Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983 13 Hafskip kaupir bandaríska flutningsmiölunarfyrirtækiö COSMOS: „Fyrsta skref okkar til aukinna umsvifa á erlendri grund“ — segir Björgólfur Guðmundsson, forstjóri Hafskips BJÖRGÓLFUR Guðmundsson, for- stjóri Hafskips, undirritaði sl. mánu- dag samning um kaup á kunnu bandarísku flutningsmiðlunarfyrir- Ueki, COSMOS Shipping Company Inc., sem hefur skrifstofur f fimm borgum Bandaríkjanna, New York, Baltimore, Miami, Chicago og New Orleans, en starfsmenn fyrirtækisins eru liðlega 50 talsins. „Þetta er fyrsta skref okkar til aukinna umsvifa á er- lendri grund, en við stefnum að því að auka þau verulega í náinni fram- tíð,“ sagði Björgólfur Guðmundsson, forstjóri Hafskips, í samtali við Morgunblaðið. Björgólfur Guðmundsson sagði að Gunnar Andersen, rekstrar- hagfræðingur, hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en hann hefur unnið að undirbún- ingi málsins með Hafskips- mönnum. „Við gerum ráð fyrir, að innan tíðar taki fleiri íslendingar við störfum á vegum félagsins. Þegar hefur verið gengið frá öllum samningsatriðum um kaupin og beðið er eftir formlegu samþykki yfirvalda í Bandaríkjunum. COSMOS verður eftir sem áður sjálfstætt félag, sem mun nýta þjónustu allra skipafélaganna þriggja, Hafskips, Eimskips og Sambandsins. Við reiknum hins vegar með að ná betri hagkvæmni í rekstri með þessum kaupum. Nýt- ing á skipum félagsins, gámum og öðrum tækjum mun væntanlega verða mun betri en áður. Þá gætum við fengið betri flutningstaxta en áður. Þetta félag verður að mestu óháð þeim sveiflum, sem oft verða í íslenzku efnahagslífi, þar sem það starfar á alþjóðlegum grunni," sagði Björgólfur Guðmundsson. Björgólfur Guðmundsson sagði aðspurður, að Hafskip hefði fengið heimild íslenzkra bankayfirvalda til að kaupa félagið, áður en gengið var endanlega frá kaupsamningn- um við fyrri eigendur og þarlend yfirvöld. „COSMOS, sem er eins og fyrr segir þekkt fyrirtæki á flutn- ingasviðinu í Bandaríkjunum, var í einkaeign, en fyrri eigendur þess, feðgarnir Morton Bycoffe, for- stjóri, og Paul Bycoffe, fram- kvæmdastjóri, verða áfram starfsmenn félagsins í ábyrgðar- stöðum." Flutningavelta COSMOS á árs- grundvelli er 20—25 milljónir Bandaríkjadollara, sem jafngildir á bilinu 560—700 milljónum króna. Fastir viðskiptaaðilar þess eru um 400 og óreglulegir viðskiptaaðilar eru á bilinu 150—200 talsins. Björgólfur Guðmundsson sagði að aðalskrifstofa félagsins væri í New York-borg, en starfsmenn þar eru nú 25. Félagið er gamalt i hettunni, en það var stofnað á árinu 1919. „Vöruflutningar COSMOS á sjó eru um 90% af heildinni, en með flugi fara um 10%. Þessir flutn- ingar skiptast þannig milli heims- álfa, að til Evrópu fara um 40% flutninganna, til Suður-Amerfku fara um 30% og til Afríku og Aust- urlanda fara um 40% af heildinni,“ sagði Björgólfur Guðmundsson. Hafskip hefur á undanförnum misserum unnið að því að færa út starfsemi sfna á erlendri grund og var Björgólfur Guðmundsson innt- ur nánar eftir þvf. „Þessi starfsemi hefur átt sér nokkurn aðdraganda, en við höfum þegar opnað skrif- stofur f New York, Kaupmanna- höfn, Hamborg og Ipswich. Eftir áramótin verður síðan fimmta skrifstofan opnuð í Rotterdam, en hún mun sinna Benelux-löndunum sérstaklega. Á öllum þessum skrif- stofum koma til með að verða sér- stakar deildir eða fyrirtæki fyrir flutningsmiðlun COSMOS, en Rott- erdam-skrifstofan kemur til með að gegna lykilhlutverki. Með hinu nýkeypta fyrirtæki er hægt að tryKKja erlendu starfseminni enn betri rekstrargrundvöll," sagði Björgólfur Guðmundsson. Það kom ennfremur fram, að rekstur COSM- OS í Rotterdam yrði í sjálfu sér aðskilinn frá skrifstofu Hafskips, en Bragi Ragnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri skrif- stofu Hafskips, en hins vegar hefur hollenzkur maður verið ráðinn til að sinna framkvæmdastjórn hjá COSMOS, en sá er þrautreyndur í faginu; hefur starfað um árabil hjá hinu þekkta flutningsmiðlunarfyr- irtæki Frans Maas. Hollendingur- inn hefur unnið að undirbúningi starfseminnar í Evrópu að undan- förnu, en hugmyndin er að koma upp mjög þéttriðnu neti með safnstöðum og annarri starfsemi. „Það sem vakir fyrir forráða- mönnum Hafskips með þessum kaupum er meðal annars að auka umsvif íslendinga erlendis, fjölga atvinnutækifærum íslenzkra starfsmanna og um leið skapa betri grundvöll til að auka þjálfun og þekkingu okkar í alþjóðlegum viðskiptum. Með þessu má einnig IrygKja íslenzkum skipafélögum vöruflutninga milli Norður-Amer- íku og Evrópu og þar með stuðla að ódýrari flutningskostnaði til og frá fslandi, svo dæmi séu nefnd. Vöru- flutningar milli þessara heimsálfa fara nú mest fram með risastórum skipum. Nú er offramboð á lestar- rými flutningaskipa milli Banda- ríkjanna og íslands, sem á ef til vill eftir að aukast með tilkomu nýs skips Sambandsins, sem tekið verð- ur í notkun í byrjun árs 1985 á þessari siglingaleið," sagði Björg- ólfur Guðmundsson. „Með tilkomu COSMOS gæti ver- ið hægt að tryggja íslenzku kaup- skipafélögunum þremur umtals- verða flutninga milli Norður- Ameríku og Evrópu, með viðkomu á fslandi og þannig stuðla að lækk- un flutningskostnaðar fyrir lands- menn, ekki aðeins á innflutningi heldur einnig á útflutningi á fisk- afurðum og iðnaðarvörum," sagði Björgólfur Guðmundsson. í samtalinu við Björgólf Guð- mundsson kom fram, að Hafskips- menn telja nauðsynlegt fyrir fs- land, að unnið sé markvisst að því að skapa ungum og efnilegum landsmönnum tækifæri til þess að starfa erlendis um tíma og þannig tryggja þeim haldgóða þekkingu á alþjóðlegum viðskiptum. „Hingað til hafa landsmenn lagt allt of mik- ið kapp á að treysta erlendum aðil- um fyrir íslenzkum hagsmunum. Innan skamms verður fjöldi fslend- inga kominn til starfa hjá COSM- OS og skrifstofum Hafskips víða um lönd. Þegar þetta fólk snýr aft- ur til landsins, flytur það með sér verðmæta þekkingu, sem koma mun þjóðinni alldri að miklu gagni.“ Björgólfur Guðmundsson sagði það stefnu Hafskipsmanna að ráða fólk til starfa í ákveðinn tíma, þ.e. a.s. fáein ár, og að þeim tíma liðn- um mun það snúa heim á ný og getur þá tekið til starfa á hinum ýmsu sviðum útflutningsfram- leiðslu og verzlunar. „Einn höfuð- tilgangur Hafskips með kaupunum á COSMOS er að fjárfesta í ís- lenzkum starfskrafti og þannig auka sjálfstraust þjóðarinnar. Það er skoðun forráðamanna Hafskips, að landsmenn eigi ekki aðeins að unofbrm bog ELDHÚSINNRÉTTINGAR byKRja á eigin framleiðslu til öfl- unar erlends gjaldeyris, heldur beri fyrirtækjum og einstaklingum að stefna að því að selja íslenzka þjón- ustu og þekkingu á alþjóða vett- vangi, eins og til dæmis Norðmenn og Danir hafa gert með ævintýra- legum árangri um áratuga skeið,“ sagði Björgólfur Guðmundsson, forstjóri Hafskips að endingu. Gengið frá kaupura Hafskips á COSMOS, flutningamiðlunarfyrirtækinu bandaríska, í New York á dögunum, f.v. Baldvin Berndsen, framkvæmda- stjóri Hafskips í Bandaríkjunum, Paul Bycoffe, fv. eigandi COSMOS, Gunn- ar Andersen, nýráðinn framkvæmdastjóri COSMOS, Björgólfur Guðmunds- son, forstjóri Hafskips, Morton Bycoffe, fv. eigandi COSMOS, lögfræðingur Hafskips í Bandaríkjunum, og Finnbogi Gíslason, starfsmaður Hafskips í Bandaríkjunum. Dönsk hágæöavara Einfaldleikinn er eilífur Gæöin í fyrirrúmi. Höfum innanhúsarkitekt á staönum — yöur aö kostnaöarlausu Lítið við — Sýningarsalur Skeifunni 19 Timburverslunin Völundur Klapparstíg 1 sími 18430 — Skeifunni 19 sími 85244

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.