Morgunblaðið - 23.12.1983, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983
Stjórnendur Lýsis og mjöls standa þarna framan við
hluta nýja þurrkarans sem fyrirtækið hefur sett upp í
verksmiðju sinni við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði. Frá
vinstri: Hlynur Arndal Jónsson fjármálastjóri, Þórður
Jónsson rekstrarstjóri, Steinar Berg Björnsson for-
stjóri og Jón Bryngeirsson verksmiðjustjóri.
MorgunblaJiJ Ól.K.M.
„Með tilkomu nýja þurrkarans er loftmengun úr sög-
unni frá verksmiðju Lýsis og mjöls í Hafnarfirði,"
segja stjórnendur fyrirtækisins.
Þurrkari með lykteyð-
ingarbúnaði settur upp
LÝSI OG MJÖL hf. hefur nýlega látið setja upp sérstakan þurrkara með
lykteyðingarbúnaði í verksmiðju sinni við Hvaleyrarbraut í Hafnarfírði.
Þessi þurrkari, sem er sænsk smíð, er sá fyrsti sinnar tegundar á íslandi og
afkastar um 100 tonnum af hráefni á sólarhring. Að sögn stjórnenda fyrir-
tækisins er þetta hagkvæm og örugg leið til að losna við loftmengun í
nágrenni verksmiðjunnar, án þess að endurnýja allar verksmiðjuvélarnar.
Kostnaðurinn við nýju vélarnar og uppsetningu þeirra nemur um 12 milljón-
um króna.
„Fyrir nokkrum árum var sett-
ur upp lofthreinsibúnaður í verk-
smiðjunni, en hann þjónaði til-
gangi sínum ekki nógu vel. Hann
var bæði dýr í rekstri auk þess
sem hann eyddi lyktinni ekki á
fullnægjandi hátt,“ sagði Hlynur
Arndal Jónsson, fjármálastjóri.
„Menn hugsuðu dæmið skakkt á
þessum tíma. Það voru lagðir
miklir fjármunir í búnað til að
eyða mengun, nálægt 9 milljónum
króna á verðlagi dagsins í dag,
þegar hægt var að fá þurrkara
sem kemur í veg fyrir að mengun
myndist."
Nýi þurrkarinn er hluti af verk-
smiðjusamstæðu, nefnd „Centri-
fish“, sem fyrirtækið Alfa-Laval í
Svíþjóð framleiðir og Landssmiðj-
an hefur umboð fyrir hér. Gentri-
fish-verksmiðjur eru hannaðar til
framleiðslu á fiskimjöli og lýsi og
eru að því leyti frábrugðnar verk-
smiðjum hér á landi að sjóðarar
og þurrkarar eru af svokallaðri
Bonjer-gerð og mjölskilvindur
leysa bæði hlutverk pressa og
mjölskilvinda, auk þess sem ekki
er þörf fyrir gufukatla í slíkum
verksmiðjum. Framleiddar eru 6
mismunandi stærðir af þessum
verksmiðjum, með afköstum frá
12 til 300 tonnum af hráefni á sól-
arhring.
Breytingarnar hjá Lýsi og mjöl
í Hafnarfirði felast í því að eld-
þurrkari gömlu verksmiðjunnar
hefur verið fjarlægður úr vinnslu-
rás og í staðinn settur Centri-
fish-þurrkari með lykteyðingar-
búnaði og stjórnstöð. Önnur tæki,
svo sem soðkjarnatæki, pressa,
sjóðari og skilvindur eru þær
sömu og voru fyrir í verksmiðj-
unni.
Þurrkarinn vinnur á eftirfar-
andi hátt: Heitt oliugas frá eld-
ofni er dregið með blásara í gegn-
um lárétt reykrörabúnt, sem
snýst hægt innan í einangruðum
þurrkarabelg. Gasið streymir inn-
an í rörunum, en hráefni flyst í
þurrkarabelgnum og við snert-
ingu og geislun flyst varminn úr
gasinu með óbeinni hitun yfir í
hráefnið og eimar upp vatnið úr
því uns hæfilegu rakastigi mjöls-
ins er náð.
Varmann frá uppgufuninni úr
hráefninu er unnt að nýta til upp-
hitunar á soðeiningartækjum áð-
ur en gasið frá hráefnishlið
þurrkarans er kælt og þétt í
þvottaturni. Óþéttanlegu gasi,
sem frá þvottaturninum kemur,
er blásið í gegnum varmaskipti og
hitað upp með afgangsorku en
síðan brennt í eldofni áður en það
losnar út í andrúmsloftið. Við
þetta fæst fullkomin loftmengun-
arvörn og góð orkunýting er
tryggð um leið.
Centrifish um borð í togara
Nú er í undirbúningi hjá Alfa
Laval að bjóða litlar fiskimjöls-
verksmiðjur af þessari gerð, sem
þurrka og sjóða með afgangs-
varma frá aðalvélum í togurum.
Þ.e.a.s. nýta orku sem annars er
ekki nýtt. 1 frétt frá Lands-
smiðjunni segir í því sambandi:
Slík verksmiðja gæti hentað vel
fyrir íslensk fiskiskip sem full-
vinna afla um borð, en þurfa að
fleygja um 60% af aflamagni sem
úrgangi, eða fyrir togara sem
henda lifur, slógi og smáfiski
fyrir borð. Fjárhagslegur hagnað-
ur slíkrar vinnslu mundi bæta
rekstrarafkomu útgerðar, en auk
þess gerir stjórnstöð verksmiðj-
unnar stjórnun og framleiðslu
auðveldari og öruggari og þarfn-
ast minni mannafla en hefð-
bundnar verksmiðjur.
Hraðfrystistöð
Eyrarbakka 40 ára
— mikil óvissa með hráefnisöflun á næsta ári
Eyrarbakka, 22. desember.
HRAÐFRYSTISTÖÐ Eyrarbakka á
40 ára afmæli um þessar mundir, en
fyrirtækið var stofnað árið 1943 og
fyrsta skóflustungan að byggingum
þess var tekin á Þorláksmessu 1943.
Hraðfrystistöðin hefur æ síðan
hún hóf starfsemi sína verið
stærsti atvinnurekandi staðarins
og árið 1954 hóf hún humarveiðar
og urðu þær þá í fyrsta sinn arð-
bærar hér við land. Nú ríkir hins
vegar mikil óvissa um hráefnisöfl-
un á komandi vertíð þar sem
Hraðfrystistöðin á engan bát.
Vegna þess, að aflamark einstakra
báta er enn óljóst, hafa þeir enn
ekki viljað binda sig með samn-
ingum við einstakar vinnslustöðv-
ar í landi. Verði ekki tekið tillit til
vinnslustöðvanna við úthlutun
aflamarksins, aðeins bátanna, er
hætt við því að mikið kapphlaup
vegna hráefnisöflunar hefjist og
gæti það meðal annars gengið
endanlega frá atvinnulífi smærri
sjávarþorpa, yrði það til þess, að
þau fengju ekkert eða mjög lítið
hráefni til vinnslu.
— Óskar
íscross-
keppniá
Leirtjörn
Mánudaginn 26. desember, á
annan í jólum, gengst BÍKR fyrir
keppni í íscrossi. Keppnin verður
haldin á Leirtjörn í Mosfellssveit,
skyggnisleið, og hefst kl. 14.00.
Þórður Valdimarsson, íslands-
meistari í rallycrossi, á VW,
Kristinn Svansson, Islandsmeist-
ari í íscrossi, á Datsun og fleiri
ökumenn munu mæta til leiks.
Myndbandaleiga í Hólagarði
Ný myndbandaleiga hefur verið opnauð í Hólagarði í Breiðholti undir
nafninu Videó-Breiðholts. Þar eru til leigu myndbönd í VHS.
Videó-Breiðholts mun kappkosta að fá stöðugt nýjar filmur frá við-
skiptasamböndum sínum í Englandi ásamt allra nýjustu myndunum
með íslenskum texta, segir í frétt frá Videó-Breiðholts.
Þá verður stefnt að því að bjóða myndbandstæki til leigu, jafnframt
myndum í Beta-kerfið.
Eigendur leigunnar eru: Birna Júlíusdóttir og Hildigunnur Gestsdóttir.
Blaöburóarfólk
óskast!
Austurbær Vesturbær
Ingólfsstræti Garöastræti
Miöbær I Nýlendugata
Gnoðarvogur 44—88
Uthverfi Artunsholt
/X •
Snorrabtaut 22
auglýsir:
Leikföng og
gjafavörur
í úrvali
Höfum þýskt, spánskt og
portúgalskt postulín, viðurkennd og
falleg vara.
Sænskt handmálað keramík frá
Glit. Frönsku bollusettin ódýru.
Frönsk verðlauna leikföng, Kiddi-
kraft, Playmobil, Lego, dúkkur,
bollasett, bílar stórir og smáir og
fleira og fleira.
Kreditkortaþjónusta — Heimsending.
Gjafabúðin /&
horni Snorrabrautar
og Hverfisgötu ,
rétt hjá Hlemmi. i
I
Húsavík:
Bálför í
nafni friðar
HÚSVÍKINGAR halda í dag, á Þor-
láksmessu, bálför í nafni friðar og
söfnunar Hjálparstofnunar kirkj-
unnar. Kjörorð Húsvíkinganna
verða: ísland gegn kjarnorkuvá, frið-
ur á jólum 1983, við biðjum leiðtoga
þjóðanna að leggja niður vopn,
brauð handa hungruðum heimi.
Að sögn Sveins Haukssonar,
eins af þeim er undirbjuggu bál-
förina, verður safnazt saman við
sundlaugina klukkan 17.30 í dag
og kyndlar tendraðir. Þá verður
gengið að Húsavíkurkirkju, en þar
flytur séra Björn H. Jónsson stutt
ávarp, þrír ungir blásarar leika og
síðan verður sungið. Að því loknu
verður gengið að jólatrénu og þar
verður friðarávarp flutt og tekinn
þáttur í skemmtun barnanna við
tréð. Húsavíkurkirkja verður opin
frá klukkan 16 til 20 og verður þar
tekið á móti söfnunarbaukum
Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Eldur í hlöðu
Miðhúsum 22. desember.
UM KLUKKAN 10 í gærmorgun
kom upp eldur í hlöðum á Kleifum í
Gilsfirði. Nágrannar og heimamenn
gátu slökkt eldinn og var því verki
lokið um klukkan 13.
Talið er að um eitt kýrfóður af
heyi hafi eyðilagzt.
— Sveinn.