Morgunblaðið - 31.12.1983, Síða 7

Morgunblaðið - 31.12.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 7 eftir • • _ sr. Hannes Orn Blandon HUGVEKJA FramtíÖ Gamla árið er að líða og senn gengur nýtt í garð. Það sem var mun aldrei koma aft- ur og hver veit hvað hið nýja ber í skauti sér. Hverjum mun hlotnast stóri vinningurinn, hver mun glata öllu sínu? Það er til siðs á tímamótum sem þessum að líta til baka horfinn veg og horfa á það, sem betur mátti fara, endur- meta hug sinn í ljósi nýrrar framtíðar, stokka upp spilin og leggja á ný. Við öðrum blasir engin framtíð, aðeins auðn og tóm, þeir horfa í myrkur dauð- ans. Margir eiga um sárt að binda vegna ástvinamissis og minningarnar ýfa sárin. Hvar eru þær nú hinar sælu stundir, er þeir áttu með látnum maka, þegar þau hittust fyrsta sinni, stóðu fyrst augliti til auglitis og hjartað tók á rás? Hvar eru þær nú hinar ljúfsáru stundir, er þau hófu búskap og börnin fóru að koma eitt og eitt, sum- um eru þær horfnar inn í ei- lífðina, við öðrum brosir lífið. Guði sé lof fyrir kærleikann, sem hann sáir í brjóstin á ungu fólki. Guði sé lof fyrir það að svo lengi, sem heimur fær staðið, verði ávallt til ungt fólk, sem þorir og getur tekist á við vandamál lífsins, þorir að horfast í augu við framtíðina. Ég hefi áður minnst á það í þessum hugleiðingum mínum hversu framandlegt það er borgarbarni að setjast að úti á landsbyggðinni. Það tekur þó nokkurn tíma að venjast öllum staðháttum og mörgum tekst það aldrei. Nú langar mig í þessum síðasta pistli mínum að sinni að fara nokkrum orð- um um þann stað, sem við hjónin kusum að setjast að fyrir nokkrum árum. Ólafsfjörður er sjálfsagt i fáu frábrugðinn öðrum pláss- um við sjávarsíðuna. Héðan hefur löngum verið útræði mikið og nú eru gerðir út þrír togarar og tvö minni fiskiskip auk annarra smábáta. I stuttu máli er lífið fiskur í fortíð og framtíð. Tilvera hinna rúm- lega ellefu hundruð sálna byggist að mestu á sjávarút- vegi og Ólafsfirðingar hafa löngum verið eftirsóttir sjó- menn í öðrum verstöðvum. En það er ýmislegt öðru fremur sem einkennir staðinn. Það eru ekki mörg ár síðan vegur var lagður fyrir Vámúla og fram að því var ekkert vegasamband við umheiminn ef undan er skilin leiðin yfir Lágheiði suð- ur í Fljót, sem aðeins var opin tvo eða þrjá mánuði á ári. Veg- urinn fyrir Múlann er harla viðsjárverður á stundum og sérstaklega á veturna því hér er vetrarríki mikið og getur brostið á er minnst varir. Það er því flestum mikil reynsla og ævintýri er fara þessa leið í fyrsta sinn og aka fyrir gil og gjár og horfa niður í hafið fleiri hundruð föðmum neðar. En þessi leið getur verið hættuleg því stundum vilja falla mikil snjóflóð, sem teppa umferð jafnvel svo dögum skiptir. Og það getur skipt sköpum í þeim tilfellum er senda verður sjúklinga inn á Akureyri. En það er líka dýr- mætt að eiga mann eins og Valdimar Múlameistara sem les teikn í lofti og virðist oft forvitri, er hætta steðjar að í Múlanum. Ólafsfirðingar mæna með nokkrum ugg til framtíðarinn- ar. Þeir eiga þá ósk heitasta að fyrr eða síðar verði gerð göng í gegnum Múlann. En það er dýrt og fjárfrekt fyrirtæki, sem mun þó á endanum borga sig því það kostar óhemju fé að ryðja veginn vetrarlangt ár eftir ár. ' Ólafsfirðingar kvíða hins vegar framtíðinni í sjávarút- vegi, sem og aðrir starfsbræð- ur þeirra í landinu. Þetta ár, sem er að líða var lélegt aflaár og ekki brosir hamingjan við í þeim efnum á næsta ári. Líf sjómannsins er enginn dans á rósum þó þetta bætist ekki við og það veit ég einnig að fáar konur myndu sætta sig við hlutskipti þessara kvenna, sem sjá manninn sinn í 30 tíma á 10—15 daga fresti. Það er hollt fyrir okkur hin að hafa það hugfast, að það er fyrst og fremst á þessu fólki, sem þjóð- in byggir velferð sína og svo verður um ókomna framtíð. Við fögnum senn nýju ári. Það vona ég, að Guð gefi okkur gæfu til að taka höndum sam- an við að leysa þau vandamál er við blasa í atvinnuvegum þjóðarinnar. Og ég bið þess að við leitum til Drottins, sem gaf okkur landið með öllum þess gæðum og einnig að kærleikur- inn fái að ráða svo að unga fólkið er landið mun erfa eigi bjarta framtíð fyrir höndum. „Rannsökum breytni vora og prófum og snúum okkur 'til Drottins." „Fórnum hjarta voru og höndum til Guðs í himninum." (Harmlj. 40—41.) Guð gefi öllum landsmönn- um gleðilegt nýtt ár. Fasteignaskattar á Akureyri lagðir á með 12,5% álagi Akureyri, 28. desember. Á FUNDI bæjarstjórnar Akureyrar þriójudaginn fyrir jól uróu allsnarp- ar deilur á milli Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn og mcirihlutans, Fram- sóknar, Alþýðubandalags og Kvcnnaframboðs. Tilefnið var það, að fyrir áramót er nauðsynlegt, vegna greiðslufyrirkomulags fast- eignaskatta, að ákveða hver gjald- stofninn skuli vera. Meirihluti bæj- arráðs hafði lagt til við bæjarstjórn, að fastcignaskattur skyldi innheimt- ur með 12,5% álagi, miðað við að álagið var 25% í fyrra. Sjálf- stæðismenn lögðu hins vegar til að ekkert álag væri lagt á gjaldstofninn að þessu sinni. Gunnar Ragnars hafði fram- sögu fyrir áliti Sjálfstæðismanna og taldi, að efnahagsástand það sem nú ríkti og ört hjaðnandi verðbólga gæfi tilefni til að fara varlegar nú en endranær í skatt- heimtu sem þessari til bæjarfé- lagsins. Einnig bæri á það að líta, að gjaldþoli einstaklinga, sem eru langstærsti hluti þeirra sem fast- eignaskatta greiða, væri nú svo háttað að bæjarfélaginu bæri að fara þarna varlegar en undanfarin ár. Einnig bæri á það að líta, að í minnkandi verðbólgu nýttust bæj- arfélaginu álögð gjöld mun betur en fyrr. Á þessi rök Sjálfstæðismanna vildi meirihluti bæjarstjórnar ekki fallast. Sigurður Jóhannesson (F) taldi að frekar væri ástæða til þess að lækka aðstöðugjöld fyrir- Stykkishólmi 27. desi‘mber. HELGAFELLSKIRKJA á 80 ára af mæli 1. janúar nk. og í því tilcfni verður afmælisins minnst með messugjörð þar sem sóknarprestur- inn Gísli Kolbeins predikar. Það má segja að kirkjan hafi staðið vel af sér öll stórviðri en nú tækja, þegar þar að kæmi, fulltrúi Abl., Sigríður Stefánsdóttir, taldi meiri ástæðu til að lækka álag á útsvarsstofn, en fulltrúar Kvenna- framboðs höfðu litlar skoðanir. Við atkvæðagreiðslu um málið var tillaga Sjálfstæðismanna felld af fulltrúum meirihlutans og verð- ur því álag á fasteignaskattstofn á Akureyri á næsta ári 12,5%, sem þýðir að fasteignaskattur nemur á næsta ári 0,562%. GBerg er hún orðin þannig að nauðsyn er mikillar viðgerðar og er það hugmynd safnaðarins, ef nokkur tök verða á því, að gera verulegt átak á þessu ári, stöðva leka og gera við annað sem úr skorðum hefir farið. Fréttaritari Helgafellskirkja 80 ára STOD VERÐBRÉFA- IDSKIPTANNA Hvernig ávaxtar þú sparifé þitt 0,1,2,3..eða 11%? Verðtryggður s parnaður — samanburður á ávöxtun Verðtrygging m.v.lánskjaravísitölu Raun- ávöxtun F|öldi ára til að tvðf. raunglldl hðtuðstols Raunaukning höfuöst. aftir 7 ér Veðskuldabréf 10% 7 1/j ár 95% Sparisk.ríkissj. 5 ’/i % 13 ár 45.5% Sparisjóðsreikn. 1 %% 47 ár 11% Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins óskar viðskiptavinum sínum gleðilegs árs og þakkar þeim viöskiptin á árinu sem er aö líöa. SÖLUGENGIVERÐBRÉFA 1. janúar 1984 Verötryggö spariskirteini og happdrættislán rikissjóós Ar-flokkur Sðkigengi p» kr 100,- Raunvexttr m/v giklistima GikJistimi raunvaita 1 til tnnl dags i Seölabanka 1970-2 16.902,79 4.75% 34 d. 1971-1 14.396,14 5,12% 1 ár 254 d. 1972-1 13.237,30 5,25% 2 ár 24 d. 1972-2 10.691,57 5,25% 2 ár 254 d. 1973-1A 8.099,48 5,37% 3 ár 254 d. 1973-2 7.816.49 5,50% 4 ár 24 d. 1974-1 5.053,36 5,50% 4 ár 254 d. 1975-1 3.989,06 4,75% 10 d. 1975-2 2.972,70 4,75% 24 d. 1976-1 2.710,62 4,75% 69 d. 1976-2 2.225,79 4,75% 24 d. 1977-1 1.973,21 4,75% 84 d. 1977-2 1.655,40 5,00% 249 d. 1978-1 1.337,89 4,75% 84 d. 1978-2 1.057,56 5,00% 249 d. 1979-1 907,73 4.75% 54 d. 1979-2 686,48 5,00% 254 d. 1980-1 591,00 5,12% 1 ár 104 d. 1980-2 455,94 5,12% 1 ár 294 d. 1981-1 389,40 5,25% 2 ár 24 d. 1981-2 289,35 5,25% 2 ár 284 d. 1982-1 274,17 5,12% 1 ár 60 d. 1982-2 203,34 5,12% 1 ár 270 d. 1983-1 156,46 5,25% 2 ár 60 d. 1974-0 5.040,54 5,25% 79 d 1974-E 3.459,95 5,50% 330 d 1974-F 3.459,95 5,50% 330 d 1975-G 2.265,46 5,63% 1 ár 330 d. 1976-H 2.080,05 5,75% 2 ár 89 d. 1976-1 1.629,33 5,75% 2 ár 329 d 1977-J 1.454,99 5,87% 3 ár 90 d 1981-1.fl 310.68 5,75% 2 ár 120 d. Veðskuldabrel — verötryggð Sölugengi Nafnvextir Avoxtun m v (HLV) umfram 2 afb aan vorA 1 ár 95,34 2% 8,75% 2 ár 92,30 2% 8.88% 3 ár 91.66 3’/r% 9,00% 4 ár 89,36 3%% 9.12% 5 ár 88,22 4% 9.25% 6 ár 86,17 4% 9,37% 7 ár 84,15 4% 9,50% 8 ár 82.18 4% 9,62% 9 ár 80.24 4% 9,75% 10 ár 78,37 4% 9.87% 11 ár 76,52 4% 10,00% 12 ár 74.75 4% 10.12% 13 ár 73,00 4% 10.25% 14 ár 71,33 4% 10.37% 15 ár 69,72 4% 10.49% 16 ár 68,12 4% 10.62% 17 ár 66,61 4% 10.74% 18 ár 65.12 4% 10,87% 19 ár 63,71 4% 10,99% 20 ár 62,31 4% 11,12% Hlutabréf Hampiðjan 10% hlutafjár. Kauptilboð óskast. Veðskuldbréf óverðtryggö Sölugengi m/v 1 afb á ári 18% 20% 25% iHl V) 27% 1 ár 80 81 84 86 2 ár 66 68 71 73 3 ár 57 59 63 65 4 ár 50 52 57 59 5 ár 45 47 52 54 Daglegur gengisútreikningur Verðbréfamarkaöur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lónaóarbankahúsinu Simi 28566

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.