Morgunblaðið - 13.09.1983, Síða 48
„Atvinnumannalandsliðin"
ÍSLAND X
ÍRLAND 9,
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983
Belti með
stálgödd-
um beitt í
fólsku-
legri árás
PILTI var misþyrmt fyrir utan veit-
ingahúsið Sigtún laust eftir klukkan
2 aðfaranótt sunnudagsins. Hann
var nýkominn út úr veitingahúsinu
þegar tveir menn réðust á hann.
Annar hafði vafið belti með stál-
göddum um hnefa sér — svokölluðu
pönkarabelti, og sló piltinn hvað eft-
ir annað í andlitið.
Árásarmennirnir flúðu að loknu
ódæðisverkinu og skildu piltinn
eftir í blóði sínu — mjög illa leik-
inn í andliti. Nærstaddir menn
komu honum til aðstoðar og óku
honum á slysadeild. Rannsóknar-
deild lögreglunnar í Reykjavík
biður þá vinsamlega að hafa sam-
band við sig.
Fleiri ofbeldismenn voru á ferli
um helgina. Aðfaranótt laugar-
dagsins gengu sjö leðurklæddir
piltar, vopnaðir hnúajárnum, um
miðborg Reykjavíkur og létu
dólgslega við fólk. Þeir slógu pilt,
sem komst sjálfur á slysadeild,
þar sem gert var að sárum hans.
Pilturinn kærði síðan árásina.
Ekki hefur tekist að hafa upp á
árásarmönnunum.
Vestmannaeyjar:
Fundu frysti-
gám á reki
Vestmannaeyjum, 12. september.
Síðastliðinn laugardagsmorg-
un fundu skipverjar á skuttog-
aranum Breka stóran frystigám á
reki, marandi í hálfu kafi, um
sextán sjómflur suðaustur af
Bjarnarey. Reyndist þetta vera
einn af fjórum frystigámum, sem
Eyrarfoss missti útbyrðis í af-
takaveðrinu í síðustu viku, en
skipið var þá á leið til Evrópu-
hafna. Sáu skipverjar tvo gáma
sökkva þegar eftir óhappið, en
hina tvo rak í brott frá skipinu.
Lóðsinn í Vestmannaeyjum
sótti gáminn og lónaði með
hann í togi til lands og kom í
höfn laust fyrir klukkan 18.
Gámurinn var tómur þegar í
land var komið klukkan 18 í
gær, allur varningur sem i
honum var hafði skolast út
þegar hann skall í sjóinn.
- hkj.
'
Prjónað og flogið
■ V
Morgunblaöiö/Gunnlaugur.
Óneitanlega virðist íþrótt sú sem myndin lýsir vera glæfraleg. Knaparnir á fákunum þremur fullyrtu þó í spjalli við blaðamann, að keppni í „moto cross“
væri hættulítil. Það er Þorkell Ágústsson, sem fallið hefur af hjóli sínu, en hinir eru Þorvarður Björgúlfsson og Heimir Barðason.
Spá Þjóðhagsstofnunar um útflutningstekjur:
Gert ráð fyrir 250.000
lesta loðnuafla á árinu
Minnkar áætlaðan samdrátt um 4% eða nálægt 400 milljónum
í SPÁ Þjóðhagsstofnunar um útflutningstekjur íslendinga á þessu
ári er gert ráð fyrir 250.000 lesta loðnuafla á síðustu mánuðum
ársins. I spánni er gert ráð fyrir því að þorskafli dragist samam um
82.000 lestir frá því á síðasta ári og nemi það 8 til 9% samdrætti
útflutningstekna, sé ekki gert ráð fyrir neinum loðnuafla á árinu.
Veiðist hins vegar 250.000 lestir af loðnu þýddi það um 400 milljónir
í útflutningstekjur og lækkaði samdráttinn um 4%.
Þessar upplýsingar koma
fram í riti Þjóðhagsstofnunar,
„Þjóðarbúskapnum". Þar segir
ennfremur að þessi spá sé óviss
og margt bendi til þess, að aft-
urkippurinn gæti reynzt enn
meiri, verði ekkert úr loðnuveiði
í þeim mæli sem gert er ráð
fyrir.
Morgunblaðið spurði sjávar-
útvegsráðherra, Halldór Ás-
grímsson, hvort hann gerði ráð
fyrir því að hægt yrði að veiða
þetta magn af loðnu fyrir ára-
mót. Sagði hann, að reiknað væri
með 250.000 lesta loðnuafla, en
hins vegar lægju ekki enn fyrir
upplýsingar, sem gerðu mögu-
legt að ákveða loðnuveiðar í
haust. Þeirra yrði að bíða þar til
loðnustofninn yrði kannaður í
október. Yrði niðurstaðan sú, að
þetta magn yrði veitt, ætti það
Kaupa Japanir 20%
í Járnblendinu?
að nást á þessu ári og upphafi
næsta. Hins vegar sýndi þessi
spá hve mikilvægar loðnuveið-
arnar væru þjóðarbúskapnum.
Ríkisstjórnin ræðir samkomulagið við Alusuisse:
Tafarlaus hækk-
un um þrjú mills
HÉRLENDIS eru nú staddir níu Japanir frá japanska framleiðslu- og
verzlunarfyrirtækinu Sumetuomo og kaupendur málmblendis í Japan.
Sumetuomo er eitt stærsta framleiðslufyrirtæki á áli og málmblendi í
Japan og hefur sýnt mikinn áhuga á kaupum í hlut norsku eignaraðilanna
í íslensku járnblendiverksmiðjunni við Grundartanga.
Samninganefnd íslands um
stóriðju átti fund með Japönun-
um í gærmorgun, einnig munu
þeir funda með þeim á miðviku-
dag og fimmtudag. Að sögn
Gunnars G. Schram, sem er einn
af þremur nefndarmönnum í
stóriðjunefndinni, er markmiðið
með viðræðunum við Japani að
ná hagkvæmum samningum í því
skyni að treysta fjárhagsstöðu
fyrirtækisins og efla markaðs-
aðstöðu þess. Hugmyndin mun
sú, að kaupverð Japana renni
óskipt til aukningar hlutafjár fé-
lagsins og íslendingar myndu þá
leggja fram jafnmikið hlutafé til
viðbótar. Japanir tækju síðan að
sér að tryggja sölu framleiðsl-
unnar.
í viðræðunum nú er fjallað um
hugsanlegt kaupverð, en sam-
kvæmt heimildum Mbl. er hug-
mynd Japana sú að kaupa
18—20% af hluta Norðmanna,
sem nemur 49% í fyrirtækinu.
A ríkisstjórnarfundi árdegis verð-
ur gengið frá bráðabirgðasamkomu-
laginu við svissneska álfélagið, en
þingflokkar stjórnarflokkanna sam-
þykktu samkomulagið í gær fyrir sitt
leyti. Þá fundaði stjórn Alusuisse
um málið í gærmorgun og samþykkti
samkomulagsdrögin. Ef ríkisstjórn-
in samþykkir drögin fyrir Islands
hönd í dag hækkar raforkuverð til
ÍSAL samdægurs um þrjú mills, þar
af um eitt mills frá 1. júlí sl. Þá er og
ákvæði í bráðabirgðasamningsdrög-
unum um hálfs mills hækkun síðar,
þannig að samtals hækkar raforku-
verðið úr 6,5 mills í 10 mills.
Iðnaðarráðherra kynnti sam-
komulagsdrögin fyrir stjórnar-
andstöðunni í gærdag og þing-
flokkar stjórnarliða samþykktu að
heimila ráðherrum sínum frágang
þess á fundum sínum síðdegis.
Eins og fram hefur komið hækkar
raforkuverð til íslenska álfélags-
ins um 50% eða um eitt mills frá
1. júií, og samtals þrjú mills frá
gildistöku. Einnig er ákvæði um
hálfs mills hækkun, er álverð á
heimsmarkaði hefur numið 78
centum í 20 daga. Álverðið er nú
77 cent og hefur farið ört hækk-
andi síðustu vikur.
Samningurinn er til eins árs en
uppsegjanlegur með þriggja mán-
aða fyrirvara eftir níu mánuði.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um er hér um bráðabirgðasam-
komulag að ræða.
Átján erlend
veiðiskip
við landið
ÁTJÁN erlend veiðiskip eru nú
að veiðum hér við land, sam-
kvæmt upplýsingum er blaða-
maður Morgunblaðsins fékk hjá
Guðmundi Kjærnested í stjórn-
stöð Landhelgisgæslunnar í gær.
Sagði Guðmundur þetta vera
sextán færeysk skip og tvö
norsk.
Skipin væru á veiðum fyrir
sunnan og suðaustan land, og
væri aflinn sjálfsagt nánast
hvað sem fengist, enda væru
skipin margbreytileg að gerð,
línuveiðarar, færabátar og
einn togari.