Morgunblaðið - 14.09.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.09.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983 19 fttwgmifrlfttoifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Augiýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 230 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö. Hanaslagur cða alvöru umræður? Umræðuformið í sjón- varpssal er fyrir löngu búið að ganga sér til húðar. Einu gildir, hvort um er að tefla um- ræðuþætti milli stjórn- málamanna undir stjórn umsjónarmanns eða þætti, þar sem stjórn- málamenn svara spurn- ingum blaðamanna. í báðum tilvikum er markmiðið að upplýsa almenning en í fjölda- mörg ár hefur niðurstað- an orðið einhvers konar hanaslagur. Er það kannski það, sem þjóðin vill? Umræðuþættir milli stjórnmálamanna undir stjórn umsjónarmanns takast sjaldan vel og eru oft afleitir. Þeir einkenn- ast um of af baráttu milli þátttakenda um að komast að og halda orð- inu sem lengst. Sá ósiður er ríkjandi hjá þátttak- endum í slíkum umræð- um, að þeir svara helzt ekki spurningum, sem stjórnandi beinir til þeirra, hvað þá að þeir tali í framhaldi af máli síðasta ræðumanns, þannig að samhengi verði í umræðunum. All- ir þekkja setningu stjórnmálamannsins, sem byrjar svona: „Aður en ég svara þessari spurningu ætla ég að nefna það, sem kom fram hér áðan ..." Spurningaþættir, þar sem blaðamönnum er ætlað að spyrja stjórn- málamenn, hafa lengi verið ójafn leikur. Yfir- leitt hefur þessum þátt- um verið stjórnað á þann veg, að blaðamaðurinn spyr spurningar, sem gefur stjórnmálamann- inum tilefni til að halda langa ræðu sem er ekki endile^ svar við spurn- ingunni. Blaðamaðurinn, sém spyr, fær sjaldan tækifæri til að fylgja spurningu sinni eftir að nokkru marki, stundum vegna þess, að stjórnandi þáttarins tekur af hon- um orðið en stundum vegna þess að öðrum spyrjendum liggur á að komast að. Niðurstaðan verður sú, að umræðuþættirnir verða ekki upplýsandi fyrir almenning, heldur eins konar hanaslagur, þar sem þátttakendur berjast um að vera í sviðsljósinu. Þetta er mikill skaði. Sjónvarpið er orðinn helzti vett- vangur lifandi umræðna af þessu tagi. Það er því þýðingarmikill aðili að lýðræðislegum umræð- um í landinu. Það er mikið vanda- verk að stjórna umræð- um í sjónvarpi. Raunar er full ástæða til að sjón- varpið gefi starfs- mönnum sínum tækifæri til að fá sérstaka þjálfun í því. í þeim tilvikum, þar sem blaðamenn eru fengnir til að spyrja stjórnmálamenn, er æskilegt, að hver þeirra um sig fái tækifæri til að ræða góða stund við þann, sem spurður er, og hafi þannig aðstöðu til að leiða fram til fulls skoðanir og sjónarmið stjórnmálamannsins á einstökum málum. Stjórnmálamennirnir þurfa að hafa tækifæri til þess í umræðuþáttum sín í milli að gera skil- merkilega grein fyrir skoðunum sínum og flokka sinna á þeim mál- efnum, sem um er rætt, jafnframt því, sem rök- ræður fari fram þeirra í milli. Sjónvarpið verður að taka form og stjórn þess- ara þátta til endurskoð- unar. Það getur vel verið að þjóðin hafi gaman af hanaslag í sjónvarpinu, en lýðræðislegir stjórn- arhættir gera kröfu til alvarlegri umræðna en þeirra, sem hér eru stundLaðar. Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra á fréttamannafundi: Ánægður með þennan áfanga — en mikið verk er óunnið Iðnaðarráðherra Sverrir Hermannsson ásamt fulltrúum samninganefndar íslands um stóriðju á fréttamannafundinum í g*r, en þeir eru, talið frá hægri: Gunnar G. Schram, Guðmundur G. Þórarinsson og Jóhannes Nordal. Auk þeirra sátu fund- inn Garðar Ingvarsson ritari nefndarinnar og Páll Flygenring ráðuneytisstjóri. Ljósm. Mbl. Emilía. Á fréttamannafundi sem iðnaðar- ráðherra boðaði til í gær, ásamt samn- inganefnd íslands um stóriðju, var gerð grein fyrir bráðabirgðasamkomu- lagi því sem náðst hefur við svissn- eska álfélagið, en ríkisstjórn íslands samþykkti samkomulagsdrögin í gær- morgun og verður formlega gengið frá því með undirritun í Genf 23. þ.m., en hækkun raforkuverðs úr 6,4 mills í 9,5 mills tók gildi í gær, þar af 1,1 mills afturvirkt frá 1. júlí sl. Sverrir Hermannsson iðnaðarráð- herra gerði í upphafi fundarins grein fyrir innihaldi samkomulagsins, en það er birt í heild hér á opnunni, ásamt sameiginlegri fréttatilkynn- ingu samningsaðila og skýringum iðn- aðarráðuneytisins. Iðnaðarráðherra sagðist mjög ánægður með þennan áfanga, en mikið verk væri enn óunn- ið. Hann sagði ennfremur: „Aldrei er það svo, að maður fái allar sínar óskir uppfylltar, en ég tel þetta geysilega verðmætan áfanga og miðað við stöðu málsins þegar ég kom að því, þá er það ótrúlegt afrek. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka samninganefnd- inni fyrir sérstaklega vasklega fram- göngu, því það er ótrúlegt afrek að ná þessum áfanga." Þrír meginþættir Iðnaðarráðherra sagði bráða- birgðasamninginn skiptast í þrjá meginþætti. I fyrsta lagi meðferð gömlu deilumálanna, en eins og vitað væri hefði Alusuisse vísað deilumál- unum gömlu til alþjóðlegs gerðar- dóms. Ráðherrann sagði það liggja fyrir í athugun ráðgjafarfyrirtækis- ins Coopers & Lybrand, að heppi- legast væri fyrir íslendinga að leysa þessi mál með öðrum hætti en að al- þjóðlegur gerðardómur fjallaði um þau. Bæði væri óhemjulegur kostnað- ur því samfara, eða að lágmarki ein milljón dollara, auk þess sem slík málsmeðferð tæki a.m.k. tvö ár. Þá gerði ráðherrann nánari grein fyrir fyrirhugaðri nefndaskipan og sagði hann sérstaka lögfræðinganefnd koma til með að vinna að undirbún- ingi, öflun gagna o.fl., fyrir dóm- nefndarmenn. I nefndina hafa verið skipaðir: Ragnar Aðalsteinsson hrl., Halldór Kristjánsson lögfræðingur og fulltrúi í iðnaðarráðuneytinu og Ei- ríkur Tómasson lögfræðingur. Iðnað- arráðherra sagðist gera sér vonir um, að niðurstöður gætu legið fyrir í dóm- nefndunum þremur um svipað leyti og jafnvel samhliða því og endurskoðun aðalsamnings lægi fyrir, þ.e. innan níu mánaða. Verðtryggður orkusölusamningur Annar meginþáttur samkomulags- ins fjallar að sögn ráðherrans um endurskoðun aðalsamnings en hann sagði höfuðáherslu verða lagða á nýj- an orkusölusamning og verðtryggingu hans. Skattaákvæði yrðu færð í ljós- ara, einfaldara og öruggara form þannig að forðast megi þrætur um þau í framtíðinni. Þá sagði hann ákvæði varðandi samninga um stækk- un álverksmiðjunnar í áföngum um allt að tvöföldun og stefnt að því að fyrri áfangi stækkunarinnar yrði tek- inn í notkun 1987 og 1988. Þá eru heimildir um að hefja umræður um að Alusisse heimilist að selja þriðja aðila af eign sinni, allt að 50% hluta, enn- fremur að fyrirtækinu heimilist að skáka hlutabréfum til dótturfyrir- tækja sinna. Iðnaðarráðherra gerði stðan grein fyrir þriðja meginþætti samkomu- lagsins, en það varðar þá tafarlausu raforkuverðshækkun sem kom til framkvæmda við gildistöku bráða- birgðasamkomulagsins í gær og það hálfa mill til viðbótar, sem hækkar raforkuverðið samtals í 10 mills, er verð á álmarkaði í London nær 78 centum, en það er nú 77 cent. Ráð- herrann sagði að miðað við gengi doll- ars í dag næmi þetta 136 milljónum króna viðbótartekjum af orkuverðs- sölu til ÍSAL. Varðandi samanburð á raforkuverðssölu í heiminum benti Sverrir Hermannsson á, að ríkisraf- veiturnar í Noregi selja til álbræðslna þar í landi á 9,5 mills og sagði hann hafa vegið þungt í samningaviðræð- unum við Alusuisse, að dótturfyrir- tæki þess í Noregi greiðir nú 9,9 mills á kílóvattstundina og er bundið af því verði til 1. júlí 1977. í gildi þar til heildarsamningar nást Ráðherrann sagði samninginn vera til eins árs, en uppsegjanlegur af hálfu hvors aðila frá 1. apríl n.k. með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Hann kvað samningsaðila þó sam- mála um að samningurinn gilti þar til endanlegt samkomulag næðist, og því myndi hann framlengjast að ári liðnu, ef ekki hefði náðst samkomulag þá, sem hann kvaðst þó vona að ekki kæmi til, takast mætti að semja á þessum níu mánuðum. Fundinn sátu einnig nefndarmenn í viðræðunefndinni sem vann að bráða- birgðasamkomulaginu: Jóhannes Nordal formaður hennar, Gunnar G.Schram alþingismaður og Guð- mundur G. Þórarinsson. Guðmundur G. Þórarinsson fyrrverandi alþingis- maður var í þeirri álviðræðunefnd sem Hjörleifur Guttormsson fyrrum iðnaðarráðherra skipaði og var hann spurður álits á samkomulaginu. Hann sagðist vera mjög sáttur við það og sagðist telja það mikilvægt skref. Hann sagði síðan: „Ég er alveg sann- færður um að það hefði verið hægt að ná þessum samningum fyrr og ég tel að það hafi jafnvel verið betri aðstæð- ur til að ná þeim á meðan Hjörleifur Guttormsson fór með þessi mál.“ Guðmundur skýrði þá skoðun sína þannig, að nú væri meiri svartsýni ríkjandi varðandi áliðnað í heiminum og álframleiðendur með gífurlega skuldabagga á herðunum eftir kreppu á markaðinum. Hjörleifur hafði ekki áhuga á að semja Guðmundur var spurður nánar af hverju hann teldi að ekki hefði verið samið á þennan hátt í tíð Hjörleifs Guttormssonar. Hann svaraði: „Ég hef ákveðna skoðun á því, tel að iðn- aðarráðherra þáverandi hafi ekki haft verulegan áhuga á að ná sam- komulagi. Þau tilboð sem hann lagði fram byggðust fyrst og fremst á skil- yrðislausri uppgjöf eins aðilans. Ég er alveg sannfærður um að það var hægt á þeim tíma að setjast niður og ná samkomulagi um bráðabirgðahækkun eins og nú hefur verið gert. Ég hygg að menn sjái á þessu hversu mikið fé hefur glatast á þeim tíma, þegar við skoðum þær fjárhæðir sem nú nást inn,“ sagði hann að lokum. Þá kom fram á fundinum að fund- arboðendur telja ekki ólíklegt að sam- ið verði um tvo raforkusamninga, annan fyrir eldri álvinnsluna og hinn fyrir nýja áfangann. Jóhannes Nordal taldi geta komið til greina að raforku- verð yrði á einhvern hátt tengt heims- markaðsverði á áli. Þeir sögðu að- spurðir að Alusuisse hefði ekki nefnt neinn sérstakan aðila sem hugsanleg- an nýjan eignaraðila að ÍSAL, en töldu Norsk Hydro ekki óheppilegan eignaraðila fyrir okkur íslendinga. Gerir frekari orkuverðs- hækkun ónauðsynlega Jóhannes Nordal var ítrekað spurð- ur um afkomu Landsvirkjunar og áhrif orkusölusamningsins við ÍSAL á hana. Hann sagðist telja frekari raf- orkuverðshækkanir, umfram verð- lagshækkanir innanlands, ónauðsyn- legar á þessu og næsta ári vegna bráðabirgðasamkomulagins. Þá sagð- ist hann ekki telja að halli hafi orðið á rekstri Landsvirkjunar vegna samn- inga við Alusuisse. Iðnaðarráðherra bénti á í fundarlok og las upp úr gamalli skýrslu þar að lútandi, að Hjörleifur Guttormsson hefði á þorláksmessu árið 1982 boðið Alusuisse upp á hækkun úr 6,4 mills í 10 mills og skyldi það gilda frá 1. janúar 1983. Þá sagði hann aðspurður að bráðabirgðasamkomulag þetta yrði lagt fyrir Alþingi á fyrstu dögum þess í hausL. Einnig kom fram að fyrsti fundur um áframhald samningavið- ræðna hefði verið ákveðinn 28. októ- ber og yrði þar fjallað um skipulag 'þeirra vinnuþragða. „Þarf enga sprenginefnd“ Ráðherrann var að lokum spurður, hvort hann myndi ekki leyfa stjórnar- andstöðunni að taka þátt í áframhaldi viðræðnanna. Hann svaraði: „Nei, nei. Ég þarf enga sprenginefnd í þetta, en ég mun auðvitað eftir því sem málum þokar fram láta stjórnarandstöðuna fylgjast með og þegar þing situr fær hún að fylgjast með eftir því hvernig kaupin gerast á eyrinni." Sameiginleg fréttatilkynning aðila: Samkomulag um endurskoð- un samnings Ágreiningsmálin í óháðar dómnefnd- ir - tafarlaus hækkun raforkuverðs „RÍKISSTJÓRN tslands og Swiss Aluminium Ltd. (Alusuisse) til- kynntu í dag að þau hefðu orðið sammála um að gera bráðabirgða- samning sín í milli til lausnar á ýmsum ágreiningsmálum aðil- anna. Er fyrirhugað að undirrita samning þennan á næstunni. Frá því í júnímánuði sl. hafa samningaviðræður átt sér stað milli fulltrúa ríkisstjórnarinnar og Alusuisse, og var síðasti fundur þeirra í Zúrich 6.-7. september 1983. Markmið þessara fundarhalda var að finna leið til vinsamlegrar lausnar á skoðanaágreiningi þeim, er þróast hafði frá því um árslok 1980 í sambandi við starfsemi ís- lenska álfélagsins hf. (ÍSALs), og að koma á aftur hinni góðu sam- búð sem ríkt hafði milli aðilanna á liðnum árum og að leggja grund- völl að gagnkvæmum og hagfelld- um samskiptum í framtíðinni. Aðilarnir hafa nú náð sam- komulagi í meginatriðum sem skipta má í þrjá þætti: I fyrsta lagi munu aðilarnir skipa óháðar dómnefndir til að leysa úr þeim ágreiningsmálum, sem nýlega var vísað til gerðar- dómsmeðferðar hjá ICSID-stofn- uninni samkvæmt núverandi samningum. I öðru lagi samþykktu aðilarnir að taka upp viðræður um endur- skoðun á samningum sín í milli, þar sem meðal annars yrði fjallað um: • verð á samningsbundnu raf- magni, • verðtryggingu á orkuverðinu, • gildistíma á endurskoðuðum rafmagnssamningi, • samningsákvæðin um skatta- mál, • hugsanlega stækkun álbræðsl- unnar, • heimild handa ríkisstjórninni til að gerast hluthafi í ISAL, og • heimild handa Alusuisse til að gefa einum eða fleiri sameign- araðilum kost á að eignast allt að 50% hlutafjár í ÍSAL. I þriðja lagi, til að greiða fyrir þessari endurskoðun, hafa aðil- arnir samþykkt að gera tilteknar bráðabirgðaráðstafanir, þar sem ÍSAL fellst á að greiða viðbótar- álag á núverandi orkuverð. Aðilarnir munu stefna að því að ljúka endurskoðun samninga svo fljótt sem unnt er til hagsbóta fyrir báða.“ Iðnaðarráðuneytið: Um 10 milla raforkuverð, þ.e. um 136 millj. kr. tekjuaukning á ári Eftirfarandi fréttatilkynningu sendi iðnaðarráðuneytið frá sér í gær vegna bráðabirgðasamningsins við Alusuisse: „Um nærri þriggja ára skeið hafa staðið yfir alvarlegar deilur milli ís- lenskra stjórnvalda og Alusuisse um skattamál íslenska álfélagsins, og hefur Alusuisse vísað þeirri deilu í alþjóðlegan gerðardóm, sem vænt- anlega mun ekki skila niðurstöðu fyrr en að nokkrum árum liðnum, og verður kostnaður af málarekstrinum væntanlega gífurlegur. Jafnframt hefur enginn árangur náðst á und- anförnum árum í því að fá endur- skoðun þeirra ákvæða samninganna um rekstur álbræðslunnar í Straumsvík, einkum orkuverðsins, sem eru orðin Islendingum óhag- stæð, sérstaklega eftir hækkanir orkuverðs út um allan heim í kjölfar síðari olíuverðshækkananna á árun- um 1978-1979. Út úr þessari sjálfheldu, sem orð- in er íslendingum afar dýr í töpuð- um tekjum af orkusölu, taldi ríkis- stjórnin óhjákvæmilegt að brjótast með þeim samningum, sem hún hef- ur samþykkt fyrir sitt leyti að gera við Alusuisse. Sá samningur, sem nú liggur fyrir, er þó eingöngu fyrsta skrefið í þá átt að endurskoða samn- inga Islendinga og Alusuisse um rekstur álbræðslunnar í Straumsvík, í ljósi breyttra viðhorfa og þróunar í orku- og iðnaðarmálum hin síðari ár. Hér er um að ræða bráðabirgða- samkomulag, sem færir Islendingum auknar tekjur af rekstri álbræðsl- unnar, en opnar lim leið brautina til þess að hefja samninga, er leitt geti bæði til meiri tekna fyrir íslendinga af rekstri bræðslunnar í núverandi stærð og verulegrar stækkunar hérinar. Bráðabirgðasamningur sá, sem nú liggur fyrir, skiptist í þrjá megin- þætti. Meðferð og lausn deilumála Aðilar hafa orðið sammála um að taka skattadeilu aðila út úr hinum alþjóðlega gerðardómi, sem henni var vísað í, en leysa hana í stað þess með fljótvirkari hætti. Verða skip- aðar þrjár dómnefndir (gerðardóm- ar) til þess að fjalla um eintaka þætti deilunnar. I fyrstu nefndinni, sem í munu sitja þrír Iögfræðingar, einn frá hvorum aðila, auk oddamanns, sem hinir nefndarmennirnir eiga að koma sér saman um, og skal hvorki vera Islendingur eða Svisslendingur. Skal þessi nefnd fjalla um lagaleg ágreiningsefni varðandi túlkun samninganna um viðskipti milli óháðra aðila og verð á hráefnum. Einnig skal hún fjalla um rétt til afturvirkrar skattlagningar. I annarri nefndinni skulu sitja þrír íslenskir skattasérfræðingar. Skulu aðilar skipa sinn manninn hvor í nefndina, en þeir síðan koma sér saman um oddamann. Þessi nefnd skal fjalla um skattatæknileg atriði, sem um er deilt, svo sem af- skriftir af gengistöpum, afskriftar- tíma búnaðar til mengunarvarna og fleira. I þriðju nefndinni skulu eiga. sæti ríkisendurskoðandi og hinir kjörnu endurskoðendur ÍSAL (með eitt at- kvæði) og óháður endurskoðandi, sem aðilar koma sér saman um. Skal þessi nefnd úrskurða um endur- reikning á framleiðslugjaldi ISALs, sem nauðsynlegir kunna að verða vegna úrskurða, sem fyrir liggja frá hinum nefndunum tveimur. Af þessu er ljóst, að meðferð deilumálanna mun að verulegu leyti verða í höndum íslenskra sérfræð- inga og er það verulegur kostur mið- að við þann alþjóðlega gerðardóm, sem málið er nú í. Endurskoðun samninga — Stækkun álbræðslunnar Með bráðabirgðasamningunum fallast aðilar á að taka upp samn- inga um víðtæka endurskoðun á þeim samningum, sem nú eru í gildi þeirra í milli, þrátt fyrir það að eng- inn endurskoðunarákvæði séu nú í þeim. I fyrsta lagi munu þeir taka upp samninga um endurskoðun orku- sölusamningsins, þar sem haft verði til hliðsjónar orkuverð t.il ál- bræðslna í Evrópu og Ameríku, en auk þess samkeppnisaðstaða ál- bræðslu á íslandi. Gert er ráð fyrir, að orkuverð samkvæmt hinum nýja samningi verði fullverðtryggt miðað við umsaminn grundvöll og að hinir endurskoðuðu samningar gildi í upp-' hafi í fimmtán ár. Verður því fyrst og fremst að því stefnt, að orkuverð til álframleiðslu hér á landi verði í fullu samræmi "rið sambærilegar ál- bræðslur erlendis og tryggi Islend- ingum eðlilegar verðtryggðar tekjur. I öðru lagi er gert ráð fyrir að taka skattaákvæði aðalsamningsins til endurskoðunar í því skyni að gera skattlagningu einfaldari og örugg- ari, svo að hægt verði að komast sem mest hjá deilum um þau efni í fram- tíðinni, sem skaðað geti sambúð að- ila. I þriðja lagi er gert ráð fyrir, að teknir verði upp samningar um stækkun álbræðslunnar í tveimur áföngum, þar sem fyrsti áfanginn kæmi til framkvæmda á árunum 1987 og 1988. Engar skuldbindingar eru þó gefnar um heimild til slíkrar stækkunar, sem yrði háð samkomu- lagi aðila, m.a. um viðunandi orku- verð. I fjórða lagi er gert ráð fyrir, að Alusuisse fái heimild til þess að selja allt að 50% af hlutafé sínu til þriðja aðila, sem ríkisstjórn íslands samþykkir. Ennfremur að hlutafé Alusuisse megi vera í höndum dótt- urfyrirtækis eða dótturfyrirtækja í þess eigu. Báðar þessar breytingar eru háðar samþykki Alþingis, og munu þær ekki koma til fram- kvæmda, nema samningar takist um hina fyrirhuguðu heildarendurskoð- un gildandi samninga milli aðila. Loks er ákvæði um það, að samið verði um rétt íslenska ríkisins til þess að eignast hlutafé í íslenska ál- félaginu. Hækkun orkuverðs Til þess að greiða fyrir viðræðum um endurskoðun samninganna, hafa aðilar komið sér saman um, að ÍSAL greiði álag á núgildandi orkuverð, þangað til samkomulag um endur- skoðun hefur náðst og á meðan bráðabirgðasamningurinn er í gildi. Samkvæmt þessu mun gildandi orkuverð hækka úr 6,475 millum á kwst í 9,5 mill við undirskrift bráða- birgðasamkomulagsins. Auk þess mun bætast við hálft mill, þannig að verðið verði 10 mill, þegar álverð á málmarkaðnum í London hefur náð 78 centum í 20 daga samfleytt, en verðið hefur farið hækkandi að und- anförnu, og hefur það síðustu dag- ana numið 76—77 centum á pund. Má því fastlega gera ráð fyrir þess- ari bækkun áður en langt upi líður. Þessu til viðbótar verður eitt mill af raforkuverðshækkuninni afturvirkt til 1. júlí sl. I heild má því telja nær fullvíst, að samningurinn tryggi ís- lendingum frá gildistíma sínum að meðaltali um 10 milla raforkuverð, en það jafngildir um 54% hækkun frá núgildandi verði. Á ársgrund- velli er tekjuaukning Landsvirkjun- ar af því raforkuverði 136 milljónir kr. á núgildandi gengi. TJM samanþurðar við þetta bráða- birgðaorkuverð er á það að benda, að meðalverð á orkusölu ríkisrafveitn- anna í Noregi til álbræðslna cr nú 9,5 mill, en SORAL, dótturfyrirtæki Alusuisse í Noregi, greiðir nú 9,9 mill á kwst, og er það verð fastbund- ið til 1. júlí 1987. Það má því segja, að í þessum fyrsta áfanga samning- anna hafi náðst jafnstaða við raf- orkuverð til áliðnaðar í Noregi, en Norðmenn eru sem kunnugt er stærstu álframleiðendur í Evrópu og helstu keppinautar á Evrópumark- aði við framleiðslu á (slandi. Samningstími og fleira Það er meginmarkmið samnings- aðila, að bráðabirgðasamkomulagið verði í gildi, þangað til heildarend- urskoðun gildandi samninga er lok- "ið. Stefnt er að lúkningu þeirra 1. apríl nk. en þó er ljóst að þar er um þröng tímamörk að ræða. Allt kapp verður þó lagt á að hraða samning- unum. Til öryggis hafa báðir aðilar J)ó heimild til þess að segja bráða- birgðasamkomulaginu upp að níu mánuðum liðnum, og er uppsagnar- frestur þá þrír mánuðir, sem nota skal til að reyna til þrautar að ná samkomulagi. Þrátt fyrir þá viðbót við núgild- andi orkuverð, sem í bráðabirgða- samkomulaginu felst, er ekki um formlega breytingu á orkusölusamn- ingi Landsvirkjunar og ÍSAL að ræða. Hins vegar mun ríkisstjórnin leita samþykkis Landsvirkjunar fyrir þeim ákvæðum, sem hana varð- ar, áður en samningurinn verður undirritaður, en það er fyrirhugað að geti orðið 23. þ.m. Athugasemdir vegna bráðabirgöasam- komulags við ÍSAL 1) Verði af því samkomulagi sem nú liggja drög að, lækkar rekstrarhalli Landsvirkjunar á árinu 1983 úr u.þ.b. 180 Mkr. í 130 Mkr. Greiðslu- hallinn lækkar þá úr tæpum 90 Mkr. í tæpar 40 Mkr. Reiknað er með óbreyttu heildsöluverði til rafveitna út árið. 2) Ef ekki er gert ráð fyrir meiri hækkun til almenningsveitna á næsta ári, en samsvarar verðbólgu, áætlast rekstrarhalli ársins 1984 án bráðabirgðasamkomulagsins u.þ.b. 180 Mkr. Til að ná hallalausum rekstri þyrfti Landsvirkjun þá að hækka orkuverð til almennings- veitna um 10,6%. Með bráðabirgða- samkomulaginu aukast tekjur Landsvirkjunar af sölu til ÍSAL og Áburðarverksmiðjunnar út árið 1984, um nærri 160 Mkr. Þörf fyrir hækkun heildsöluverðs til almenn- ingsveitna umfram verðbólgu yrði því óveruleg. Náist hinsvegar samn- ingar um enn frekari hækkanir á ár- inu 1984, gæti orðið um að ræða minni lántökur í erlendum gjaldeyri eða lækkun raungildis á orkuverði til almenningsveitna. 3) Ef upphaflega hefði verið samið í S.Fr. og ekki endursamið 1975, væri orkuverðið nú 6,2 mill. 4) Ef upphaflega hefði verið samið um verðtryggingu samkvæmt bandarískri vísitölu byggingakostn- aðar og ekki endursamið 1975, væri orkuverðið nú u.þ.b. 8 mill. — 5) Skýrsla Orkustofnunar um áhrif ÍSALsamningana á orkuverð til al- menningsveitna, sýnir mikinn hagn- að af þessum samningum, svo langt fram í tíman sem menn gátu séð 1965. Ef orkuverð hækkar ekki nú, myndi samkvæmt skýrslunni ávinn- ingur Landsvirkjunar af samning- unum 1965 eyðast innan tíðar. 6) Meðalverð raforku til álvera í heiminum hefur farið lækkandi und- anfarið af þrem ástæðum. Orkuverð er niðurgreitt til að tryggja sam- keppnisstöðu, álver með dýra raf- orku loka eða draga úr framleiðslu, og verð í ýmsum löndum lækkar í millum talið vegna gengisbreytinga. Meðalverðið er nú u.þ.b. 17 mill. Ef reiknað væri með, að öll álver væru rekin á fullum afköstum, fengist tal- an 22 mill, en sú forsenda gæfi ranga mynd af raunverulegu verðlagi. 7) Orkuverð til Husnes í Noregi er nú 9,9 mill. Meðalverð orku frá ríkis- orkuverunum til álvera hefur lækk- að vegna gengisbreytinga úr 11 mill- um í 9l/fe mill undanfarið ár, en þar af fara menn nærri 3'A mill í skatt til ríkisins, svo orkuverin fá aðeins rúm 6 mill. Álverin fullnægja % orkuþarfar sinnar frá eigin orkuver- um og reikna sér mun lægra verð fyrir þá orku. Raunverulegt meðal- orkuverð er því töluvert lægra, lík- lega nálægt 8 mill. 9) Franskt álver (300 000 tonn/ár) 1 byggingu í Quebec fær allt að 60% afslátt frá taxta fyrstu 5 árin. Orku- verð verður rúm 5 mill til að byrja með og Canadamenn telja, að eftir- gjöfin samsvari alls 120 milljónum dollura. 10) Orkuverð til álvera í heiminum er mjög breytilegt. Meðfylgjandi línurit lýsir á grófan hátt hversu breytilegt það var 1981. Einnig er sett á myndina meðalorkuverð á nokkrum svæðum og sýnir breidd súlnanna nokkurn veginn hve stór hlutur viðkomandi svæðis er í heild- arframleiðslu heimsins af áli. Japan hefur, vegna hins háa«»orkuverðs, dregið verulega úr framleiðslu frá því sem myndin sýnir, en framleiddi áður nær jafn mikið og Canada. Einnig hefur framleiðslan á svæði TVA í Bandaríkjunum dregist mikið saman.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.