Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 18
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983 Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir Fermingarstörfin FYRSTU FJÓRA DAGA septembermánaðar var haldið æskulýösnámakeið í Skálholti. Efni námskeiðsins var fermingarstarfiö, sem nú aru tramundan. Á námskeiðinu fluttí sr. Árni Pálsson sóknarprestur í Kársnespresta- kalli erindi um fermingartræðsluna, stöðu hennar og stefnu. Sigurður Pálsson námsstjóri í kristnum fræðum flutti erindi um 13 ára unglinga; Hvernig eru þeir? Hvernig á að nálgast þá? Arngrímur ísberg starfsmaður fíkniefnalögreglunnar flutti erindi um fíkniefni og svaraði fyrirspurnum. Sr. Tómas Sveinsson sóknarprestur í Háteigssókn talaði um kennsluaðferðir í fermingarundirbúningnum. Á námskeiðinu greindi einnig sr. Agnes M. Siguröardóttir frá þætti æskulýösstarfs Þjóðkirkjunnar í fermingarundirbúningnum. Þá var á dagskrá ýmislegt skemmtiefni og lauk hverjum degi með kvöldbænum í dómkirkjunni í Skálholti. Námskeiðinu lauk svo með messu sem allur hópurinn tók þátt í að undirbúa. Meira lifandi starf Á námskeiðinu í Skálholti var staddur sr. Hannes Örn Blandon sóknarprestur á Ólafsfirði og spurðum við hann hvaða breyt- ingar hann ætlaði að gera á fermingarundirbúningnum eftir þetta námskeið. Sr. Hannes Örn: Mig langar að breyta. Ég hef haft hefð- bundið form í tvö ár, þ.e. viku- lega tíma. Ég hef verið með kverið, „Líf með Jesú“ og hefur verið mikill utanaðbókarlær- dómur. Þannig hef ég reynt að láta börnin læra grundvallar- atriðin. Þetta hefur gefist mis- jafnlega vel — en í flestum til- fellum ágætlega. Maður verður þó að gera sé grein fyrir því að margir þessara krakka lesa ekki kverið. Þó eru alltaf nokk- ur sem taka þtta alvarlega. Þetta námskeið hér í Skálholti hefur verið mjög gott og upp- byggilegt. Hér hafa verið ýms- ar hugmyndir á lofti — og margar þeirra góðar. Mig langar að gera þetta meira lif- andi. Mig langar að prófa að fara með þeim í fleiri helgar- ferðir — við störf og leik — á svipaðan hátt og við höfum gert hér. Ég prófaði í fyrra að fara með þau í upphafi vetrar að Löngumýri yfir helgi. Sú helgi skilaði mestum árangri, bæði hvað varðar kunnáttu og ánægju. Margir lögðu þá hönd á plóginn, m.a. æskulýðs- fulltrúi Norðurlands. Mig langar að prófa þetta oftar. Kunnátta barnanna er lítil hjá flestum í kristnum fræðum. Því blasir við að tíminn þyrfti að vera miklu meiri fyrir fermingarathöfnina. Heimilis- guðrækni er ekki við lýði leng- ur og þvi er rétt að foreldrarn- ir viti hvað er að gerast og æskilegt væri að þau tækju þátt í þessu með börnunum, svo þetta hafi einhverja merkingu fyrir þau. Drottinn einn er Guð 18. sunnudagur eftir trinitatis. Mark. 12. 28-34 UNG kona, leitandi og áhugasöm um kristna trú, fékk þann úrskurð að hún væri haldin lítt kunnum sjúkdómi, sem ef til vill myndi há henni alla ævi og hugsanlega lama hana að einhverju leyti. Á komandi árum þurfti hún oft að liggja á sjúkrahúsum og búa um tíma á endurhæfingarstöðvum. Hún varð bitur við Guð, fannst hann hafa brugðist sér. — Þegar sársaukinn og vonleysið vega að mér, sagði hún, hugsa ég ekki um Guð. Ég get ekki slitið hugann frá sársaukanum og hann gerir mig innhverfa og bitra. Samt glataði hún ekki trú sinni heldur styrktist hún smátt og smátt. — Vinir mínir eru óbug- andi, sagði hún. — Þeir gleyma mér aldrei, heimsækja mig, uppörva mig og gefa mér gjafir. Þeir hafa hjálpað mér til að lifa við þessar rtýju aðstæður. Mér kom þessi lífssaga í hug þegar ég las orð guðspjallsins í dag. „Drottinn, Guð vor, hann einn er Drottinn." „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ Það gerðist í lífi þessarar konu, að hún fann að Drottinn er Guð, þrátt fyrir þá óskiljanlegu atburði, sem hann lét viðgangast að mættu henni. Og fólk, sem elskaði hana, varð til þess að hún dróst nær honum og fann kærleika hans. Svipaðar lifssögur eru margar, sögur fólks, sem finnur að kærleiki Guðs bregst ekki þótt allt virðist bregðast. Guði sé lof fyrir það. Tilbeiðslan í ferm- ingarundirbúningnum Við spurðum sr. Gísla Jónas- son sóknarprest í Vík í Mýrdal um hans álit á námskeiðinu. Sr. Gísli: Áður en ég kom hingað var ég með ákveðnar skoðanir um hverju ég ætlaði að breyta í fermingarundir- búningnum og þetta námskeið hefur styrkt mig í trúnni á að einhverjar breytingar þarf að gera. Ég ætla að draga spurn- ingastarfið útúr skólanum og hef hugmyndir um að koma á námskeiðum, þ.e. spyrja börn- in eina helgi í mánuði. Ég álít að betra sé að safna þeim sam- an sjaldnar, en til lengri tíma í einu þar sem er nánara sam- félag. Þannig er hægt að sinna meira alhliða þeim spurning- um, sem krakkarnir glíma við og koma að hinum tilbeiðslu- lega þætti trúarinnar, en ekki aðeins hinum vitsmunalega eins og oft vill nú verða. Einnig hefði ég áhuga á að tengja krakkana inní starf safnaðanna og taka að sér verkefni við að undirbúa guðs- þjónustu eða unglingafundi. Þetta þarf vitanlega að gera í samráði við foreldrana og heimilin og getur kostað vinnu af þeirra hendi — sem í raun er það æskilegasta, að heimilin tengdust meira inní ferming- arstarfið. Börn fcrmd of ung? Sigfús Ingason er tvítugur Ak- ureyringur, sem sótti námskeiðið í Skálholti, og við spurðum hann um gagnsemi námskeiðsins fyrir hann. Sigfús: Námskeiðið hefur gefið mér margar nýjar mynd- ir af æskulýðsstarfi þjóðkirkj- unnar og frætt mig um t.d. fermingarfræðsluna og hverju mætti breyta. Mörgu er ábóta- vant eins og fyrirkomulagið er nú. Hverjar af þeim hugmyndum, sem komu fram hér fannst þér vera raunsæar? Sigfús: Þær hugmyndir að byrja fyrr með börnin, þ.e. 10 ára og halda síðan áfram fram yfir fermingu líst mér vel á. Einnig held ég að betri sé sú stefna að hafa fræðsluna ekki eins mikið í skólunum og verið hefur. Mér finnst persónulega að börn séu of ung, þegar þau eru fermd. Þau eru ekki búin að gera sér grein fyrir því útí hvað þau eru að fara. Hvað finnst þér vera heppi- legur aldur? Sigfús: 9. bekkkjar aldurinn, 15 ára, að verða 16. Þá hafa krakkarnir bætt við tveimur árum í þroska og afstaðan er öll önnur. Hvað af efni námskeiðsins fannst þér höfða mest til þín? Sigfús: Mér fannst kynning- in á fíkniefnunum hafa vakið mann til umhugsunar — sér- staklega hvað krakkarnir eru ungir, þ.e. 15—20 ára. Svo er gott að hafa kynnst prestum og guðfræðinemum og heyra þeirra skoðanir á æskulýðs- málum og mér finnst reglulega gaman að sjá áhuga þeirra, sem hér hafa verið, á æsku- lýðsmálum. Hér heðfu tvímælalaust þurft að vera fleiri prestar til að sjá mikil- vægi æskulýðsstarfs. Prestar nýta sér ekki nógu vel æskulýðsstarf sr. Agnesar, þ.e. þeir kynna sér það ekki nóg. Prestar gera líka allt of lítið af því að fá fyrrverandi ferming- arbörn sín til að segja frá reynslu sinni — hvernig þau upplifðu ferminguna. Prestar eru að mínu mati alltof ragir við að nota leikmenn sér til hjálpar. í þeim er orka, sem nýst getur safnaðarstarfinu til góðs. Gagngerrar breytingar þörf Á námskeið í Skálholti voru einnig mætti ötulir æskulýðsleið- togar víðs vegar af landinu. Við náðum tali af Hrafnhildi Svend- sen, sem starfað hefur af raikl- um dugnaði við æskulýðsfélag kirkjunnar í Mosfellssveit um árabil. Við spurðum hana hvaða gagn hún áliti að hún hefði haft af námskeiðinu. Hrafnhildur: Það sem ég fékk mest út úr voru umræð- urnar í smáhópunum, en það hefði mátt sleppa þessum löngu fyrirlestrum, sem okkur sem leikmönnum fannst ekki höfða til okkar. Það verður að vera eitthvað, sem höfðar til ungu krakkanna, sem sækja námskeiðið. Hins vegar heyrum við hér hvað hinir eru að gera og er það mjög jákvætt. Þetta er í sjötta skipti, sem ég kem hingað. Þetta er eina tækifær- ið, sem okkur gefst til að hitta þá, sem eru að vinna að því sama. Hafið þið fengið einhverjar hug- myndir hér sem þið álítið að komi ykkur að gagni í æsku- lýðsstarfinu? Hrafnhildur: Já, punktarnir frá sr. Agnesi um hvað æsku- lýðsfélög geta gert, koma að góðum notum. Ég vona líka innilega að umræðurnar um ferminguna eigi eftir að hafa áhrif, en ég er ekki viss um að þær geri það. Þeir sem hér voru koma ef til vill til að breyta fyrirkomulaginu, en það er ekki nóg. Hingað hefðu þurft að koma fleiri prestar og leikmenn frá fleiri stöðum, til að gagngerar breytingar verði, en þeirra er vissulega þörf. Námskeiðið stór þátt- ur í að byggja upp starfsmenn kirkjunnar Við spurðum sr. Davíð Bald- ursson sóknarprest á Eskifírði um notagildi námskeiðsins í Skálholti. Sr. Davíð: Námskeiðið víkk- ar sjónarhorn manns. Maður tekur ýmis atriði inní, sem maður hefði annars e.t.v. látið eiga sig — eins og t.d. þjón- ustuþáttinn, þ.e. láta börnin vinna verk til þjónustu við söfnuðinn. Nú, einnig það sem að foreldrunum snýr. Ferm- ingarundirbúningurinn á að vera samspil fermingarbarna og foreldra. Ýmsislegt sem hér hefur verið á dagskrá kemur manni óbeint að gagni, t.d. hin kennslufræðilega leiðbeining Sigurðar Pálssonar. Annars er stærsti þátturinn í svona námskeiði sá, að hingað drífur að fólk, sem hef- ur áhuga á þessum málum og ber umhyggju og virðingu fyrir skírnarskipuninni og innihaldi hennar, og ég tel mikilvægt að fá að kynnast þessu fólki. Það gefur manni einnig tilefni til að fara út fyrir fermingarfræðsluna og út á það svið, sem tekur við, þ.e. æskulýðsstarfið, og ég tel að sú innsýn, sem við fengum í viðtölum við æskulýðsleiðtoga og félaga hafi orðið okkur til 3» mikils gagns, ekki síst vegna þess að ég er prestur, og þá fær maður afskaplega lítið and- svar frá leikmönnum, sem eiga að standa við hlið prestsins á akrinum. Ég saknaði þess að sjá ekki fleiri presta hér, því ég tel þetta námskeið — ekki síður en önnur — eigi stóran þátt í að uppbyggja starfs- menn kirkjunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.