Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983 Atburdirnir á Grenada Voru Kúbumenn að byggja eldflaugabyrgi á Grenada? Philadelphiu, 28. okfober. AP. IJÓSMYNDIR, sem bandaríska leyniþjónustan hefur undir hönd- um, sýna, ad veriö var aö koma upp eidflaugabyrgjum á Grenada og að þaö hafi verið helsta ástæð- an fyrir innrás Bandaríkjamanna. t>að er bandaríska fréttastofan Knight-Ridder, sem flytur þessar fréttir, en þær hafa ekki verið staðfestar. Byrgin, sem ljósmyndirnar sýna, eru 61 metri á lengd, 12 metra breið og í um 240 metra fjarlægð frá nýju flugbrautinni, sem Kúbumenn hafa verið að leggja í Point Salines. Þau eru enn í smíðum og einnig braut- irnar, sem tengja þau við flugstöðina. „Þetta er fyrsta af- dráttarlausa sönnunin um að Kúbumenn og Sovétmenn höfðu annað og meira í huga en flug- völl fyrir ferðamenn," er haft eftir einum heimildarmannin- um í greininni, sem birtist í blaðinu Phildelphia Inquirer og öðrum blöðum, sem skipta við Knight-Ridder-fréttastofuna. Bandarískur embættismaður, sem spurður var álits á frétt- inni, vildi ekki tjá sig um hana. „Gerð byrgjanna, allt frá dyramáli til veggjarþykktarinn- ar, er nákvæmlega sú sama og gerist með eldflaugabyrgi Sovétmanna á Kúbu, Póllandi, Austur-Þýskalandi og í Sovét- ríkjunum sjálfum," er haft eftir ónefndum heimildarmanni inn- an bandaríska hersins og auk þess segir, að tekist hafi að hlera fjarskipti sovéska sendi- ráðsins í St. George’s á Grenada þar sem sovéskir ráðgjafar, sér- fræðingar í uppsetningu eld- flauga, ræddu sín í milli um hernaðarframkvæmdir á staðn- um. ***** skotfsSrunr • • Qryggisráðið: Bandaríkin beittu neit- unarvakli Hér sést hluti þeirra skotfæra, sem fundust í Hmm vöruhúsum í grennd við Port Salines á Grenada á fimmtudag. Auk geysimikils magns af skotfærum fundust byssur af mörgum gerðum svo og magn af áróðursefni. Sameinuðu þjóðunum, 28. október. AP. BANDARÍKIN beittu neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna til að koma í veg fyrir að ráðið fordæmdi innrásina á Grenada. Ef Bandaríkjamenn hefðu ekki notfært sér þennan rétt sinn hefði tillagan verið samþykkt með 11 atkvæðum gegn 1. Fulltrúar Bretlands, Togo og Zaire sátu hjá við atkvæðagreiðsl- una. Fulltrúar Frakka og Hollend- Vopnakassarnir merktir efnahagsráðuneyti Kúbu Point Salines, Grenada, 28. október. AP. SKOTHRÍÐ var enn haldið áfram í morgun á stöðvar Kúbumanna á Suður-Grenada og var beitt bæði fallbyssum og vélbyssum. Mátti glöggt heyra skothríðina, þegar lent var á aðalflugvelli eyjarinnar, en þar lentu flugvélar Bandaríkjamanna hver af annarri og fluttu þangað meira herlið auk vopna og ails konar herbúnaðar. Mikill svartur reykur gaus upp frá stað í um 5 km fjarlægð frá flugvellinum, þar sem verið höfðu aðalbækistöðvar Kúbumanna. Hermenn frá Bandaríkjunum og fleiri ríkjum við Karíbahaf stóðu vörð við aðalgötur St. George, höf- uðborgar Grenada, i dag, en marg- ir íbúanna þar létu óspart í ljós ánægju með landgöngu aðkomu- hermannanna. Fundizt hafa miklar vopna- geymslur Kúbumanna í Grenada í fimm vöruhúsum. Voru þau full af vélbyssum, loftvarnabyssum og skotfærum. Vöruhús þessi eru í litlum dal, en umhverfis hann hafði verið komið fyrir loftvarna- byssum á fimm stöðum til varnar. Bandaríkjamenn náðu þessum vopnageymslum á sitt vald fyrr í vikunni eftir ákafa bardaga; „Bardagarnir voru afar harðir,“ var haft eftir Jim Holt, major úr 82. fallhlífasveitinni. „Við misstum tvo menn fallna en sjö særðust." Vopn þau, sem fundust í þessum vopnageymslum, báru ýmist áletr- anir á spönsku, rússnesku eða ensku. Þannig fundust þar margir kassar með vélbyssum og skotfær- um og voru kassarnir merktir „Oficina Economica Cubana". í heild sinni var þarna um mjög mikið vopnamagn að ræða af mörgum gerðum og halda Banda- ríkjamenn því fram, að þarna hafi verið um birgðastað að ræða, það- an sem vopn voru flutt til marx- ískra skæruliða í Mið- og Suður- Ameríku og í Afríku. Yfirheyrslur voru hafnar yfir Kúbumönnum þeim, sem gefizt höfðu upp. Héldu þeir því eindreg- ið fram, að þeir hefðu verið verka- menn. „Si, trabajadores," sögðu þeir, þegar þeir voru spurðir. Kváðust þeir vilja fá að fara heim til Kúbu, eins fljótt og tök væru á. Það er hins vegar almennt mat bandarísku hermannanna, sem barizt hafa á Grenada, að Kúbu- mennirnir hafi verið atvinnuher- menn og að það hafi verið þeir, sem fyrst og fremst hafi haldið uppi andstöðu við landgönguher- inn. Flestir af hermönnum stjórn- arhersins á Grenada höfðu í dag farið úr einkennisbúningum sínum fyrir löngu og klæðast nú sem óbreyttir borgararar í staðinn og reyna þannig að fela sig innan um almenning í landinu. Sumir úr þeirra hópi voru þó sagðir flúnir til fjalla. Engar árásir hafa verið gerðar á sendiráð Sovétríkjanna og Kúbu í St. George, en þau virt að fullu og engin leit verið gerð þar að mönnum, sem kynnu að hafa leitað skjóls þangað. inga lýstu andúð ríkisstjórna landa sinna á innrásinni og greiddu atkvæði með fordæmingu ásamt fulltrúum Sovétríkjanna, Póllands, Kína, Jórdaníu, Möltu, Pakistan, Guyana, Nicaragua og Zimbabwe. Fordæmingartillagan kom til atkvæða eftir þriggja daga harðar umræður þar sem fluttar voru rúmlega 60 ræður. Af 34 ræðu- mönnum á þriðja degi lýstu 28 andstöðu sinni við innrásina. Full- trúi Breta lýsti „alvarlegum efa- semdum" um réttmæti innrásar- innar en sat hjá. Fulltrúar Saint Lucia, Barbados og St. Vincent voru þeir einu sem lýstu stuðningi við aðgerðina, en ríki þeirra áttu aðild að henni. Oleg A. Troyanovsky fulltrúi Sovétríkjanna sakaði Bandaríkin um „stigamennsku" og sagði inn- rásina „mannúðarglæp". Sagði hann árásina dæmi um það sem í vændum væri ef Bandaríkin næðu hernaðarlegum yfirburðum um heimsbyggðina, eins og þeir sækt- ust eftir en Rússar myndu koma í veg fyrir að yrði að veruleika. Jean J. Kirkpatrick fulltrúi Bandaríkjanna í Öryggisráðinu sagði innrásina hafa verið nauð- synlega til að binda enda á „hrottastjórn" valdræningja á Grenada, sem myrt hefðu forsæt- isráðherra eyjarinnar. Brottflutningur kúbönsku fanganna frá Grenada: Kúbumenn vilja að Spánn og Kólumbía hafi milligöngu Havana, l/ondon, 28. október. AP. FIDEL Castro forseti Kúbu hefur hafnað tilboði Bandaríkjamanna um brottflutning kúbönsku fanganna frá Grenada, en þekkst boð Kól- umbíu og Spánar um að hafa milli- göngu um burtflutning fanganna. Bandaríkjamenn buðust til að kúbönsku fangarnir yrðu sendir til Barbados undir eftirliti sam- taka Austur-Karíbahafsríkja þar sem Kúbumenn tækju við þeim og flyttu þá áfram. Þessu höfnuðu Kúbumenn. Spánverjar og Kólumbíumenn hafa lagt til að flogið yrði með særða og fallna Kúbumenn á Grenada til Kúbu, en aðrir fengju að fara þaðan brott sjóleiðis. Yfirvöld á Kúbu hafa hert áróð- ur gegn Bandaríkjunum eftir því sem á vikuna hefur liðið og betur og betur hefur komið í ljós hvað umsvif Kúbumanna á Grenada hafa verið að aukast. Sakaði utan- ríkisráðherrann Bandaríkjamenn um lygaáróður í dag, þegar skýrt var frá að fundist hefðu á Gren- ada þrjú vöruhús full af vopnum. Stjórnvöld á Trinidad buðust í dag til að leggja til menn í frið- argæzlusveitir á Grenada er bandarískir landgönguliðar hyrfu þaðan. Trinidad, sem er nágranni Grenada, átti ekki aðild að innrás- inni, en Basil A. Ince, utanríkis- ráðherra sagði í dag að stjórn Trinidad styddi allar „aðgerðir er leiddu til friðar og eðlilegs ástands". Kvaðst hann vonast til að við stjórn eynnar tæki stjórn er yrði eyjarskeggjum að skapi. Yfir- völd í Trinidad hefðu verið ugg- andi vegna nærveru Kúbumanna f Grenada. Geoffrey Howe, utanríkisráð- herra Bretlands, sagði í dag að fundur mikilla kúbanskra vopna- geymsla á Grenada réttlætti ekki innrásina á eyna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.