Morgunblaðið - 31.12.1983, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 31.12.1983, Qupperneq 32
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 VERD í LAUSASÖLU 2« KR. Bárðardalur: Maður drukknaði í Svartá Straumnesi, Aðaldal, 30. desember. SÁ HÖRMULEGI atburður varð á bænum Víðikeri í Bárðardai um há- degisbilið í gær, að einn bændanna þar, Snorri Kjartansson, féll í Svartá við heimilisrafstöð bæjarins og drukknaöi. Hann var þar ásamt bróður sín- um að huga að rafstöðinni. Mikil hálka var þar sem slysið varð og snarbratt að ánni. Snorri barst strax undir ísinn og fannst lík hans rétt fyrir hádegið í dag, um 400—500 metrum neðan við slys- staðinn. Fjöldi manns tók þátt í leitinni. Á bænum Víðikeri er félagsbú. Snorri var 35 ára að aldri og bjó á heimili foreldra sinna. Snorri var ókvæntur og barnlaus. FrétUriUri Krónan rýrnaði um 35,5% ÍSLENZKA krónan rýrnaði um 35,5% á árinu 1983, ef tekið er mið af hækkun vísitölu bygg- ingarkostnaðar, en hún hækk- aði um 55,1%, eða úr 1.482 stig- um í 2.298. Til samanburðar má geta þess, að krónan rýrnaði um 38,7% á árinu 1982, en á því ári hækkaði visitala bygg- ingarkostnaðar um 63%, eða úr 909 stigum í 1.482 stig. Á árinu 1983 hækkaði doll- araverð um 72,43%, en í árs- byrjun var sðlugengi Banda- ríkjadollars skráð 16,650 krónur, en í gærdag þegar gengið var síðast skráð á ár- inu var sölugengið skráð á 28,710 krónur. Rýrnun krón- unnar gagnvart Bandaríkja- dollar er því um 42% á árinu. Haförn við Héðinshöfða HAFÖRN hefur haldið sig við Héðinshöfða á Tjörnesi undanfar- inn hálfan mánuð. Hér virðist vera um ungan fugl að ræða, sem er mjög var um sig. Ekki merkja menn að neitt sé að haferninum. Unglingarnir í D-14 hnekktu 36 stunda meti Akureyringanna. Síðan var dansað í fjóra tíma til viðbótar og nýtt íslandsmet í maraþondansi sett. íslandsmet í maraþondansi Sex unglingar settu í gær nýtt maraþonmet í dansi, dönsuðu í fjörutíu klukkustundir og hnekktu þar með 36 stunda meti unglinga á Akureyri. Maraþondanskeppnin fór fram í D- 14, unglingastaðnum í Kópavogi. Þar höfðu um fjörutíu unglingar, sextán ára og eldri, látið skrá sig í keppnina, en nítján mættu til leiks og sex luku keppninni. Voru það þau Ásta Rafns- dóttir, Guðrún Hjartardóttir, Haukur Gíslason, Björk Erlingsdóttir, Svava Jónsdóttir og Karól- ína Friðjónsdóttir. „Yfirtaka“ á björgunarflugi varnarliðsins: Forsætisráðherra í viðræðum við bandaríska sendiherrann FORSÆTISRÁÐHERRA Steingrímur Hermannsson staðfesti í viðtali við Mbl. í gær, að hann hefði fyrir nokkru átt viðtal við sendiherra Bandaríkj- anna hér á landi um möguleika á því að íslendingar yfirtækju björgunar- flug varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, eins og Halldór Ásgrímsson sjávar- útvegsráðherra skýrði frá á fundi með Sjómannafélagi Reykjavíkur sl. miðvikudag. Sagði forsætisráðherra, að hann hefði óskað eftir svari sendi- herrans og hefði þegar borist bréf frá honum, sem forsætisráðherrann kallaði „fyrsta svar“, en ekki vildi hann upplýsa um innihald þess. Um viðræður sínar við banda- ríska sendiherrann sagði forsætis- ráðherra: „Ég get nú ekki skýrt svo mikið frá því opinberlega. Þetta er á skoðunarstigi. Sendi- herrann tók þessu út af fyrir sig mjög vel og sagði, að það væri sjálfsagt að kanna, hvort þetta væri fær leið, og málið er á athug- unarstigi, en það hefur þegar komið í ljós að málið er töluvert umfangsmeira en menn gera sér í fljótu bragði grein fyrir." Morgunblaðið spurði forsætis- ráðherra einnig, hvernig hann hefði lagt málið fyrir sendiherr- ann. Steingrímur svaraði: „Ég bara leitaði eftir viðbrögðum við þeirri hugmynd að fslendingar tækju að sér þessa þjónustu og þá auðvitað þar með líka fyrir vam- arliðið, eins og það þjónar íslandi nú. Þetta er alls ekki útilokað, náttúrulega getur margt komið til greina. Það er alltaf spurningin, hvort Atlantshafsbandalagið legg- ur til tækin og íslendingar sjá um reksturinn. Málið er bara alls ekki komið á neitt slíkt stig. Það er 64 íslendingar lét- ust í slysum á árinu ALLS létust 64 íslendingar af slys- förum á þessu ári. Þar af létust 17 í sjóslysum og drukknunum, 20 manns létust í umferðarslysum, 7 létust í flugslysum og 20 manns lét- ust í slysura af öðru tagi. Þessar upp- lýsingar koma fram í skýrslu Slysa- varnafélagsins um banaslys á fs- landi árið 1983. Ef tekin eru sjóslys og drukkn- anir kemur í ljós að 9 manns fór- ust með skipum, 4 fórust í höfn- um, 2 í ám og vötnum og 2 af öðr- um orsökum. Þá fórust 7 erlendir sjómenn með flutningaskipinu Kampen, þann 1. nóvember sl. f umferðarslysum fórust 20 manns. 7 fórust þegar þeir urðu fyrir bifreiðum, 6 manns fórust við árekstur bifreiða, 2 í bílvelt- um, 4 við útafakstur og 1 maður fórst í umferð erlendis. f flugslysum fórust 7 manns. Þar af fórust 4 með þyrlunni TF- RÁN í Jökulfjörðum, 2 fórust með flugvélinni TF-FLD, sem fórst í Hvalfirði og 1 maður fórst er hann varð fyrir skrúfu flugvélar. Þá fórst ein kona við fallhlífarstökk við Grímsey í sumar. Af ýmsum banaslysum á árinu má nefna að 2 létust í vinnuslys- um á sjó, 4 fórstu af byltu, hrapi eða falli, 5 fórust í bruna eða af völdum eitrunar, 2 fórust vegna skot- eða líkamsárásar, 5 fórust í snjóflóðum eða urðu undir fargi, 1 vegna raflosts og 1 fórst erlendis um borð í skipi. Þá fórst þýsk kona í sumar, er hún féll í Skeiðará. Alls fórust því 64 íslendingar af slysförum á árinu, þár af 3 á er- lendri grund. Til samanburðar má nefna að í fyrra fórust 63 íslend- ingar af slysförum, þar af 4 er- lendis. aðeins verið að athuga, hvort það kæmi til greina að Islendingar á einn eða annan máta tækju að sér þessa þjónustu." Dæmt í „lög- fræðinga- málinu" í GÆR var kveðinn upp í Saka- dómi Reykjavíkur dómur í „lög- fræðingamálinu" sem svo hefur verið kallað. Lögfræðingur bú- settur í Kópavogi var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir fjár- drátt, okur, fjársvik og skjala- fals — fyrir að hafa um nokk- urra ára skeið tekið sér fé úr sektarsjóði fógetaembættisins í Kópavogi og lánað út með okurvöxtum. Lögfræðingur á Akureyri var dæmdur í 3 mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik og sölumaður var einnig dæmdur í 3 mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir skjala- fals. Birgir Þormar kvað dóminn' upp. Jónatan Sveinsson sótti málið af hálfu ákæruvaldsins. Verjandi lögmannsins úr Kópavogi var Guðmundur Ingvi Sigurðsson, hrl., verj- andi lögmannsins á Akureyri var Baldur Guðlaugsson, hrl., og sölumannsins Hilmar Ingi- mundarson, hrl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.