Morgunblaðið - 23.12.1983, Page 31

Morgunblaðið - 23.12.1983, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983 31 • Breska útvarpsstöðin BBC valdi stórhlauparann Steve Cram sem íþróttamann ársins á Bret- landseyjum. Cram sem gekk í heilagt hjónaband um síöustu helgi vann marga stórsigra á' hlaupabrautinni á árinu sem er aö líöa. Hér sést hann sigra í ein- vígi viö Steve Owett í 1500 m hlaupi sem fram fór á Crystal Palace-leikvanginum í London í sumar. Owett á heimsmetið í 1500 m en Cram sigraði í 1500 m á heimsleikunum ( Helsinki og hefur því nafnbótina heimsmeist- ari í greininni. Punktar Tveir miðar! SIEGFRIED Kuntze, aðalfram- kvæmdastjóri þýska knattspyrnu- liðsins Hertha Berlin, varð heldur betur fyrir vonbrigðum er hann fékk fyrstu verölaun í happdrætti sem hann tók þátt i á hjólreiða- keppni. Verðlaunin voru nefnilega allt önnur en hann bjóst viö: tveir miðar á næsta heimaleik Hertha! „Dónár-deildin“ ÁHORFENDUM hefur fækkaö mjög í „Oberligunni“ svokallaðri, 1. deildinni í Austurríki — þannig að Knattspyrnusamband Austurríkis er uppi meö hugmyndir um aö stofna nýja deild, með þátttöku bestu liöanna frá Austurríki, Tékkóslóvakíu og Ungverjalandi. Ætti hún að heita „Dónár-deildin". Rivelino byrjar aftur ROBERTO Rivelino, vinstri fótar snillingurinn brasilíski, er nú aö hugsa um aö taka fram skóna að nýju og byrja aö leika knattspyrnu, eftir aö samningur hans sem þjálf- ara í Saudi-Arabíu rennur út. Riv- elino er 37 ára. 36 leikir án taps DYNAMO Berlin, austur-þýsku meistararnir í knattspyrnu síðustu fimm árin, tapaði nýlega sínum fyrsta deildarleik síðan 24. apríl 1981, er Wismut vann liðið 2—1. Dynamo lék 36 leiki í röð án taps. Deildar- keppni BSÍ DEILDARKEPPNI Badmintonsam- bands íslands fer fram 7.-8. janú- ar næstkomandi. Keppt veröur í 1. og 2. deild og fer keppnin fram í (þróttahúsi Seljaskóla, Reykjavik, og hefst kl. 10.00 báða dagana. Allir bestu badmintonmenn landsins verða meðal þátttakenda. Utb. frá kr. 3.000,- Fullkomið sett MAGNARI 2x25 W (RMS) 8+ ohm eða 2x35 W (DIN) Tónlistartrekkurinn er tryggður með þessum magnara. SEGULBANDSTÆKI Framhlaðin með léttrofa. Spólustillingar: Normal CROM og METAL Dolby sem eyðir suði, teljari þriggja stafa, flúor-upptökumælar, tvö inntök f. hljóðnema. Timer — Standby. ÚTVARPSMÓTTAKARI Allar bylgjur stereo, Ijósa stýring á stöð, Ijósa móttökustyrkmælir. PLÖTUSPILARI Léttarmur tryggir bestu hljómgæði ásamt magnetískum pick-up, anti-skeiting og ná- kvæmri þyngdarstillingu. HÁTALARAR Mikilvægur hlekkur í keðjunni, 60 watta bass-reflex hátalarar sem skila kristal-tærum hljóm. SKÁPUR Sá veglegasti í bænum. Tvær gerðir eftir þtnu vali. Jólatilboð Verö 29.980,- staögr. Útb. 3000.- merki unga fólksins Skipholti 19, sími 29800.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.