Morgunblaðið - 14.09.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.09.1983, Blaðsíða 17
Fordæmdi þotuárásina Mariazell, Austurríki, 13. september. AP. PÁLL PÁFl II lauk í gær opinberri heimsókn sinni til Austurríkis með 100 km ferð frá Vínarborg til smá- bæjarins Mariazell. Þar fór hann í helgidóm tileinkuðum Maríu Guðs- móður og ungverska kardinálanum Jozef heitnum Mindzsenty, sem varð að alþjóðlegu baráttutákni and- kommúnista fyrir andlát sitt árið 1975. Fjöldi manns var viðstaddur messu sem páfi flutti í helgidómn- um og fordæmdi hann þar allan stríðsrekstur og hryðjuverk. Bað hann fyrir aðstandendum þeirra sem látist hafa í Mið-Austurlönd- um, Mið-Ameríku og Afríku. Einnig þeirra sem fórust með kóreönsku farþegaþotunni sem Rússar skutu niður. „Við getum ekki gleymt hinum látnu," sagði páfi í ræðu sinni. Þetta er í fyrsta skiptið sem páfi minnist opin- berlega á kóreönsku þotuna. Páfa varð tíðrætt um ýmis stjórnmál á ferð sinni, en beittast- ur var hann í orðum er kóreanska þotan og Libanon-málið bar á góma. Þá fordæmdi hann fóstur- eyðingar og kallaði þær „illvirki sem hefði ekki tekist að binda endi á“. Loks tók hann undir með kröf- um kvenna um jafnrétti á vinnu- markaðinum. Kasparov sigraði Niksir, Júgóslavíu, 13. september. AP. SOVÉSKI stórmeistarinn Garry Kasparov sigraði í gær á sterku al- þjóðlegu skákmóti sem fram fór í júgóslavneska bænum Niksic. Síð- ustu skákunum lauk í gær og að þeim loknum hafði Kasparov fengið 11 vinninga, en danski stórmeistar- inn Bent Larsen hafnaði í 2. sæti með 9 vinninga. Kasparov mætti júgóslavneska stórmeistaranum Gligoric í síð- ustu umferðinni og sigraði hann. Af öðrum úrslitum í lokaumferð- inni má geta jafnteflis þeirra Tal frá Sovétríkjunum annars vegar og Portisch frá Ungverjalandi hins vegar. Ulf Andersson vann Tigran Petrosian, Boris Spassky vann Bozidar Ivanovic, Tony Miles vann Gyula Sax, en skák Jans Timmans og Yassers Seirawan frá Bandaríkjunum fór i bið. Kasparov fékk sem fyrr segir 11 vinninga, Larsen 9 vinninga, Spassky og Portisch 8 hvor, And- ersson og Miles 7,5 hvor, en aðrir færri. Timman átti þó möguleika að ná 7,5 með sigri í biðskákinni. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1983 17 Alexander Kielland hefiir verið bjargað Við björgun íbúðarpallsins Alexander Kielland þurfti að snúa pallinum 180 gráður. Var það gert með sverum keðjum og einnig með því að fylla eða tæma ýmsa hluta pallsins með sjó. Björgunin er sögð mikið tækni- afrek. Stavanger, 13. september. Frá Kristjáni Guólaugssjni, fréttaritara Mbl. „MEÐ BJÖRGUN íbúðapallsins Alexander Kielland hefur verið brotið blað í sögu olíuvinnslu á hafi úti,“ sagði Asbjörn Haugstvedt, viðskiptaráðherra Noregs, á blaðamannafundi er hann hélt um borð í báti úti á Gandsfirði í dag utan við Stavang- er. Viðskiptaráðherrann kom til Stavanger í dag til þess að óska framkvæmdaraðilum til ham- ingju og þakka þeim vel heppnað björgunarstarf. Viðskiptaráð- herrann, sem raunar átti brúð- kaupsafmæli í dag, sagði að nú yrði lögð áherzla á að kanna orsakir slyssins og lét í ljós þá von að þannig mætti takast að koma í veg fyrir sambærileg slys í framtíðinni. Nú eru fjórir pallar af sömu gerð og Kielland í notkun við Noregsstrendur, en þeim hefur verið breytt lítilsháttar. Búast má við að rannsókn slyssins taki langan tíma, en sem dæmi má nefna, að leitin að þeim 36 áhafnarmeðlimum, sem enn hafa ekki fundist, mun taka rúman mánuð. Það er lögreglan hér í Stavanger, sem annast þessa leit. Ibúðapallinum hefur nú verið snúið um 156 gráður og reiknað er með að í fyrramálið verði búið að snúa honum í 170 gráður. Þegar búið er að snúa pallinum er eftir að dæla út vatni og tryggja festingar pallsins áður en rannsókn og leitarstarf getur hafizt. Litilsháttar tafir urðu á fram- kvæmdum í dag vegna bilunar í loftdælum, en að sögn Bill For- syth, skozks framkvæmdastjóra verksins, er unnið að því að laga bilunina, og búist við að því starfi ljúki fyrir kvöldið. Miklar deilur hafa staðið vegna þessa máls. Strax eftir slysið lýsti ríkisstjórn Verka- mannaflokksins því yfir, að ekk- ert skyldi til sparað að bjarga íbúðapallinum. Pallurinn var síðan dreginn inn í Gandsfjörð- inn og þar hafizt handa við björgunarstörf í lok október 1980. Mánuði síðar var hætt við framkvæmdir, og þegar Hægri flokkurinn tók við völdum í Nor- egi, ákvað ríkisstjórnin að pall- urinn skyldi dreginn á haf út og sökkt þar. í maí 1982 samþykkti þó þing- ið að pallinum skyldi bjargað og björgunarstarfið hófst svo 1. september sl. En þótt björgun- arstarfið hafi heppnast er málið þó engan veginn úr sögunni. Að minnsta kosti 12 málaferli munu rísa vegna björgunarinnar, og eftir er að ákveða hver skuli greiða þau hundruð milljóna, sem farið hafa í framkvæmdirn- ar. Niðurstöður fyrri rannsókna á slysinu hafa verið dregnar í efa, og franskir sérfræðingar halda því fram að nýjar upplýsingar leynist í flakinu. En hvernig sem eftirmálar björgunarstarfsins verða, er ljóst að einstakt tækni- afrek hefur verið unnið með björgun ibúðapallsins Alexander Kielland. Fylkis- og sveitarstjómarkosningar í Noregi: „Úrslitin alvarlegt áfall“ - segir Káre Willoch forsætisráðherra um útkomu flokks síns Ö8ló, 13. september. AP. „ÚRSLITIN eru alvarlegt áfall fyrir okkur,“ sagði Káre Willoch forsæt- isráðherra og leiðtogi Hægri flokks- ins um úrslit fylkis- og sveitarstjórn- akosninganna. Flokkurinn tapaði talsvert í kosningunum meðan Verkamannaflokkurinn vann stór- sigur. Sigurvegarar kosninganna voru Verkamannaflokkurinn og Fram- faraflokkurinn og hefði verið kos- ið til þings að þessu sinni, hefði samsteypustjórn Hægri flokksins, Kristilega þjóðarflokksins og Miðflokksins misst meirihluta sinn, þó svo samstarfsfiokkar Hægri hafi aðeins tapað lítillega. Kjörsókn var óvenju léleg eða aðeins 67%, sem er minnsta kjör- sókn í Noregi eftir stríð. Sagði Willoch það eina skýringuna á slakri útkomu Hægri. Sagði hann hefðbundið að stjórnarflokkar töpuðu í þessum kosningum, en tapið hefði verið meira en spáð hafði verið. „Svo virðist sem við séum að tapa fylgi til Verkamannaflokks- ins og Framfaraflokksins, en það ætti samt ekki að vera ómögulegt að vinna þingkosningarnar 1985,“ sagði Willoch. „Þetta er stórt skref í kosninga- undirbúningi fyrir þingkosn- ingarnar 1985. Við vinnum þær kosningar. Hægri bylgjan er á undanhaldi," sagði Gro Harlem Brundtland leiðtogi Verkamanna- flokksins er úrslitin lágu fyrir. Hún varð að víkja úr stóli forsæt- isráðherra fyrir Willoch fyrir tveimur árum. • Miðað við fylkis- og sveitar- stjórnarkosningarnar 1979 og þingkosningarnar 1981 var sveifl- an yfir til vinstri áberandi. Þegar á heildina er litið jók Verka- mannaflokkurinn fylgi sitt úr 36% ,í 39,2%. Flokkurinn fékk 37% at- kvæða í þingkosningunum 1981. • Hægri flokkurinn tapaði 3,7 prósentustigum, hlaut 26,2% at- kvæða í stað 29,9% 1979 og 31,7% atkvæða í þingkosningunum 1981. • Framfaraflokkurinn hlaut 6,3% atkvæða að þessu sinni, mið- að við 2,5% 1979 og 4,5% 1981. Miðflokkurinn tapaði 1,3 pró- sentustigum miðað við 1979, fékk 7,3% atkvæða miðað við 8,6% 1979, en jók hins vegar við sig frá 1981, þegar flokkurinn hlaut 6,7% atkvæða. • Vinstri flokkurinn bætti við sig fylgi, úr 4,4% 1979 í 5,3%. Komm- únistaflokkurinn hlaut 0,4% at- kvæða miðað við 0,5% 1979. Rauða kosningabandalagið hlaut 1,2% atkvæða miðað við 0,8% 1979. Frjálslyndi flokkurinn fékk 4,4% miðað við 5,3% 1979 og Frjáls- lyndi þjóðarflokkurinn hlaut 0,7% miðað við 1,3% 1979. Aðrir flokkar hlutu 0,3% atkvæða í kosningun- um nú miðað við 0,6% 1979. Verkamannaflokkurinn hlaut nú meirihluta í sjö fylkjum af 19, miðað við meirihluta í þremur fylkjum 1979. Borgaralegu flokk- arnir halda meirihluta og borgar- stjóra Hægri flokksins í Osló. McGovern reynir í þriðja skipti Washington, 13. september. AP. BANDARÍSKI öldungadeildarþingmaðurinn George McGovern tilkynnti í gær, að hann ætlaði að keppa að útnefningu sem forsetaefni Demókrata- flokksins fyrir forsetakosningarnar 1984. Þetta verður í þriðja skiptið sem McGovern freistar þess að krækja í forsetastólinn. McGovern reyndi síðast 1972, Ekki eru allir hrifnir af ákvörðun George McGovern hann hóf þá undirbúning sinn talvert á eftir keppinautum sín- um, en vann samt sem áður út- nefninguna. Það náði hins vegar ekki lengra, því Richard Nixon gersigraði hann og flokk hans í kosningunni sjálfri. Var það versti ósigur Demókrata í forseta- kosningum fyrr og síðar. „Fólk sagði mér gjarnan í þá daga, að ég hafi verið 10 ár á undan minni samtíð. Jæjæ, nú eru 10 ár liðin og hér stend ég.“ Sem fyrr segir reynir McGov- ern nú í þriðja skiptið, hann keppti að útnefningu árið 1968, en það hafðist ekki. Svo var hann á ferðinni 1972 sem fyrr greinir. McGoverns, t.d. hefur eiginkona hans, Elenore, tilkynnt honum að hún muni ekki taka þátt í kosn- ingabaráttunni eins og áður og ýmsir af nánustu vinum hans og ráðgjöfum hafa ráðið honum frá því að gefa kost á sér. Ýmsir sérfræðingar hafa tjáð sig um hvað inntakið eigi eftir að vera í kosningabaráttu McGov- erns, sem þótti og þykir hinn frjálslyndasti. Er búist við því að hann gagnrýni harðlega utanrík- ispólitík Ronalds Reagan og boði „friðvænlegri" stefnu. Þá er reiknað með því að hann eyði mörgum orðum í „ósanngjarna efnahagsstefnu Reagans".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.