Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983
5
Hljómplata með
píanóleik Rögnvaldar
FÁLKINN hefur gefið út
hljómplötu með píanóleik
Rögnvalds Sigurjónssonar. Leik-
ur Rögnvaldur verk eftir Robert
Schumannm, Frederic Chopin
og Franz Liszt.
Á plötuumslagið ritar Run-
ólfur Þórðarson um píanóleik
Rögnvalds og verkin á plöt-
unni. Þar segir hann m.a. að á
hljómplötunni sé að finna sýn-
ishorn af píanóleik Rögnvalds
frá ýmsum tímum á listabraut
hans, bæði endurútgáfur fyrri
hljóðritana og hljóðritanir,
sem nú koma í fyrsta sinn á
plötu.
Hlið 1 er tileinkuð píanó-
tónlist eftir Schumann en tón-
list hans hefur frá fyrstu tíð
verið Rögnvaldi hugleikin og
hinn skáldlegi innblástur
Schumanns átt vel við Rögn-
vald, ritar Runólfur. Á hlið tvö
eru verk úr „Fantasiestucke",
„Aufschwung" og „Warum?"
og var hljóðritunin gerð í
Kaupmannahöfn árið 1956.
Þá er „Sonata op. 22 í g-
moU“, ein af þremur píanósón-
ötum Schumanns, og var
hljóðritunin gerð af Ríkisút-
varpinu 1971 og kemur nú í
fyrsta sinn á plötu.
Á hlið 2 eru etýður op. 10 og
25, vals op. 34 og ballaða op. 47
eftir Frederic Chopin. Fyrri
etýðan var hljóðrituð í Kaup-
mannahöfn 1960 og sú síðari í
London 1970, valsinn var
hljóðritaður af Ríkisútvarpinu
1968 og heyrist nú í fyrsta
sinn. Ballaðan var hljóðrituð í
Reykjavík 1961.
Á hlið 2 eru tvö verk eftir
Franz Liszt, útsetning hans á
fimmta laginu í „Chants pol-
onais“, Chopins og Mefistovals
nr. 1. Fyrra verkið var hljóð-
ritað í Kaupmannahöfn 1960
og síðara verkið í London 1970.
Málverkið af Rögnvaldi Sig-
urjónssyni á forsíðu plötuum-
slagsins er eftir Atla Má.
Rögnvaldur Sigurjónsson
fæddist 15. október 1918 og hóf
hann píanónám í Reykjavík
1931. Hann hét síðan áfram
námi í París og New York.
Hann hefur haldið fjölmarga
tónleika á öllum Norðurlönd-
unum, Rússlandi, Rúmeníu,
Austurríki, Bandaríkjunum,
Kanada og víða hér heima.
Fimm hljómplötur hafa áð-
ur verið gefnar út með píanó-
leik Rögnvalds.
„Gleymum ekki geðsjúkum" er yfirskrift K-dags Kiwanishreyfingar-
innar sem er í dag, laugardag. Kiwanismenn um allt land munu kveðja
á dyr landsmanna og bjóða K-lykil til styrktar geðsjúkum. Á myndinni
afhendir Jón K. Ólafsson, umdæmisstjóri Kiwanis, forseta Islands,
Vigdísi Finnbogadóttur, fyrsta K-lykilinn. Með þeim á myndinni er
formaður K-dagsnefndar, Finnbjörn Gíslason.
Tvö bíó
lækka
miðaverð
LAUGARÁSBÍÓ og Bíóhöllin
hafa ákveðið að lækka miðaverð á
sýningar sínar klukkan 5 og 7 á
virkum dögum og hefjast afslátt-
arsýningarnar um mánaðamótin.
Bíóin munu bjóða miða á um-
ræddar sýningar á 50 krónur en
venjulega kosta bíómiðar nú 80
krónur og ef um hækkað verð er
að ræða 100 krónur.
í frétt frá bíóunum segir að
nýbreytni þessi hafi þegar verið
tekin upp á Norðurlöndum og í
Bretlandi og verið vei tekið og
vonast þeir til að svo verði einnig
hér.
Fjögur tilboð í þvotta- og
línþjónustu Ríkisspítala
TILBOÐ í þvotta- og línþjónustu rík-
isspítala voni opnuð í gær, fostudag,
og bárust þau frá fjórum aðilum,
eins og segir í fréttatilkynningu frá
ríkisspítölum. Voru tilboðin frá eftir-
töldum aðilum:
Þvottahúsinu Fönn.
Kristjáni A. Guðmundssyni og
Valgarði Bjarnasyni.
Sigurjóni Þórðarsyni.
Grétari Pálssyni (frávikstilboð,
eingöngu vinnuföt).
Samanburður á þvotta- og lín-
kostnaði öðrum en sölu á vinnu-
fötum er þannig segir í fréttinni:
Þvottahúsið Fönn 20.156 þús. kr.
Kristján A. Guðmundsson og
Valgarður Bjarna. 24.860 þús. kr.
Sigurjón Þórðarson 36.593 þús. kr.
Rekstrarkostnaður þvottahúss
ríkisspítala er 17,7 millj. kr. miðað
við sama magn.
Þá er eftir að taka tillit til eftir-
farandi:
1. Afskrifta.
2. Þátttöku í sameiginlegum
skrifstofukostnaði.
3. Vinnu níu öryrkja í þvottahúsi
ríkisspítala.
4. Þess að þvottahús ríkisspítala
leggur samkvæmt útboðsgögn-
um verktaka til þvottavagna.
5. Kostnaður ríkisspítala við eft-
irlit með verktaka.
Samanburður á tilboðum i
vinnuföt er þannig:
Þvottahúsið Fönn 2.871 þús. kr.
Kristján A. Guðmundsson og
Valgarður Bjarnason 2.380 þús. kr.
Grétar Pálsson 2.247 þús. kr.
Sigurjón Þórðarson 4.630 þús. kr.
Egill Vilhjálmsson hf.
_________& Smiðiuvegi 4C, Kópavogi. __
1928 ALLT Á SAMA STAÐ 1983 55 ÁRA ÞJÓNUSTA
Notaðir bílar - Skipti möguleg
AMC EAGLE
2 d., Sedan 1982. Óekinn. Ljós-
brúnn. Kr. 635.000.
FIAT RITMO 85 SUPER 82 FIAT PANDA ’82
Grásanz, sjálfskiptur, ekinn 14 21 þús. km. Hvítur. Kr. 160.000.
þús. Verö 175.000,-
AMC EAGLE 1981
92 þús. km. Kr. 450.000.
FORD CORTINA 1974
Blásanzeruö. Verö 85.000.-
Sífelld þjónusta — Allt á sama staö hjá Agli í Fíat-húsinu
FIAT RITMO 65 cl. ’82 FIAT 125 P 1980
37 þús. km. Rauöur. Kr. 220.000. Hvítur, ekinn 34 þús. Verö
100.000,-
SÍFELLD BÍLASALA
Sími 77200
AMC CONCORD
STATION 78
6 cyl., sjálfsk. Ljósbrúnn. 69 þús.
km. Kr. 180.000.
AMC CONCORD 78
2 dyra Sedan. Ljósbrúnn. 64 þús.
km. Kr. 170.000.
MAZDA PICK-UP 1979
90 þús. km. Kr. 110.000.
Opið frá 9—7
SÍFELLD ÞJÓNUSTA
Sími 77202
Egill Vilhjálmsson hf.
Smiójuvegi 4C, Kópavogi.