Morgunblaðið - 06.12.1983, Side 1

Morgunblaðið - 06.12.1983, Side 1
Þridjudagur 6. desember Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra segir frá skemmtilegum atburðum á bökkum laxveiðiánna Svorrir virt HrutafjarAara ásanit vini sínum Tómasi Arnasyni, fyrrum ráóhorra. Tómasi hefur ((enuió prýóiK en Sverrir segir frá einum vænum sem slapmjjgj '5 ' Myndir AS Ut af fyrir sig eru allir veiditúrar ævintýri Ég hef sagt á opinberum vettvangi að ég sé mikið gefinn fyrir það ef einhver vill bjóða mér í laxveiði. En það hefur ekki verið mik- ið um það og hef ég því yfirleitt getað tekið þeim boðum sem komið hafa með þökkum. Af þessum sökum m.a. hef ég ekki gert víðreist sem sjá má af því, að af öllum þessum frægustu ám á Vesturlandi hef ég aðeins veitt nokkrum sinnum í Norðurá. Mér var boðið í Grímsá í sumar, en annars hef ég nær eingöngu verið bundinn við Hrútafjarðará. Ég fékk níu laxa í Grímsá, flesta á smáflugur, en þrjá á Collie Dog túbu með heilu hrosstagli aftur úr sér. Þá höfum við Barði Friðriksson farið nokkra fræga túra á haustin í Laxá á Skógarströnd. Við Barði erum miklir félagar og hann hef- ur alltaf boðið mér í einn tveggja daga túr um það bil sem veiðitímanum hefur verið að ljúka og það er lygilegt hvað þessi litla á hefur gefið. Frásögnin er úr bókinni „ Varstu að íá hann?“ eftir Guðmund Guðjónsson blaðamann, sem Örn og Örlygur hafa gefið út — En ég hef sem sé lengst af verið bundinn við Hrútafjarðará, sem er mín á. Hún er ekki lax- mörg, en það geta verið vænir lax- ar í henni. Til að mynda fékk ég í henni í sumar, áður en hún hljóp í óargafljót, 17 punda lax á Hairy Mary númer 8 fram í Réttar- streng. Hann var alveg með ólík- indum skemmtilegur sá fiskur. Við höfum verið að reyna að rækta þessa á upp með margháttuðum tilraúnum og ég er á því að nú sé það farið að gefa nokkra raun. Við höfum sett seiði fram á heiðar til að nota beitina þar, við höfum flutt laxa fram fyrir ólaxgenga fossa og sannað að þeir hafa tímg- ast þar. Einnig höfum við grafið niður frjóvguð hrogn í boxum og fleira og fleira. En þetta er tveggja stanga á og viðkvæm. Laxveiðin stendur yfir í 60 daga, en auk þess höfum við leyfi til að veiða í ánni silung á neðri svæðun- um í 20 daga í september, en það gengur mikið af sjóbleikju í hans, vænni bleikju. Mágur minn veiddi einu sinni 9 punda bleikju og Garðar H. Svavarsson veiddi aðra sem var rúm 9 pund. Eldamennska, ævintýri og Matthías Johannessen Ævintýri á laxveiðum? Ja, út af fyrir sig eru allir veiðitúrar ævintýri, þegar maður er svona frjáls með sjálfum sér. Ég gegni þar líka ýmsum aukahlutverkum sem ég hef gaman af, svo sem matreiðslu og öðru slíku, og hef lengi gert. Það er nú svo, að þegar menn hafa erfiðað mikið og eru svangir, þá finnst þeim maturinn góður hjá mér. Þeir eru svo glor- hungraðir, að þeir hæla matnum. — En það er alltaf töluverð upplífgun að hafa Matthías Jo- hannessen með sér í veiðitúr. Einu sinni vorum við að veiðum í Hrútafirði og með okkur Ólafur nokkur Tryggvason, sem er föð- urbróðir konu minnar. Hann var harðsnúinn veiðimaður og var lengi með Friðfinni heitnum Ólafssyni í Laugardalsá við Djúp. Síðan veiddi hann með mér í fjölda, fjölda ára. Þá var það einn góðan veðurdag, að Ólafur var að veiða í Bæjarhyl, en kom svo dauf- ur í dálkinn til okkar Matthíasar og sagði sínar farir ekki sléttar. Hann hafði verið með góðan lax á, en það slys henti hann að línan brast í sundur. Taldi hann að með laxinum væru einir 10 metrar af línu. — Ólafur gerði ekkert í þessu með stöngina sína og morguninn eftir fór hann með okkur Matthí- asi fram eftir. Við höfðum verið að kalsa um það um kvöldið að fiska upp línuna hans og því skyldi hann koma með okkur. Þetta gæti ekki verið erfiðleikum bundið úr því að það væri svona gríðarlega langur spotti sem fylgdi laxinum. Ég minnist þess samt ekki að við hefðum mælt þetta í nokkurri al- vöru. En Ólafur rölti samt með okkur, það eru aðeins tvær stangir leyfðar i ánni og við skiptumst á að veiða. Við fórum að svokölluð- um Stokki, en það er næsti veiði- staður fyrir ofan Bæjarhyl. Hann er um það bil 200 metrum ofar í ánni og upp nokkra hávaða að sækja fyrir göngufisk. — Matthías var að veiða á foss- flúðum fremst í Stokki. Hann var búinn að fá þar fisk og var að renna þar aftur, er girni kom upp á krókinn hans. Ólafur var hand- an árinnar og ekki hlaupið að því að komast yfir, en það henti okkur Matthías að kalla hvor upp í ann- an: „Þetta er auðvitað línan hans ólafs," en þó ekki af neinni sann- færingu frekar en kalsið í okkur kvöldið áður þar sem þetta var framar í ánni og maður myndi Sjá bls. 54 og 55.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.