Morgunblaðið - 15.12.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1983
51
Sigmund van
Amsterdam
Myndlist
Valtýr Pétursson
Nú hefur Prenthúsið sent frá
sér eitt heftið í viðbót af geðbót
Sigmunds. Það mun vera í
fimmta sinn, sem myndum þessa
snillings er safnað saman í bók
og fólk gefinn kostur á að eign-
ást þær. Þetta er því orðið nokk-
urt safn og ekki verður annað
sagt en að um mjög skemmtilegt
verk sé að ræða og að auki fróð-
legt. Eins og allir lesendur
Morgunblaðsins vita, er Sig-
mund einn snjallasti háðfugl
samtíðarinnar, en hann er einn-
ig hárbeitt ádeiluafl, sem ósjald-
an kemur á framfæri alvarleg-
um skoðunum, sem svíður und-
an. Sigmund er óþarfi að skrifa
um sem teiknara. Hann hefur
allt frá byrjun mótað sinn eiginn
stíl og mótað sínar eigin aðferð-
ir, sem daglega eru fyrir augum
lesenda Morgunblaðsins. Raun-
verulega eru þessar myndir Sig-
munds orðnar það sterkur þátt-
ur í daglegu lífi alls fjölda fólks,
að án þeirra væri tilvera margra
snauðari.
Það eru á annað hundrað
mynda í þessari nýju bok Sig-
munds. Þar ber margt á góma,
og væri fáránlegt að fara að tí-
unda það allt hér, en flestir
merkilegir atburðir ársins, sem
er að líða, eru þar krufnir á þann
hátt, sem Sigmund kann manna
best.
Nú hefur Sigmund tekið sér
aðalstign að hætti Germana og
kallar sig van Amsterdam eftir
því gullna fari, sem enn er ekki
fundið undir sandi. Þarna er
gamansemi á ferð, sem ég kann
vel að meta, og satt að segja hef-
ur mig stundum furðað á að ekki
skuli búið að yrkja í glaðværum
anda með viðlaginu „Het vapen
van Amsterdam". Þetta er nú
Sigmund Jóhannsson
auðvitað útúrdúr, en ég held, að
Sigmund hafi séð í þessu nafni
skemmtilega mynd af samtíð
sinn ef svo mætti að orði kveða. í
stuttu máli: Ég hafði mikla
ánægju af því að fá þessa
fimmtu bók Sigmunds í hendur,
og bæði ungir og gamlir, sem
hafa litið í mitt eintak skrudd-
unnar, hafa brosað og haft af
skemmtan. Ég held, að ég hafi
skrifað um allar þessar bækur
Sigmunds og verð því að vara
mig á að endurtaka um of. Eitt
vil ég samt endurtaka. Hér er
mikill snillingur á ferð, sem ekki
á sér neinn líkan í samtíð sinni.
Frá Prenthúsinu barst mér
önnur bók, sem ég hafði einnig
ánægju af, en fjalla hér ekki um,
þar sem aðrir eru mér miklu
færari að kryfja. Þar á ég við,
„ókunn öfl“ eftir Bandaríkja-
manninn Paul Bannister í þýð-
ingu Ævars R. Kvarans. Ég
hafði ánægju af því riti, en Sig-
mund slær samt meira á mína
strengi.
Ragnar Lár, Ásgeir Flóventsson og Hörður Hafsteinsson í hinu nýja Galleríi
í Hafnarstræti 88. LjAsm. G.Berg.
Nýtt gallerí á Akureyri:
Býður upp á verk ak-
ureyrskra listamanna
Akureyri, 8. deaember.
ÁSGEÍR Flóventsson og Hörður
Hafsteinsson reka á Akureyri Skó-
vinnustofu Akureyrar í Hafnarstræti
88. Þeir félagar eiga þar húsnæði
allstórt, sem ekki nýtist að öllu und-
ir skóvinnustofu þeirra og buðu þeir
því listamönnum bæjarins það hús-
næði til afnota undir sýningarsal.
Að sögn Ragnars Lár, myndlist-
armanns, sem verður ráðgjafi
þeirra um rekstur salarins, verður
þetta vettvangur akureyrskra
listamanna til þess að koma á
ódýran og þægilegan hátt verkum
sínum á framfæri. Sýningarsalur-
inn hefur þegar verið opnaður og
verða þar á boðstólum á góðu
verði myndir, bækur, kort og
skúlptúrar. Allt eru þetta verk
eftir akureyska listamenn og
henta ákaflega vel til jóla- og
tækifærisgjafa.
G.Berg.
ÞETTA
er aöeins
smá
úrval af
öllum þeim
fjölda tegunda
af peysum
sem fást
í verslunum okkar.
Nýjar vörur daglega til jóla.