Morgunblaðið - 25.10.1983, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 25.10.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1983 Stykkishólmur: Kirkjuþing: Útför Björns Hildimundarson- ar fyrrum vegaverkstjóra 00&3L ***** LAUGARDAGINN 8. okt. sl. fór fram frá Stykkishólmskirkju útför Björns Hildimundarsonar fyrrum vegaverkstjóra í Stykkishólmi. Björn fæddist í Stykkishólmi 2. maí 1906, sonur hjónanna Ingibjargar Jónas- dóttur og Hildimundar Björnssonar vegaverkstjóra. Björn tók snemma þátt í íþróttum þeirra tíma og varð einn af fremstu glímumönnum sýslunnar. Hann stundaði alla almenn vinnu hér, bæði til sjós og lands. Hagur var hann, og um lengri tíma vann hann að símaviðgerðum og var það stundum erfitt og kal- samt verk. Björn var síðan í vega- gerð með föður sínum, sem þótti þá einna bestur vegagerðarmanna. Björn lærði af föður sínum og tók við af honum þegar hann lét af störfum. Björn kvæntist árið 1931 Elisabetu Magnúsdóttur og bjuggu þau allan sinn búskap í Stykkishólmi. Þau eignuðust 5 börn og hafa þau öll sett saman bú og munu afkomendur nú vera um 40. Björn var góður og nýtur borg- ari þessa bæjar og vildi hans gagn í öllum hlutum, fáskiptinn um annarra hagi, en bóngóður drengskaparmaður. Mikið fjölmenni fylgdi honum til grafar. FréttariUri Friðarályktun sam- þykkt samhljóða Björn Hildimundarson KIRKJUÞING komst í gær að sam- eiginlegri niðurstöðu um friðarmál, og var tillaga allsherjarnefndar um friðarmál samþykkt samhljóða f gær. Alyktunin er svohljóðandi: „Kirkjuþing 1983 skorar á ís- lendinga og allar þjóðir heims að vinna að friði í heimi, stöðvun vígbúnaðarkapphlaups og útrým- ingu gjöreyðingarvopna. Þingið Jafnréttisnefnd Akureyrar: Mótmælir því að nefndin sé „húmbúkk" Akureyri, 19. október. ,EF SKIPAN og störf jafnréttis- Fundur FEF um fram- færslukönnun í kvöld ALMENNUR félagsfundur Félags einstæðra foreldra um könnun þá sem gerð hefur verið á framfærslu- kostnaði barna á ýmsum aldri, verð- ur í kvöld, þriðjudag 25. okt., í Skeljahelli, Skeljanesi 6 og hefst kl. 21. Jóhanna Kristjónsdóttir, form. FEF, mun fjalla um könnunina og hvernig að henni var unnið. Gestir geta fengið ljósritað bréf á fundin- um, sem sent verður því foreldri sem ekki hefur forræði barnsins. Nýir félagar eru velkomnir á fundinn. (Fréttatilkynning.) Jóhanna Kristjónsdóttir nefndar er „húmbúkk“ að áliti bæjarstjórnarmanna skal á það bent, að þeir hafa sjálfir skipað og samþykkt „húmbúkkið“.“ Þannig hljóðar sérbókun Ólafs Birgis Árnasonar, eins af fulltrúum í jafn- réttisnefnd á Akureyri. Tilefnið er ummæli Jóns G. Sólness, bæjar- fulltrúa, á fundi bæjarstjórnar Ak- ureyrar fyrir hálfum mánuði, þegar hann gerði störf jafnréttisnefndar að umræðuefni, taldi nefndina „húmbúkk" og tók þannig til orða, að réttast væri að banna nefndinni að koma saman. Að þessu tilefni gerði jafnrétt- isnefnd eftirfarandi bókun: „Að gefnu tilefni, vegna umræðna í bæjarstjórn Akureyrar, um skipan og störf jafnréttisnefnd- ar Akureyrar, vill nefndin árétta, að hún er ekki sjálfskip- uð. Nefndin, eins og aðrar jafn- réttisnefndir í landinu, er skipuð á grundvelli fyrri samþykkta sveitarstjórna á hverjum stað, í samræmi við tilmæli Allsherjar- þings Sameinuðu þjóðanna og jafnréttisáætlun Sameinuðu þjóðanna frá 1980, en eins og all- ir vita, er ísland aðili að Samein- uðu þjóðunum. Verkefni nefnd- arinnar eru ekki þess eðlis, að þau verði leyst af hendi í skjótri svipan fyrir alla framtíð. Hér er um hægfara þróun að ræða, þar sem nauðsynlegt er að taka mið af mörgum þáttum í senn.“ GBerg. INNLENT beinir því til stjórnmálaflokkanna og ríkisstjórnarinnar, að fylgja þessu máli eftir, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Þingið lýsir samstöðu með þeim samtökum, sem vinna að friði, frelsi og mannréttindum á þeim grundvelli, sem Kristur boðar, og brýnir fyrir Islendingum að meta það frelsi, sem þjóðin býr við og nýta það til þess að skapa réttlátari heim þar sem almenn afvopnun verður liður í þeirri nýskipan efnahagsmála að lífsgæðum verði jafnað meðal jarðarbarna allra.“ Álit þetta var sem fyrr segir samþykkt samhljóða, og komu aðrar tillögur um friðarmál ekki til atkvæðagreiðslu, að sögn séra Bernharðs Guðmundssonar fréttafulltrúa Þjóðkirkjunnar. Kirkjuþingi lýkur í dag, þriðju- dag. Breyting á stjórn Flugleiða SÚ BREYTING hefur orðið á stjórn Flugleiða, að Rúnar B. Jóhannsson, hefir sagt af sér stjórnarstörfum. í stað hans hefir fjármálaráð- herra tilnefnt Sigurgeir Jónsson, aðstoðarbankastjóra í Seðlabank- anum, til að þess að taka sæti í stjórninni. Sigurgeir Jónsson sat í stjórn fyrirtækisins á árabilinu 1976 til 1981. 1928 ALLT Á SAMA STAÐ 1983 55 ÁRA ÞJÓNUSTA Egill Vilhjálmsson M. ** * Smiðjuvegi 4C, Kópavogi. Notaðir bflar - Skipti möguleg AMC EAGLE FIAT ARGENTA 2000 1982 FIAT PANDA ’82 AMC EAGLE 1981 2 d., Sedan 1982. Óekinn. Ljós- 15 þús. km. Kr. 285.000. 21 þús. km. Hvítur. Kr. 160.000. 92 þús. km. Kr. 450.000. brúnn. Kr. 635.000. FIAT 127 1981 27 þús. km. Kr. 155.000. Sífelld þjónusta — Allt á sama staö hjá Agli í Fíat-húsinu FIAT RITMO 65 cl. ’82 VOLKSWAGEN GOLF AMC CONCORD AMC CONCORD 78 MAZDA PICK-UP 1979 37 þús. km. Rauöur. Kr. 220.000. 1977 STATION 78 2 dyra Sedan. Ljósbrúnn. 64 þús. 90 þús. km. Kr. 110.000. 90 þús. km. Kr. 95.000. 6 cyl., sjálfsk. Ljósbrúnn. 69 þús. km- Kr- 170.000. SIFELLD BILASALA Sími 77200 SÍFELLD ÞJÓNUSTA Sími 77202 km. Kr. 180.000. Opið frá 9—7 Egill Vilhjálmsson hf. Smiðjuvegi 4C, Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.