Morgunblaðið - 25.10.1983, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1983
íslandsmót kvenna í bridge:
Úrslitin rédust í
síðustu spilunum
JÚLÍANA ísebarn og Margrét
Margeirsdóttir uröu íslandsraeistar-
ar í bridge í kvennaflokki en keppn-
in fór frara sl. laugardag. Hlutu þær
93 stig yfir meðalskor. Erla Sigur-
jónsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir
urðu að láta sér nægja annað sætið
en þær höfðu góða forystu í keppn-
inni þegar þreraur uraferðum var
ólokið. Þær hlutu 90 stig yfir meðal-
skor en í þriðja sæti urðu Sigrún
„Álafoss-
dagar“
„„ÁLAFOSSDAGAR" eru nú
haldnir f fyrsta skipti. Tilgangur-
inn með því að merkja ákveðna
daga Álafossi er fyrst og fremst sá
að kynna fyrirtækið og vörur þess.
Sérstaklega er lögð áhersla á að
kynna hverskonar nýjungar í fram-
leiðslu verksmiðjunnar. í framtíð-
inni verða „Álafossdagar" árlegur
viðburður," segir í fréttatilkynn-
ingu frá Álafossi.
„Að þessu sinni verður fyrir-
tækið kynnt sem heild. Starf-
semi verksmiðjunnar í Mos-
fellssveit verður almenningi til
sýnis þriðjudagana 25. okt. og 7.
nóv. Rútuferðir verða frá Ala-
fossbúðinni kl. 14.00 þessa daga.
Verslunin að Vesturgötu 2 (Ála-
fossbúðin) verður með sérstaka
kynningu á starfseminni á
hverjum degi, og mun þar gæta
ýmissa nýjunga," segir ennfrem-
ur.
Pétursdóttir og Rósa Þorsteinsdóttir
með 59 stig.
Á sunnudag var spilað ís-
landsmót í blönduðum flokki. Þar
sigruðu hjónin Ingibjörg Hall-
dórsdóttir og Sigvaldi Þorsteins-
son, hlutu 733 stig. í öðru sæti
urðu Kristjana Steingrímsdóttir
og Þórarinn Sigþórsson með 723
stig og Halla Bergþórsdóttir og
Jóhann Jónsson urðu þriðju með
700 stig. Keppnisformið í þessari
keppni var Michell-tvímenningur.
Nánar verður sagt frá mótunum
í bridgeþætti.
Frá íslandsmóti kvenna í tvímenningi sem fram fór sl. laugardag.
MorgunblaðiÖ/Arnór
Skólavillingar í Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ hefur frumsýnt
myndina Skólavillingarnir (Fast
Times at Ridgemont High). Leik-
stjóri er Amy Hecerling, en helstu
hlutverk í höndum Sean Penn og
Jennifer Jason Leigh. Myndin
fjallar um líf unglinga í mennta-
skóla og hvað þeir taka sér fyrir
hendur.
Foringi eöa fyrirmadur í Háskólabíói
HÁSKÓLABÍÓ hefur frumsýnt
kvikmyndina Foringi og fyrirmaður
(An Officer and a Gentleman) með
Richard Gere og Debra Winger í að-
alhlutverkum.
Myndin fjallar um mann sem
vill gerast þotuflugmaður í flug-
her Bandaríkjanna og raunir þær
sem hann þarf að ganga í gegnum
í æfingabúðum til að ná því tak-
marki, en það er ekki tekið út með
sældinni. Þá kynnist hann stúlku í
smábæ í grennd við æfingabúðirn-
ar.
Lois Cossett fékk óskarsverð-
laun fyrir leik sinn í hlutverki lið-
þjálfans, sem æfir nýliðana. Aðrir
leikarar voru einnig tilnefndir til
verðlaunanna.
SMITWELD
rafsuðuvír
Rafsuðumenn um allan heim
þekkja SMITWELD merkið. í yfir
hálfa öld hefur SMITWELD
þjónað iðnaði og handverks-
mönnum um allan heim.
SMITWELD rafsuðurvírinn er
einn sá mest seldi í Evrópu.
Yfir 70% af rafsuðuvír fyrir ryð-
varið efni, sem selt er í Vestur-
Evrópu erfrá SMITWELD.
Sannar það eitt gæði hans. Við
höfum fyrirliggjandi í birgðastöð
okkar allar algengustu gerðir
SMITWELDS rafsuðuvírs og
pöntum vír fyrir sérstök verkefni.
SMITWELD:
FYRSTA FLOKKS VÖRUR Á
MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI
SINDRA
STALHF
Pósthólt 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, slmi: 27222, bein llna: 11711.
Kvöld og helgarsfmi: 77988.
Stjörnubíó
sýnir „Aðeins
þegar ég hlæ“
STJÖRNUBÍÓ hefur frumsýnt
kvikmyndina „Aðeins þegar ég
hlæ“, með Marsha Mason í að-
alhlutverki.
í tilkynningu kvikmyndahússins
segir að hér sé um að ræða banda-
ríska gamanmynd með alvarlegu
ívafi. Hún fjallar um leikkonuna
Georgiu, sem átt hefur við
drykkjuvandamál að stríða. Hún
fer í afvötnun og hyggst feta út á
leiklistarbrautina á ný en ýmis
ljón eru í veginum.
Þú svalar lestrarþörf dagsins _
ásíöum Moggans!
Nýjar
leiðir
r
i
verðmyndun
landbúnaðar-
afurða.
Landsmálafélagið Vörður
efnir til fundar um nýjar leiðir í verðmyndun
landbúnaðarafurða
ÞRIÐJUDAGINN 25. OKTÓBER NK. KL. 20.30
í VALHÖLL, HÁALEITISBRAUT 1.
Framsöguræður flytja:
PLHjil ililllif----
CJýOfTi MaTTrHasSOn
Björn Matthíasson, hagfræðingur: Verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og afleiðingar þess. Gunnar
Jóhannsson bóndi á Ásmundarstöðum: Nýjar leiðir í landbúnaði
Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður: Ný stjórnunarviðhorf í landbúnaði.
Að loknum framsöguræðum verða leyfðar umræður. Fundarstjóri: Elín Pálmadóttir.
Fundarritari: Guðmundur Jónsson. -n i • -n
Fundurmn er ollum opinn.
EyjóHur Konréð
Jónsson