Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983
43
Vogin
24. september — 23. október
Fínkennj þeirra, sem eru í Vogarmerkinu, er að vera blátt áfram og
sanngjarnir. Ekkert fer eins mikið í taugarnar á voginni og óheiðarleiki
og þunglyndi. Allt verður þó að vera i röð og reglu og Ijótleikinn í hverri
sinni mynd á ekki upp á pallborðið.
Allt lífið fer í það að byggja upp fallegt heimili og vogin leggur mikið
upp úr þægilegu umhverfi, ekki hvað síst á vinnustað. Makinn verður að
vera af rólegri gerðinni — annars er hætt við að upp komi deilur.
Ástin er ákaflega mikilvægur þáttur í Kfi vogarinnar. Hún er þeim
eiginleikum gædd að ástin fjarar sjaldan út hjá henni, jafnvel þótt
komið sé á efri ár. Körlum í vogarmerkinu er hins vegar nokkuð hætt
við að biðja fyrstu konunnar, sem þeir kynnast, án þess að hafa kannað
jarðveginn nægilega fyrst.
En enginn skyldi halda að vogirnar néu gallalausir gripir með öllu.
I*eim gengur illa að festa sig við eitthvað ákveðið í langan tíma, kjósa
heldur fjölbreytni í stöðugri leit að hinu fullkomna. Eða svo telur vogin
sér a.m.k. trú um. Ef nokkur kostur er forðast vogin að taka nokkrar
mikilvægar ákvarðanir — lætur aðra um slfkt.
Árið 1984 býður voginni ekki upp á fundið fé í merki hennar sé mesta
efnishyggjufóíkið og kannski það metnaðarfyllsta um leið. Hins vegar
ætti voginni að verða vel til fjár á næsta ári ef hún er reiðubúin til að
leggja eitthvað á sig til að afla þess. Kannski tekst að hafa fulla vinnu af
fyrrum tómstundastarfi eða einhverju ámóta.
Þeim, sem eru í vogarmerkinu, hættir stundum til að láta efnishyggj-
una stjórna öllu í Iffi sínu. Jafnvel ástalífið situr á hakanum vegna þess
að ekkert annað kemst að en að afla fjár. Hins vegar eru góðar líkur á
að þetta breytist á því herrans ári 1984, en einvörðungu að þvf gefnu að
viðkomandi vog sýni einhverja tilburði í þá átt
Bogamaðurinn
22. nóvember — 21. desember
Bogamaðurinn virðist við fyrstu kynni ákaflega elskulegur og vin-
gjarnlegur og. kannski hjálparþurfl. En hann býr yflr meiri styrk en
margir álíta, þótt sá styrkur nýtist að vfsu misjafnlega. Ástæðan er ef til
vill sú, hve bogmanninum hættir til að dreifa kröftum sínum og oft
vantar töluvert á að hann geti skipulagt tfma sinn og samskipti við aðra
þannig, að allir uni glaðir við sitt. Svo virðist sem margir bogmenn
standi á einhvers konar krossgötum í lífl sínu við þessi áramót; margt
þarf að endurmeta og endurskoða og flnna nýjar leiðir sem geta komið
beim og saman. Þetta endurmat er ekki átakalaust fyrir bogmanninn,
en hann skyldi gera sér Ijóst, að þessi staða er ekki síst upp komin fyrir
þá skuld, að hann hefur ekki sýnt það hreinlyndi og einbeitni sem
affarasælust er. En bogmenn gera sér mörgum öðrum betur grein fyrir
veikleikum sínum og eru gagnrýnir á sjálfa sig. Þess vegna er góð von
til þess að þeir komist flestir heilir hildi frá og væntanlega sáttari við
sjálfa sig. Bogmenn sem eru giftir eða standa f föstum samböndum ættu
umfram aðra að skoða vel hug sinn; það kynni að vera að þar hefði þeim
orðið á í messunni á árinu. Kómantíkin sveiflast til og frá, fyrir desem-
berbogmenn gæti ýmislegt hugsanlegt verið f sjónmáli. Heilsufar bog-
manns á árinu er með betra móti en þó skyldi allrar varúðar gætt.
Þegar Satúrnus fer inn í merki bogmannsins seinni hluta ársins,
veltur á miklu að bogmaðurinn standi af sér þær sviptingar sem því
fylgja, en hann skyldi einnig reiðubúinn að axla þá ábyrgð sem f
kjölfarið siglir.
Vatnsberinn
21. janúar — 20 febrúar
Vatnsberinn hefur löngum verið kallaður bestur vinur allra í stjörnu-
hringnum. Tryggð hans og trúmennska við þá sem honum þykir vænt
um er nánast takmarkalaus. Á hinn bóginn getur einmitt þessi eigin-
leiki komið vatnsberanum f bobba: hann er ótrúlega lengi að átta sig á
því, að það eru ekki allir jafn jákvæðir og vinsamlegir í sinn garð og
hann f þeirra. Frelsisþörf vatnsberans er og annað einkenni hans og
sumum flnnst erfltt að umgangast vatnsbera vegna þessa eiginleika,
hann vill ekki láta hefta sig í neinu. Ekki svo að skilja að hann vilji
frelsi til óæskilegri athafna, nær væri að tala um huglægt innra frelsi. í
ýmsum stjörnumerkjaumsögnum um vatnsberann er Iftið gert með
tilflnninganæmni hans og rómantfk, en það er ekki alls kostar rétt.
Hins vegar nálgast vatnsberi ástarævintýri og tilfinningasambönd á
annan og kannski hispurslausari hátt en ýmsir í öðrum merkjum.
Vatnsberanum mun ganga margt í haginn á árinu vegna kjarks, sem
stundum jaðrar við fífldirfsku, vegna dæmalauss úthalds, sem gæti
snúist upp í hálfgerða vinnupfskun. Ferðalög eru snar þáttur í þörfum
vatnsbera og hann nýtir reynslu ferðalaga betur en flestir. Vatnsbera
gengur vel í starfl vegna samviskusemi og afköst hans geta oft verið
með ólíkindum — einnig vegna þess að þau eru án ærsla og hávaöa.
Hins vegar er vatnsberinn f vandræðum með ýmis vina/ástarsambönd á
árinu. Það stafar kannski af þvf sem fyrr er vikið að, þ.e. hann spyr og
ætlast til svara vegna þess að hann gefur meira en hann fær og vegna
þess að það ruglar marga í ríminu sem umgangast hann hversu eðlilega
hann tekur öllum hlutum og atburðum. Það er eins og ekkert komi
bonum beinlínis á óvart Það dettur vatnsbera ekki f hug að dylja —
slíkt getur verið bæði kostur og löstur.
Sporðdrekinn
Steingeitin
23. október — 21. nóvember
Ekki þarf að fjölyrða um að sporðdrekinn er eitt flóknasta og marg-
slungnasta merki stjörnuhringsins. Sporðdrekinn er kappsfullur og met-
orðagjarn og honum tekst oftast að ná markmiði sfnu. Sporðdrekinn er
ákaflega innhverfur persónuleiki og ber ekki tilflnningar sínar á torg.
Menn eignast ekki vináttu hans í einu vetfangi, en hann á það sameig-
inlegt með vatnsberanum, að vera einna tryggastur vina þegar hann
hefur fengið mætur og trú á einhverjum.
Árið 1984 getur orðið mjög erfltt og annasamt hjá mörgum sporðdrek-
um. En sporðdrekinn er oftast reiðubúinn að takast á við verkefnin og
það er ólfklegt að hann láti mótbyr á sig fá. Ýmsar breytingar verða
bæði á heimilishögum og hvað varðar vinnu og með fylgir aukin ábyrgð.
En það er sennilegt að sporödrekanum takist að sigrast á örðugleikum
og mun hann þá geta vænst bæði ánægju og viðurkenningar. Árið virðist
í heild einkennast af miklum umsvifum og það er hætt við, að fjöl-
skyldumál verði stundum að sitja á hakanum. Samt er ekki ástæða til
að búast við öðru en að rómantíkin skipti nokkru máli, annað væri
óhugsandi þegar þessi viðkvæma vera er annars vegar.
Fyrri hluti ársins er ekki talinn hagstæður til að mynda tilfinninga-
tengsl eða ganga f hjónaband. Þar kann einnig að ráða fyrrnefnt annríki
og erill sem virðist ráðandi umhverfls sporðdrekann framan af ári.
22. desember — 20. janúar
Steingeitin er ekki talin með hinum hrifnæmari innan stjörnuhrings-
ins, hún er oftast sögð jarðbundin og raunsæ. En oft er fjarri lagi að svo
sé. Að sumu leyti mætti líkja steingeitarmerkinu við flska- og tvíbura-
merkið — með sfna skiptu karaktera. En steingeitin er atorkusöm,
þolinmóð á stundum svo að sumir álíta hana skaplitla, en átta sig ekki á
þeirri ögun sem hún beitir sjálfa sig. Steingeitin gerir kröfur til annarra
og kveðst geta gert það, vegna þess að hún hlffl sér í engu sjálf. En
kannski málið sé ekki eins einfalt og steingeitinni flnnst það.
Svo virðist sem mikil vinna og vel af hendi leyst muni nú skila sér til
steingeitarinnar. Ýmiskonar viðurkenning og frami fellur henni í skaut
— og er þá í ýmsum tilvikum átt við það í óeiginlegri merkingu.
Fjárhagslega séð verður þetta gott ár fyrir margar steingeitur, en þær
hafa líka lagt á sig erflði til þess að búa svo um hnútana. Ferðalög setja
svip sinn á árið og ýmiskonar ný mál verða ofarlega á baugi, sem
steingeitinni finnst gaman að glfma við.
Það bendir sem sé flest til þess að árið 1984 verði um margt hliðhollt
steingeitarfólkinu og það gefur sér ögn meiri tfma en undanfarið til að
sinna fjölskyldu sinni og vinum, steingeitinni til óblandinnar ánægju,
því að steingeitin er fjölskyldusinnuð, þótt oft hafl litið svo út sem
vinirnir hafl gleymst vegna erils og annríkis. En steingeitin gleymir
engum sem hefur skipt hana máli gegnum tfðina.
Fiskarnir
21. febrúar — 20. mars
Fiskarnir eru blfðir og draumlyndir, rómantískir og viðkvæmir. Hjálp-
samir, en þó vilja þeir fá eitthvað fyrir snúð sinn. Þar sem þetta er skipt
merki eiga flskarnir oft í sálarstreði, þegar annar kysi að synda á móti
straumnum fyndist hinum æskilegra að láta sig bara fljóu Ijúflega.
ÞetU bakar að sjálfsögðu þeim sem umgangast flska vandræði. En það
er vænUnlega erfltt fyrir flesU annað en láU sér vera hlýtt til þessara
Ijúfflska.
Árið virðist ekki í fljótu bragði bjóða upp á neinar stórar breytingar á
högum fisksins. Honum miðar áleiðis og svo virðist sem bægláti fiskur-
inn verði ofan á þetU árið og ekki verði þar af leiðandi heldur lent f
neinu straumkasti. Fiskurinn sem er nýlega genginn í hjónaband eða
hefur haflð sambúð þarf að aðlaga sig því, sá sem hefur tekist á hendur
nýtt sUrf verður að semja sig að nýjum háttum og svo framvegis. ÞetU
verður líklega alveg meira en nóg fyrir flskinn á árinu. Þó gætu verið
undantekningar meðal þeirra flska sem fást við listir eða vfsindi, þar
eru sjáanlegar meiri breytingar og betri árangur en á árinu sem er að
líða. Á tilflnningasviðinu verða nokkrar sveiflur, ekki ósvipað og mun
verða hjá bogmanni. Fiskurinn tekur allt slfkt fjarska nærri sér, veltir
málunum fyrir sér á alla enda og kanU og kemst seint og um síðir að
niðurstöðu — sem kannski reynist ekki sú sniðugasU. En flskinurn er
bollt að brjóU heilann. Ljúfl letiflskurinn sem virðist ætla að ríkja árið
yrði þá að víkja um set. Það myndi veiU flskinum meiri ánægju með
sjálfan sig þegar fram í sækti.