Morgunblaðið - 06.12.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983
63
Félagsheimilisbyggingin fánum prýdd daginn sem lokið var við að reisa. Morpinbi»éið/Bj#rB GuAmundason.
Lokið við að reisa nýja
félagsheimilið í Ólafsvík
Ólafsyík, 22. nóv.
SÍÐASTLIÐINN laugardag var lok-
ið við að reisa hið nýja félagsheimili
Ólafsvíkinga á Klifi.
Miklum áfanga er náð en
margt handtakið er eftir og mörg
krónan á eftir að skipta um hand-
hafa áður en fullgert verður.
Menn hafa gælt við að stefna að
víslu þess árið 1987 en þá á
Ólafsvík 300 ára afmæli sem
löggiltur verslunarstaður, sá elsti
á Islandi. Verkið er i höndum Sig-
urðar Elinbergssonar í Ólafsvík.
Arkitekt hússins er Róbert Pét-
ursson.
Helgi
Nýja Philips maxim
er ekki aðeins hrærivél
heldur einnig grænmetiskvörn,
hakkavél og blandari
*
Philips maxim er frábær hönnun. Með
fáeinum handtökum breytir þú hrærivél-
inni í grænmetishvörn, hakkavél eða
blandara. Allt sem til þarf eru fáeinir
Philips maxim kostar aðeins
5.694 krónur!
Það er leit að ódýrari hrærivél!
fylgihlutir, sem allir eru innifaldir i
verðinu.
Philips maxim fylgir stór skál, þeytari,
hnoðari, lítil skál, grænmetishvörn,
hakkavél, blandari og sleikja.
heimilistæki hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.
Iðunn:
Barnagaman - úrvalssög-
ur frá ýmsum löndum
IÐUNN hefur gefið út bókina Barna-
gaman — Spennandi sögur. Bók
þessi sem er norsk að uppruna er hin
fyrsta á íslensku í flokki úrvalsefnis
handa börnum.
Einar Bragi þýddi bókina sem út
er gefin í samvinnu við Cappelens
Forlag í Noregi. Bókin er prýdd
fjölda mynda eftir norska mynd-
listarmenn, margar þeirra í litum.
í bókinni Barnagaman eru tíu
sögur og sjálfstæðir sögukaflar.
Margt af efninu tilheyrir kiassísk-
um skemmtibókmenntum, annað
er eftir seinni tíma höfunda. I
formála er kveðið svo að orði m.a.
að þessar úrvalssögur segi frá
„áhættusömum" atburðum handan
við grámósku hversdagslífsins,
sem gefa hugmyndafluginu byr
undir vængi."
Fyrirhugað er að gefa út á næst-
unni fleiri bindi i safni þessu.
Báfna
gaman
Spennandisögur
Barnagaman er 160 blaðsiður.
Prentrún annaðist setningu.
Banki
fcir
Bústaða-,
QKnsásqg
fössvcgs-
hvafi
Réttarholtsútibú Iðnaðarbankans á mótum
Sogavegarog Réttarholtsvegar.
Aukin þjónusta við íbúa nærliggjandi hverfa
og þá sem leið eiga hjá.
í Réttarholtsútibúinu fara fram öll almenn
bankaviðskipti.
Við leggjum sérstaka áherslu á persónulega
þjónustu og ráðgjöf; - t.d. um þau
mismunandi inn- og útlánsform sem henta
hverju sinni.
Verið velkomin á nýja staðinn
og reynið þjónustuna.
Mnaðaibankinn
Réttarholtsútibú,
Réttarholtsvegi 3, sími 85799