Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 48
HOLUWOOOi dt rr BítlaæðiðVV ÖI?I< völd ^/^5 m & i 1 I idb'DAVDW?^ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983 „Hljóp eftir síðunni og yfir á botn skips- ins þegar því hvolfdi“ segir Ingi Þórisson, háseti á Sandey en hann bjargaði félaga sínum „ÉG VAR staddur frammi stjórnborðsmegin viö dyrnar út á dekk þegar skipið hallaöist skyndilega á bakborða og fór því út. Ég klifraði upp á lunninguna og var að velta því fyrir mér hvað til bragðs skyldi taka — hver framvinda mála yrði; hvort skip- ið færi á réttan kjöl eða yfirum. Allt gerðist þetta á örfáum sek- úndum — ég hljóp upp síðuna eftir því sem hallinn varð meiri á skipinu og yfir á botn þess þegar því hvolfdi," sagði Ingi Þórisson, þrítugur háseti á Sandeynni í samtali við Mbl. í gær, en hann bjargaðist af Sandeynni ásamt Sigurði Sigurbjörnssyni. „Allt gerðist þetta svo ótrú- lega hratt — ég giska á á inn- an við 30 sekúndum. Ég stóð ráðvilltur á prammanum en fór strax að svipast um eftir félögum mínum. Ég sá björg- unarhring í sjónum skammt frá og heyrði svo kallað og kom þá auga á Sigurð svamlandi í sjónum, líklega 10 til 15 metra frá skipinu. Ég fór úr peysunni og Sigurður náði taki á henni og hékk í henni. Við fikruðum okkur aftur eftir skipinu, þar sem eina vonin var um að hann kæmist upp á prammann. Hann náði taki á rist á hlið skipsins en tókst ekki að kom- ast upp á þrátt fyrir tilraunir okkar. Skömmu síðar barst að- Ingi Þórisson, háseti á Sandeynni; „Allt gekk þetta svo ótrúlega hratt fyrir sig — ég giska á á innan við 30 sekúndum." stoð — olíubáturinn Héðinn Valdimarsson kom á vettvang og stuttu seinna fleiri skip. Skipverjar á Héðni hjálpuðu Sigurði upp á prammann og síðan flutti lóðsbáturinn okkur í land. Það er ljóst, að hjálp barst á elleftu stundu því mjög var dregið af Sigurði. Ég er þakklátur forsjóninni að sleppa ásamt Sigurði úr þessum hildarleik, en sárt er Sigurður Sigurbjörnsson, skipverji á Sandey II, sem Ingi Þórisson bjargaði. Sigurður var mjög þjak- aöur eftir volkið í sjónum og er nú á Landakotsspítala. að sjá á eftir skipsfélögum. Ég var nýkominn ofan úr brú, þar sem Sigurður leysti mig af þegar skipinu hvolfdi. Hafði farið úr samfestingi og skóm í stakkageymslu og var á leið- inni niður í borðsal þegar skip- ið byrjaði skyndilega að halla. Tilviljun réð því að ég var staddur við dyrnar og það hef- ur orðið mér til lífs,“ sagði Ingi Þórisson. MorpablaM/FritpJihr Logi Gunnarsson og Sigurður Stefánsson. Ásamt þeim urðu Guðmundur Sigurðsson og Ástþór Björnsson vitni að slysinu. Við sáum skipið rúlla yfir eins og tunnu væri velt segja sjónarvottar að slysinu „VIÐ vorum að aka vestur eftir Vatnagörðunum, götunni sem liggur fyrir ofan Sundahöfnina, þegar bflstjórinn, Sigurður, segir: „Hvað er eiginlega að gerast þarna“. Við litum út um framrúðuna og sjáum Sandeyna á hliöinni og rúlla yfir, eins og tunnu sé velt — það gerðist svo snöggt," sagði Logi Gunnarsson, kranastjóri, en hann ásamt þremur félögum sínum varð sjónarvottur að því, er Sandey II hvolfdi út á Sundunum í gærmorgun og varð fyrstur til að tilkynna um slysið. „Ég sá skipið sporðreisast og velta yfir um. Það valt á bakborða, frá okkur í átt að Engey og ég sá færibandið sem notað er til að flytja sandinn í land bera við him- inn. Þetta var akkúrat klukkan 9,“ Einn látinn og þriggja skipverja er saknað EINN skipverji á Sandey II drukknaði og þriggja er saknað. Hinn látni heitir Torfi Ó. Sölvason, stýrimaður. Saknað er Guðmundar Jónssonar, skipstjóra, Kjartans Erlendssonar, vélstjóra og Emils Pálssonar, matsveins. Torfi Olafur Sölvason, Sólheimum 18, Reykjavík, 50 ára, fæddur 8. janúar 193.3. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvær dætur. Guðmundur Jónsson, Nesbala 80, Seltjarnarnesi, 31 árs gamall, fædd- ur 8. deseraber 1951. Kvæntur og þriggja barna faðir. Kjartan Erlendsson, Kjartansgötu 5, Reykjavík, 35 ára gamall, fæddur 7. marz 1948. Ókvæntur. Emil Pálsson, Torfufelli 13, Reykjavík, 60 ára, fæddur 8. sept- ember 1923. Kvæntur og sex barna faðir. sagði Sigurður Stefánsson, sá sem ók bílnum. „Ég bað Sigurð um að kalla í Steypustöðina og biðja þá um að hringja eftir hjálp og ég held að þeir hafi gert það. Við vorum með kíki í bílnum og við sáum að einn maður kom á kjöl strax. Hann hlýtur eiginlega að hafa hlaupið eftir hliðinni því hann var strax kominn upp á kjölinn. Við sáum hann mjög greinilega og sáum að hann fór að bogra eitthvað. Svo sýndist okkur við sjá annan mann, en við sáum það ekki nógu vel, þetta var svo langt í burtu. Það var talsvert óhugnanlegt að verða vitni að þessu,“ sagði Logi enn- fremur. —Þið hafið strax áttað ykkur á um hvað var að ræða? „Já, já maður hefur séð skipið það oft þarna. Við kölluðum í Steypustöðina og sögðum að Sand- ey hefði hvolft, þarna fyrir utan og báðum hann að hringja í lög- regluna eða eitthvað. Hann sagð- ist myndu gera það og við gáðum ekkert að því frekar. Við erum með talstöð og erum á fyrirtækja- rásinni og Steypustöðin er það einnig. Maður veit að það er alltaf maður þar á vakt, eins og er auð- vitað víðar. Mér datt Steypustöðin bara strax í hug. Við vorum fjórir saman í bíln- um á leið niður í Sundahöfn að sækja krana, sem við vorum með þar niður frá. Það var alger tilvilj- un að við vorum þarna staddir. Lögreglumenn eru komnir þarna korter, tuttugu mínútur yfir níu og fara á staðinn. Þá eru þeir farnir á Héðni Valdimars- syni, olíubátnum. Hann lá bund- inn há OLÍS út á Tanga. Hann fór strax út. Svo sá ég í kíkinum að annar bátur var að koma utan að, ég veit ekki hvaða bátur það var, það hefur sennilega verið lóðsinn," sagði Logi Gunnarsson ennfremur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.