Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983
21
íslenzka hljómsveitin:
Höldum áfram í trausti
á velvilja ríkisvaldsins
— segir Ásgeir Sigurgestsson stjórnarmaður
„VIÐ ætlum að halda áfram í trausti á
velvilja ríkisvaldsins. Við höfum fund-
ið góðan hug í okkar garð, m.a. á fundi
fjárveitinganefndar Alþingis í vikunni
og þvi ákvað stjórn íslensku hljóm-
Landsfundur
Kvennalista
LANDSFUNDUR Kvennalistans verð-
ur haldinn um helgina. Á dagskrá er
m.a. endurskoðun á lögum Kvenna-
listans og stjórnmálaástandið verður
rætt.
Fundurinn hefst kl. 9 árdegis á
laugardag og stendur fram að há-
degi á sunnudag. Hann er haldinn
að Hótel Loftleiðum.
sveitarinnar á fundi sínum í dag að
halda áfram starfsemi, alla vega þar
til endanlega liggur fyrir við afgreiðslu
fjárlaga í desembermánuði, hvort við
fáum fjárveitingu," sagði Ásgeir Sigur-
gestsson, stjórnarmaður í fslensku
hljómsveitinni, er blm. Mbl. spurði
hann hvort ákvörðun hefði verið tekin
um framtíð hljómsveitarinnar.
fslensku hljómsveitinni er ekki
ætlaður neinn styrkur í fjárlaga-
frumvarpi ársins 1984, en hún fór
fram á 800 þús. kr. ríkisstyrk. Ás-
geir sagði að með þessari ákvörðun
væri lagt út í blindni, því ef ekki
kæmi til ríkisstyrkur myndi
hljómsveitin hætta starfrækslu í
mikilli skuld. „Það er geysilegt tap á
hverjum tónleikum og ef við fáum
ekki styrkinn lendum við í mjög
miklum skuldum," sagði hann.
Viðræður ASÍ og VSÍ
af stað innan tíðar
Samkomulag um ramma viðræðnanna
VIÐR/EÐUR milli Alþýðusambands
íslands og Vinnuveitendasambands
íslands hafa þróast töluvert í liðinni
viku á fundum milli aðila og innan
sambandanna, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins.
Samkomulag er í augsýn um þann
ramma, sem verður um viðræður
samtakanna á næstunni um leiðir
til að efla íslenzkt atvinnulíf. Má því
reikna með, að formlegar viðræður
vinnuveitenda og verkalýðshreyf-
ingarinnar hefjist á næstu dögum.
Þá hafa farið fram viðræður um
stöðu þeirra, sem lakast hafa kjörin
í þjóðfélaginu, og samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins er enn-
fremur samkomulag í sjónmáli um
skipan starfshóps aðila til að skil-
greina hverjir það í raun og veru
eru, sem búa við lökust kjörin í
þjóðfélaginu í dag. Þessum hópi er
síðan ætlað að benda á leiðir til úr-
bóta fyrir þennan hóp.
Veður
viða um heim
Akureyri 2 skýjað
Amsterdam 14 skýjað
Aþena 17 skýjeð
Bangkok 31 heiðskírt
Berfín 10 skýjað
BrUssel 13 rigning
Buones Aires 27 heiðskirt
Chicago 19 heiöskírt
Dublin 8 skýjaö
Genf 17 heiðskírt
Helsingfors 8 skýjað
Hong Kong 26 skýjað
Honolulu 30 heiðskírt
Jakarta 33 skýjað
Jerúsalem 22 skýjað
Jóhannesarborg 23 heiöakirt
Kiev 10 heiðskírt
Lissabon 22 rigning
London 11 skýjað
Los Angeles 31 skýjað
Madrid 22 skýjað
Mexico City 20 skýjsð
Miamí 27 heiðakírt
Montevideo 17 heiðskír!
Montreal 9 skýjað
Moskva 9 skýjað
New York 12 heiðakfrt
Osló 12 heiðskírt
Psrís 17 skýjaö
Peking 20 heiðskirt
Reykjavík 4 rigning
Rio de Janeiro 26 skýjað
Róm 21 heiðskírt
Santiago 26 heiðskfrt
Seoul 17 heiðskírt
Stokkhólmur 12 heiðrkfrt
Sydney 27 skýjað
Tel Aviv 25 skýjað
Tókýó 20 haiðakfrt
Toronto 8 skýjaö
Bandarískir hvalfriðunarmenn:
Beita sér gegn
neyslu á norskri
sardínu og laxi
Osló, 28. októbvr. Frá Jan Erik Lauré fréttaritara Mbl.
Amerískir umhverfisverndarmenn
hafa nú aukið áróður sinn gegn norsk-
um sjávarafurðum vegna hvalveiða
Norðmanna, og hvetja bandaríska
neytendur nú til að kaupa hvorki
norskar sardínur né ferskan lax.
Nái umhverfissinnar árangri mun
bannið hafa hrikalegar afleiðingar
fyrir norskan lagmetisiðnað, því
rúmlega 50% allrar sardínufram-
leiðslunnar eru seld í Bandaríkjun-
um, og er verðmæti hennar um
70—80 milljónir norskra króna á
ári.
Verðmæti laxins, sem fiuttur er
til Bandaríkjanna, er um 150 millj-
ónir króna. Útflutningur þessi hefur
verið í gífurlegum vexti, þæði vegna
gæða fisksins og mikils átaks í
markaðsöflun. Nú stendur einmitt
fyrir dyrum meiri háttar fiski-
kaupstefna í Seattle, „Fishexpo",
þar sem gera átti meiri háttar átak
til að efla útflutning norskra sjávar-
afurða. Til stóð að Astrid prinsessa
yrði þar í aðalhlutverki, en vegna
ótta um mótmælaaðgerðir hvalfrið-
unarsinna hefur því verið breytt og
efnir hún einvörðungu til lokaðrar
mótttöku í sambandi við sýninguna.
„Þeir sem sitja
í fangelsi ... “
Moskvu, 28. október. AP.
SENDINEFND frá græningjunum
svonefndu í Vestur-Þýzkalandi, en svo
nefnist flokkur umhverfisverndar-
manna og afvopnunarsinna þar í landi,
sagðist í dag samþykkja tillögur Vuri
Andropovs, forseta Sovétríkjanna, um
fækkun eldflauga í Evrópu. Þá kvaðst
nefndin, sem er fyrsta sendinefnd
græningjanna er þiggur heimboð sov-
ézkra stjórnvalda til Moskvu, jafn-
framt hafa lagt til, að Atlantshafs-
bandalagið og V arsjárbandalagið yrðu
leyst upp.
Milan Horacek, fyrrverandi Tékki,
sem sæti á á vestur-þýzka þinginu
fyrir græningja, skýrði frá því, að
Pomnamarev, fulltrúi Sovétstjórn-
arinnar, hefði gert að gamni sínu við
sendinefnd græningjanna og sagt:
„Lítið á Tékka, þeim líður vel nú,
þeir drekka allir bjór frá Pilsen."
Horacek kvaðst hafa svarað þessu
um hæl: „Þeir, sem sitja í fangelsi,
þeir drekka ekki bjór.“
Þá kvaðst Horacek hafa viljað
ræða ítarlega við sovézka embætt-
ismenn um „bróðurlega aðstoð“
þeirra við ríki Austur-Evrópu, en þá
hefði Marie Louisa Beck-Oberdorf,
einn fulltrúanna úr sendinefnd
græningjanna, gripið fram í og sagt
þlaðamönnum, að nefndin vildi ekki,
að ummæli hans yrðu notuð í „and-
kommúnískum tilgangi".
Býrð þú í GÓÐRI íbúð?
Sennilega þarftu aö hugsa þig um áður
en þú svarar. Þú veist hve stór hún er og
hve dýr, hvort hún er ný eöa gömul, en
hefur sjálfsagt aldrei hugleitt í alvöru
hvort hún er góð.
Þú veist hins vegar áreiðanlega hvort þú
ekur góðum bíl.
Á íslandi eru bílar gjarnan metnir eftir
gæðum, en húsnæði eftirstærð, aldri og
staðsetningu.
Við hjá ösp setjum hins vegar GÆÐIN
ofar öllu. Við leggjum höfuðáherslu á
góða hönnun, styrk, sparneytni og lítið
viðhald í framleiðslu einingahúsa okkar.
í innkaupum eru þau ekki ódýrustu
einingahúsin á markaðinum. En
eiginleikar þeirra tryggja að þau standast
tímans tönn betur og verða því ódýrari
og ódýrari með hverju árinu.
Þeir sem hafa látið iðnaðarmenn annast
kostnaðarsama viðgerðir á húsnæði sínu
vita að góð ending skiptir öllu máli. Það
vita sömuleiðis viðskiptavinir bílaverk-
stæðanna.
Verðhugmynd:
Tilbúiö 138 nfi2 einbýlishús, án innrétlinga: 1.012.797,-
Afgreiðslufrestur:
3 mán.
Afhendist:
a) Fokhelt
b) Með loftklæðningu og einangrun
c) Með milliveggjum og hljóðeinangrun
d) Eða fullklárað með öllum innréttingum
Viðbaeiur:
Bílskúrar, dyraskyggni, skjólveggir, sorpgeymslur o.fl.
Sveigjanleiki:
Fjöldi teikninga, möguleikar á breytingum á þeim, t.d. á gluggum
og milliveggjum.
Sérteiknum einingahús fyrir þá sem þess óska.
Söluaðili í Reykjavík: Kaupþing hf., Húsi verslunarinnar. - Sími 86988 •
Aspar-hús
Ef gæðin skipta þig máli
Stykkishólmi Símar: 93-8225 og 93-8307