Morgunblaðið - 31.12.1983, Side 10

Morgunblaðið - 31.12.1983, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 Ingi Tryggvason formaður Stéttar- sambands bænda Nú í lok desembermánaðar vantar mikið á að tölulegar upp- lýsingar um framleiðslu og af- komu landbúnaðarins á árinu 1983 séu fyrir hendi. Það sem hér verð- ur sagt ber þessa merki og verður því að skoðast með nokkrum fyrir- vara. Skipulagsaðgerðir í landbúnaði á undanförnum árum hafa miðast við það að aðlaga framleiðslu nautgripa og sauðfjárafurða inn- lendum markaði. Vorið 1979 voru gerðar breytingar á Framleiðslu- ráðslögunum sem veittu landbún- aðarráðherra heimild til skipu- lagsaðgerða að fengnum tillögum Framleiðsluráðs. Forysta um þessar skipulagsaðgerðir hefur því verið í höndum bænda, en þeir velja fulltrúa Framleiðsluráðs samkvæmt lögunum. í ráðinu sitja allir stjórnarmenn Stéttarsam- bands bænda auk fjögurra full- trúa frá afurðasölufélögunum, sem stjórn Stéttarsambandsins skipar samkvæmt tilnefningu. Framleiðsla sauðfjár- og naut- gripaafurða hefur dregist veru- lega saman í kjölfar þessara skipulagsaðgerða. Á árunum 1982 og 1983 jókst framleiðsla mjólkur aftur. Má gera ráð fyrir að fram- leiðsla mjólkur verði tæplega 11% minni árið 1983 en var 1978. Lausleg áætlun bendir til að ásett sauðfé haustið 1983 sé um 705—710 þúsund fjár, sem er rúmlega 20% fækkun frá 1978. Oft er því haldið fram, að árangur í framleiðsluskipulagningu hafi einkum orðið í nautgriparækt. Af ofanskráðu sést, að samdráttur hefur orðið mun meiri í sauðfjár- búskapnum þótt hann komi síðar fram vegna þess mikla kjöts sem til fellur meðan á sjálfri fækkun- inni stendur. Erfiðar markaðsaðstæður er- lendis og hár rekstrarkostnaður hér innanlands gera samdrátt í hefðbundinni búvöruframleiðslu óhjákvæmilegan. Hinu má ekki gleyma, að samdrátturinn út af fyrir sig veldur bændum og vinnslustöðvum miklum fjár- hagslegum erfiðleikum, ef ekki er hægt að mæta honum með minnk- andi tilkostnaði. Nýjar atvinnu- greinar innan landbúnaðarins eiga erfitt uppdráttar vegna mik- ils stofnkostnaðar, jafnvel þær at- vinnugreinar sem virðast hafa ótvírætt þjóðhagslegt gildi og skapa mikla möguleika til gjald- eyrisöflunar, eins og t.d. loðdýra- rækt. Árið 1983 hefur verið landbún- aðinum erfitt. Veðurfar hefur ver- ið kalt og mjög óþurrkasamt um sunnan- og vestanvert landið, spretta yfirleitt léleg og innistöðu- tími búfjár mjög langur. Þrjú af síðustu fimm árum hafa verið í hópi fimm köldustu ára á öldinni. Almennir fjárhagslegir erfiðleik- ar í þjóðfélaginu hafa þrengt að bændum ekki síður en öðrum þegnum þjóðfélagsins. óbilgjarn og oftast órökstuddur áróður gegn bændum og innlendum landbúnaði hefur breikkað bilið milli þéttbýl- is- og dreifbýlisbúa, báðum til angurs og óþurftar. Veitti ekki af að lyfta umræðu um landbúnað- armál og raunar ýmis önnur þjóð- mál á nokkuð „hærra plan“ en þessi umræða hefur verið á nú um sinn. Réttmæt og málefnalag gagnrýni er nauðsyn, en blekk- ingarskrif byggð á þekkingar- skorti verða engum til gagns. Verðlag Miklar hækkanir urðu á verði landbúnaðarvara bæði 1. mars og 1. júní. Urðu þessar hækkanir í kjölfar undangenginna almennra kaupgjaldshækkana og mikilla hækkana á rekstrarvörum land- búnaðarins. Munaði þar mest um 70% hækkun á áburði, sem kom inn í verð búvara 1. júní. Höfðu þó verið gerðar ráðstafanir til að draga úr áburðarhækkunum með verðtilfærslu milli kjarnfóðurs og áburðar og lánum á ábyrgð ríkis- sjóðs. Haustverðlagning fór fram I. október í stað 1. september, samkvæmt bráðabirgðalögum frá 27. maí 1983. Hækkun verðs til framleiðenda varð þá 4%. Hafði þá ríkisstjórnin gert ráðstafanir til að draga úr framleiðslukostn- aði við búvöruframleiðslu og mun- aði þar mest um niðurfellingu eða endurgreiðslu á söluskatti af helstu vélum og tækjum sem not- uð eru við hefðbundna búvöru- framleiðslu. Verð til framleiðenda hafði þá hækkað um 52% á árinu, en kaupgjald um rúm 34%. Hlut- fallsleg minnkun kaups í verð- myndum búvara jafnframt óbreyttu útborgunarhlutfalli við afhendingu vörunnar þrengir mjög greiðslustöðu bænda. Vegna minnkandi niðurgreiðslna hækk- aði búvöruverð til neytenda mun meira en framleiðsluverðið. Fratnlciðsla Eins og fyrr segir jókst mjólk- urframleiðsia á árinu. Áætlað er að hún verði um 107 milljónir lítra sem er rúmlega 2% meiri en á ár- inu 1982. Samkvæmt bráðabirgða- tölum var dilkakjötsframleiðslan II. 031 tonn á móti 11.524 tonnum 1982, og kindakjötsframleiðslan í heild 12.952 tonn á móti 13.762 tonnum 1982. Mest varð kinda- kjötsframleiðslan 1978, en þá var hún 15.393 tonn. Framleiðsla á öðrum tegundum kjöts, svo sem nautakjöti, svínakjöti, hrossakjöti og kjúklingakjöti, fer vaxandi án þess að sala aukist að sama skapi. Tölur um þessa framleiðslu eru enn ekki fyrir hendi nema að takmörkuðu leyti, en ljóst er að birgðir nautakjöts vaxa ört og lík- ur benda til að þrátt fyrir sam- drátt í kindakjötsframleiðslu hafi heildarframleiðsla landsmanna á kjöti ekki dregist saman á árinu. Uppskera kartaflna og annarra garðávaxta varð mjög rýr og brást sums staðar með öllu. í heild er kartöfluframleiðslan aðeins litlu meiri en það útsæði, sem sett var niður sl. vor. Gróðurhúsauppskera var í rýrara lagi. Mikil aukning varð í framleiðslu refaskinna og loðdýrastofninn stækkar ört. Sala landbúnaðarafurða Sala búvara innanlands gekk vel á árinu. Mikil framleiðsla eggja, kjúklingakjöts og svínakjöts leiddi til þess að framleiðendur lækkuðu verð þessara vara frá skráðu verði lengri eða skemmri tíma úr árinu. Þá var lækkað verð á þeim kinda- kjötsbirgðum sem til voru 1. sept- ember. Seldust þessar birgðir upp, en kostnaði við verðlækkunina var skipt milli ríkissjóðs og framleið- enda. Vaxandi erfiðleikar eru á sölu kindakjöts á erlendum mörk- uðum, verð er lágt og framboð eykst. Útflutningsverð á óunnum og unnum gærum er lágt og tregða í sölu. Hins vegar hefur sala ull- arvara gengið vel og nýkomnar eru fréttir um góða sölu á æðar- dún. Verðlag á refaskinnum hefur lækkað lítið eitt frá síðasta ári, en verð minkaskinna hefur hækkað nokkuð. Kristján Ragnarsson formaður Land- sambands íslenzkra útvegsmanna Liðið ár hefur verið sjávarút- veginum óhagstætt, sem aðallega stafar af verulegri minnkun á þorskafla, eða um nær fjórðung frá fyrra ári, en þá hafði hann minnkað um fimmtung frá árinu 1981. Þessi mikla aflaminnkun auk verulegra kostnaðarhækkana fyrri hluta árs hafa valdið útgerð- inni, bæði bátum og togurum, verulegum hallarekstri. Heildar- aflinn verður um 830 þúsund lestir eða nokkru meiri en árið áður. Munar þar mestu um að loðnu- veiðar hafa verið leyfðar að nýju og veiddust um 130 þúsund lestir. Loðnuveiðar höfðu verið bannaðar allt síðastliðið ár ogþar til í nóv- ember á þessu ári. Utgerð loðnu- báta hafði því orðið fyrir alvar- legu áfalli, en afkomuhorfur þeirra eru betri nú. Afli annarra botnfisktegunda en þorsks hefur verið álíka mikill og áður. Nokkur aukning varð á rækjuafla og þó einkum á úthaf- inu. Horfur eru á að sókn í rækju- afla á úthafinu muni aukast og skapa verkefni fyrir fleiri skip. Markaðsverð fyrir sjávarvöru- framleiðslu hefur verið líkt og ár- ið áður. Nokkur lækkun hefur þó orðið á frystum fiski og verð á saltfiski hefur lækkað verulega í dollurum, þótt það hafi hækkað í gjaldmiðli markaðslandanna. Sölutregða hefur verið á skreið m.v. venjulega viðskiptahætti, en skreið hefur verið seld í vaxandi mæli með afslætti og greiðslu- fresti. Verð á rækju og humri hef- ur verið stöðugt og verð á fiski úr hörpudisk mjög hagstætt. Einnig hefur verð á mjöli og lýsi verið hagstætt. Afkoma útgerðarinnar hefur verið með öllu óviðunandi og áfram hefur verið safnað vanskil- um. Er nú svo komið að stefnir í greiðsluþrot. Engu er líkara en stefnt sé að því að eyða öllu eigin fé í þessari atvinnugrein og getur þá verið stutt í annað rekstrar- form. Afkoma fiskvinnslunnar er mun betri, en breytileg m.v. afurð- ir. Með efnahagsaðgerðum í maí var gert verulegt átak til að bæta afkomu sjávarútvegsins í heild, en engan veginn var þó nægilega að gert fyrir útgerðina. Vegna mun minni afla en gert var ráð fyrir, er afkoma útgerðarinnar enn verri. Stjórnvöld hafa frestað því óhóflega lengi að takast á við þennan vanda og er ekki gert ráð fyrir að það verði gert fyrr en í tengslum við nýtt fiskverð, sem taka á gildi frá 1. febrúar nk. Um langan tíma hefur fiskverð verið ákveðið frá áramótum, en segja má að þeim hafi nú verið frestað um einn mánuð. Horfur fyrir sjávarútveginn á næsta ári eru uggvænlegar. Vegna slæms ástands þorskstofnsins, er gert ráð fyrir að minnka aflann verulega frá því sem var á þessu ári, sem nú er að líða. Einnig mun verða minnkun á veiði karfa, en karfi er önnur mest veidda botn- fisktegundin. Af þessum ástæðum er útilokað að halda áfram þeim stjórnunaraðferðum sem notaðar hafa verið, en þær hafa byggst á því, að banna þorskveiðar í tiltek- inn tíma og hvetja til annarra veiða. Nú er það ekki unnt því all- ar botnfisktegundir eru fullnýttar. Hefur því verið horfið að því að reyna í eitt ár nýja stjórnunarað- ferð, sem byggir á því að úthluta skipum aflakvóta fyrir helstu fisk- tegundir, og miða þá úthlutun við 3ja ára afla næstliðinna ára í þeim tilgangi að þeir fái notið sín, sem best hafa aflað. Skipseigendur ákveði síðan sjálfir hvenær og með hvaða veiðarfærum þessi afli verði veiddur. Með þessari aðferð er tryggt að staðið verði við fyrir- fram ákveðin aflamörk og með því stuðlað að endurreisn þorsk- stofnsins. Því er ekki að neita að þessi aðferð hefur marga ókosti en er illskást m.v. okkar aðstæður. Það er algjör misskilningur ef menn halda að þessi stjórnunar- aðferð leysi vanda útgerðarinnar. Hún getur hins vegar verið liður í því að draga ur útgerðarkostnaði og einnig stuðlað að því að bæta fiskgæðin. Hún ætti einnig að tryggja að frekari aukning verði ekki á fiskiskipaflotanum og hún gefur þeim stjórnmálamönnum og stjórnendum fjármálastofnana lága einkunn um gerðir þeirra á liðnum árum. Það ríkir nú alger óvissa um rekstrarskilyrði útgerðarinnar á næsta ári, en það verður að treysta að stjórnendur landsins sjái og skilji að áfram verður ekki haldið á þeirri braut, sem fylgt hefur verið undanfarin ár. Það eru óafsakanleg mistök að hafa gengið svo nærri útgerðinni á mestu afla- árunum frá 1978 til 1982 að út- gerðin væri rekin með verulegum halla, sem nú þarf að glíma við í versnandi árferði. Atvinna fólks í sjávarþorpum landsins og afkomumöguleikar ráðast nú af því, hvort þeir, sem landinu stjórna, hafa dug og þor til að takast á við þann vanda, sem útgerðin stendur frammi fyrir. Við hvað styðst efnahagsstjórn, sem setur undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar þá rekstrarerfiðleika, sem raun ber vitni, þegar annar atvinnurekstur, eins og þjónusta af öllu tagi, býr við blóm í haga? Páll Sigurjónsson formaður Vinnuveit- endasambands íslands Við lok ársins 1983 er okkur ís- lendingum vandi á höndum, þeir erfiðleikar sem við er að etja eiga að miklu leyti rætur sínar að rekja til lélegrar stjórnunar sem ýtt hefur undir rangar fjárfestingar í opinberum rekstri og einkarekstri. Fjárfest hefur verið í dýrum tækj- um sem ekki nýtast nema að hluta, þetta verður til þess að fjár- festingar gefa ekki nægilega af sér til að standa undir nýjum arðbær- um fjárfestingum. Afleiðingar þessarar svikamyllu ásamt vísi- töluskrúfunni hafa leitt af sér óðaverðbólgu, með allri þeirri óár- an og upplausn sem henni fylgir. Nú í ár hefur loksins verið gerð ' alvarleg tilraun til að vinna bug á verðbólgunni, og koma þar með í veg fyrir hrun atvinnuveganna og alvarlegt atvinnuleysi. Við verðum að vona að þessi tilraun takist. í viðbót við að mestu heimatilbúna efnahagsörðugleika hefur bæst samdráttur í þorskafla og harðn- andi samkeppni á okkar aðal- fiskmörkuðum í Bandaríkjunum. En þrátt fyrir þá erfiðleika sem nú steðja að megum við ekki láta hugfallast, og við verðum að reyna að sjá björtu hliðarnar, t.d. hefur hver íslendingur að meðaltali fleiri fermetra íbúðarhúsnæðis að búa á en sennilega nokkur önnur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.