Morgunblaðið - 15.10.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.10.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1983 Útgerðarráð Bæjarútgerðar Reykjavíkur: Brynjólfur Bjarnason verði ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra BÚR ÚTGERÐARRÁÐ Bæjarútgerðar Reykjavíkur samþykkti á fundi sín- um í gær að ráða Brynjólf Bjarna- son hagfræðing í starf framkvæmdastjóra BÚR. Voru fjór- ir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í ráðinu hlynntir því að ráða Brynj- ólf, en þrír atkvæðaseðlar fulltrúa vinstri flokkanna voru auðir. Ragnar Júlíusson, formaður útgerðarráðs BÚR, sagði í sam- tali við blm Morgunblaðsins í gær, að verið væri nú að ráða mann til þess að rétta við hag Bæjarútgerðarinnar, fram- kvæmdastjóra sem gæti stjórnað fjármálum fyrirtækisins. Björgvin Guðmundsson, annar framkvæmdastjóra BÚR, sagði í gær að það væri verið að bola sér frá BÚR af pólitískum ástæðum Mál Hólabrekkuskóla: Málið í athugun — segir Davíð Oddsson og Einar Sveinsson, hinn framkvæmdastjóri BÚR, sagði að öll framkvæmd þessa máls væri mjög óvenjuleg og sér öll óskiljanleg. Brynjólfur Bjarna- son, hinn nýráðni framkvæmda- stjóri, sagði í gær, þegar blm. Mbl. náði tali af honum í Vest- ur-Þýskalandi, að hann fagnaði því að vera ráðinn til starfsins með fjórum samhljóða atkvæð- um. Á fundi útgerðarráðs voru lagðir fram undirskriftalistar frá starfsfólki, þar sem var lýst yfir stuðningi við framkvæmda- stjóra Bæjarútgerðarinnar, þá Einar Sveinsson og Björgvin Guðmundsson. Þá voru á fundin- um einnig bókuð mótmæli og andstaða vinstri minnihlutans i ráðinu. Næsta stig málsins verður það að borgarráð fær ráðninguna til staðfestingar, að líkindum næsta þriðjudag, og síðan mun borgar- stjórn væntanlega afgreiða málið á fundi sínum fimmtudaginn í næstu viku. Nánar verður sagt frá málinu í blaðinu á morgun, sunnudag. „VIÐ ERUM núna með þetta mál í athugun, vegna þess að nu erum við að fara yfir framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun næsta árs og þetta er eitt þeirra mála sem þar verða athuguð,1 samtali við Morgunblaðið. Hann var spurður hvað borgar- yfirvöld hygðust fyrir varðandi mál Hólabrekkuskóla, en kennar- ar skólans hafa sent borgarstjóra bréf, þar sem kvartað er yfir að- búnaði við skólann. Davíð Oddsson sagði hins vegar, að menn yrðu að gera sér grein sagði Davíð Oddsson borgarstjóri í fyrir því að víða væri þröngt í búi peningalega í dag. Að öðru leyti væri málið í athugun og ekki væri hægt að gefa frekari svör á þessu stigi málsins, en bréfi kennaranna yrði svarað þegar efnisleg tök væru á. JNNLENTV Edda verður ekki í siglingum næsta sumar Liðlega 30 milljóna króna tap á rekstri skipsins í ár „FORRÁÐAMENN Farskips hf. hafa ákveðið að ms. Edda verði ekki í farþegafhitningum milli íslands og Evrópu nk. sumar. Ákvörðunin fylgir í kjölfar ítarlegrar könnunar á ýmsum rekstrarmöguleikum til að tryggja rekstrarafkorau skipsins, en hún leiddi í Ijós, að slíkir möguleikar eru að svo stöddu ekki fyrir hendi," segir í frétt frá Farskip. „Stærsta vandamálið er há leiga á skipinu, sem leiðir af sér að far- gjöld yrðu ekki samkeppnisfær við önnur millilandafargjöld á þessum leiðum að ári,“ segir ennfremur. I sumar var ms. Edda 16 vikur í siglingum milli Reykjavíkur, Newcastle og Bremerhaven og flutti samtals um 15 þúsund far- þega, eða um 20% minna en áætlað var upphaflega. Af þessum sökum verður rekstrartap töluvert, eða liðlega 30 milljónir króna, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins. „Þegar ákvörðunin um rekstur ms. Eddu var tekin fyrir ári, var vonast til að útgerðin yrði halla- laus á fyrsta ári. Ýmis ófyrirsjá- anleg vandamál settu þó fljótt strik í reikninginn. Farþegar urðu færri en ráð var fyrir gert, og urðu t.d. útlendingar talsvert færri en búist var við. Gengistap varð mikið og vó þar þyngst stöðug styrking Bandaríkjadals gagnvart öðrum vestrænum gjaldmiðlum. Kostnað- ur, eins og t.d. leiga og olía, var greiddur í dollurum, en tekjur voru byggðar á þýzkum mörkum. Efna- hagsörðugleikar og minnkandi kaupmáttur íslendinga, auk um- talsverðrar gengisfellingar í byrj- un sumars, þyngdu ennfremur mjög reksturinnsegir ennfremur í frétt Farskips. „Ekki er tímabært að segja nú, hvort þessi rekstur hefst aftur síð- ar. Tíminn einn getur skorið úr um það. Hugsjón, góð orð og bjartsýni nægja ekki í þessum efnum". Loks segir i frétt Farskips: „Fé- lagið vill þakka öllum þeim þús- undum íslendinga, sem ferðuðust með skipinu, fyrir viðskiptin og starfsfólki félagsins til sjós og lands fyrir mikið og óeigingjarnt framlag þess í þessari frumraun í rekstri íslenzkrar farþega- og bíl- ferju.“ 1 NÝIAHLMUÍVÉLINA I sumar hafa allir keypt sér 400 eða 1000 asa filmur til þess að taka myndir [slæmri birtu og litlu Ijósi. Nú skalt þú skipta um filmu og ganga í Kanaríklúbb Útsýnar, Úrvals, Samvinnuferða/Landsýnar og Flugleiða, því á Kanaríeyjum skín sólin skært! Við fljúgum til Las Palmas á Gran Canaría í beinu leiguflugi á þriggja vikna fresti frá og með 14. desember og vikulega frá 2.nóvember í áætlunarflugi um London þar sem hægt er að hafaviðdvöl í bakaleiðinni. Við bjóðum úrval frábærra gististaða: hótelíbúðir með 1eða 2 svefnherbergjum, hótelherbergi og smáhýsi með 1 eða 2 svefnherbergjum. Við bjóðum dvöl í: 1,2, 3, 4, 6, 9 eða jafnvel 24 vikur! Við bjóðum hagstætt verð: Frá 19.460.- kr. í eina viku og frá 22.155.- kr. í þrjár vikur, miðað við 2 í hótelíbúð. 21 vika á Broncémarmiðaðvið2 í íbúð kostaraðeins 78.000.-kr. Þú kemurheim 9. maí! Á Kanaríeyjum eru litirnir ekta! URVAL ÚTSÍrir Samvinnuferóir Landsýn FLUGLEIDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.