Morgunblaðið - 29.10.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983
23
Bandarískur hermaður sést hér ganga framhjá loftvarnabyssu, sem komið
hafði verið fyrir í grennd við vöruhús nærri Port Salines-flugvelli. Fimm
vöruhús hafa fundizt á Grenada full af vopnum og skotfærum.
r , r (AP. símamynd.)
Reagan 1 sjonvarpsræðu:
Kúbumenn ætl-
uðu að her-
nema Grenada
KEAGAN Bandaríkjaforseti sakaði
Sovétríkin í gærkvöldi um að hvetja
til ofbeldis bæði í I.íbanon og Gren-
ada. Ssagði forsetinn ennfremur, að
það væri Ijóst, að Kúbumenn hefðu
verið búnir að áforma að hernema
Grenada. Innrás Bandaríkjamanna í
eyjuna hefði verið nauðsynleg sökum
þess að „martröðin, sem átti sér staö
vegna bandarísku gíslanna í íran má
aldrei endurtaka sig“. Þá lagði for-
setinn ennfremur á það þunga
áherzlu, að þeir, sem ábyrgð bæru á
dauða 225 hermanna og sjóliða í Beir-
út „yrðu að hljóta makleg mála-
gjöld“.
Forsetinn sagði þetta í ræðu,
sem sjónvarpað var um gjörvöll
Bandaríkin. Hann tók það fram, að
„þótt heimshöf aðskilji Líbanon og
Grenada, þá eru náin tengsl á milli
þeirra atburða, sem þar hafa gerzt.
Stjórnvöld í Moskvu hafa ekki bara
hvatt til ofbeldis í báðum þessum
löndum, heldur veitt til þess beinan
stuðning með atbeina hryðju-
verkamanna".
Stuðningsmenn Reagans forseta
heima fyrir hafa yfirleitt tekið
sjónvarpsræðu hans vel. Andstæð-
ingar hans á Bandaríkjaþingi hafa
hins vegar dregið í efa réttmæti
ummæla hans. Þannig sagði Theo-
dore Weiss frá New York, sem sæti
á í fulltrúadeildinni, að landgangan
á Grenada væri „stefna, sem
byggðist á lögleysu".
Sovézka fréttastofan TASS sagði
í dag, að ræða Reagans forseta
hefði verið byggð á „frámunalegum
andkommúnisma, grófri valdbeit-
ingu og auknum hernaðarafskipt-
um Bandaríkjanna".
Bréf land-
stjórans birt
Bridgetown, 28. október. AP.
Tom Adams forsætisráðherra
Barbados birti í dag bréf lands-
tjórans á Grenada, Sir Paul
Scoon, þar sem ríkjum í samtök-
um Austur-
Karíbahafsríkja
og öðrum er
boðið að senda
lið til Grenada
til að koma þar á :
röð og reglu.
Af hálfu for-
sætisráðuneyt-
isins var sagt j
að Sir Paul
hefði afhent
bréfið Rudyard Lewis stórfylk-
ishöfðingja, yfirmanni innrás-
arliðsins, eftir að bandarískir
landgönguliðar björguðu hon-
um úr bústað landstjórans.
Lewis afhenti bréfið síðan
Adams.
í bréfi sínu segir Sir Paul að
Adams sé kunnugt það tóma-
rými, sem gætti í stjórn Gren-
ada í kjölfar morðsins á forsæt-
isráðherra og þeirra mannrétt-
indabrota og þess blóðbaðs sem
á eftir hefði fylgt.
„Ég hef miklar áhyggjur af
því öryggisleysi sem hér ríkir
og óska þess vegna að þér að-
stoðið mig í því að koma málum
til betri vegar. Það er ósk mín
að sett verði á laggirnar friðar-
gæzlulið til þess að auðvelda að
friður komist hér fljótt á að
nýju og að lýðræði verði endur-
vakið. í þessu sambandi fer ég
einnig fram á aðstoð Banda-
ríkjanna, Jamaíku og ríkja í
samtöku Austur-Karíbahafs-
ríkja," sagði m.a. í bréfi Sir
Paul Scoon.
Ráðstefnan um þjóðarsátt í Líbanon:
Vonir um góðan
árangur
Beirut. Genf, 28. október. AP.
LEITARMENN, sem grafa enn í rústum að-
alstööva bandaríska gæsluliösins í Beirut,
koraust í dag niöur í kjallara hússins og létu
þaö ekki á sig fá þótt kúlunum rigndi yfir þá
frá leyniskyttum. 225 Bandaríkjamenn eru
Enn er unnið að því að ryðja
rústir aðalstöðva bandaríska
gæsluliðsins í Beirut þótt fullvíst
sé talið, að þar sé ekki fleiri lík
að finna. 225 Bandaríkjamenn
eru látnir að sögn Pentagon og
kann sú tala enn að hækka þar
sem tvísýnt er enn um líf nokk-
urra manna, sem slösuðust al-
varlega. Leyniskyttur láta enn til
sin taka en bandarísku gæslulið-
arnir hafa ekki svarað skothríð
þeirra. Mörg hundruð kvenna,
með 15 ára gamla dóttur Gem-
ayels forseta í fararbroddi,
í Genf
nú látnir af völdum sprengingarinnar. W alid
Jumblatt, leiðtogi drúsa, og Rashid Karami,
leiötogi múhameðstrúarmanna af trúflokki
súnníta, komu í dag til Genfar en nk. mánu-
dag á að hefjast þar ráðstefna um þjóðarsátt
í Líbanon.
til að taka þátt í slíku „góðverki"
síðar.
Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa,
og Rashid Karami, leiðtogi súnn-
íta, komu í dag til Genfar til að
taka þátt í ráðstefnunni um þjóð-
arsátt í Líbanon. Við komuna
kvaðst Jumblatt vona, að ráð-
stefnan leiddi til friðar í Líbanon
og sagði Karami, að það and-
rúmsloft friðar og vináttu, sem
hann fyndi fyrir í Sviss, myndi
vafalaust hafa góð áhrif á ráð-
stefnuna. Búist er við öðrum full-
trúum síðar í dag.
gengu í gær fylktu liði að aðsetri
franska og bandaríska sendi-
herrans, lýstu yfir hryggð sinni
með mannfallið og sögðu gæslu-
liðana „hetjur friðarins".
Enn leikur grunur á að íranir
hafi verið í vitorði með hryðju-
verkamönnunum þótt írans-
stjórn sverji það af sér. Hussein
Musawi, leiðtogi shíta, sem
styðjast við írani, neitaði í gær
allri aðild að manndrápunum en
sagði þau vera „gott verk“ og
kvaðst vonast til að fá tækifæri
LJOSINILAGI?
Aukið öryggið._______
Búið bílinn undir
að birtu fer að bregða.
Vandið valið. Veljið aðeins viðurkennd merki.
HELLA WAGNER OSRAM
Ljósabúnaður Ljosasamlokur Allargerðir
Rafmagnsvörur Blikkarar afperum
Utsölustaðir: Helstu rafmagnsvöru- og bifreiðavarahlutaverslanir um allt land.
Heildsölubirgðir JÓH. ÓLAFSSON & CO. h/f 43 SUNDABORG -104 REYKJAVÍK - S 82644