Morgunblaðið - 18.12.1983, Side 2

Morgunblaðið - 18.12.1983, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983 Pólýfónkórinn: Tónleikar í Áskirkju í kvöld Pólýfónkórinn heldur tón- leika í Áskirkju í kvöld, sunnudagskvöld, klukkan 20.30. Aðgangur að tónleikun- um er ókeypis, en tekið verður á móti framlögum í orgelsjóð kirkjunnar. Kór Kórskólans kemur til liðs við Pólýfónkórinn á þess- um tónleikum. Jafnframt mun Hörður Áskelsson, organleikari Hallgríms- kirkju, taka þátt í tónleikun- um auk nokkurra annarra hljóðfæraleikara. Einsöng- varar á tónleikunum verða Kristinn Sigmundsson og Una Elefsen. Pólýfónkórinn mun flytja upphafs- og lokakór Jólaóra- toríu Heinrick Schutz og jafnframt verður fjöldi fag- urra jólasöngva fluttur af Pólýfónkórnum og kór Kórskólans til skiptis eða saman og sum lögin með þátttöku tónleikagesta. Inn á milli verður orgelleikur og ritningalestur. Á efnis- skránni eru m.a. lög eftir J.S. Bach, Schubert, Mendels- sohn, Róbert A. Ottósson og Sigvalda Kaldalóns. Morgunblaöið/ ól.K.M. Frá jólatónleikum Pólýfónkórsins í Kristskirkju á fimmtudagskvöldið. Orvilnaður af ástar- sorg kveikti í bíl ÖRVILNAÐUR af ástarsorg braust tvítugur piltur fyrir skömmu inn á heimili unnustunnar fyrrverandi og tók ófrjálsri hendi tvö skartgripaskrín hennar; svona eins og til minningar. Hún hafði hryggbrotið hann, fariö norður í land og skilið hann eftir í höfuðborginni. Piltur hélt út í vetrarnóttina með skartgripaskrínin og kom þar að bifreið frá því byggðar- lagi, sem ástin hans nú dvaldi. Hvort hann hefur viljað hefna sín bara af því bifreiðin minnti hann á elskuna eða talið bificið- ina eign þess er hafði tekið hans stað er óljóst, en hann gerði sér lítið fyrir og kveikti í bifreiðinni, sem er Mazda 929. Mazdan eyði- lagðist í eldinum en í aftursæt- inu fannst annað skartgripa- skrínanna. En upp komst um pilt; lögregl- unni tókst að rekja spor hans í snjónum til heimilis hans í um 200 metra fjarlægð. Hann hefur viðurkennt sekt sína, en unnust- an fyrrverandi er enn fyrir norð- an. MISTÖK urðu við birtingu Mbl. i gær á töflu varðandi fiskaflann. Taflan er því birt hér aftur og beðist velvirð- ingar á mistökunum: Tillaga Hafrann- Áætlaður afli 1983 þÚ8. tonn 290 68 56 119 8 27 12 sóknastofnunar um hámarksafla (dags. 9. des. ’83) 1984 þús. tonn 200 55 65 90 10 25 12 Ákvörðun um aflamark 1984 220 60 70 100-110 17 30 15 1. Þorskur 2. Ýsa 3. Ufsi 4. Karfi 5. Skarkoli 6. Grálúða 7. Steinbítur 580 457 512-522 Gert er rád fyrir, að stjórnun fiskveiða á næsta ári taki mið af heildaraflamarki fyrir alla þessa sjö botnfiskstofna. Jafnframt er gert ráð fyrir, að aflamark verði sett fyrir síld, loðnu, skeldýr og skelfiskst- ofna, svo sem gert hefur verið undanfarin ár. Iðnaðarráðherra gefi yfirlýs- ingu við afgreiðslu fjárlaga Samkomulag stjórnarliösins eftir harðar deilur um fé til jöfnunar húshitunarkostnaðar HARÐAR deilur hafa staðið yfir inn- an stjórnarliðsins vegna áætlaðra fjárveitinga á árinu 1984 til jöfnunar húshitunarkostnaðar, sem upphafs- menn deilnanna telja ekki nægilegar, ef framfylgja á lögum frá 1980. Þing- menn sem harðast gengu fram í mál- inu hafa m.a. hótað að leita stuðnings stjórnarandstöðunnar við flutning breytingatillagna við þriðju umræðu fjárlaga eftir helgi, og töldu þeir sig hafa meirihluta á Alþingi með slfkum Skáksamband íslands hefur ákveð- ið að Björgvin Jónsson frá Njarðvík verði fulltrúi íslands í Evrópukeppni unglinga í skák, sem fram fer á næst- unni í Groningen í Hollandi. Skák- sambandið gekk framhjá efnilegustu skákmönnum íslands þegar þátttak- andi íslands var valinn, skákmönnum eins og Karli Þorsteins og Elvari Guð- mundssyni sem væru líklegir til að skipa sér í fremstu röð á mótinu. Njarðvíkurbær greiðir fargjöld fyrir Björgvin, þannig að Skáksam- bandið ber ekki kostnað af för hans og þykir ýmsum sem landsliðssæti í skák hafi verið selt. Þannig mót- mæltu Margeir Pétursson og Ólafur H. Ólafsson, stjórnarmenn í Skák- sambandinu, ákvörðun sambands- ins og töldu að gengið hefði verið framhjá ýmsum efnilegustu skák- mönnum landsins við valið. „Við viljum gefa sem flestum tækifæri til að tefla erlendis og það er ástæða þess að við völdum Björgvin Jónsson,“ sagði Gunnar Gunnarsson, forseti Skáksambands íslands, í samtali við Mbl. Hann staðfesti að Skáksambandið bæri ekki kostnað af för Björgvins, en breytingatillögum. Á fimmtudag tókst iðnaðarráðherra að ná sam- komulagi við þingmennina, og sam- þykkti ríkisstjórnin ■ framhaldi af því á fundi sínum árdegis á föstudag að heimila ráðherra að gefa út sérstaka yfirlýsingu við þriðju umræðu fjárlag- anna, en í henni á að felast trygging sem umræddir þingmenn geti sætt sig við. Samkvæmt heimildum Mbl. verður yfirlýsing iðnaðarráðherra neitaði því að það hefði haft áhrif á ákvörðun þess. „ÞETTA er geysilega spennandi og mun meira en við bjuggumst við eftir aðeins tvö röll í Bretlandi,“ sagði rallkappinn Birgir Viðar Halldórsson, í samtali við Morgun- blaðið, en hann ásamt félaga sín- um, Hafsteini Haukssyni, íhugar nú tvö atvinnutilboð, sem þeim hefur borist frá Bretlandi. Þeir félagar hyggjast taka þátt í Bretlandseyjameistara- keppninni í rallakstri á næsta ári, en eru þessa dagana að at- huga hvaða bíl þeir vilja aka í keppninni. „Leigufyrirtæki í þess efnis, að hann muni leggja fram frumvarp um orkumál strax að loknu jólaleyfi þingmanna, en frumvarpið á m.a. að fela í sér víð- tækar aðgerðir á næsta ári til auk- ins orkusparnaðar. Deilur þessar hófust innan þing- flokks Sjálfstæðisflokksins, og hafa fjórir þingmenn, þeir Egill Jónsson, Eggert Haukdal, Þorvald- ur Garðar Kristjánsson og Halldór Blöndal komið þar mest við sögu. Fengu þeir síðan stuðning úr þing- flokki framsóknar, þannig að þeir töldu sig geta náð þingmeirihluta með liðsinni stjórnarandstöðu. Með lögum frá 1980 var ákveðið að bæta 1,5% ofan á söluskatts- stofn, sem ganga skyldi til jöfnun- ar húshitunarkostnaðar. Þessari upphæð hefur þó aldrei verið skilað að fullu til upprunalegs ætlunar- Glasgow sem heitir Nicholson Sport hefur boðist til að kaupa Talbot lotus-verksmiðjurallbíl frá Spáni til afnota fyrir okkur, en einn forsvarsmanna þess dvaldi hér á landi í Ljómarall- inu,“ sagði Birgir. „Bíll þessi var undir stjórn Spánverjans Anton- io Zanini á sl. ári og varð hann Spánarmeistari á honum og jafnframt framarlega í Evrópu- meistarakeppninni í rallakstri. Hinn möguleikinn sem við erum að athuga er sá að aka okkar eigin bíl í fyrsta rallinu í febrú- ar, en síðan hefur atvinnuöku- verks síns og barðist þingflokkur sjálfstæðismanna harðri baráttu í tíð síðustu ríkisstjórnar til að fá þessa upphæð í heild á fjárlög og flutti m.a. um það sérstaka tillögu á Alþingi. Þá gerði Sjálfstæðis- flokkurinn máli þessu sérstök skil í kosningastefnuskrá sinni í þá veru að framfylgja ætti lögunum frá 1980. Nú munu samtals áætlaðar um 290 millj. kr. á tveimur liðum til þessa I fjárlagafrumvarpi, en þingmennirnir hafa látið reikna út að 1,5% söluskattsstig samsvari 420—470 millj. kr. Samkomulag iðnaðarráðherra við samherja sína felst eins og áður segir í því að hann gefi út fyrr- nefnda yfirlýsingu við 3. umræðu fjárlaga. Fjárveitingar á fjárlögum verða því ekki hækkaðar, en loforð gefið um að húshitunarkostnaður verði jafnaður eftir öðrum leiðum. maður Ford Malcom Wilson boð- ið okkur Escort á góðum leigu- kjörum, sem hann hefur verið að smíða í vetur. Sá bíll varð sigur vegari í RAC-rallinu ’79 undi stjórn núverandi heimsmeistara, Finnans Hannu Mikkola. Birgir kvað þá einnig hafa fengið boð um að aka Talbot Samba, framdrifnum rallbíl, sem nú er nýkominn á markað- inn, en þeir hefðu ekki hug á slíkum bíl. Auk þess að aka í Bretlandi hyggjast Hafsteinn og Birgir keppa hérlendis á Escort Hálfskugga- myrkvi á tungli á morgun Hálfskuggamyrkvi á tungli á að sjást á raorgun, 19. desember, að því er segir í Alraanaki Þjóð- vinafélagsins. Byrjar hálfskugg- inn að færast yfir tunglið klukk- an 23.46 og þegar myrkvinn verð- ur mestur, klukkan 1.49 aðfara- nótt þriðjudags, 20. deseraber, mun skugginn hylja 91% af þver- máli tunglsins. Tungl er hátt á lofti á suður- himni í Reykjavík meðan á myrkvanum stendur, en hálf- skugginn er mjög daufur og myrkvar af þessu tagi því mun tilkomuminni en alskuggamyrkv- RS, sem þeir hafa ekið til þessa í keppni. í Bretlandi hafa þeir þegar ákveðið að aka í þremur röllum, í National Breakdown í febrúar, Welska í maí og Skoska alþjóðarallinu í júní, en í því síð- astnefnda náðu þeir mjög góðum árangri í júní sl. Þess má geta að lokum, að virtasta bílablað Bret- lands, Autosport, hafði eftir Malcolm Wilson að íslending- arnir ækju hans bíl á næsta ári og sýnir það vel hve áhugasamur hann er að komast yfir þá fé- laga. G.R. Evrópumeistaramót unglinga í skák: Gengið framhjá efni- legustu skákmönnunum Hafsteinn og Birgir fá atvinnutilboð í rallakstri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.