Morgunblaðið - 14.09.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983
33
„Við munum leggja okkur alla
fram í leiknum gegn IA“
„VIÐ MUNUM leggja okkur alla
fram í leiknum gegn ÍA við van-
metum aldrei nein lið og allra síst
í Evrópukeppni, slíkt kann ekki
góðri lukku að stýra. Við rákum
okkur á þaö í keppninni f fyrra
þegar við lékum við Tirana frá
Albaníu. Við áttum von á frekar
léttum leik en lentum í mestu erf-
iðleikum," sagöi Alec Ferguson
framkvæmdastjóri Aberdeen í
spjalli við Mbl. í g»r. Ferguson
var þá með leikmönnum sínum á
æfingu í Laugardalnum. Hann
hljóp og tók léttar æfingar með
leikmönnum og var léttur á sér.
Við spuröum Ferguson hvort
hann myndi stilla sterkasta liöinu
upp gegn ÍA.
— Já, þaö mun ég gera, en þó
er einn af okkar bestu leikmönnum
ekki meö okkur. Gordon Strachan
er meiddur og kom ekki hingað til
lands. Hann meiddist illa á ökkla
og verður frá æfingu og keppni í
þaö minnsta í þrjár vikur. Þaö er
snjall leikmaöur sem áhorfendur
heföu haft gaman af aö sjá.
— En þaö munu sterkir leik-
menn veröa meö á morgun. Sér í
lagi eigum viö sterka varnarmenn.
Þeir eru á heimsmælikvaröa. Willie
Miller til dæmis, takið eftir honum.
Ertu ánægöur meö frammistööu
liösins þaö sem af er keppnistíma-
bilinu?
— Ég er svona sæmilega
ánægöur meö frammistööu minna
manna. Viö fórum til V-Þýskalands
• Bobby Ferguson fram-
kvæmdastjóri Aberdeen hefur
náð meiriháttar árangri með liö
sitt. Hann var vel búinn í nepjunni
í Laugardalnum í gærdag er lið
hans æfði þar.
og lékum þar 10 leiki áöur en sjálf
deildarkeppnin hófst og þar stóö-
um við okkur vel. Nú, viö höfum
skoraö níu mörk í þremur leikjum í
deildarkeppninni í Skotlandi og
ekki tapaö leik. Viö vorum
óheppnir aö tapa stigi á móti
Motherwell. Þaö var klaufalegt.
Þrjú bestu liöin núna í Skotlandi
eru án efa Dundee, Aberdeen og
Celtic. Þau munu berjast um titil-
inn á keppnistímabilinu.
Pór 70 ára
Elsta starfandi íþróttafélagiö í
Vestmannaeyjum, íþróttafélagiö
Þór, heldur hátíðlegt 70 ára af-
mæli félagsins um þessar mund-
ir. íþróttafélagiö Þór var stofnaö
9. september 1913 og á sjálfan
afmælísdaginn, sl. föstudag, hólt
félagíð veglegt afmælishóf þar
sem þessum merku tímamótum
var fagnað og var þar mikið fjöl-
menni saman komiö í hátíðar-
skapi. Félaginu bárust fjölmargar
gjafir og árnaöaróskir og ýmsir
félagsmenn voru heiöraðir.
Þórarar hafa gefiö út mjög
vandað og fjölbreytt afmælisrit þar
sem rifjaöir eru upp í máii og
myndum ýmsir kaflar úr langri
sögu félagsins.
Á upphafsárum Þórs var ein-
göngu lögö stund á glímu en síöar
bættust fleiri íþróttagreinar viö í
starfi félagsins og hafa nær allar
heföbundnar íþróttagreinar, sem
stundaöar hafa veriö hér á landi,
verið iökaöar innan Þórs í gegnum
tíöina. Nú síöustu árin hafa knatt-
spyrna og handknattleikur veriö
aöalgreinarnar hjá félaginu.
Fyrsti formaöur Þórs var Georg
Gíslason en núverandi formaöur
félagsins er Friörik Karlsson.
— hkj.
Getrauna- spá MBL. .■2 J JQ e & c S Sunday Mirror Sunday People 1 h. & «8* 1 S News of the World f 1 H £ -O B z SAMTALS
Birmingham — Ipswirh 2 X X 2 X 1 1 3 2
Coventry — Leicester 1 i í 1 1 X 5 1 0
Liverpool — Aston Villa 1 í í 1 1 1 6 0 0
Luton — Wolves X í í 1 1 X 4 2 0
Norwich — Nott. Forest 1 X X X X 2 1 4 1
Notts County — Arsenal X 1 1 2 X X 2 3 1
QPR - Sunderland 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Southampton — Man. Utd. 1 X X X X 2 1 4 1
Stoke — Watford 1 1 1 X 1 1 5 1 0
Tottenham — Everton 1 X 1 2 1 X 3 2 1
WBA — West Ham X 2 2 2 X 2 0 2 4
Fulham — Leeds X X 2 X 1 X 1 4 1
Hvernig mun liö Aberdeen leika
á morgun?
— Viö munum leika 4-3-3, og
leika sóknarleik. Viö berum samt
fulla virðingu fyrir andstæðingum
okkar. En mörk verðum viö aö
skora. Ég vona bara aö þaö veröi
ekki svona mikiö rok á morgun.
Þaö eyöileggur alltaf mikiö. Ef
leika á góöa knattspyrnu veröa
skilyröin aö vera góö, sagöi hinn
geöþekki framkvæmdastjóri sem
geröi Aberdeen aö Evrópumeistur-
um bikarhafa á síöasta keppnis-
tímabili. — Ferguson sagði jafn-
framt aö lið hans myndi leggja
ofurkapp á aö standa sig vel í Evr-
ópukeppninni í ár. Þaö væri þeim
mikils viröi aö ná langt þar.
— ÞR.
Sigruðu Real Madrid
í úrslitum 2—1
ABERDEEN Football Club var
stofnað í október 1881. Áriö 1903
voru tvö önnur félög í borginni
sameinuö Aberdeen FC og félag-
ið gert aö hlutafélagi. Er stofnun
félagsins venjulega miöuð viö
þetta ártal.
Áriö 1947 vann félagiö sinn
fyrsta meiriháttar titil, er þaö bar
sigur úr býtum í skozku bikar-
keppninni. Þá keppni vann félagiö
einnig árin 1970, 1982 og 1983.
Skozka meistaratitilinn vann Ab-
erdeen 1955 og 1980 og skozka
deildarbikarinn 1946, 1956 og
1977. Hápunkturinn í sögu félags-
ins var svo sigur þess í Evrópu-
keppni bikarmeistara sl. vor, er
þaö lagöi Real Madrid aö velli í
úrslitaleik, 2:1.
Leikvangur Aberdeen heitir Pit-
todrie Stadium og tekur hann 24
þúsund manns í sæti. Þetta er
fyrsti leikvangurinn á öllum Bret-
landseyjum, sem tekur alla áhorf-
endur í sæti. Mesti áhorfendafjöldi
félagsins var í bikarleik gegn
Hearts 1954, en þá komu 45.061
áhorfandi á völlinn. Stærsti sigur
Aberdeen var í leik gegn Peter-
head 1923, 13:0.
Sigruðu KR10-0
ABERDEEN tók í fyrsta sinn þátt í I
Evrópukeppninni árið 1968. Mót-
herjarnir þá voru einnig íslenzkt
lið, KR. Ekki sóttu Vesturbæ-
ingarnir gull í greipar Skotanna, |
því Aberdeen vann samanlagt |
14:0, þ.e. 4:0 í Reykjavík og 10:0 í
Aberdeen. Fyrirliöi Aberdeen var
þá hinn kunni leikmaður Martin
Buchan, aöeins 18 ára gamall, en
hann gerði síöan garðinn frægan
hjá Manchester United.
Ómar vann tvöfalt
OPNA Volvo-mótið fór fram í
Grafarholti um sl. helgi, 10. og
11. þ.m. Bakhjarlinn að þessu
móti er Veltir hf„ sem gaf öll
verðlaun til mótsins. Þátttak-
endur í mótinu voru 144, og er
þetta því fjölmennasta golfmót
sumarsins á landinu, aö Lands-
móti undanskildu. Úrslit uröu
þessi:
Karlar án forgjafar
1. Ómar Kristjánsson GR 75
2. Peter Salmon GR 80
3. Knútur Björnsson GK 81
Konur án forgjafar
1. Hanna Aöalsteins NK 91
2. Guörún Eiríksdóttir GR 96
3. Kristine Eide NK 97
Öldungar án forgjafar
1. Svan Friögeirsson GR 78
2. Jóhann Eyjólfsson GR 81
3. Hafsteinn Þorgeirsson GK 81
Unglingar án forgjafar
1. Sigurjón Arnarsson GR 69
2. Karl Ó. Karlsson GR 76
3. Helgi Eiríksson GR 77
Karlar meö forgjöf
1. Ómar Kristjánsson GR 7+5=68
2. Ólafur Guójónsson GR 85+15=70
3. Eyjólfur Magnússon GR 95+23=72
Konur meö forgjöf
1. Kristine Eide NK 97+28=69
2. Hanna Aöalsteins NK 91+16=75
3. Guörún Eiríksdóttir GR 96+21=75
Öldungar meö forgjöf
1. Arnkell B. Guömundss. GR 85+17=68
2. Svan Friögeirsson GR 78+10=68
3. Ingólfur Isebarn GR 87+17=70
Unglingar meö forgjöf
1. Sigurjón Arnarsson GR 69+ 8=61
2. Daviö Steingrímsson GR 83+21=62
3. Jón Þ. Rósmundsson GR 80+16=64
Á myndinni eru samankomnir
allír verðlaunahafar á mótinu.
25 með
12 rétta
í 3. leikviku Getrauna komu
fram 25 raðir með 12 réttum
og var vinningur fyrir hverja
röð kr. 11.065.- Með 11 rátta
reyndust vera 474 raðir og
vinningur fyrir hverja röð kr.
250.-.
Sala íþróttafélaganna á
getraunaseölum hefur veriö
verulega meiri í haust en var
sl. haust og í þremur fyrstu
leikvikunum hafa selzt 21%
fleiri raöir en var haustiö 1982.
Skíðaþjálfarar
Ármanns
SKÍDADEILD Ármanns hefur
nú ráðið til sín tvo þjálfara
fyrir næsta keppnistímabil,
þá Hans Kristjánsson og
Tómas Jónsson. Þeir eru
báöir íþróttakennarar og hafa
aflað sér mikillar þekkingar á
skíðaþjálfun.
Hefur þeim veriö faliö aö
skipuleggja og sjá um alla
þjálfun deildarinnar.
Undirbúningsæfingar eru
þegar hafnar hjá öllum flokk-
um og mikill hugur í fólki. Upp-
lýsingar um æfingar er aö fá í
Armannsheimilinu, hjá Hans í
síma 36400 og hjá Tómasi í
síma 46541.
Shaw frá í
þrjár vikur
GARY Shaw, framherjinn
snjalli hjá Aston Villa, meidd-
ist í síðustu viku og getur
hann ekki leikíö meö liöinu
næstu þrjár vikurnar. Hann
meiddist á hné í leiknum
gegn Forest. Allar líkur eru á
því að stöðu hans taki hinn
ungi Paul Rideout, sem kom
inn á sem varamaöur í 45
sekúndur gegn Forest.
Bobby McDonald, sem var
rekinn frá Manchester City
fyrir nokkru vegna „nætur-
ævintýris", hefur nú gert
tveggja ára samning viö Ox-
ford.
• Gary Shaw
Enskir punktar:
OPIÐ TIL SJÖ1KVÖLD Yörumarkaðurinn hi. eiðistorgih %
mánudaga — | ariðjudaga - — miðvikudaga