Morgunblaðið - 12.10.1983, Page 2

Morgunblaðið - 12.10.1983, Page 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1983 arlegt megi heita, virtust landráð Blunt síður en svo neitt ríkisleyndarmál, jafnvel ekki á árinu 1960. Sá stuggur sem mér hafði í upphafi staðið af Koestler var á bak og burt er hér var komið sögu og við sátum saman í flugvélinni á leið til íslands. Hann var tilfinningaríkur og fróðleiksfýsnin takmarkalaus. Þeim sem hefðu talið hann óþol- inmóðan eða sneyddan umburðarlyndi hefði láðst að gæta þess að hann lét stjórnast af djúpri og aðdáunarverðri heift gagnvart þeirri óöld, sem hann samkvæmt líkindalögmálinu hafði ekki átt að geta lifað af. Rökleiðsla var vitaskuld aðferð til að komast að niðurstöðu, með þessum ísmeygilega malandi ungverska málhreim; og það kann vel að vera að málefnin hafi verið flóknari en hann vildi vera láta. Hvert svo sem málefnið var, þá vó hann og mat hvern einasta möguleika þar til hægt var að al- hæfa, á þennan veginn eða hinn. Sá háttur Eng- lendinga að grípa til spaugilegra samlíkinga, þar sem einungis er tæpt á kjarna máls (jafnvel með þversögnum) hentaði honum ekki. Hvað átti þessi ruglingslegi metingur sem tvinnaði saman þjóð- ernislegar dyggðir og lesti langt aftur í aldir að þýða? England var „bezta landið að sofa í“, eins og hann var vanur að taka til orða, og víst fannst honum hann eiga þar heima, að minnsta kosti nóg til þess að hann treysti sér til að draga í efa að viðteknar skoðanir væru á rökum reistar. Svo vikið sé að hinu rómaða umburðarlyndi: Gat skýringar- innar á því ekki verið að leita í eyhyggju? Stafaði mannúð okkar kannski af því að okkur skorti þekk- ingu á „fjarlægum" aðstæðum á öðrum stöðum í veröldinni? Kannski tók fólk, sem af einlægni kunni að meta þá gæfu að eiga heima á Englandi, meira mark á honum en hann gerði sér grein fyrir og lagði sig eftir því að læra af þeirri reynslu sem hann hafði til að miðla af. En hann velti því fyrir sér hvort þetta fólk gæti nokkurn tíma öðlazt vitneskju um þær þrengingar sem Evrópubúar hefðu gengið í gegnum. Eg minnist samræðna um kommúnisma og nazisma og zíonisma, um Lukacs og ungverska menntamenn, um framsal á vinum hans sem eitt sinn höfðu verið kommúnistar, þeim Alex Weiss- berg og Margarete Buber-Neumann. NKVD hafði selt þau í hendur Gestapo um líkt leyti og samn- ingar tókust með nazistum og Sovétstjórninni. Enn get ég séð hann fyrir mér með tortryggnissvipinn: „Þú gekkst náttúrlega í þennan venjulega skóla, Eton, var það ekki — en hvernig hefurðu þá komizt á snoðir um þetta? Hver er ábyrgur fyrir því að hafa sagt þér það ...?“ Ekki átti ég von á því að hann stigi svo gáska- fullur út í hinn endalausa reykvíska sumardag, jafnvel ekki eftir að hafa drukkið brennivínið. Hann var fullkomlega skeytingarlaus. Enn var hann orðinn blaðamaður. „Hann andar að sér loft- inu með dýrslegri þefvísi," hef ég skrifað í kompu mína, „hann minnir á liðugan otur með fínasta feld.“ Raunar stigum við beint inn í ósvikinn gaman- leik. Bobby Fischer var ókominn. Ef marka mátti yfirlýsingar hans, var ekkert víst að hann færi nokkurn tíma frá Ameríku. Og þá væri útséð um einvígið. Opnunarathöfn fór fram í nær myrkvuðu kvikmyndahúsi. Uppfærsla á Hamlet þar sem frinsinn vantaði, hvorki meira né minna. Forseti slands neri hendur sínar og hespaði dagskránni af. Spasskí var þegar orðinn eins og fórnarlamb sálræns skæruhernaðar og hafði ekki lengur þann styrk sem þurfti til að tefla skák. Fulltrúar hans — þar á meðal drumbslegur sovézkur sendiherra — lýstu hann sigurvegara þar sem mótherjinn hefði látið hjá líða að mæta til leiks. Max Euwe, forseti Alþjóðaskáksambandsins, var gamall kunningi Koestler. Brátt hringdi síminn hjá mér. Það var Koestler: Það verður heldur engin skák í dag. Ég hef það eftir Euwe. Þetta er „skúbb“, en það er trúnaðarmál. Ekki segja þeim á blaðinu þínu frá því.“ Svo stóðu nú leikar í kalda stríðinu. Margir þeirra stórmeistara sem þarna voru, eltu hann á röndum. Þeir skemmtu sér við að tefla, ýmist hraðskák eða fjöltefli, og reyndu að lokka hann til að taka þátt í þessu. Eg held að hann hafi ekki látið tilleiðast, enda þótt þekking hans á þess- ari íþrótt hafi verið umtalsverð. Allt tal manna snerist um Botvinnik, Capablanca, Aljekín. Snilld Fischer var rædd út í hörgul. Koestler greip á lofti ummæli eins stórmeistarans og sneri þeim upp í „ze mid-field aura of ze queen". Hann lék við hvern sinn fingur og færðist sífellt í aukana. Því kemur á óvart að í Reykjavík hefur hann skrifað í dagbók sína: „... skrýtið að vera orðinn stríðsfréttaritari á ný eftir öll þessi ár. Eftirlætisiðja allra hér er að sálgreina Bobby. Var orðinn svo leiður að ég álpað- ist inn í minjagripaverzlun og keypti þar ösku- bakka úr íslenzku hraungrýti, en honum er sögð fylgja sú náttúra að eigandinn öðlist yfirnáttúru- lega hæfileika til að vekja ástarbríma." Ein eftirlætiskenning Koestler var sú að einn góðan veðurdag kæmi að því að tölva tefldi hina fullkomnu skák. Á einum fjölmargra blaðamanna- funda þar sem drumbslegi sendiherrann lýsti enn einu sinni yfir sovézkum sigri, olli Koestler heldur betur fjaðrafoki. „Eruð þér Arthur Koestler sjálf- ur?“ spurði einhver og fékk svar um hæl: „Nei, ég er hinn.“ Að sögn innstu koppa í búri langaði Spassí mjög til að veita vestrænum blaðamönnum viðtal, en tókst ekki að komast undan KGB. Svo við fórum í gistihús hans. Og víst sat hann þar lengst úti í horni setustofunnar á annarri hæð, umkringdur einum sex gæzlumönnum. Svo tók hann strikið á lyftuna. Það sama gerðum við. Á pallinum tóku gæzlumennirnir snöggt viðbragð og forðuðu Spasskí með þeim afleiðingum að við sem ekki vorum Rússar tróðumst inn í lyftuna sem seig með okkur innanborðs niður á fyrstu hæð. Ég ákvað að halda kyrru fyrir í lyftunni og á augabragði var ég aftur kominn upp á aðra hæð og stóð þar augliti til auglitis við Spasskí. Nú var það ég sem KGB forð- aði út úr lyftunni, um leið og Spasskí var troðið innfyrir. Nú fór lyftan upp en ekki niður til Koestl- er og annarra sem voru í anddyrinu. Marx-bræðr- um hefði ekki getað tekizt betur upp. Fjarvera Bobby Fischer dróst á langinn og Koestler var kominn á bólakaf í íslenzk dægurmál. Þorskastríðið var farið að baka Bretum óvinsældir meðal íslendinga. „Síðari heimsstyrjöldin berst til íslands," hljóðaði fyrirsögn í dagblaði einu, sem af heilagri vandlætingu og reiði greindi frá brezkri sprengju sem hafði verið dregin upp úr höfn einni, en sprengjunni hafði verið varpað á þýzkt skip árið 1941 án þess að hún spryngi. Ungur leigubílstjóri sem við báðum að aka okkur í gistihúsið, hallaði sér út um bílgluggann og svaraði: „Hví skyldi ég gera það?“ Koestler lék hugur á að vita hvort ég gerði mér grein fyrir því að af hreinlætisástæðum væri bannað með lögum að halda hunda, ketti og yfirleitt öll gæludýr í Reykjavík. Hafði ég tekið eftir hinum undarlega þef sem lagði af íslending- um? Hann stafaði af því að heitt vatn úr hverum landsins væri leitt beinustu leið inn á hvert heim- ili, þannig að fólkið kæmist ekki hjá því að baða sig úr vatni blönduðu brennisteini, hvort sem því lík- aði betur eða verr. Eða sú staðreynd að bárujárnið á húsum í miðbænum væri talið fornt og nógu merkilegt til þess að um það væru sett verndunar- ákvæði? Hinar fögru reykvísku konur stungu í stúf við karlana sem voru heldur óásjálegir. Þetta varð Koestler tilefni til hugleiðinga um að þetta kynni að eiga sér forsögulega skýringu: Norskar erfða- frumur hefðu farið í konurnar og írskar erfða- frumur í karlana. Reykjavík var staður þar sem konur leyfðu sér að ávarpa karlkyns vegfarendur að fyrra bragði. Kynæði þetta taldi hann unnt að útskýra með því hversu norðlægt landið væri. Þar sem konurnar væru huldar vetrarmyrkri hálft ár- ið, ættu þær ekki um annað að velja en halda á sér sýningu frammi fyrir eins mörgum karlmönnum og frekast væri unnt hinn helminginn. Kvöld eitt er við sátum að snæðingi í veitingasal gistihússins, þusti inn hópur reykvískra kvenna með æsingi og skrækjum um að nú skyldi Koestler heldur betur gómaður. Þær gerðu usla í þjónaliðinu og veltu um borði. Um leið og Koestler kiknaði undan þessum þrýstingi, sagði hann með mestu hægð: „Zese are a degenerate people." Eftir þetta snæddum við í veitingahúsi sem hét tilkomumiklu nafni. „Ve will go to Nausea," sagði hann, enda þótt þar biðu hans hættur við hvert fótmál. Maður sem sagður var þjóðskáld lá utan í barnum. Annað veifið hjarnaði hann við til að fá sér brennivín (sem Koestler hafði ekki látið inn fyrir sínar varir öðru sinni), skók fingur og þrum- aði: „Ég þekki þig! Þú ert Ungverji, já! En ekki Koestler — þú heitir Istvan Szabo!“ Að svo mæltu datt þjóðskáldið í sínar fyrri skorður á gólfinu. Þegar svo var komið að við vorum búnir að fá leið á því að leggja drög að enn einni ferðinni á hverasvæðin, var Bobby Fischer allt í einu kominn, öllum að óvörum. Síminn hringdi. „í trúnaði sagt, Euwe segir að þeir muni örugglega tefla. Þetta er „skúbb". Ekki segja þeim á blaðinu þínu frá því.“ Hafði Fischer viljandi dregið málið á langinn til að öðlast þetta forskot? Enda þótt Spasskí væri nú fölur og fár, þá leit ekki út fyrir að Fischer hefði fulla stjórn á sjálfum sér. En þeir tefldu. Og við fylgdumst með. Einhvern veginn var það ekki eins og til var stofnað. Skákskýrendur höfðu tekið mál- ið í sínar hendur. Og kannski voru blöðin búin að fá nog af „skúbbunum" okkar. Við fórum heim. (Þýð. Áslaug Ragnars)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.