Morgunblaðið - 14.09.1983, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983
Ný heilsugæslustöð tekin
í notkun á Reykhólum
MiAhúsum, Barrtastramlarsýshi, 12. september.
SÍÐASTLIÐINN laugardag var ný
hoilsuga'.slustöA opnuð á Reykhól-
um. Húsið er 115 m2 að grunnfleti,
og á einni hæð. Skjöldur Stefáns-
son formaður Heilsugæslustöðvar-
innar í Búðardal bauð gesti vel-
komna, en þeir voru flestir að-
komufólk. Matthías Bjarnason heil-
brigðisráðherra lýsti aðdraganda
byggingarinnar, og lýsti því yfir að
húsið væri tekið í notkun. Húsið er
vel gert að sjá, og verður allt húsið
nýtt í þágu þeirra er þangað þurfa
að leita.
Síðan var gengið til veislu, sem
haldin var í Reykhólaskóla, og
undirbúin af konum í Kvenfélag-
inu Liljunni, af mikilli smekkvísi.
Pétur Þortseinsson sýslumaður
Dalamanna var veislustjóri og
stjórnaði hann þannig, að veislan
SUMARVEÐRÁTTA var hér allgóð eft-
ir kalt og gróðurlaust vor. Skiptust á
skúradagar og sólskinsdagar I sumar
löngum og þótti bændum heyskapartíð
nokkuð óstöðug. Heyskapur hófst þó
nokkuð almennt síðast f júlímánuði, f
14. og 15. viku sumars, og lauk honum
yfirleitt nú um mánaðamótin. Hey eru
talin allgóð. Einn dumbungsdag um
miðjan júlí snjóaði hér í fjöll.
Mikil umferð ferðafólks hófst hér
ekki fyrr en á miðju sumri og var
mest sótt í Ásbyrgi og Jökulsárgljúf-
ur eftir venju. Voru þar oft miklar
var bæði skemmtileg og fróðleg.
Ræðumenn voru þingmenn Vest-
firðinga, þeir Matthías Bjarnason,
Ólafur Þórðarson, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson og Karvel
Pálinason. Af hálfu þingmanna
Vesturlands talaði Friðjón Þórð-
arson, og auk hans voru þarna
mættir Skúli Alexandersson og
Eiður Guðnason. — Friðjón Þórð-
arson stjórnaði einnig almennum
söng.
Vilhjálmur Sigurðsson oddviti
Reykhólahrepps rakti læknasögu
hreppsins. Þar kom í ljós að
byggðarlagið hefur gengið niður
stigana ef svo má að orði komast,
og var komið niður í neðsta þrep
hans, en vonandi verður hægt að
snúa við og ganga upp nýjan og
betri stiga. Hrepparnir hér áttu
læknishúsið gamla, en ríkið tók
tjaldborgir. Ferðamenn sem sér-
staklega koma til að skoða miðnæt-
ursólina voru þó fyrr á ferð.
Heldur gekk erlendu flugdreka- og
kajakagörpunum báglega í Jökuls-
árgljúfrum. Vildi Jökla kerling ekki
þýðast þá og fengu þeir þar illar
skrokkskjóður.
Nú anda menn léttara eftir sæmi-
legt sumar og vonast eftir góðu
hausti, en senda þó um leið Sunn-
lendingum sföbúnar heyskapar-
kveðjur.
Sigurvin
við því með þeim kvöðum og
skyldum, sem á því hvíldu. Nú er
móttaka fyrir sjúklinga komin, og
aðstaða fyrir starfsfólk, en enn
vantar að byggja læknisbústaðinn,
eða á nútímamáli fullkomna
heilsugæslustöð. Þegar ákveðið
var að byggja þetta nýja hús var
læknishúsið selt, árið 1981, og
keypti Þörungavinnslan það fyrir
starfsfólk. Sigurbjörn Sveinsson
læknir talaði um læknishéraðið,
en hann er ásamt Gunnari Jó-
hannessyni læknir Heilsugæslu-
stöðvarinnar í Búðardal, og koma
þeir hingað' einu sinni í viku og
oftar þegar þörf krefur. Héraðs-
hjúkrunarkonan hér er Ingibjörg
Kristjánsdóttir í Garpsdal í
Geiradal, og kemur hún hingað í
Reykhóla tvisvar í viku og er hún
oft fyrst á vettvang þegar bráð
þörf er.
Kveðjur bárust í veisluna frá
Alexander Stefánssyni félags-
málaráðherra, og Svavari Gests-
syni fyrrverandi ráðherra, og
Ingibjörgu Árnadóttur, ritstjóra
Tímaritsins Hjúkrunar. Áhugi
þingmanna beggja kjördæma var
fyrir því að bæta samgöngur milli
héraða, og var vegurinn yfir Giis-
fjörð þar til nefndur, og í léttum
tón á það minnst að gaman væri
að sjá hvort kjördæmið yrði á
undan að leggja sinn helming veg-
arins!
I sjálfu sér er það ekki frétt-
næmt, að undirritaður er búinn að
skrifa fréttir héðan í 28 ár, og er
þetta í fyrsta skipti, sem honum
hefur verið boðið sem slíkum á
mannamót hér. Þökk sé þeim er
fyrir því boði stóðu, heill og ham-
ingja fylgi lækningahúsinu á
Reykhólum og starfsfólki þess.
— Sveinn
Sæmilegt sumar-
veður f Oxarfirdi
SkinnasUA, Öxarfirdi, 3. september.
Steinn Sveinsson eigandi Flutningamiðlunarinnar í nýju húsnæði fyrir-
tækisins. Ljósm. Mbl./ Friðþjófur.
Flutningsmiðlun-
in opnar þjónustu-
aðstöðu í miðbænum
Flutningsmiðlunin hefur nú
flutt í nýtt húsnæði í Tryggvagötu
26, gegnt Tollstöðinni. Fyrirtækið
sér um þjónustu við inn- og út-
flytjendur og er eina íslenska
fyrirtækið sem sérhæfir sig í
flutningum erlendis.
Flutningsmiðlunin hefur sam-
starf við 140 vörumiðstöðvar í
ýmsum borgum og bæjum í
V—Evrópu og auk þess við
stöðvar í Bandaríkjunum, Aust-
urlöndum fjær og víðar. Flutn-
ingsmiðlunin býður upp á full-
komna hús til hús þjónustu því
að ef viðskiptavinur óskar þess
þá getur hann fengið alla þjón-
ustu tengda flutningum þannig
að það er nóg fyrir hann að
panta vöruna, Flutningsmiðlun-
in sér um afganginn, þ.e. fylgja
pöntunni eftir, koma vörunni
heim á sem hagkvæmastan
hátt, gera tollskýrslur, leysa
vöruna út úr tolli og flytja hana
á áfangastað. Flutningsmiðlun-
in býður viðaskiptavinum sín-
um að auki upp á endursend-
ingarþjónustu, og aðgang að
telexi og ljósritun.
Adferðin skiptir
ekki máli heldur
að fólk grennist
— Rætt við Samm Sinclair Baker,
höfund mest seldu megrunarbókar
allra tíma, Scarsdale-kúrsins
„Ég vann við augiýsingagerð í tuttugu ár á meðan ég hafði fyrir stórri fjölskyldu að sjá. Alltaf langaði
mig þó að skrifa bækur — enda hafði ég skrifað níu bækur þegar ég ákvað að hætta auglýsingavinnunni
og snúa mér alfarið að ritstörfum.“
Það er Sam Sinclair Baker,
annar tveggja höfunda bókarinn-
ar um „Scarsdale-kúrinn", sem
segir frá. Tuttugasta og niunda
bók hans kemur út vestanhafs í
nóvember og ber sú heitið „The
Delicious Quick-Trim Diet“.Það
verður fimmtánda bókin sem
Baker skrifar í félagi við aðra —
áður hafði hann skrifað fjórtán
bækur einn, langflestar leiðbein-
ingarbækur, eða það sem landar
hans kalla „how to“-bækur. Sú
frægasta er vitaskuld bókin um
Scarsdale-kúrinn, sem kom út í
íslenskri þýðingu fyrr á þessu ári.
Sú bók er mest selda megrun-
arbók allra tíma. Næst mest
selda megrunarbók í heimi var
einnig eftir Sam Baker og áður
hafði hann skrifað fimm metsölu-
bækur um megrunaraðferðir með
kunnum bandarískum lækni, dr.
Irwin Stillman. Scarsdale-kúrinn
hefur kannski orðið hvað fræg-
astur fyrir það, að meðhöfundur
Bakers, dr. Herman Tarnower,
var myrtur þegar bókin var kom-
in í efsta sæti bóksölulista New
York Times. Morðinginn var ást-
kona læknisins, Jean Harris að
nafni, sem nú afplánar lífstíðar
fangelsisdóm fyrir glæpinn. Mál-
ið vakti feiknarlega athygli vest-
anhafs, ekki síst fyrir það að ekki
einasta var dr. Tarnower orðinn
frægur fyrir Scarsdale-kúrinn
heldur var Jean Harris skóla-
stýra virðulegs kvennaskóla í
Connecticut-fylki og mátti ekki
vamm sitt vita.
Sam Sinclair Baker er staddur
hér á landi þessa dagana til að
kynna frekar bók sína um
Scarsdale-kúrinn. Hann er maður
nærri sjötugu, lágvaxinn og bros-
mildur — og tekur greinilega
mark á eigin ráðum um matar-
æði, því ekki er að merkja á hon-
um óþarfa kíló. Við byrjuðum á
að spyrja hann hvort morðið á dr.
Tarnower hefði haft örvandi
áhrif á sölu bókarinnar.
„Nei,„ svaraði hann. „Ég lét
kanna það alveg sérstaklega
fljótlega eftir lát Tarnowers, en
þá var bókin þegar í efsta sæti
bóksölulistans. Sölustjórinn hjá
Bantam-bókaforlaginu kannaði
það fyrir mig og eftir nokkrar
vikur hringdi hann aftur og
sagði: Engin breyting. Fólk kaup-
ir þessa bók greinilega vegna þess
að það hefur áhuga á að léttast,
ekki vegna þess að annar höfund-
urinn varð fómarlamb í ástar- og
afbrýðisdrama. Það gladdi mig
mikið því fyrir okkur vakti það
eitt að hjálpa fólki að léttast.“
Baker átti sjálfur hugmyndina
að The Complete Scarsdale Med-
ical Diet, eins og bókin heitir á
frummálinu. Þá var dr. Stillman
látinn í hárri elli en Herman
Tarnower virtur læknir og einn
stofnanda Scarsdale-læknamið-
stöðvarinnar í Connecticut, þar
sem hann starfaði við sína sér-
grein, hjartalækningar. „Hann
hafði þá í hartnær tvo áratugi
gefið fólki góð ráð um mataræði,"
sagði Baker í spjalli okkar, „og
jafnan gefið sjúklingum sínum
tillögur að hitaeiningasnauðu
fæði á einu blaði. Blaðamaður á
New York Times hafði komist yf-
ir listann og birt hann og smám
saman spurðist ágæti hans út. Ég
setti mig í samband við dr. Tárn-
ower og við ákváðum að skrifa
saman bók. Hann taldi í fyrstu
fráleitt að hægt væri að skrifa
bók upp úr þessari einu síðu sinni
en ég dró þá upp hugmyndir mín-
ar og sagðist halda að við værum
með efni í þrjár bækur! Við gerð-
um svo með okkur herramanna-
samkomulag um að ég yrði skrif-
arinn, hann sérfræðingurinn og
eftir þrjá mánuði var bókin til-
búin. Venjulega er ég átta eða níu
mánuði að skrifa hverja bók en
útgefandinn lagði mjög hart að
okkur með að skila handritinu
sem fyrst, því eftirspurn var mik-
H.“
Öðru vísi mér áður brá, gat
Baker sagt á þeim tíma og minnst
fyrstu megrunarbókarinnar, sem
hann skrifaði með Irwin Stillman
— sextán útgefendur höfnuðu
henni áður en hún fékkst útgefin
— og varð mest selda megrunar-
bók allra tíma. Þangað til Scars-
dale-kúrinn kom út. „Það er eng-
inn leyndardómur í þessu,“ sagði
Baker, „fyrst og síðast verður
maður að hugsa um markmiðið,
sem er að fólk léttist. Og ástæðan
fyrir því að okkar bók hefur orðið
vinsælli en aðrar er sú að við ger-
um ráð fyrir fjölbreyttu fæði —
fólki má ekki leiðast á meðan það
grennir sig; megrun felur í sér
fórn út af fyrir sig. Og við hótum
fólki ekki öllu illu eins opg sumir
aðrir hafa gert — þeir segja sem
svo: gerðu eins og ég segi þér því
annars ertu dauður eftir viku.
Mér er alveg sama hvaða aðferð
fólk notar - aðalatriðið er að það
grennist. En bókin heldur áfram
að seljast mjög vel og auðvitað
gleður það mig. Nú er búið að
selja um tíu milljón eintök af
henni um víða veröld og ég er
alltaf að hitta fólk öðru hverju
sem segir mér hversu mikið gagn
það hafi haft af kúrnum."
Sam Sinclair Baker er fús að
tala um persónuleg samskipti sín
við dr. Tarnower og morðmálið.
Læknirinn var hálfsjötugur þeg-
ar samstarf þeirra hófst, virtur
og virðulegur borgari. En hann
hélt tvær ástkonur og það varð á
endanum hans bani. Líklegast er
talið að hann hafi verið búinn að
taka ákvörðun um að slíta sam-
bandi sínu við Jean Harris og
giftast aðstoðarstúlku sinni,
Lynn Tryforos, þegar hann féll
fyrir byssukúlu og Baker telur
líklegast að tilviljun hafi ráðið
því að Harris hafi ekki tekist að
ráða niðurlögum þeirra beggja
þetta kvöld 1980. „Lynn er falleg
og dásamleg stúlka," sagði Baker
yfir pönnusteiktum steinbít
(hitaeiningasnauðum) í veit-
ingasal Hótel Holts. „Ég hefði