Morgunblaðið - 15.10.1983, Blaðsíða 1
236. tbl. 70. árg._______
Reynt
að ögra
gæslu-
liðum
Beirut, 14. október. AP.
BANDARÍSKUR hermaður féll og
annar særðist alvarlega þegar leyni-
skyttur skutu á þá skammt frá flug-
vellinum í Beirut-borg. Yfirmenn
bandaríska gæsluliðsins óttast, að
með árásinni sé verið að ögra
Bandaríkjamönnum vísvitandi og
neyða þá til að grípa til vopna. Leið-
togar shíta og drúsa drógu í dag full-
trúa sína út úr vopnahlésnefndinni.
Tveir bandarískir hermenn urðu
í dag fyrir skotum frá leyniskytt-
um og lést annar þeirra samstund-
is en hinn er alvarlega særður.
Alla þessa viku hafa bandarísku
gæsluliðarnir orðið fyrir svipuð-
um árásum og telja yfirmenn
þeirra, að hér sé um að ræða
skipulagða aðgerð. Vaki það fyrir
leyniskyttunum að spilla vopna-
hléinu með því að þvinga Banda-
ríkjamennina til að verja hendur
sínar.
Leiðtogar drúsa og shita drógu í
dag fulltrúa sína út úr vopnahlés-
nefndinni „til bráðabirgða" en
kváðust þó áfram mundu fylgjast
með því, að haldið yrði vopnahléið,
sem nú er þriggja vikna gamalt.
Ollu þessu deilur um þátttöku ít-
ala og Grikkja í eftirlitinu með
vopnahléinu.
Nískan
var næg
ástæða
London, 14. október. AP.
TANNLÆKNIRINN Derek Allen
gaf Mary, seinni konu sinni, tvær
gjafir í öll þau 29 ár, sem þau voru
gift. Var önnur gjöfin kartöfluflysj-
ari en hin hárþurrka. Kom þetta
fram í skilnaðarrétti í London og
að vitnaleiðslum loknum var Mary
gefið fullkomið frí frá manni sínum
eins og hún hafði farið fram á.
Allen var engum likur í nánas-
arhætti sínum. Svo naumur var
hann á fé við konu sína, að hún
varð að vinna þrjú hlutastörf
samtímis til að hafa i sig og
börnin, sem eru sex talsins, og
trúlofunarhringurinn hennar
reyndist vera sá sami og fyrri
kona Allens hafði sett upp á sín-
um tíma. Aldrei kom það fyrir,
að tannlæknirinn byði konu sinni
eða börnum út eða í frí og eftir
afmælum og öðrum merkisdög-
um mundi hann aldrei. Þá sjald-
an hann yrti á konu sína var það
til að skamma hana og ekki þoldi
hann, að hún svaraði fyrir sig.
Fjölskyldan bjó í stóru húsi, 20
herbergja, en af því að Allen
hafði aldrei tímt að halda því við,
hélt það hvorki vatni né vindum.
Mary Allen kvaðst hafa haldið
þetta út vegna barnanna en nú,
þegar þau væru farin að heiman,
vildi hún gera það líka. Dómar-
inn var alveg á sama máli og
sagði það „óréttlátt, að nokkur
kona þyrfti að búa með svona
manni".
48 SIÐUR OG LESBÓK
LAUGARDAGIIR 15. OKTÓHER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vetur er að ganga í garð og farið að kólna verulega. Þessir þrestir virtust þó ekkert vera neitt á förum þegar Friðþjófur smellti mynd af þeim í góða
veðrinu, sem verið hefur sunnanlands að undanförnu.
Thatcher ræðst á Rússa
en hvetur til samninga
Rlackpool, 14. október. AP.
ÞINGI breska íhaldsflokksins í Blackpool lauk í dag með ræðu Margaret
Thatchers, forsætisráðherra, þar sem hún hvatti til samkomulags í viðræðum
stórveldanna um takmörkun kjarnorkuvopna. Sagði hún, að ef Rússar vildu
einlæglega semja um þessi mál „myndu þeir koma að opnum dyrum“. Cecil
Parkinson, verslunar- og iðnaðarráðherra, sagði í dag af sér embætti eftir að
fyrrum hjákona hans birti opinbera yfirlýsingu um ástamál þeirra og sagði
hann hafa hallað réttu máli.
Thatcher fór allhörðum orðum
um leiðtoga Sovétríkjanna í ræðu
sinni, sagði þá tortryggna og
fjandsamlega Vesturlöndum og
einskis svífast í afskiptum sínum
af alþjóðamálum. Hún bætti því
þó við, að „við verðum að búa sam-
Tilboð Sovétmanna kemur fram
í yfirlýsingu, sem utanríkisráð-
herrar Varsjárbandalagsríkjanna
sendu frá sér I dag, en þeir hafa
verið á fundi í Sofia, höfuðborg
Búlgaríu, síðustu tvo dagana. „Ef
samningar takast ekki fyrir árslok
er nauðsynlegt, að viðræðurnar
haldi áfram á næsta ári að því
tilskildu, að Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra í NATO hætti
við að koma upp meðaldrægum
an á þessari jörð“ og kvað rétt að
ræða við og semja við Sovétmenn.
Thatcher sagði Atlantshafsbanda-
lagið reiðubúið að teygja sig langt
í samkomulagsátt um meðaldrægu
eldflaugarnar en á hinn bóginn
væru aðildarríkin líka staðráðin í
eldflaugum í Vestur-Evrópu í des-
ember nk.,“ sagði í yfirlýsingunni.
Vestrænir sendimenn í Moskvu
kváðust í dag efast um, að þetta
tilboð Sovétmanna breytti nokkru
um áætlun NATO-ríkjanna og bar
þeim saman um, að yfirlýsingin
væri að öðru leyti mjög óljós og í
hálfgerðum véfréttarstíl. Þann
skilning mætti t.d. leggja í hana,
að Sovétmenn ætluðu að hætta
að koma upp eldflaugum sér til
varnar í desember nk. ef samning-
ar tækjust ekki. í innanlands-
málum ítrekaði Thatcher stefnu
stjórnar sinnar og sagði kosn-
ir.gasigur flokksins í vor hafa
„breytt farvegi breskra stjórn-
mála“.
Þremur klukkustundum áður en
Thatcher flutti ræðu sína var
þingheimi greint frá afsögn Cecil
Parkinsons, viðskipta- og iðnað-
arráðherra, og að forsætisráð-
herrann hefði fallist á hana. í
viðræðunum ef NATO héldi fast
við fyrri ákvörðun og einnig, að ef
NATO léti það ógert að efla varnir
sínar með meðaldrægum eldflaug-
um myndu Sovétmenn ekki fjölga
SS-20-eldflaugunum, sem þeir
beina nú að Vestur-Evrópu. Um
þetta væri þó ekkert sagt berum
orðum.
Bandaríkjamenn hafa boðist til
að fækka þeim eldflaugum, sem
fyrirhugað er að setja upp í des-
ember, ef Sovétmenn fallast á að
fækka sínum að sama skapi og það
þótt Sovétmenn hefðu eftir sem
áður yfirburði hvað varðar fjölda
kjarnaodda. Þessu tilboði hafa
Sovétmenn vísað á bug.
gærkvöldi var Parkinson og konu
hans vel fagnað á flokksþinginu og
kvaðst hann þá ákveðinn í að
segja ekki af sér. í morgun birtist
hins vegar á forsíðu The Times of
London yfirlýsing frá Söru Keays,
fyrrum ástkonu Parkinsons, þar
sem hún sagði hann hafa sagt
rangt frá málum þeirra í mörgum
greinum. Skömmu síðar sagði
Parkinson af sér.
Parkinsons-málið hefur skyggt
mjög á önnur mál á þinginu og
voru viðbrögðin við afsögn hans
nokkuð misjöfn. Flestir kváðust
sjá eftir hæfum manni, sem nú
hefði bundið enda á pólitískan fer-
il sinn, en aðrir fögnuðu henni.
Fyrrum samráðherrar hans sögð-
ust harma tíðindin en vona jafn-
framt, að þetta mál heyrði nú sög-
unni til.
Sjá ennfremur „Parkinson
bað á bls. 22.
('ecil Parkinson, viðskipta- og iðnað-
arráðherra í bresku stjórninni, sem
sagði af sér embætti í gær. Var
myndin tekin þegar hann kom til
heimilis síns í Northaw en hann vildi
ekkert við fréttamenn ræða þótt þeir
legðu hart að honum.
AP.
Sovétmenn um meðaldrægu eldflaugarnar:
Viðræðurnar haldi
áfram eftir áramót
— ef NATO hættir við uppsetningu eldflauga í desember
Moskvu. 14. október. AP.
SOVÉTMENN hafa boðist til að halda áfram viðræðunum um takmörkun á
fjölda meðaldrægra eldflauga í Evrópu eftir næstu áramót ef samningar
takast ekki fyrir þann tíma. Þetta vilja Sovétmenn þó því aðeins, að NATO-
ríkin fresti um sinn að koma upp varnareldflaugum í Vestur-Evrópu en
uppsetning þeirra á að hefjast í desember nk.