Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983 ást er • • • 5-\°l ... ad biðja um vopnahlé. TM Reo U.S Pat Ofl —all rights reserved e 1980 Los Angeles Times Syndicate Skilur þú þetta sem verið er að segja að erfitt sé að hætta að reykja? Og hvað má ég bjóða undir 200 krónum. HÖGNI HREKKVÍSI Úr bresku kvikmyndinni „Fær Rut að lifa?“, sem sjónvarpið sýndi fyrr í mánuðinum. Hvaða reglur gilda hér um afskipti aðstandenda sjúkra af aðgerðum lækna? Þórunn Guðmundsdóttir skrifar: „Velvakandi! Nýlega var að mér þótti mjög athyglisverð mynd í sjónvarpinu. Barn var flutt slasað í sjúkrahús. Læknir taldi blóðgjöf lífnauðsyn- lega. Slíka aðgerð mátti ekki gera nema með leyfi foreldra. Faðirinn áleit, að ummæli í Biblíunni bönn- uðu bióðgjöf og veitti ekki leyfi sitt. Barnið dó. Læknirinn kærði föðurinn fyrir vanrækslu gagn- vart barninu. Málið kom fyrir rétt og kviðdómurinn sýknaði mann- inn. Virðist mér það rökrétt, því ef hann gat samkvæmt lögum bann- að aðgerðina, þá var auðvitað ekki hægt að dæma hann fyrir neitun- ina. Þessi mynd rifjaði upp fyrir mér atvik, sem gerðust hér á landi fyrir allmörgum árum. Mér eru kunn tvö tilfelli, þar sem leitað var til nánustu aðstandenda og beðið um leyfi til að gera aðgerðir á mönnum i bráðri lífshættu. Þeim, sem um leyfið voru beðnir, fannst þetta ótrúleg fjarstæða. Hvað hefði gerst, ef leyfið hefði ekki verið veitt? Án þessarar vitneskju hefði mér aldrei komið til hugar, að læknar leituðu eftir slíku leyfi. Mér þætti fróðlegt að vita, hvort þetta er ennþá viðtekin venja eða hafi ver- ið almenn regla eða skylda lækna. Þótt læknum geti mistekist, þá. vita þeir þó betur en aðrir hvað þarf og ber að gera. Hver einstaklingur á þau sjálf- sögðu mannréttindi, frá vöggu til grafar, að mega njóta læknis- hjálpar án afskipta aðstandenda. Hitt er annað mál, að fólk getur látið vera að leita börnum sínum lækninga vegna trúarofstækis eða trassaskapar og við því er erfitt að gera. Ég hef aldrei séð neitt upp- lýst um þetta efni, s.s. réttindi að- standenda sjúkra til afskipta af aðgerðum lækna. Ef til vill eru þau engin hér á landi. Þetta er mikilsvert mál og væri þarft að fá að vita, hvaða reglur gilda hér- lendis í þessu efni.“ Þessir hringdu . . . Nýju fötin keisarans: Var efnið í báðfötun- um e.t.v. sama eðlis? Sigurbjörn Guðmundsson skrifar: „Nýlega taldi jafnréttisráð ástæðu til að vekja athygli almenn- ings á auglýsingu, þar sem m.a. birtist mynd af baðfötum konu og þar með hvernig slík flík situr. Mynd þessa taldi jafnréttisráð hina mestu óvirðingu við konur almennt og því bryti birting hennar í bága við jafnréttislög. Rökstuðningur var hins vegar harla óljós. Ef til vill er óvirðing í þvi fólgin að birta ekki samtímis mynd af karlmannabaðfötum í náttúrulegu umhverfi. Ég vil því Jóh. Gunnarsson, Húsavík, skrif- ar 23. okt.: „Velvakandi! í Morgunblaðinu 16. okt. sl. er eftirfarandi vísa: RaUAi hann rélU leiA, þó rigning vcri og þoka. Ilreppntjórinn úr hladi reið, hafði með sér poka. Tilefnið var að hreppstjóri reið leyfa mér að skora á viðkomandi auglýsanda að bæta nú þegar um vegna mistaka sinna og birta aug- lýsingu með sambærilegri mynd af karlmannsbaðfötum. Ekki mundi saka, að efnið í þeim væri sama eð- lis og það sem notað var í nýju fötin keisarans forðum, að það væri gegnsætt þeim heimsku og dugl- ausu í starfi. Þannig mundi auglýs- ingin öðlast margfalt gildi. Vel á minnst, var efnið í baðföt- unum í auglýsingunni ef 'til vill þessarar náttúru, fyrst sumir virð- ast hafa séð meira en aðrir?" á hvalfjöru og sóknarprestur slóst í förina. Þessa vísu lærði ég fyrir u.þ.b. 40 árum og þá svona: Hreppstjórinn á hræié reid, hafhi meé nér poka. RaUAi alveg rélta leid, þó rigning væri op þoka. Og: Eitthvað verð- ur að gera Skotveiðimaður hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mér datt í hug, þegar ég frétti af rjúpna- skyttunni sem týndist um daginn, að nú væri orðið tímabært að gera okkur veiðimennina á einhvern hátt ábyrga fyrir sjálfum okkur. Það er alveg ófært, að mönnum skuli líðast að setja allt landið á annan endann, bara vegna klaufa- skapar þeirra, óforsjálni eða kær- uleysis. Rjúpnaveiði er tóm- stundaiðja, svo að það verður að gera þær kröfur til veiðimann- anna, að þeir fari að öllu leyti vel útbúnir af stað og stundi sportið á ábyrgan hátt. Ellegar gjöri þeir svo vel og pungi út einhverri fyrir- fram ákveðinni fjárhæð upp í leit- arkostnað. Eitthvað verður að gera til þess að menn hiki við að sýna aðgæsluleysi í þessum efn- um. Afrek pr«‘.sLsins urrtu þrjú út á þönglabakk*: Skírði krakka, kcypti kú og kláraói (.runopakk*.'* GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Þarna var byggður vegur í fyrra. Rétt væri: Þarna var lagður vegur í fyrra. Eða:... gerður vegur ... Rataði alveg rétta leið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.