber það ástand, sem nú ríkir
í verslunarmálum víða á Vestfjörðum.
Skal í því sambandi bent á að stór
hluti verslunar í fjórðungnum er
stundaður beint frá Reykjavík.
Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi
var haldinn að Núpi í Dýrafirði dag-
ana 19. og 20. ágúst sl.
Aðalmál fundarins var atvinnumál,
auk venjulegra aðalfundarstarfa.
Ræður fluttu alþingismennirnir
Matthías Bjarnason, ráðherra, og
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
ennfremur formaður kjördæmisráðs-
ins, Engilbert Ingvarsson, sem flutti
skýrslu um störf ráðsins á sl. starfs-
ári.
Síðari fundardaginn flutti fram-
söguræður um atvinnumál Eyjólfur
Konráð Jónsson alþm., Einar Oddur
Kristjánsson frkvstj. og Ólafur
Hannibalsson bóndi. Erindi þessi voru
hin fróðlegustu og urðu um þær fjör-
ugar umræður. Mikil samstaða ríkti í
málflutningi fundarmanna um að ná
fram markvissri stefnu til úrbóta í
atvinnumálum og fjölga atvinnutæki-
færum í Vestfjarðakjördæmi.
Eftirfarandi ályktanir voru sam-
þykktar einróma:
Stjórnmálaályktun
Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins á Vestfjörðum fagnar
myndun núverandi ríkisstjórnar og
lýsir yfir eindregnum stuðningi við
stefnu hennar og störf.
Með myndun núverandi ríkisstjórn-
ar er lokið fimm ára forræði vinstri
flokkanna yfir landsstjórninni. For-
ræði sem valdið hefur þjóðinni ómæl-
anlegu tjóni og skilið efnahagslíf
landsins eftir á hverfanda hveli.
Verðbólgan við myndun núverandi
ríkisstjórnar var miklu meiri en
þekkst hefur í sögu þjóðarinnar. At-
vinnuöryggi landsmanna var í stór-
hættu. Grundvallaratvinnuvegi þjóð-
arinnar skorti rekstrargrundvöll, er-
lendar skuldir hrönnuðust upp. Halli
ríkissjóðs stefndi á annan milljarð
króna, viðskiptahalli var stórfelldur,
og efnahagslegt hrun blasti við, nema
eitthvað væri að gert.
Það hefur enn á ný orðið hlutverk
Sjálfstæðisflokksins að leiða þjóðina
út úr þeim ógöngum, sem stefna
vinstri flokkanna hafði leitt hana f.
Enginn vafi er á því, að erfiðir tím-
ar fara í hönd. Hinn slæmi viðskilnað-
ur vinstri stjórnanua gerir allar efna-
hagsaðgerðir örðugar og ljóst er, að
nauðsynleg úrræði krefjast fórna af
öllum landsmönnum.
Aðalfundur kjördæmisráðs lýsir
stuðningi við þá fyrirætlan ríkis-
stjórnarinnar að ráðast að vandamál-
um þjóðarbúsins af atorku og festu.
Saga undanfarinna ára sýnir, að smá-
skammtalækningar leysa engan
vanda en geta skapað fleiri vandamál,
en þær leysa.
Ljóst er, að ekki verður ráðið við
vandann f efnahagsmálum, nema
höggva að rótum hans. Þar er að
mörgu að hyggja. Taka þarf á, á sviði
ríkisfjármáía, peningamála, fjárfest-
ingarmála, verðlagsmála og launa-
mála.
Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins á Vestfjörðum lýsir
sérstakri ánægju sinni með þá við-
leitni ráðherra Sjálfstæðisflokksins
að draga úr opinberum afskiptum og
auka hagkvæmni f rekstri hins opin-
bera. í þvi sambandi vekur Kjördæm-
isráðið einkum athygli á hugmyndum
heilbrigðisráðherra um nýbreytni f
rekstri heilbrigðisstofnana og tillög-
um fjármálaráðherra um sölu ríkis-
fyrirtækja.
Engilbert Ingvarsson, sem verið
hefur formaður kjördæmisráðsins
undanfarin fimm ár, hafði látið í ljós
ósk um að nú yrði valinn nýr formað-
ur í hans stað. En að tillögu uppstiil-
inganefndar var Engilbert einróma
endurkjörinn formaður kjördæmis-
ráðsins. Aðrir f stjórn voru einnig ein-
róma kjörnir. Guðmundur Sævar
Guðjónsson Bíldudal varaformaður,
Geirþrúður Charlesdóttir ísafirði
gjaldkeri, Hildur Einarsdóttir Bol-
ungarvík ritari, og Gunnar Benedikts-
son Flateyri meðstjórnandi.
I flokksráð voru kjörnir: Högni
Þórðarson Isafirði, Auðunn Karlsson
Súðavík, Guðmundur B. Jónsson Bol-
ungarvík, Óskar Kristjánsson Suður-
eyri og Kristján Jónsson Hólmavík.
Úr fréttatilkynningu.
| radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tilkynningar
Tilkynning til launa-
skattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiöenda skal vakin á
því, aö eindagi launaskatts fyrir mánuðina
júní og júlí er 15. september nk. Sé launa-
skattur greiddur eftir eindaga, skal greiöa
dráttarvexti til viöbótar því sem vangreitt er,
talið frá og með gjalddaga. Dráttarvextir eru
5% á mánuði.
Launaskatt ber launagreiöanda aö greiða til
innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll-
stjóra, og afhenda um leið launaskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið,
5. september 1983.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Framboðsfrestur
Ákveöið hefur verið að viöhafa allsherjar at-
kvæöagreiöslu í Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur um kjör fulltrúa á 14. þing
Landssambands íslenzkra verzlunarmanna.
Kjörnir verða 64 fulltrúar og jafnmargir til
vara. Listar verða að hafa borist kjörstjórn á
skrifstofu Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
í Húsi Verzlunarinnar, 8. hæö viö Kringlumýr-
arbraut, fyrir kl. 12.00 á hádegi 16. septem-
ber nk.
Kjörstjórnin
Tilkynning til sölu-
skattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiöenda skal vakin á
að gjalddagi söluskatts fyrir ágústmánuö er
15. september. Ber þá að skila skattinum til
innheimtumanna ríkissjóös ásamt sölu-
skattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið,
5. september 1983.
É| Frá Sjálfsbjörgu í
i Reykjavík og nágrenni
Blaða- og merkjasöludagur Sjálfsbjargar er
25. sept. Þeir, sem vilja aðstoða við blaða-
og merkjasölu, eru vinsamlegast beðnir aö
hafa samband við sk'rifstofu félagsins í síma
17868.