Morgunblaðið - 29.10.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983
LjÓ8m. Mbl. I*órsteinn.
Tveir úr hinu harðsnúna liði Pósts og síma: Svanur Jóhannsson t.h. og
Daníel Sighvatsson t.v., símamenn frá Sauðárkróki, fyrir framan Volvó-
inn, sem er elsti bíllinn af þeirri gerð í þjónustu Pósts og síma. Hann er
árgerð 1963 og því 20 ára gamall.
Skagafjörður:
Einmanalegt í kot-
inu eftir að sjálf-
virki síminn kom!
Miklahæ, 20. október.
í SUMAK unnu símamenn dyggi-
lega við að plægja niður síma-
streng fyrir sjálfvirkan síma í
Akra- og Lýtingsstaðahreppum og
tengja hann inn á hvert heimili
Heimamenn fylgdust vel með
verkinu og sífellt voru síma-
menn spurðir hvenær yrði tengt,
því ekki var frítt við, að spenn-
ingur væri í mannskapnum, að
fá „prívat" síma. Þó gætti kvíða
hjá einstaka fólki því fullvíst var
talið að nýi síminn yrði dýrari.
Loksins var allt svæðið tengt,
en það var gert 10. október sl.
Skömmu eftir tenginguna var
haft eftir einum bónda á svæð-
inu: „Nú fyrst átta margir sig á
því, að líklega hafi þeir hlustað
gamla símann meira en þá grun-
aði, því ansi væri nú orðið ein-
manalegt í kotinu!"
Þórsteinn
Næsti viðræðufundur við Swiss Aluminium í Reykjavík 8.—9. des. nk.:
Sennilega byrjað á við-
ræðum um orkuverðið
— segir dr. Gunnar G. Schram um efni þess fundar
NÆSTI viðræðufundur íslendinga
við fulltrúa Alusuisse var ákveðinn á
fundi samningsaðila í London í gær,
en þar var farið yfir helstu atriði
vegna endurskoðunar á aðalsamn-
ingi. Næsti fundur verður haldinn í
Reykjavík 8.-9. desember og að
sögn Gunnars G. Schram samninga-
nefndarmanns í símtali til London í
gærkvöldi verður þar sennilega byrj-
að á samningaviðræðum um orku-
verð til ÍSAL.
Fundurinn í gær var einvörð-
ungu undirbúningsfundur fyrir
komandi samningaviðræður. Að
sögn Gunnars var þar farið yfir
helstu þætti komandi viðræðna,
svo sem endurskoðun á orkuverði,
hugsanlega stækkun verksmiðj-
unnar og endurskoðun á skatta-
ákvæðunum sem aðilar eru sam-
mála um að nauðsynlegt sé að
endurskoða og gera skýrari til að
komast hjá frekari deilum um þau
atriði.
Að sögn Gunnars verður senni-
lega byrjað á umræðum um orku-
verðið á fundinum í Reykjavík
8.-9. desember nk. Hann sagði að
fram að því myndu sérfræðingar
vinna að söfnun gagna og upplýs-
inga um einstök mál. Þá sagði
hann, að ekki væri ákveðið hvort
öll nefndin myndi hittast á næsta
fundi, eða hvort aðeins yrði þar
um að ræða hluta hennar og þá
sérfræðinga.
Fundinn, sem stóð frá því ár-
degis og fram á miðjan dag, sátu
fyrir íslands hönd Jóhannes Nor-
dal formaður viðræðunefndarinn-
ar, Gunnar G. Schram og Guð-
mundur Þórarinsson, einnig ritari
nefndarinnar, Garðar Ingvarsson.
Forstjórar Alusuisse, dr. Muller
og dr. Ernst, auk þriggja annarra
sátu fundinn af hálfu Swiss Alu-
minium.
Þorsteinn Gíslason, framkvæmdastjóri Coldwater:
Sverrir Hermannsson
rangfærir birgðastöð-
una í Bandaríkjunum
„í MORGUNBLAÐINU 19. október
síðastliðinn var haft eftir Sverri Her-
mannssyni að birgðir frysts fisks í
Bandaríkjunum hafi tvöfaldast frá
því í fyrra. Hið sanna er að birgðir
allra fiskflaka hjá Coldwater eru ör-
lítið minni en á sama tíma í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum frá Iceland
Seafood ('orporation eru birgðir
þeirra einnig svipaðar og í fyrra,“
sagði Þorsteinn Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Coldwater í samtali
við Morgunblaðið.
„Fyrir ráðherra, sem skrifar um
að hefja nýja sókn í sölustarfsemi,
er það óskiljanlegt skemmdarverk
að tvöfalda birgðastöðuna í
Bandaríkjunum í fjölmiðlum. All-
ir geta séð, að keppinautar fslend-
inga gætu ekki fengið betri liðs-
mann en Sverrir er þeim nú. Hann
Hafskip kaupír bandarískt
flutningsmiðlunarfyrírtæki
Velta fyrirtækisins á bilinu 560—700 milljónir króna á ári
Hafskipsmenn hafa gengið frá
kaupum á bandaríska flutn-
ingsmiðlunarfyrirtækinu
COSMOS, að sögn Björgólfs
Guðmundssonar, forstjóra Haf-
skips, sem jafnframt segir í við-
tali við Morgunblaðið, að þetta sé
fyrsta skref Hafskips til aukinna
umsvifa á erlendri grund.
COSMOS-fyrirtækið er með
skrifstofur í fimm borgum
Bandaríkjanna og starfsmenn
þess eru liðlega 50 talsins.
Björgólfur Guðmundsson segir
ennfremur í viðtalinu, að flutn-
ingavelta fyrirtækisins sé á bil-
inu 20—25 milljónir dollara,
TIME með
Islandsútgáfu
HIÐ þekkta tímarit „Time“ gefur út
sérstakt auglýsingablað um ísland,
sem kemur út á mánudaginn, 31.
október. Starfsmenn tímaritsins
voru hér á ferð í sumar til að afla
efnis, sem er mjög fjölbreytt.
í blaðinu er m.a. fjallað um upp-
runa lands og þjóðar, orku Iands-
ins, eldfjöll, vatnsorku og gufu,
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta
íslands, kjör hennar og setu á for-
seíastóli, efnahagsmál landsins,
Flugleiðir og flug þeirra á Norð-
ur-Atlantshafinu, íslenzku ullina
og mikilvægi hennar fyrir íslend-
inga og ferskfiskflutninga frá fs-
landi til Bandaríkjanna. Þá er
fjallað um veru íslendinga í
NATO.
sem jafngildir 560—700 millj-
ónum íslenzkra króna.
Þá segir Björgólfur Guð-
mundsson, að með tilkomu
COSMOS gæti orðið mögulegt
að tryggja íslenzku kaupskipa-
félögunum þremur talsverða
flutninga milli Norður-Amer-
íku og Evrópu, með viðkomu á
íslandi og þannig stuðla að
lækkun flutningskostnaðar
fyrir landsmenn, ekki aðeins á
innflutningi, heldur einnig á
útflutningi á fiskafurðum og
iðnaðarvörum.
í lok viðtalsins segir Björg-
ólfur Guðmundsson: „Það er
skoðun forráðamanna Haf-
skips, að landsmenn eigi ekki
aðeins að byggja á eigin fram-
leiðslu til öflunar erlends gjald-
eyris, heldur beri fyrirtækjum
og einstaklingum að stefna að
því að selja íslenzka þjónustu
og þekkingu á alþjóða vett-
vangi, eins og til dæmis Norð-
menn og Danir hafa gert með
ævintýralegum árangri um
áratuga skeið.“
Sjá ennfremur viðtal við
Björgólf Guðmundsson, for-
stjóra Hafskips, bls. 13.
Mikil hreyfing komin á
skreiðarsölu til Nígeríu
— segir Ragnar Sigurjónsson, sölustjóri Skreiöardeildar Sambandsins
NOKKUR skriður er nú aö komast
á skreióarútflutning hjá Skreióar-
deild Sambandsins. Tekizt hefur
að selja alla herta hausa, sem þar
hafa verið til, samningar um sölu á
allt að 30.000 pökkum af skreið
hafa ennfremur tekizt og samning-
ar um frekari sölu standa yfir. Að
sögn Ragnars Sigurjónssonar,
sölustjóra Skreiðardeildar, lítur út
fyrir að aðeins verði 10.000 til
I5.t)00 pakkar í birgðum hjá Sam-
bandinu um áramót.
„Mikil hreyfing er nú komin á
skreiðarsölur hjá Sambandinu
til Nígeríu. Tekizt hefur sala á
öllum birgðum okkar á hausum,
35.000 til 40.000 pökkum, sem af-
skipað verður á næstunni og
hafa ábyrgðir fyrir öllu þessu
magni verið opnaðar. Einnig
hafa tekizt samningar um sölu á
um 30.000 pökkum af skreið, öll-
um tegundum og eru ábyrgðir
komnar fyrir hluta þessa magns.
Ennfremur standa yfir samning-
ar um sölu á umtalsverðu magni
til viðbótar, hugsanlega um
20.000 pökkum, þannig að útlit
er fyrir að fremur litlar birgðir
af skreið verði hjá okkur um
áramótin, eða 10.000 til 15.000
pakkar ef þetta gengur upp.
Afskipanir verða með Hval-
víkinni, sem við erum með ásamt
Samlagi skreiðarframleiðenda
og tekur hún rúmlega 40.000
pakka og byrjar lestun í næstu
viku. Einnig höfum við tekið á
leigu skip, sem heitir Marlene S.
Tekur það svipað magn og byrj-
ar lestun um miðjan nóvember.
Þá verður sent nokkurt magn
með gámum í gegnum Evrópu.
Mikil eftirspurn er eftir hausum
í Nígeríu nú og gott útlit fyrir
sölu á þeim á næsta ári og hefð-
um við nú getað selt miklu meira
af hausum ef til hefðu verið.
í þessum samningum hefur
verið gefinn 20% afsláttur eins
og tíðkazt hefur frá byrjun þessa
árs og á 6 mánaða óafturkallan-
legum, óstaðfestum ábyrgðum,
en við eins og aðrir bindum
miklar vonir við svokallaða
„kreditlínu", sem fyrirhugað er
að opna milli Seðlabanka lslands
og Nígeríu, en það þýðir að
greiðslur ættu að berast mjög
fljótlega eftir gjalddaga ábyrgð-
ar,“ sagði Ragnar Sigurjónsson
ennfremur.
hefur einnig haldið uppi árásum á
SH og SÍS fyrir athafnaleysi í
sölumálum á seinni árum. Ekki
veit ég hvað þarf til að hrífa
Sverri Hermannsson, en Coldwat-
er hefur tífaldað sölu sína á tutt-
ugu árum og Iceland Seafood hef-
ur einnig aukið sölu sína gífur-
lega. Þessi félög þurfa ekki að láta
Sverri vekja sig til dáða. Þau hafa
stóraukið sölu til þeirra mark-
aðssvæða, sem hæst verð geta
greitt, með ótal nýjungum, bæði í
söluaðferðum og framleiðsluað-
ferðum.
Ég vil sérstaklega frábiðja mér
gagnrýni frá Sverri fyrir að verð
okkar í Bandaríkjunum sé alltof
hátt. Við höfum ávallt selt fyrir
miklu hærra verð en aðrir og
munum væntanlega halda því
áfram þrátt fyrir svona ábend-
ingar. Margvíslegar aðgerðir eru í
gangi til þess að tryggja nægilega
sölu á fullu verði og verður þeim
haldið áfram eftir þörfum. Ef
nægileg vandvirkni er viðhöfð í
framleiðslunni, virðist mér að
þessi viðleitni muni takast eins og
raunar ávallt áður. Öll lausmælgi
um æskilegar verðlækkanir og
rangfærslur um birgðastöðu, gerir
ekkert annað en að draga úr
möguleikum okkar til þess að skila
sem mestum verðmætum inn í ís-
lenzka þjóðarbúið," sagði Þor-
steinn Gíslason.
Ragnar Arnalds:
Ekki sann-
leikanum
samkvæmt
„ÞESSI frásögn Guðmundar er að
vísu ekki sannleikanum samkvæm,
en ég kæri mig ekkert um að standa
í blaðadeilum við hann í Morgun-
blaöinu", sagði Ragnar Arnalds
formaður þingflokks Alþýðubanda-
lagsins m.a., er Mbl. spurði hann
álits á ummælum Guðmundar J.
Guðmundssonar í viötali í Mbl. í
gær.
Ragnari var fyrst boðið að tjá
sig um málið almennt. Hann svar-
aði: „Þakka þér fyrir, en ég kæri
mig nú ekkert um það. Mér satt að
segja finnst nú aðallega furðulegt
hvað Morgunblaðið endist til að
velta sér upp úr þessu ómerkilega
máli.“
— Nú eru þetta orð Guðmundar
J. Guðmundssonar sem hann við-
hefur um þig og þín vinnubrögð,
en ekki orð Morgunblaðsins?
„Já, já, en það er þarna verið að
blása upp smámál. Það er nú það
sem er.“
— Að Guðmundur sé þá að
blása upp smámál?
„Já, já.“
Ragnar var í lokin spurður,
hvort hann myndi svara honum á
öðrum vettvangi. „Já, já“, var
svarið og lengra varð samtalið
ekki.