Morgunblaðið - 13.09.1983, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 13.09.1983, Qupperneq 41
fclk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983 41 „Hann er að minnsta kosti nógu stór“ Peter Martins hættir að dansa og tekur við stjórn The New York City Ballet Við íslendingar eigum okkar Helga Tómasson og Danir eiga sinn Peter Martins. Báðir hafa þeir helg- að ballettinum líf sitt og öðlast fé og frama, a.m.k. frama, í háborg ballettsins, New York. Peter Martins er nú 36 ára gamall og er að hætta sem dansari. Hann er þó ekki aldeilis að segja skilið við ballettlff- ið, því að hann hefur verið kjörinn yfirmaður eins fremsta ballettflokks í heimi, The New York City Ballet. „Hann er að minnsta kosti nógur stór.“ Það var allt og sumt sem bandarfska dansmærin Suzanne Farrell hafði um Peter að segja þegar hún hafði dansað með honum reynsludansinn hans fyrir Balanchine, forstöðumann og stofnanda The New York City Ballet, en hann lést nú fyrr á árinu. Og stór er hann. 189 sm og vaxtarlagið eins og hjá grískum guði. Þetta var um 1970 og sfðan hefur Peter verið einn af aðaldönsurum balletts- ins þar til nú að hann sest í forstjórastólinn. Karlatímaritið „Esquire" hafði nú nýlega viðtal við Peter Martins og var þar víða komið við en að sjálfsögðu mest fjallað um líf hans og starf sem ballettdansari. Peter segir, að ballettdansarar þurfi yfirleitt ekki að vera að hafa fyrir því að setja sér strangar lífsreglur, ballettdansinn sé svo kröfuharður að slíkt komi bara af sjálfu sér. Hann segist þó alltaf hafa gætt þess að sofa vel og mikið, gæta hófsemi í tóbaksreykingum, drekka mikið vatn og gæta þess að dansbúningurinn sé alltaf nýþveginn. Eitt er líka enn: „Láttu aldrei neina ballettdansmey koma þér úr jafnvægi." „Ballettdansmeyjar eru vanar að hafa allt á hornum sér. Þær eru þrautseigar, miskunnarlaus- ar, eigingjarnar og þröngsýnar," segir Peter og bætir þessu við: „Þannig verða þær líka að vera ef Peter Martins með Suzanne Farrell. þær ætla sér að komast áfram í listgrein þar sem samkeppnin er allsráðandi." Peter Martins er að hætta sem dansari eins og fyrr segir. 1. desember nk. ætlar hann að kveðja sem prinsinn í „Hnotubrjótnum" en í því verki sló hann fyrst í gegn fyrir vestan. Björn Borg sýnir fatnað + Tennisstjarnan Björn Borg er nú að hasla sér völl á nýjum vettvangi. Hann hefur stofnað sitt eigið fyrirtæki, sem fram- leiðir íþróttafatnað og sýndi fyrir nokkru í París tískuna eins og hann vill að hún verði á næsta sumri. Björn kom sjálfur þar fram ásamt sýningarfóik- inu og þótti bara standa sig vel. Fatahönnuðurinn í fyrirtæki Borgs heitir Rodhi Heintz, sænsk-þýskur, en Borg leggur hins vegar blessun sína yfir hverja einustu flík áður en hún er send á markað. COSPER — Mamma, það hefur lent korn í öðru auganu á mér. Dylan og Sara saman á ný + Söngvarinn Bob Dylan er nú aft- ur tekinn saman við konuna sína fyrrverandi, Söru, sex árum eftir að þau skildu en skilnaðurinn kostaði Dylan á sínum tfma um 75 milljón- ir ísl. kr. Dylan, sem er 43 ára gamall, og Sara, hafa oft sést saman að undanförnu og segja vinir þeirra beggja, að þau ætli að gifta sig á ný. Þau giftu sig fyrst fyrir 18 árum og eiga saman fjögur börn, sem nú eru á unglingsaldri. Dyl- an hefur aldrei getað sætt sig við skilnaðinn og að geta ekki um- gengist börn sín og þess vegna hefur hann leitað sér huggunar hjá alls kyns sértrúarsöfnuðum, sem kenna sig við kristna trú. Nú hefur hann þó hætt þessu vafstri og er farinn að leggja aftur rækt við trú feðra sinna, gyðingdóm- inn. Rýmingarsala — rýmingarsala Nýir austurþýskir vörubflahjólbarðar. 1100x20/14-laga framdekk á kr. 5.900,00 1100x20/14-laga afturdekk á kr. 6.300,00 Langsamlega lægstu verð sem nokkursstaöar eru í boði. Opið daglega kl. 8—19. BARÐINN HF., Skútuvogi 2, sími 30501.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.