Morgunblaðið - 18.12.1983, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 18.12.1983, Qupperneq 48
óoö ]<@uU &H>ílfur b/f LVlC. W'ECil • REYK.I.W1K - S 20620 HOLLyWOOD Opiö Öll KVÖId SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Slysið á Eyrarbakkavegi: 17 ára piltur lést á leið í sjúkrahús SAUTJÁN ára piltur frá Stokkseyri lést á leið í sjúkrahús eftir harðan^ árekstur á Eyrarbakkavegi um klukkan 22 á fostudagskvöld, sem skýrt var frá í blaðinu í gær. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Ung stúlka liggur mikið slösuð eftir sama árekstur, en aðrir eru minna slasaðir. Samtals voru níu manns í bílunum tveimur, allt ungt fólk. Að sögn Jóns Guðmundssonar, yfirlögregluþjóns á Selfossi, er ekki vitað nákvæmlega hvað slys- inu olli, en svell var á veginum þar sem bílarnir mættust og frost hafði verið um kvöldið. Fimm ungmenni voru í annarri bifreið- inni en fjögur í hinni. Pilturinn sem lést var farþegi annarrar bif- reiðarinnar. Hermann Pálsson prófessor: Tengsl Njálu við eldri rit, innlend og erlend dagar til jóla segir séra Karl Sigurbjörnsson sóknarprestur „ÞAÐ VAR Ijót aðkoman hér í Hall- grímskirkju í morgun. Brotist hafði verið inn, allar hurðir brotnar og hirslur opnaðar í leit að einhverju verðmætu. Það hörraulega við þetta er að öllum silfurmunum kirkjunnar var stolið," sagði séra Karl Sigur- björnsson, sóknarprestur í Hallgríms- kirkju, í samtali við Mbl. í gær, en aðfaranótt laugardagsins var brotist inn í kirkjuna. Þjófarnir fóru upp á vinnupalla á kirkjuskipinu, brutust inn á söngloft og sigu niður í kaðli og brutust inn í anddyrið. „Tjónið er auðvitað mikið en í þeim munum, sem stolið var, er í fyrirlestri um uppruna Njálu, sem Hermann Pálsson prófessor flutti í vikunni við Háskóla fslands, gerði hann meðal annars grein fyrir rann- sóknum sínum á tengslum íslenskra fornrita við eldri rit, ekki síst erlend. ' Nefnir hann meðal annars áhrif frá . Þiðreks sögu af Bern á persónusköpun í Njálssögu, svo sem sjá megi á , Var meö tæpt kfló af hassi TVENNT var handtekið í fyrrakvöld á Keflavíkurflugvelli við komu Flugleiðaþotu frá Luxemborg. í fór- um konunnar, sem er um tvítugt, fundust 920 grömm af hassi og 5 grömm af marijúana. Hún var tekin ásamt sambýlismanni sínum og þau færð til yfírheyrslna í Reykjavík. Þau viðurkenndu að hafa ætlað að smygla fíkniefnunum inn í landið. Konan hafði tekið að sér að flytja efnin til landins, en maður- inn keypt þau erlendis. Hann hef- ur áður komið við sögu hjá fíkni- efnadeildinni og legið undir grun um að smygla fíkniefnum til landsins. Að loknum yfirheyrslum var þeim sleppt í fyrrinótt. Það er ef til vill tímanna tákn, að fíkni- efnadeild lögreglunnar gerði ekki kröfu um gæzluvarðhald yfir hjónaleysunum. Þrír menn sitja nú inni vegna tveggja umfangsmikilla fíkniefna- mála; Karlsefnismálsins svokall- aða og Lagarfossmálsins. Fyrir ári þóttu það mikil tíðindi ef lagt var hald á kíló af hassi. En í ár hefur lögreglu og tollgæzlu orðið svo vel ágengt í baráttu gegn fíkniefna- smygli, að ekki er talin ástæða til kröfu um gæzluvarðhald. Heita vatnið í Reykjavík hækk- ar um 25% í ársbyrjun 1984 „Fjárhagsáætlun Ilitaveitunnar er miðuó viö, að vatnsverð hækki um 25%, í 15,00 krónur á hvert tonn í byrjun næsta árs. Stofngjöld munu þó hækka minna, enda hafa þau hækkað hlutfallslega meira en vatnsverðið á liðnum árum, þar sem þau áhrif hafa ekki mælst í vísitöluútreikningum," sagði Oavíð Oddsson, borgarstjóri, í ræðu sinni um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar á borgarstjórnar- fundi sl. fimmtudag. „Þrátt fyrir þessa hækkun mun kostnaður við húshitun frá Hita- veitu Reykjavíkur ekki verða nema sem svarar 22% af kostnaði við olíukyndingu. Hækkandi gjaldskrár koma við pyngju þeirra, sem orkuna greiða en miklu meiri hags- munir eru í húfi, að Hitaveitunni sé gert kleift að veita nauðsynlega þjónustu,“ sagði Davíð Oddsson ennfremur. Davíð Oddsson sagði, að fram- kvæmdum Hitaveitunnar væri einkum ætlað að konia í veg fyrir vatnsskort næstu árin með stækkun kyndistöðvarinnar í Árbæ og fjölg- un borhola á borgarsvæðinu og ennfremur að undirbúa jarðhita- virkjun fyrir lengri framtíð. „Þá er einnig gert ráð fyrir því að leggja dreifikerfi í allar nýjar byggðir á hitaveitusvæðinu." „Reksturinn einkennist af því, að margar gamlar og lasburða götu- æðar í dreifikerfinu verða endur- nýjaðar. Þessar aðgerðir munu íþyngja rekstrinum umfram venju- legar þarfir næstu árin. Kostnaður- inn mun og hækka vegna aukinnar rafmagns- og olíunotkunar," sagði Davíð Oddssón. Davíð Oddsson, borgarstjóri, gat þess í ræðu sinni, að Hitaveitan hefði verið svelt í sambandi við verðhækkanir á orku undanfarin ár. „Á síðustu þremur árum var gjaldskrá veitunnar aðeins rúmlega helmingur þess sem hún var um 1970, þegar verðstöðvunartímabilið svokallaða hófst, og er þá miðað við hækkun á byggingarkostnaði, Á þessu ári hefur orðið veruleg breyt- ing á þessari afstöðu ríkisvaldsins og er það í samræmi við stefnuyfir- j lýsingu núverandi ríkisstjórnar um, : að sveitarfélögin ákveði sjálf gjaldskrár þjónustufyrirtækja sinna.“ Strokufangi gómaður ANNAR fanginn, sem strauk úr Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg á föstudagskvöldið, hefur náðst en hinn gekk ennþá laus í gær. fólgið mikið tilfinningalegt og listrænt gildi. Silfurkrossi eftir Leif Kaldal, sem stóð á altari kirkj- unnar, var stolið. Jónas frá Hriflu gaf krossinn í minningu konu sinn- ar, Guðrúnar Stefánsdóttur. Þá var öðrum krossi stolið og tveimur silf- urkaleikum. Raunar öllu altaris- silfri kirkjunnar — silfurvín- könnum og litlum silfurbikurum, 80 til 100 talsins. Allt eru þetta minningargjafir — gefnar með góðum hug í minningu um gott fólk. Svo langt var gengið að silfur- helgimynd í ramma var stolið. Ramminn var brotinn og silfrið plokkað úr rammanum. Það er sárt að vita þessa hluti i ræningjahönd- um. Ég vil hvetja þá sem þarna voru að verki að skila þessum mun- um aftur, en um leið alla þá, sem kunna að búa yfir upplýsingum, að láta okkur vita,“ sagði séra Karl Sigurbjörnsson. Skarphéðni Njálssyni. Hér er bæði um að ræða nýjar athuganir Hermanns og framhald rannsókna sem Einar Ólafur Sveinsson, Þorvaldur Bjarnason, Lars Lönnroth og fleiri hafa gert. í fyrirlestri sínum sagði Hermann meðal annars: „Njálu-höfundur var fjöllesinn maður; eins og aðrir góðir meistarar í ritlist, þá kinokaði hann sér ekki við að hirða efni í smlði sína hvaðan sem honum sýndist; heizta reglan, sem hann hlítti um aðföng var sú, að þau væru nógu góð og gætu eignazt hæfan stað í verkinu sjálfu." Bendir Hermann á að í formála að Njálu-útgáfunni í íslenzkum fornritum bendi Einar Ólafur á ýmis rit sem höfundur Njálu virðist hafa lesið, og við þá skrá megi bæta allmörgum ritum. Njálu telur Hermann að verulegu leyti vera hugsmíð höfundar, en þó komi við söguna menn sem víslega hafi verið uppi og sagt er frá mörg- um atburðum er gerðust hér á landi sem erlendis. að vita þessa hjá ræningjum Morgunblaðiö/ Júlíus. Sárt hluti Séra Karl Sigurbjörnsson med rammann sem silfurhelgimynd var plokkud ur. Silfurmunum Hallgrímskirkju stolið: Sjá fyrirlestur Hermanns Pálssonar bls. 20 og 21.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.