Morgunblaðið - 31.12.1983, Síða 14

Morgunblaðið - 31.12.1983, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakiö. Umskiptaár kvatt Arið 1983 var umskiptaár fyrir íslensku þjóðina. Þá tókst á örskömmum tíma að lækka verðbólguhraðann úr yfir 130% og jafnvel niður fyrir 20%, ef marka má nýj- ustu tölur. Þetta er ótrúlegur árangur sem náðst hefur frá þingkosningunum sem fram fóru 23. apríl. Eftir þær stóðu sex þingflokkar, tveir nýir bættust við á fyrri hluta árs- ins, frammi fyrir afleiðingum þess að alltof lengi hafði verið látið reka á reiðanum. Tveir stærstu flokkarnir, Sjálfstæð- isflokkur og Framsóknar- flokkur, tóku höndum saman um stjórnarmyndun við þessar hættulegu aðstæður. Tals- menn stærsta stjórnarand- stöðuflokksins, Alþýðubanda- lagsins, höfðu lýst þeim sem neyðarástandi fyrir kosn- ingarnar. Eftir að stjórnin var mynduð 26. maí var svo gripið til neyðaraðgerða. Vísitölu- trygging launa var afnumin og allir kjarasamningar bannaðir fram til 1. febrúar 1984. Gengi krónunnar var sett fast. Horf- ið var frá þeirri stefnu að eyða um efni fram með sífelldum lántökum erlendis. Árangurinn lét ekki á sér standa. Vextir hafa lækkað en hlutföll breyst á þann veg að almennir sparireikningar gefa af sér arð. Nú sjást þess jafn- vel merki að innfluttar vörur séu teknar að lækka í verði og má þar sérstaklega nefna bensínið, orkugjafa þarfasta þjóns nútímamannsins. Eim- skipafélag íslands lækkaði farmgjöld um 7% rétt fyrir jólin og þannig mætti áfram nefna ýmis áþreifanleg dæmi um verðhjöðnunina. Kannanir sýna að almenningur vill mik- ið á sig leggja til að komast út úr vítahring verðbólgunnar. Ráðleysi stjórnarandstöðu- flokkanna fjögurra á alþingi sýnir að þeir geta ekki bent á nein úrræði betri en þau sem gripið var til gegn verðbólg- unni. Efnahagsleg umskipti hafa tvímælalaust orðið til hins betra á árinu 1983. Því fer hins vegar víðs fjarri að þjóð- arskútan sé komin á lygnan sjó. Sá rammi sem settur hef- ur verið með því að takast á við verðbólguna jafn harka- lega og raun ber vitni rúmar ekki allt það sem við höfum getað leyft okkur á undanförn- um árum. Með því að festa gengi krónunnar er gerð krafa um að raunveruleg verðmæta- sköpun standi að baki fjárfest- ingu og rekstri. Samhliða þessu hefur svo orðið að skera niður hámarksafla á helsta nytjafiski okkar, þorskinum. Auk þess á að kvótabinda allar fiskveiðar. Til hvers þau um- skipti leiða er ógjörlegt að segja á þessari stundu. Ríkisstjórn og alþingismenn geta ekki gengið harkalegar fram í slagnum við verðbólg- una en þeir njóta stuðnings til hjá almenningi. Miðað við þá kaupmáttarskerðingu sem launþegar hafa mátt þola samkvæmt opinberum skýrsl- um ætti að vera komið að hættumörkum. Athyglisvert er þó hve forystumönnum í launþegahreyfingunni gengur erfiðlega að draga sameigin- lega víglínu. Erfiðleikar þeirra stafa ekki síst af því að nú þrengist á vinnumarkaðinum. Nái endar ekki saman í at- vinnufyrirtækjunum leysist sá vandi ekki með því að borga hærra kaup. Um þessar mund- ir á þetta einkum við um fisk- vinnslu og útgerð. Iðnaðar-, verslunar- og þjónustufyrir- tæki standa betur að vígi þessa stundina, en bresti und- irstaðan, sjávarútvegurinn, hrynur öll yfirbyggingin. Við uppgjörið á tapdæmi útgerð- arinnar, sem ekki má dragast, hlýtur því að koma til álita, hvort jafna megi milli at- vinnugreina. Hið versta er að við opinberar millifærslur af því tagi fer fjármagn jafnan í súginn eða nýtist verr en skyldi og með öllu er óviðun- andi að aðilar komist hjá því að vera ábyrgir gerða sinna, þótt mikið sé í húfi fyrir þá og aðra. Atvinnuleysisvofan er enn einu sinni komin á kreik. Nú reynir á það hvort glíman við hana verður það hörð að und- an verði látið í slagnum við verðbólguna. Stjórnmála- mennirnir hafa sýnt hinum al- menna launþega mikla hörku í því umskiptaári sem nú er að líða. Á næsta ári þurfa þeir að sýna hörku á öðrum sviðum, meðal annars í opinberum rekstri, til að lækka megi skattbyrðina sem á eftir að reynast mörgum erfiður baggi. Við þessi áramót er ekki frek- ar en endranær unnt að líta til baka og kveðja örðugleika og þrengingar. Hins vegar ættum við núna að hafa fastara land undir fótum en oft áður til að takast á við allt það sem fram- undan er. Morgunblaðið þakkar les- endum sínum samfylgdina á því ári sem er að líða og árnar þeim og landsmönnum öllum gleðilegs og farsæls árs 1984. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjál Fyrir jólin, í hringiðu fjárlagagerðar, kauptíðar og aðventuhalds, skipaði Alþingi Matthíasi Johannessen skáldi og ritstjóra á heiðurslaunabekk listamanna ásamt með fleiri mætum mönnum. Það er að vísu ekki ætlun mín að fjalla sérstaklega um þessa ákvörðun. En því er ekki að leyna, að hún var mörgum ánægjuefni. Þeir eru ófáir, sem hrifist hafa af leiftrandi skáldgáfu Matthíasar, ekki síst þeir, sem njóta þess að nálgast kviku mannlífs og þjóðlífs eftir ljóðrænum strengjum tilfinninganna. Kekkirnir í þjóðarveislunni Matthías Johannessen, nýliðinn á heiðurslauna- bekknum, býr yfir þeim skáldlega eiginleika að finna oft og tíðum í hversdagslegum og óhátíðlegum tilefnum frækorn djúpra hugsana eða almennra sanninda. Fyrir meira en áratug kom fram í kosningum fremur ómerki- legt fyrirbæri, en eigi að síður nokkuð fyndið. Fram- boðsflokkurinn var það kallað. Tiltæki þetta varð Matthíasi Johannessen yrkisefni. í kvæðinu Undir regnhlíf segir skáldið, að einn góðan veðurdag geti eng- inn heimtað af okkur: „að við séum ekki lengur kekkirnir í ofsöltum hafragraut þjóðfélagsveislunnar." Nú, mörgum árum seinna vöknum við upp við það, að þjóðfélagsveislan, sem við höfum haldið sjálfum okkur, er orðin að kekkjóttum ofsöltum hafragraut. Fyrir ára- tug voru þessar ljóðlínur ef til vill útúrsnúningur eða hálfkæringur, en nú eru þær kaldur veruleiki. Það hefur verið meginverkefni þeirrar ríkisstjórnar, sem Sjálfstæðisflokkurinn á nú aðild að ásamt með Framsóknarflokkum, að draga þessi bitru sannindi fram í dagsljósið og bregðast við þeim. Ofseltan í grautnum hefur birst okkur í líki óðaverðbólgu, er nán- ast hafði gert íslensku krónuna ónothæfa sem gjaldmið- il. Hafragrautskekkirnir eru ímynd þeirra fjárfest- ingamistaka, sem smám saman hafa hrannast upp og gera það að verkum, að við njótum nú ekki þeirra ávaxta, sem við töldum okkur trú um, að við hefðum sáð til. Umfangsmiklar aðgerðir eru að baki Sérhver áramót marka ákveðin þáttaskil. Þau minna okkur líka á, að hratt flýgur stund og augnablikið, sem við lifum kemur aldrei aftur. Um leið eru þau hvatning til þess að horfa fram á veginn og huga að því sem framundan er. Að þessu sinni ber svo við, að áramótin eru mjög ákveðin tímamót í pólitískum skilningi. Að baki eru umfangsmestu og róttækustu aðgerðir gegn verðbólgu, sem gripið hefur verið til, en við blasa verk- efni varðandi uppbyggingu atvinnulífsins, stjórnun peningamála og opinberan rekstur. Þær ráðstafanir, sem nú eru að baki eru barnaleikur í samanburði við þau vandamál, sem úrlausnar biða. Það verður því ekki boðið til veisluhalda í þjóðarbúskapnum á næsta ári. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa fram til þessa fyrst og fremst beinst að þremur þáttum. í fyrsta lagi var veitt nýju blóði inn í framleiðslustarfsemina með geng- isbreytingunni í vor sem leið og samtímis var dregið úr innflutningi og umsvifum verslunarinnar. í öðru lagi var beitt ströngum ráðstöfunum á sviði launamála. í þriðja lagi var hafist handa um miklar aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum. Enginn reynir að draga fjöður yfir þá staðreynd, að þessar ákveðnu aðgerðir hafa verið árangursríkar. Verðbólgan, sem skipaði íslandi í efnahagslegan ring- ulreiðarflokk með Suður-Ameríkuþjóðum, hefur gengið niður um meira en hundrað stig. Nafnvextir hafa lækk- að til samræmis. Þrátt fyrir hrakspár hefur gengið haldist stöðugt og iðnaðarframleiðslan styrkst. Þetta er árangur af markvissri og ákveðinni stjórnun. Pólitfskur styrkur fyrir framhaldið Á þessum tímapunkti spyrja menn eðlilega, hvort varanlegum árangri hafi verið náð. Svarið við þessari spurningu er undir því komið, hvort þjóðin er reiðubúin til þess að ganga áfram samstillt í gegnum erfiða tíma, er óhjákvæmilega fylgja minnkandi afla og uppstokkun í atvinnumáium og fjárfestingastjórn. Forystuskyldan hvílir á Alþingi og ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn er fyrir sitt leyti reiðubúinn til þess að takast á við þessi verkefni. Ríkisstjórnin í heild hefur einnig sýnt, að hún getur áorkað miklu. Við svo búið er því ekki ástæða til að óttast, að hin pólitíska forysta bregðist. Síðan viðreisnarstjórnin fór frá hefur engin ríkis- stjórn komist heilu og höldnu frá átökum við mein- semdir efnahagslífsins. Þær hafa ýmist flosnað upp vegna innri sundrungar og ósamlyndis eða ráðstöfunum þeirra til verðbólguhjöðnunar hefur verið kollvarpað af verkalýðshreyfingunni. Vegna þessa er eðlilegt, að menn horfi til ríkisstjórnarinnar sjálfrar. Það er engin von til þess, að við komumst út úr þrengingunum, nema ríkisstjórnin sé nægjanlega einörð og öflug til þess að glíma við þessi tröllauknu verkefni. Hún þarf á trausti að halda og verður að vinna til þess. Þess er nú vænst af stjórnarflokkunum, að þeir fullnægi þessari pólitísku forsendu, og ekkert bendir til annars en svo muni verða. Þau verkefni, sem nú blasa við lúta annars vegar að atriðum, er leysa verður alveg á næstunni og hinsvegar að atriðum, sem hafa áhrif til lengri tíma. Undir fyrr- nefnda flokkinn fellur lausn kjarasamninga og ákvarð- anir um rekstrarforsendur sjávarútvegsins. Undir síð- ari flokkinn fellur stjórn ríkisfjármála og nýskipan í stjórn peningamála, breytingar á verðmyndunarkerf- inu, ráðstafanir til þess að auka framleiðni í landbúnaði og aðgerðir til þess að efla útflutningsverslun bæði í sjávarútvegi og iðnaði. Sjálfstæðisflokkurinn beygir sig ekki fyrir óraunhæfum samningum Launamálin hafa verið erfiðasta verkefni ríkisstjórn- arinnar fram til þessa. Lögbinding kjarasamninga um nokkurra mánaða skeið var óumflýjanlegur neyðarkost- ur. í reynd var ekki um að ræða ágreining milli stjórn- málaflokkanna um nauðsyn kjaraskerðingar til þess að færa fjármagn yfir til atvinnulífsins. Hitt hefur valdið deilum hversu langt átti að ganga. Reynslan hefur sýnt, að þessar aðgerðir voru nauðsynlegar. Allar hrakspár um minnkandi iðnaðarframleiðslu af þessum sökum hafa fallið á prófi reynslunnar. Reikningslegur kaupmáttur hefur vitaskuld skerst. Vonir voru við það bundnar, að unnt yrði að halda svipuðu lífskjarastigi næsta ár eins og nú er. Aflabrest- ur og minnkandi þjóðartekjur gera út um þessar vonir. Möguleikar til launabreytinga ráðast af launa- og geng- isforsendum fjárlaganna. Verði farið út fyrir þau mörk hlýtur pólitískt upplausnarástand að sigla í kjölfarið. Sjálfstæðisflokkurinn getur að minnsta kosti ekki beygt sig undir það, að aðilar vinnumarkaðarins brjóti stjórn- arstefnuna á bak aftur. Það er með öðrum orðum ekki unnt að semja upp á gengislækkun. Ef daglegt gengissig hefst á nýjan leik verður trauðla komið í veg fyrir vísitölubindingu kaupgjalds til langframa. Þá hefst gamalkunnur hringdans í kringum vísitöluna á ný og draumurinn um efnahagslegt jafnvægi er úr sögunni. Sannleikurinn er sá, að á næsta ári þurfum við enn að jafna niður tapi. Allt tal um að skipta upp ágóða er út í hött. f þessu sambandi er rétt að hafa það í huga, að stöðugt gengi er í reynd miklu öruggari kaupmáttar- trygging en meingallaður verðbólgumagnari vísitölu- kerfisins. Aðilar vinnumarkaðarins ættu því að taka höndum saman við ríkisstjórnina í viðleitni hennar til þess að halda genginu stöðugu. Langvarandi stjórnar- kreppa eða kosningar myndu ekki bæta lífskjörin eða styrkja atvinnulífið eins og sakir standa. Þvert á móti myndi slík pólitísk upplausn enn auka á vandræði þjóð- arinnar. Vegna aflabrests er einsýnt að við þurfum á næsta ári að horfast í augu við eitthvert atvinnuleysi. Það er böl, sem við unum ekki til langframa. Fyrir þá sök er nú mikilvægast, að ríkisstjórnin kalli aðila vinnumarkað- arins til samstarfs í atvinnumálanefnd er fjalli um atvinnuuppbyggingu, skipulag og stjórnun atvinnumála og fjárfestingar. Það væri launafólkinu meira virði en gagnslaus launahækkun er leiddi til nýrrar verðbólgu- skriðu og pólitískrar upplausnar í landinu. Erfiðleik- arnir verða ekki yfirstignir, nema með samstilltu átaki. Ef aðilar vinnumarkaðarins eru ásáttir með að halda vinnufrið á þessum grundvelli má ræða opinberar til- færslur í þágu láglaunafólks til viðbótar þeim ákvörð- unum í skattamálum, sem þegar hafa verið teknar í þeim tilgangi. Eina raunhæfa leiðin til þess að treysta stöðu þeirra, sem við kröppust kjör búa, er í gegnum skatta og tryggingakerfið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.