Morgunblaðið - 25.10.1983, Page 41

Morgunblaðið - 25.10.1983, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1983 41 U'lk í fréttum Lena Nyman bíður eftir nýju ævintýri + Hver man ekki eftir henni Lenu Nyman, sem geröi garðinn frægan í sænsku mvndunum „Forvitin gul“ og „Forvitin blá“? Lena er nú 39 ára gömul og.á þegar að baki mjög litríkan feril sem leikkona og lista- maður. Bara í sumar hefur hún leik ið í þremur kvikmyndum, mislöng- um, og nú síðast í „Ronju ræningja- dóttur“ eftir sögu Astrid Lindgren. Lena Nyman hefur ekki aðeins gert það gott í leiklistinni. Um hana er sagt, að fáar eða engar sænskar kvikmyndaleikkonur hafi átt jafn mörg ástarævintýri og hún. Hún hefur alltaf látið til- finningarnar ráða ferðinni, en þær eru eins og allir vita dálítið varasamur leiðarvísir, og þess vegna eru ástarsorgirnar jafn margar ævintýrunum. 1 vor sem leið slitnaði upp úr sambandi hennar og leikarans Thomas Pontén, og nú er Lena ein á báti og reynir að gleyma vonbrigðun- um með því að vinna myrkranna á milli. Hún á engin börn til að hugga sig við, þrátt fyrir nokkur hjónabönd, en hver veit nema nýtt ævintýri bíði hennar á bak við næsta leiti. Lena Nyman — litríkur ferill í listinni og ástamálunum. + Debbie Reyn- olds hefur nú tekið upp harða samkeppni við Jane Fonda í lík- amsræktinni en takmarkar sig þó við konur, sem komnar eru yfir fimmtugt eins og hún. Æfingarnar hennar Debbie eru ekki nærri því eins strang- Magabeltið gerir konurnar mjóar ar og hjá Fonda og auk þess not- ar hún ýmis hjálparmeðul. Eru það sér- stakt magabelti og nuddkrem. Fyrst er krem- inu smurt á magann, beltið spennt yfir og ef farið er rétt að öllu verða kon- urnar eins og Debbie sjálf á skömmum tíma. Þjónusta fagmanna Tökum að okkur alla almenna byggingavinnu PLANTERS Heildsölubirgðir: Agnar Ludvigsson hf. Nýlendugötu 21, sími 12134. Loftbitar 30 milljarðar fyrir að segja já + Brooke Shields, kvikmyndaleikkonan unga, sem lagt hefur leikinn á hilluna um stund til að Ijúka háskóla- námi, tilkynnti mömmu sinni nú nýlega að sér hefði verið gert hjúskapartilboð og að það fylgdi meö, að ef hún segði já fengi hún einn milljarð dollara fyrir vikið, nærri 30 milljaðra ísl. kr. Það er að sjálfsögðu arabi, sem býður svona vel í Brooke, ungur maður að nafni Muhammed Khash- oggi, en hann og fjölskylda hans ösla olíudollarana upp fyrir haus. Þau kynntust fyrst í Monte Carlo þegar Brooke var aðeins fimmtán ára gömul og hafa síðan sést öðru hverju saman. Þótt milljarður doll- ara sé meira en Brooke mun nokkru sinni geta unnið sér inn þá er hún ekki á neinu flæðiskeri stödd í peningamálum. Hún hefur þegar nokkrar milljónir til að hlaupa upp á og líklegast er að hún muni láta sér nægja það, því að það er ekki tekið út með sitjandi sældinni fyrir vestrænar konur að vera gift- ar aröbum. Þeir hafa eins og kunnugt er dálítið aðrar hugmyndir um stöðu konunnar í hjónabandi en tíðkast á Vesturlöndum. sígíldur stíll audveld uppsetning Auf’lýstnf’ar fir hcmnunsf Skulatum 4 Simi25l50 Reykpvtk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.