Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983
Vestmannaeyjar:
Nýtt fyrirtæki —
Vilberg-kökuhús
Vestmannaeyjum, 26. nóvember.
FYRIR ÞREMUR mánuðum tók hér til starfa nýtt fyrirtæki sem nefnist
Vilberg-kökuhús og er til húsa að Vestmannabraut 36. Eigendur fyrir-
tækisins eru hjónin Bergur M. Sigmundsson bakarameistari og Vilborg
Gísladóttir sem af sameiginlegum áhuga og dugnaöi hafa komið þessu
fyrirtæki sínu í góðan farveg. Alls eru starfsmenn fyrirtækisins fimm að
tölu og Vilberg-kökuhús hefur sent á markað nokkrar tegundir af
kökum og kexi auk kleinuhringja og ýmsar nýjungar eru væntanlegar.
Það var ekki rasað um ráð fram
við stofnun þessa fyrirtækis því
áður en fyrsta framleiðslan kom á
borð neytenda lá að baki ársvinna
þeirra hjóna við undirbúning og
markaðskönnun og að auki sótti
Bergur sérstakt námskeið hjá
Iðntæknistofnun sem nefndist
„Viltu taka þér tak“. Fréttaritari
heimsótti fyrirtækið fyrir
skðmmu og ræddi stuttlega við
Berg M. Sigmundsson bakara-
meistara. Sagði Bergur að þau
hefðu byrjað á að kanna hver eft-
irspurnin væri á þessu sviði.
„Niðurstaðan varð sú að við
ákváðum að fara út í framleiðslu á
fíkjubitum og döðlubitum. Einnig
ætlum við að bjóða rúg- og hafra-
bita. Þetta þótti okkur álitlegustu
kostirnir til að byrja með og erum
við ánægð með móttökurnar og
hefur varan selst jafnóðum."
Bergur sagði að ekki yrði hér
látið staðar numið heldur væru
ýmsar aðrar hugmyndir uppi og
möguleikarnir nær ótæmandi.
„Við munum nú á næstu dögum
senda frá okkur á markaðinn fros-
ið smákökudeig sem ekki hefur
fyrr verið á boðstólum hér á Iandi.
Þetta ætti að geta létt undir með
Mor{unblaAíÓ/Si{iir(eir.
Eigendurnir, hjónin Vilborg Gísladóttir og Bergur M. Sigmundsson.
Hvítir postulínsvasar,
mynstraðir.
Kertaljósakrónur í úrvali.
Jólahjartað frá
B & G er komið
Hvítir postulínsvasar,
sléttir.
Hvítir postulínsblómapott-
ar.
B6STECKE
Lítið við í verslun okkar —
Gjafaúrvalið hefur aldrei verið glæsilegra.
RAMMAGERÐIN
HAFNARSTRÆTI 19
Þýskur kristall:
Listilega handskorinn
kristall í ótal mynstrum.
Silfurplett hitaföt. Fleiri
geröir.
Stálborðbúnaður:
Hinn marg eftirspurði
þýski stálborðbúnaður 18/8 stál
pólerað með harðgljáa. nim
30 stk. í gjafakassa.
- Góð verð*
húsmæðrum í jólabakstrinum.
Deigið er mótað og pakkað í hent-
ugar umbúðir og meðan ofninn er
að hitna er deigið sneitt niður og
því síðan skellt í ofninn. Við buð-
um svona deig hér fyrir síðustu jól
og líkaði það mjög vel. Þá eru nú
að fæðast hugmyndir um sérstakt
heilsukex sem ætti að eiga góða
möguleika nú á þessum heilsu-
ræktar- og heilsufæðutímum.
Þetta heilsukex okkar verður
framleitt eftir ævagömlum ís-
lenskum uppskriftum og ætti að
geta komið á markaðinn í byrjun
næsta árs.“
Aðspurður um verð og gæði
framleiðslunnar sagðist Bergur
vonast til að geta lækkað verðið á
sínum vörum á næstunni því hon-
um hefði tekist að ná mjög hag-
stæðum viðskiptasamningi í
Tyrklandi þaðan sem hann kaupir
fíkjur, döðlur og aðra þá ávexti
sem hann notar í vörur sínar.
„Annars er það reynsla mín að ís-
lendingar vilja fyrst og fremst fá
góða vöru, gæðin skipta fólk
mestu máli og á gæðin leggjum við
mesta áherslu."
Bergur M. Sigmundsson sagðist
vera mjög ánægður með þær und-
irtektir sem framleiðslan frá
Vilberg-kökuhúsi hefði hlotið.
Vörur fyrirtækisins væru á boð-
stólum í verslunum um allt land
og annast óskar Axelsson heild-
sali í Reykjavík dreifingu á lands-
byggðina. Bergur gat þess að lok-
um að á næstunni yrðu vörur
fyrirtækisins kynntar sérstaklega
í Færeyjum ásamt fleiri iðnaðar-
vörum frá íslandi.
-hkj.
BÖRNIN Á HVUTTAIHjUJM
KOMA í BÆINN
Mauri Kunnas
Iðunn:
„Börnin
á Hvutta-
hólum“
IÐUNN hefur gefið út bókina Börn-
in á Hvuttahólum koma í bæinn eftir
fínnsku höfundana Mauri Kunnas
og Tarja Kunnas. Álfhildur Álf-
þórsdóttir þýddi söguna.
Eftir sömu höfunda er Jóla-
sveinninn, sagan af jólasveininum
og búálfum hans á Korvafjalli,
sem út kom í fyrra.
Börnin í Hvuttahólum koma í bs-
inn er myndasaga í litum og segir
frá því þegar Elsa og Kalli fá að
fara í sína fyrstu löngu heimsókn
til frændfólksins í bænum. Þetta
gerist á öldinni sem leið. f kaup-
staðnum býr Lappi bakarameist-
ari og bðrnin hans, María, Jóhann
og Karólína. í ys og þys bæjarins
er margt að sjá sem er nýstárlegt
og skrýtið í augum barnanna frá
Hvuttahólum. Mauri Kunnas er
kunnur höfundur myndasagna af
þessu tagi en hann býr bæði til
myndirnar og semur textann í fé-
lagi við konu sína. Börnin á Hvutta-
hólum er 40 síður í stóru broti.
Ásetning annaðist setningu.
TJöfóar til
X -Lfólksíöllum
starfsgreinum!