Morgunblaðið - 02.10.1983, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983
varð strax í æsku vinsæll meðal
Belga. Hann var sendur til náms í
Bretlandi á unglingsárum og eftir
tvítugsaldur gerði hann víðreist
um Suður-Ameríku og í Austur-
löndum. Hann fór til Kongó í Afr-
íku, sem þá var nýlenda Breta, og
ferðaðist þar um.
Arið 1926 giftist hann Ástríði
Svíaprinsessu. Þau þóttu
glæsileg hjón og Ástríður vann
hug og hjörtu þjóðarinnar og vin-
sældir hennar voru svo miklar, að
það þótti tvímælalaust styrkja
mjög konungdæmið í landinu. Þau
hjón eignuðust þrjú börn, Jósefínu
Karlottu sem síðar giftist stór-
hertoganum af Lúxemborg, Bald-
vin konung og Albert fæddist
sama árið og Leopold tók við
konungdæmi árið 1934, er faðir
hans lézt af slysförum í fjall-
göngu.
Mikill fögnuður, svo að jaðraði
við móðursýki ríkti í Belgíu og víð-
ar þegar Leopold og Ástríður
höfðu nú sezt í hásæti sín og þrátt
fyrir að blikur væru á lofti í Evr-
ópu vegna uppgangs nazista, létu
Belgar sér í aðdáunarvímunni
fyrst fátt um finnast. En árið
1935, síðla ágústmánaðar voru
Belga sem lézt sl. sunnu-
lengst minnst fyrir
4 hann tók í heimsstyrjöldinni
ippúr vinfengi hans slitnaði við
Frakka, og hann var grunaður
ar átti svo koma hans heim úr
klum og djúpstæðum ágreining
þess efnis, hvort hann settist
Lík Leopolds á viðhafnarbörum.
Að Leopold III
Belgíukonungi látnum
Imaí 1940 hafði Leopold kon-
ungur tekið við yfirstjórn belg-
íska hersins. Þýzki herinn flæddi
yfir landið og þrátt fyrir ein-
dregnar óskir ríkisstjórnar lands-
ins um að konugur flýði úr landi
og kæmi á fót útlagastjórn, neit-
aði hann því alfarið. Sex mánuð-
um eftir að Belgía hafði verið
hernumin hélt Leopold til fundar
með Hitler í Berchtesgaden. Sjálf-
ur sagði hann fundinn haldinn til
að „reyna að bæta matvæla-
ástandið og birgðaflutninga til
Belgíu og fá Hitler til að leysa úr
haldi stríðsfanga". En fáir voru
trúaðir á orð konungs. Hann hafði
skilyrðislaust gengið að öllum
skilmálum nazista og það sem eft-
ir var styrjaldarinnar var hann
sagður fangi þeirra, en mun að
vísu hafa búið við nánast óbreytt-
ar aðstæður í höll sinni við Laek-
en, sem er skammt fyrir utan
Brússel. Framkoma konungs vakti
reiði og sárindi meðal þjóðarinnar
enda þótt sagnfræðingar sem hafa
kannað sögu heimsstyrjaldarinn-
ar síðari, velti því nú fyrir sér
hvort ákvörðun Leopolds hafi ekki
að sumu leyti verið af manndómi
og hetjulund tekin. Liddell Hart
sagnfræðingurinn hélt því m.a.
fram að hefði Leopold orðið við
kröfu Pierlot forsætisráðherra,
um að hann færi frá Belgíu þann
25. maí hefðu belgísku hersveit-
irnar gefizt upp strax. Þess í stað
börðust þær áfram tvo daga til
viðbótar, mannfall varð mikið, en
þessir tveir dagar voru hersveit-
um Breta og Frakka mikilvægar
og gerðu brezkum hermönnum
kleift að sleppa úr herkví og kom-
ast undan til Dunkirk.
En á þeim tíma sem þessir at-
burðir voru að gerast var ekki
hugað að stíku, enda ekki ljóst og
hefur aldrei skýrzt, hvort ákvörð-
un Leopolds byggðist á herkænsku
og hugrekki. Andstæðingar naz-
ista í Belgíu sáu aðeins þær gjörð-
ir hans að gefast upp fyrir nazist-
um og búa síðan í vellystingum
praktuglega í höll sinni til stríðs-
loka, eða þar um bil, meðan meg-
inþorri þjóðarinnar þoldi sult,
seyru og harðindi af hendi nazista.
egar styrjöldinni var lokið
hvarf Leopold í útlegð til
Sviss. Bróðir hans, Karl gegndi
hlutverki ríkisstjóra. Brátt hófust
um það hatrammar deilur um
hvort konungi yrði leyft að snúa
heim og taka við konungdómi. Á
næstu fimm árum tókst aldrei að
mynda meirihlutastjórn í Belgíu,
sem gæti kveðið upp úr með það.
Að lokum lýsti Leopold því yfir, að
hann vildi hlíta úrskurði þjóðar-
innar sjálfrar í allsherjarat-
kvæðagreiðslu. Hann sagði að
fengi hann 55% atkvæða myndi
hann koma heim. Kosningar voru
haldnar og stuðningur við heim-
komu konungs reyndist vera 57
prósent af þjóðinni. Engu að síður
var ríkisstjórn landsins klofin I
afstöðu sinni. Nýjar þingkosn-
ingar voru haldnar og kristilegir
demókratar, sem var flokkur
hlynntur kóngi, fékk meirihluta
og var mynduð ríkisstjórn sem
ákvað að Leopold skyldi fá að snúa
heim.
í júlí 1950 kom Leopold heim til
Belgíu. Varla var hann stiginn á
belgískt land, að út brutust óeirðir
um gervallt landið, verkföll voru
víðs vegar og óeirðir og ólga
magnaðist dag frá degi, svo að allt
útlit var fyrir að Belgía væri að
liðast í sundur. Afstaðan til kon-
ungs var svo afdráttarlaus — með
eða á móti — að hjónabönd
splundruðust, vinátta rofnaði og
án efa var það ekki fyrr en á þess-
um júlídögum árið 1950 að Leo-
pold III skildi loks, að landar hans
höfðu engu gleymt af því sem
gerðist í stríðinu og það sem vó
einnig þungt á metunum var hin
eiginkonan sem hann hafði nú
flutt heim með sér og krafðist þess
að hún yrði drottning landsins.
Belgar höfðu löngum haft horn í
síðu seinni konu Leopolds, af
ástæðum sem brátt verða raktar,
en þeim fannst það nánast ganga
guðlasti næst, að kona af borgara-
legum uppruna settist í sæti
drottningar.
Leopold III var fæddur 3. nóv-
ember 1901, sonur Alberts kon-
ungs og Elísabetar drottningar,
elztur þriggja barna þeirra. Al-
bert var þriðji konungur Belga frá
því að þjóðin hafði fengið sjálf-
stæði 1830 eftir yfirráð Hollend-
inga. Leopold þótti bráðgjör, vilja-
sterkur, glæsilegur ásýndum, og
konungshjónin á ferðalagi um
Sviss. Bíllinn fór út af veginum
skammt frá Luzern og lenti á tré
og Ástríður lézt samstundis. Belg-
íska þjóðin var yfirkomin af
harmi og um gervalla Evrópu
hörmuðu menn drottningu. í
Morgunblaðinu segir frá slysinu
stórum stöfum og tekið er fram að
„Leopold konungur sé hugstola af
harmi".
Á rúmu ári hafði ungi konung-
urinn nú misst tvo nána ástvini,
föður og eiginkonu og enginn
dregur í efa, að þetta var honum
hið þyngsta áfall sem hann var
lengi að jafna sig á.
A árunum 1935 og 1936 færðust
enn umsvif nazista í Þýzkaland {
aukana. Hitler fór úr Þjóðabanda-
laginu, rauf aðskiljanlega alþjóða-
Brúðkaupsmynd af Ástríði Svíaprinsessu og Leopold prins af Belgíu.