Morgunblaðið - 23.12.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983
19
Apavatn:
Athugasemd frá tveim
hreppsnefndarmönnum
TVEIR hreppsnerndarmenn í Laugardalshreppi hafa óskað eftir birtingu á
eftirfarandi athugasemd vegna fréttar í Morgunblaðinu sl. þriðjudag um
tillögu, er lögð var fram á kynningarfundi um fyrirhugaða fiskeldistöð
Laugarlax hf. við Apavatn:
„1. Þar sem við teljum fréttina
villandi viljum við að tillagan sé
birt í heild sinni.
2. Það er ekki rétt, sem fram
kemur að hreppsnefnd hafi lagt
tillöguna fram. Hún var lögð fram
af okkur tveimur án þess að
hreppsnefnd fjallaði um hana.
Hins vegar töldum við, og teljum,
að hún sé mjög í anda og stefnu
hreppsnefndar frá upphafi, sem
lagt hefur á það höfuðáherslu, að
frárennsli frá stöðinni geti ekki
valdið tjóni á veiði í vötnunum.
3. Báðir aðilar, þ.e. bændur við
Apavatn og stjórn Laugarlax hf.,
lýstu ánægju sinni með að þessi
tillaga kom fram.
Tillaga á kynningarfundi um
laxcidistöð í laugardalshrcppi
15. desembcr 1983 um að:
1. Frárennsli stöðvarinnar, að
fengnu samþykki Hollustuverndar
ríkisins og veiðimálastjóra, geti
runnið í hvort vatnið sem er, Apa-
vatn eða Laugarvatn.
2. Veiðimálastofnun rikisins
skal árlega ákveða í hvort vatnið
(Laugarvatn eða Apavatn) frá-
rennsli stöðvarinnar á að fara.
3. Strangt eftirlit sérfræðinga á
vegum ríkisins skal vera með báð-
um vötnunum (Laugarvatni og
Apavatni).
4. Rekstrarleyfi stöðvarinnar
skal vera til eins árs í senn næstu
fimm árin enda liggi fyrir álit sér-
fræðinga og veiðimálastofnunar
ríkisins hverju sinni.
5. Fundurinn er því meðmæltur,
að ef veiðifélag verður stofnað við
vötnin, fái félagið, ef það óskar
þess, einn fulltrúa í stjórn Laug-
arlax hf., enda stangist það ekki á
við lög og reglur hlutafélaga."
Fridgeir Stefánsson,
Laugardalshólum.
Arni Guömundsson,
Böömóösstööum.
Aths. ritstj.
Rétt er að það komi fram, að
upplýsingar um að tillagan væri
frá hreppsnefnd eru frá oddvita
Laugardalshrepps komnar.
Siglufjörður:
Guðrún Jónsdóttir afla-
hæsti rækjubáturinn
Siglufirði, 22. desember.
MIKII. vinna hefur veriö hér aö undanfornu og er enn. Til 7. desember
síöastliöins hefur veriö landaö hér 464 lestum og 714 kflóum af rækju og
hefur vinnslan gengið vel. Þá hafa togarar landaö hér samtals 7.549 lestum
af fiski fyrstu 11 mánuöi ársins.
Aflahæstu rækjubátarnir eru:
Guðrún Jónsdóttir SI með rúmar
89 lestir, Gissur Hvíti ÓF með
tæpar 70 lestir, Þorleifur EA með
rúmar 68 lestir, Sænes EA með
rúmar 66 lestir, Áskell ÞH með
rúmar 48 lestir, Kópur VE með
rúmar 48 lestir, Árni ÓF með
rúmar 24 lestir og Guðmundur Ól-
afsson ÓF með rúmar 15 lestir.
Aðrir bátar eru með um 31 lest
samtals. Eitthvað hefur verið
landað af rækju síðan 7. desember.
Fyrstu 11 mánuði ársins hefur
Stálvík landað hér 2.484 lestum í
26 veiðiferðum, Sigluvík 2.482 lest-
um í 24 veiðiferðum, Siglfirðingur
1.683 lestum í 21 veiðiferð og Haf-
þór 945 lestum í 9 veiðiferðum.
Auk þessa hefur Sigluvíkin landað
78 lestum erlendis, Hafþór 97 og
Siglfirðingur 186,4. Þá hefur Sigl-
firðingur landað 50 lestum á
Skagaströnd.
Sigluvíkin landaði hér í gær um
90 lestum af þorski og Stálvík er
væntanleg hingað á morgun með
góðan afla.
Fréttaritari
, r mm
JOLAGJOFI
Aðeins kr.
Tölva með
sólarrafhlöóum
sem endast
ævilangt
Þetta er mjög vel
hönnuö reiknivél, sem
hefur alla algengustu
reiknimöguleika.
Jólagjöfin
sem reiknað
er með.
Skipholti 19, sími 29800
y'm
____[ ■ t fc íl f,
■ ■ I 1 11,
ING0UUR
A HELLU
Umhverfi
ocjævistarf
Öndvegisrit
• í bókinni er sagt frá því hvernig Viöreisnarstjórnin starfaöi af manni, sem sat í
stjórninni allan valdatíma hennar.
• Ingólfur segir frá kynnum sínum af Ólafi Thors, Bjarna Benediktssyni, Jóhanni
Hafstein, Gunnari Thoroddsen, Geir Hallgrímssyni og mörgum öörum.
• Hvaö segir Ingólfur á Hellu um deilurnar milli Gunnars og Geirs og deilur sjálfstæö-
ismanna í Suðurlandskjördæmi?
• Ævisaga Ingólfs á Hellu er öndvegisrit, sem á erindi til allra áhugamanna um
stjórnmál og sögu, fróöleiksnáma um stjórnmálabaráttuna á íslandi síöustu áratugi.
i
Barónsstíg 18,
sími: 18830.