Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983
Skilyrði að fyrir-
tækið verði í hönd-
um heimamanna
— segir Steinunn Bergsdóttir, verkstjóri hjá Sigló-sfld
STEINUNN Bergsdóttir, verkstjóri hjá Siglósfld, sem Uormóður rammi hef-
ur rekið á kaupleigusamningi síðan í júní, segir að sér lítist vel á þá hugmynd
að ríkisfyrirtækið Siglósfld verði selt. „Skilyrðið er aðeins eitt frá mínum
bæjardyrum séð,“ sagði hún, „og það er að fyrirtækið verði selt heimamönn-
um. Siglósfld á að vera áfram innanbæjar. Hér vinna í dag 96 manns og
Siglufjörður má ekki við því að atvinnutækifærum fækki.
Á fullri ferð við gaffalbitaframleiðslu í verksmiðju Siglósfldar: Útflutningsverðmætin 60 milljónir síðan í júní og hefst
varla undan að vinna upp í samninga.
Heimamenn undirbúa
kaup á Sigló-síld
— sem er ofarlega á sölulista fjármálaráðherra
Hún sagði að þótt rekstur Sigló-
síldar hefði oft gengið illa hefði
gengið „ljómandi vel síðan þetta
fór aftur í gang í sumar undir
stjórn Þormóðs ramma. Og ég
þarf ekki að fjölyrða um að hér
verður algjört hrun ef Þormóður
rammi stoppar. Þá verður hér
mikið atvinnuleysi. Rækjuvinnsl-
an var sett í gang til að brúa bilið,
því það hefur oft verið stopp þegar
ekki hefur verið hægt að vinna
síldina. Nú virðist vera vaxandi
áhugi á gaffalbitunum hjá Rúss-
um og með rækjunni er hægt að
vinna hér allt árið.“
Siglfirðingar eru áhyggjufullir
vegna þeirrar stöðu, sem Þormóð-
ur rammi hf. er nú í, að sögn
Steinunnar. „Konurnar hér fara
ekki í frystihúsið hjá Þormóði ef
Siglósíld hættir framleiðslu,"
sagði hún. „Hér eru margar konur,
sem hafa unnið lengi við þessa
framleiðslu og kunna því vel. Ef
Siglósild verður selt, ja, þá fara
sumar þeirra heim, aðrar gætu
flutt burtu úr bænum. Það væri
mjög gremjulegt, því nú virðist
vera grundvöllur fyrir rekstri
verksmiðjunnar. Bæði hefur
markaðurinn tekið við sér og svo
erum við með eigin dósaverk-
smiðju, þannig að þetta á að geta
gengið vel.“
Hún lagði á það ríka áherslu, að
hvað sem gerðist mætti Siglósíld
ekki hverfa úr höndum heima-
manna — ef fyrirtækið yrði selt
ætti það að verða um kyrrt á
Siglufirði.
HÓFUR manna á Siglufirði kannar
nú möguleika á því að stofnað verði
hlutafélag heimamanna um kaup á
Siglósfld, sem nú er að fullu í eigu
ríkissjóðs. Fjármálaráðherra hefur
lýsts því yfir, að hann vilji selja
Siglósfld og sagði á fundi á Siglufirði
í ágúst sl. að hann myndi selja fyrir-
tækið um leið og hann fengi tilboð í
það — en þó ekki án þess að hafa
samráð við heimamenn.
Nú mun vera komið tilboð 1
fyrirtækið frá Niðursuðuverk-
smiðjunni hf. á ísafirði og einnig
er vitað, að K. Jónsson hf. á Akur-
eyri hefur áhuga á að kaupa fyrir-
tækið. Þetta hefur valdið nokkrum
áhyggjum heimamanna á Siglu-
firði, ekki síst vegna þess, að síðan
Þormóður rammi hf. tók Siglósíld
á kaupleigu sl. sumar hefur rekst-
ur fyrirtækisins gengið mjög vel.
Hinrik Aðalsteinsson, stjórn-
arformaður Þormóðs ramma,
sagði blm. Morgunblaðsins, að út-
flutningsverðmæti síldarverk-
smiðjunnar síðan Þormóður
rammi tók við rekstrinum væri
um 60 milljónir króna, bæði síld
og rækja.
Siglfirðingar, sem blm. Morgun-
blaðsins ræddi við, sögðust hafa
um það upplýsingar, að fyrirhugað
væri að selja Siglósíld fyrir 12
milljónir króna. Þeir telja að verði
af kaupum ísfirðinga muni gaff-
albitaframleiðslunni verða hætt
og í staðinn verði bætt við rækju-
pillunarvélum. Þar með verði
verksmiðjan aðeins rekin í 4—5
mánuði á ári með um 20 manna
starfsliði í stað þess að í dag eru
um 100 manns við vinnu hjá Sigló-
síld.
Jóhannes Arason, framleiðslu-
stjóri hjá Siglósíld, sagði í samtali
við blaðamann Mbl., að vinnslan
hefði gengið mjög vel undanfarna
mánuði. „Framlegðin hefur verið
10—12 milljónir brúttó á þessum
tíma,“ sagði hann. „Við tókum upp
Steinunn Bergsdóttir verkstjóri og Jóhannes Arason framleiðslustjóri hjá
Sigló-sfld: Vaxandi áhugi hjá Rússum.
Brahms-tónleikar Kammer-
sveitar Reykjavíkur 1. nóvember
Fjölbreytt dagskrá 10. starfsárs að hefjast
KAMMERSVEIT Reykjavíkur er nú
að hefja 10. starfsár sitt og verða
fvrstu tónleikar hennar helgaðir
minningu Johannes Brahms, en í ár
eru 150 ár frá fæðingu hans. Verður
til þeirra efnt þriðjudaginn I. nóv-
ember næstkomandi á Kjarvals-
stöðum. Rut Ingólfsdóttir, fiðluleik-
ari, formaður Kammersveitarinnar,
sagði blaðamanni Morgunblaðsins
að á starfsárinu yrði efnt til fernra
tónleika eins og jafnan áður. Hún
sagði einnig að nú sem fyrr væru
flestir hljóðfæraleikarar Kammer-
sveitarinnar félagar í Sinfóníuhljóm-
sveit Islands og væri um tómstunda-
starf þeirra að ræða. Kammersveitin
var stofnuð að frumkvæði hljóðfæra-
leikaranna vegna áhuga þeirra á að
takast á við ný og vandasöm verk-
efni.
Efnisskrá 10. starfsárs Kamm-
ersveitar Reykjavíkur er þessi:
1. tónleikar, þriðjudaginn 1.
nóvember 1983 kl. 20.30 á Kjar-
valsstöðum. J. Brahms: Tríó í Es-
dúr op. 40 fyrir píanó, fiðlu og
horn. Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, píanó, Rut Ingólfsdóttir,
fiðla, Þorkell Jóelsson, horn. J.
Brahms: Sextett nr. 2 í G-dúr op.
26. Einar G. Sveinbjörnsson, fiðla,
Rut Ingólfsdóttir, fiðla, Helga
Þórarinsdóttir, lágfiðla, Guðrún
Þórarinsdóttir, lágfiðla, Inga Rós
Ingólfsdóttir, cello, Arnþór Jóns-
son, cello.
Jólatónleikar, sunnudaginn 18.
desember 1983 kl. 17.00 í Bústaða-
kirkju. J.S. Bach: Brandenburg-
arkonsert nr. 3. G.B. Pergolesi:
Flautukonsert í G-dúr. Einleikari:
Bernard Wilkinson. A. Vivaldi:
Gítarkonsert í D-dúr. Einleikari:
Pétur Jónasson. F. Manfredini:
Konsert í C-dúr, op. 3 nr. 12, „jóla-
konsert".
3. tónleikar, sunnudaginn 8.
janúar 1984 kl. 17.00. A. Vivaldi:
Árstíðirnar: „Le quatro stagioni"
úr „11 cimento dell’armonia e dell’-
invenzioni" op. 8. Einleikarar:
Vorið — Helga Hauksdóttir,
Sumarið — Unnur María Ingólfs-
dóttir, Haustið — Þórhallur Birg-
isson — veturinn — Rut Ingólfs-
dóttir.
4. tónleikar, sunnudaginn 1.
apríl 1984 kl. 17.00. C. Saint-Saéns:
Karnival dýranna (flauta, klari-
nett, strengjakvintett, munn-
harpa, xylofónn og tvö píanó).
Píanóleikarar: Gísli Magnússon og
Halldór Haraldsson. W. Walton:
Facade við ljóð Edith Sitwell
(flauta, klarinett, saxofónn,
trompett, cello og slagverk). Upp-
lestur: Rut Magnússon. Stjórn-
andi: Paul Zukofsky.
„Þegar við stofnuðum Kamm-
ersveit Reykjavíkur," sagði Rut
Ingólfsdóttir, „var það helsta
markmið okkar að auka fjöl-
breytni í tónlistarlífi borgarinnar.
Við teljum að það hafi tekist og
viljum halda áfram að leggja
okkar skerf af mörkum þótt tón-
leikum hafi almennt fjölgað til
mikilla muna á þessum tíu árum.
Áheyrendur hafa tekið starfi
okkar vel og ég held að óhætt sé að
fullyrða að Kammersveitin hafi
eignast tryggan hóp tónleikagesta
en án þeirra væri starfsemi sveit-
arinnar fyrir löngu hætt. Það er
hljómlistarmönnum mikils virði
að fá tækifæri til að takast á við
kammerverk en þau eru af mörg-
um talin göfugasta grein tónlistar.
Áhugi hljómlistarmannanna
sannast best á því hve okkur hefur
tekist að fá marga á þessum 10
árum til liðs við okkur til þessa
sjálfboðaliðastarfs, ef ég má orða
það svo.“
í kynningu á vetrardagskránni
er komist svo að orði um einstaka
tónleika:
„Fyrstu tónleikarnir eru helgað-
ir Johannes Brahms, því á þessu
ári eru liðin 150 ár frá fæðingu
hans. Þar verða flutt tvö kammer-
verk meistarans, Tríó í Es-dúr
fyrir píanó, fiðlu og horn, sem
Ánna Guðný Guðmundsdóttir,
Rut Ingólfsdóttir og Þorkell
Jóelsson munu flytja en þau Anna
Guðný og Þorkell eru í hópi okkar
unga glæsilega tónlistarfólks sem
þarna fær verðugt verkefni. Síð-
ara verkið er strengjasextett í G-
dúr sem Einar G. Sveinbjörnsson
konsertmeistari mun leiða.
Jólatónleikarnir verða 18. des-
ember og hefjast á Brandenburg-
arkonsert nr. 3 eftir Bach. Flautu-