Morgunblaðið - 15.12.1983, Blaðsíða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1983
Þaö hefur hvaö eftir annaö komiö fram hjá læknum og
öðrum forvígismönnum í heilbrigöismálum aö brýna nauö-
syn beri til aö bæta aöstööu til krabbameinslækninga hér
á landi. Miöstöö krabbameinslækninga á íslandi er í
Landspítalanum. Um árabil hefur bygging K-álmu viö
sjúkrahúsiö veriö á dagskrá. Teikningar að byggingunni
liggja fyrir og hefur álmunni veriö ætlaður staöur vestast á
Landspítalalóöinni vestanveröri. Fjárveitingar til þessarar
framkvæmdar hafa verið af skornum skammti og í því
fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi eru 2,3 millj-
ónir til hennar ætlaöar. Komi annaö fé ekki til blasir viö aö
byrjunarframkvæmdum viö K-álmu verði frestaö enn eitt
áriö.
Fullyröa má aö viö Landspítalann séu aö flestu leyti
ágætar aöstæöur til krabbameinslækninga, aö ööru leyti
en því aö stofnunina vantar fullkomiö geislatæki — línu-
hraöal — sem notaö er viö allar helztu stofnanir þar sem
krabbameinslækningar eru stundaðar. Linuhraöall kostar
í innkaupi einhvers staöar á bilinu 20 til 30 milljónir, sem
hlutfallslega telst ekki ýkja mikiö fé, enda munu kaup á
tækinu sjálfu ekki vera hindrun í þessu sambandi. En
hængurinn er sá aö í sjúkrahúsinu eru ekki aðstæöur til aö
koma þessu nauðsynlega tæki fyrir. i teikningum aö
K-álmu er gert ráö fyrir rými fyrir tækiö og umbúnaö þess
á neðstu hæö, þ.e. í kjallara hússins. Nýjasta kostnaöar-
áætlun um byggingu K-álmu allrar, sem veröur þriggja
hæöa hús, hljóöar upp á 500 milljónir. f álmunni er, auk
aöstööu fyrir geislalækningar, gert ráö fyrir göngudeild
fyrir krabbameinssjúklinga, auk rannsókna- og skurö-
stofa, sem aö sjálfsögöu munu þjóna öörum þörfum stofn-
unarinnar en þeim er aö krabbameinslækningum lúta.
Þess má geta aö heiti þessarar fyrirhuguöu byggingar
— K-álma — stendur í engu sambandi viö þann hluta
starfseminnar sem þar á aö fara fram er lýtur aö krabba-
meinslækningum, en byggingar á Landspítalalóöinni eru
til aögreiningar auökenndar bókstöfum. Þannig er
kvennadeildarbyggingin á lóöinni t.d. nefnd X og fyrirhug-
uö legudeildarálma fyrir krabbameinssjúklinga nefnd 0.
Línuhraöall í Landspítala mun gera kleift aö veita
krabbameinssjúklingum jafnfullkomna þjónustu og gerist
í öörum löndum þar sem ýtrustu kröfur eru gerðar varö-
andi heilbrigði og læknisþjónustu. Línuhraöall gerir
Cobolt-tækiö sem nú er í notkun ekki óþarft. Þaö veröur
notaö áfram, enda þótt þaö sé skv. upplýsingum Morgun-
blaösins fariö aö slitna nokkuö. Tilkoma línuhraðals gerir
þaö aö verkum aö vart þarf aö senda krabbameinssjúkl-
inga í geislameöferö í útlöndum, en þess má geta aö skv.
nýlegum upplýsingum heilbrigöisráöherra voru á árinu
1980 sendir 46 sjúklingar í slíka meöferð til útlanda, áriö
1981 voru þeir 37 að tölu, en 19 áriö 1982. i nóvemberlok
sl. höföu 14 sjúklingar veriö sendir í geislameðferö utan
þaö sem af var árinu og nam heildarkostnaöur viö þær
ferðir rúmlega 5,5 millj. króna, eöa um 400 þúsund kr. á
sjúkling að meöaltali. Geislameðferö er oftast langvarandi
og skiþtir í mörgum tilfellum mánuöum.
Til aö varpa Ijósi á þetta mál hefur Morgunblaöiö snúiö
sér til sérfræöinga og forsvarsmanna í heilbrigöismálum
og lagt fyrir þá eftirfarandi spurningar:
Hver er brýnasta framkvæmd á sviði
krabbameinslækninga á íslandi? Áætlaður
kostnaður viö K-álmu viö Landspítalann
nemur um 500 milljónum króna. Er hugsan-
legt að byggja álmuna í áföngum? Hver yrði
þá kostnaður við fyrsta áfanga? Hverjar eru
kröfurnar í sambandi viö krabbameinslækn-
ingar hér á landi? Er samanburður viö stór-
þjóðir eölilegur á þessu sviði? Hvaö gerir
línuhraöall sem önnur geislatæki gera ekki?
Hversu mikill hluti krabbameinssjúklinga
heföi gagn af þessu tæki?
GJAFAVORUVERSLUNIN
Elegans«
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 42
ÁÖur en þér veljiö hina fullkomnu áríöandi jólagjöf, þá beriö
saman gæði, verð og úrval. Viö erum ööruvísi.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 42 Elegans