Morgunblaðið - 31.12.1983, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 31.12.1983, Qupperneq 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 vex stórum við að afla þessara efna. Mýrdalssandur og Sólheima- sandur eru ef tii vill forðabúr framtíðarinnar, ekki aðeins fyrir okkur heldur alla Evrópu. Enn- fremur hafa sandarnir þann kost fram yfir aðra staði, að við getum búist við að Katla gamia fylli í skarðið það sem af er tekið. Þannig gæti farið svo, að ógnvaldurinn Katla yrði í framtíð- inni fjárhirsla okkar Skaftfellinga og stærsti útflytjandi landsins og sá útflutningur færi um Dyrhóla- eyjarhöfn í milljónum tonna. Fyrsta skrefið til þessarar framtíðar höfum við Mýrdælingar nú stigið með sameiningu hrepp- anna. Ef ég lít til landsins í heild er mér efst í huga sá samdráttur sem orðið hefur í þorskveiðum okkar fslendinga og sú geigvænlega röskun og tap fyrir þjóðarbúið, út- gerðina og alla þá sem að sjávar- útvegi vinna, sem verður vegna hruns þorsksstofnsins. Það er staðreynd, að þorskinum í sjónum hefur fækkað og dugar lítt að deila um af hvaða orsökum og reyna að benda á einhvern sek- an ef ekkert annað er aðhafst. Frá mínu sjónarmiði ber okkur ekki að leggja árar í bát, hætta að veiða fisk eða eitthvað þessháttar, heldur einfaldlega fjölga þorskin- um í sjónum. Það munu vera um 2—4 millj. hrogna í einni þorskhrygnu og þegar þorskurinn er að basla við þetta klak sitt, er mér sagt að frjóvgunin fari meira og minna forgörðum. Fiskiskip okkar veiða um hrygningartímann tugþúsundir tonna af þorski með fullþroska hrognum og svili. Með okkar tækni og þekkingu ættum við að geta haft í hverju fiskiskipi búnað til að frjóvga og geyma hrognin sem síðan væru sett á þau hrygn- ingarsvæði sem þorskurinn ætlaði þeim að þroskast á. Með þessu móti ættum við að geta skilað milljónfalt þeim þorsklífum sem við tökum. Mér er alveg ljóst, að dæmið er ekki nándar nærri eins einfalt eins og ég hef sett það upp hér, en úr því þorskurinn hefur þó getað haldið þetta í endurnýjun sína þrátt fyrir alla okkar tækni við að drepa hann, þá hljótum við með því að leggjast á eitt, þorskurinn og við, að geta margfaldað stofn- inn aftur. Við þá sem telja þetta fjar- stæðukennda hugmynd, vil ég segja þetta: Hvað segðuð þið um bónda, sem skildi alltaf eftir nokkrar kartöflur í garðinum sín- um til þess að viðhalda stofnin- um? Ef litið er út fyrir landsteinana og yfir atburði liðins árs, hef ég ekki annað að styðjast við en það sem framreitt er í okkur af fjöl- miðlum. Ber þar hæst vígbúnað- arkapphlaup stórveldanna, ef hægt er að kalla það svo kurteis- legu nafni. Þessi vígbúnaðar-, kjarnorku-, eldflaugadella er svo langt fyrir ofan minn skilning að ég held að best sé að nota orð kerl- ingarinnar sem sagði: „Ef þeir halda svona áfram, endar það með þvi að þeir drepa einhvern." Mætti kannski bæta við þau orð, og það svo að enginn verður eftir til frá- sagnar á okkar jörð, eða um nokkra móður jörð að ræða. Ekki er hægt að segja að það sé beinlínis gleðileg nýárstilfinning, en því meiri ástæða til að óska öllum gleðilegs nýárs. Helgi Kristjánsson, Ólafsvík Við áramót verður manni fyrst hugsað með hluttekningu til þeirra sem bera harm í huga vegna ástvinamissis á liðnu ári, eða eru vegna annarra áfalla illa i stakk búnir til að ganga fagnandi mót nýju ári. Ég er jafnframt þakklátur for- sjóninni fyrir að hafa ekki sem fréttaritari þurft að segja frá slys- um og mannsköðum. Nóg er samt um daprar fréttir, innlendar sem erlendar. Hungurdauði með- bræðra okkar í fjarlægum löndum er mikið harmsefni. Kúgun, ógnarstjórn, fjöldamorð og pynt- ingar eru það sömuleiðis og er raunalegt hve grimmd mannsins gengur langt. Árið sem er að líða var hjá okkur íslendingum með óvenju- köldu tíðarfari. Snjóar sl. vetur eru minnisstæðir og voru vetrar- hörkur á Snæfellsnesi í lok apríl. Sumarið mun einnig lengi sitja í huga okkar vegna kulda og vætu- tíðar hér syðra. Menn heyrðust tala um sumarið sem aldrei kom. Haustið, og svo gott tíðarfar að undanförnu, hefir þó bætt mjög um. Stóru tíðindin á árinu eru þó af stjórnmálasviðinu, kosningarnar, stjórnarskiptin og átökin við verð- bólguna og viðskiptahallann. Það er langt frá áð menn séu á eitt sáttir um verk hinnar nýju ríkis- stjórnar en samt er hægt að segja að hugarfarsbylting hafi orðið hjá þjóðinni. Menn hafa öðlast aftur von, sem var orðin býsna veik hjá mörgum. Það er vonin um að grundir íslensks efnahagslífs geti aftur náð að gróa eftir skriðuföll af völdum óðaverðbólgu og van- stjórnar. Ég er bjartsýnn hvað þetta varðar. Það er að minnsta kosti búið að setja þessu rammann. Vonandi berum við svo gæfu til að fylla rétt út í myndina. Það eykur mér bjartsýni, að sjálfstæðismenn ganga nú saman í einni fylkingu, staðráðnir í að verða þjóð sinni að liði á erfiðum tímum. Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins er því í mínum huga einn af stóru viðburðunum á ár- inu. Gleði manna vegna endur- heimtrar einingar bjó þar í hverj- um svip og braust svo fram við kosningar fundarins eins og frægt er orðið. En það steðja ýmsar hættur að íslendingum. Tvær eru mér efst í huga: Óvissa um ástand og við- gang fiskistofnanna við landið og svo eiturlyfjaógnin. Mikið er í húfi fyrir þjóðina að vel takist í stjórn- un fiskveiðanna og nýtingu og sölu fengins afla. Við hinni ógninni þarf einnig að bregðast með festu og raunsæi. Gullskipið kom ekki í ljós og olli það mér og mörgum öðrum mikl- um vonbrigðum. Aftur á móti var árangur margra íþróttamanna okkar og skákmanna mikið ánægjuefni. Ég get nefnt árangur Einars Vilhjálmssonar og Krist- jáns Hreinssonar, sveitapiltsins svifháa. Árangur skákmanna okkar á heimsmeistaramótinu undir 23 ára var líka glæsilegur. Af heimaslóð vil ég nefna, að eitt ánægjulegasta fréttaefni mitt var um lagningu hins nýja Enn- isvegar. Þar var vel að verki verið bæði af hálfu hins opinbera og verktakans. Þar kom vel í ljós, að hægt er að lyfta Grettistökum í vegagerð ef rétt er að staðið. Veg- urinn er svo óðum að sanna gildi sitt, bæði í auknu öryggi og með meiri samskiptum byggðarlag- anna sem hann tengir. Ólafsvík fékk kaupstaðarrétt- indi á árinu og Ólsarar komu nýju félagsheimili undir þak eftir að hafa verið á hvörfum með byrjun- ina í fjöldamörg ár. Hér hófst út- gáfa bæjarblaðs, Ólsarans, og þar ræða menn dægurmálin og hin óleystu verkefni framtíðarinnar. Fleira mætti til nefna minnis- stætt frá liðnu ári. Hér læt ég þó staðar numið. Megi nýtt ár færa landsmönn- um friðsæld og velgengni í barátt- unni fyrir bjartri framtíð. Ólafur Guðmundsson, Egilsstöðum Það sem mér er efst í huga úr fréttaheiminum við þessi áramót eru hinar tíðu fréttir, er bárust okkur á haustmánuðum, um stór- aukna fíkni- og vímuefnaneyslu barna og ungmenna hérlendis. Þessar fréttir kunna að vera ýktar að nokkru, en það skiptir ekki höfuðmáli, þær eru engu að síður byggðar á bláköldum stað- reyndum, sem við verðum að horf- ast í augu við og gefa gaum, ekki síst þeir sem vinna að skóla- og uppeldismálum. Én hvað er að? Hvað hefur gerst sem veldur því að hópur barna okkar og ungmenna eira hvergi nema í einhvers konar vímu? í fyrsta lagi verðum við að gera okkur grein fyrir því að samfélag okkar hefur gjörbreyst á síðast- liðnum 10—15 árum, án þess að við höfum verið viðbúin þeim breytingum eða raunverulega reynt að mæta þeim á skynsam- legan og skipulegan hátt. Ein al- varlegust og afdrifaríkust þessara þjóðfélagsbreytinga er breytt uppeldishlutverk heimilanna; hlutverk sem þau hafa smátt og smátt fjarlægst af ýmsum ástæð- um. í annan stað þurfum við að gefa því gaum, að engar markvissar skipulagsbreytingar í grundvall- aratriðum hafa verið gerðar á skólakerfinu eða öðrum opinber- um uppeldisstofnunum til að mæta þessu breytta uppeldishlut- verki heimilanna, en sjónvarp og myndbandavæðing heimilanna haft æ ríkari uppeldisáhrif, sem geta verið ágæt út af fyrir sig, en eru það sjaldnast þegar kylfa er látin ráða kasti. Hér verður að spyrna við fótum og t.d. gera róttækar skipulags- breytingar á skólakerfinu áður en það verður eins konar nátttröll í samfélaginu. Það er staðreynd að mikill meirihluti nemenda hefur sitt grunnskólanám með jákvæðu hugarfari og tilhlökkun, en hræddur er ég um að hugarfarið sé orðið nokkuð blendið þegar í efri bekki grunnskólans er komið. Það virðist því nokkuð auðsætt að nauðsynlegt er að hverfa frá öllu miðjumoði hins rígbundna bekkj- arforms og taka upp áfanga- og einingakerfi í grunnskólanum ásamt sérstökum valbrautum. Þá yrði nemandi sem getur tileinkað sér grunnskólanámið á 7 árum ekki dæmdur til að sitja 9 ár í grunnskólanum né nemandi sem ekki getur tileinkað sér námsefnið á 9 árum nær vegalaus að þeim tíma liðnum. Þá yrði skólinn kannski skóli. Þau gleðitíðindi berast nú úr menntamálaráðuneyti að þar sé unnið að ýmsum skipulagsbreyt- ingum skólamála undir forystu Ragnhildar Helgadóttur mennta- máiaráðherra, skipulagsbreyting- um er miði að því fyrst og fremst að auka sjálfstæði skólanna, en aukið sjálfstæði þeirra er ein for- senda þess að þeir fái risið undir nafni. Þetta vekur ákveðnar vænt- ingar um betri tíð og raunhæfar aðgerðir, enda er Ragnhildur Helgadóttir ein þeirra kvenna í Sjálfstæðisflokknum sem mótað hafa fjölskyldupólitík flokksins. En skýr og markviss stefna í fjöl- skyldumálum verður að vera fyrir hendi ásamt sveigjanlegu skóla- kerfi, svo að koma megi í veg fyrir stórslys af fíkni- og vímuefna- neyslu barna og ungmenna. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur átt frum- kvæði að því að móta slíka stefnu, vonandi ekki of seint, því að það er einmitt almennt stefnuleysi í þessum málaflokki á síðastliðnum áratug sem m.a. hefur skapað það tómarúm í samfélagi okkar sem leitt hefur hóp barna og ung- menna afvega nú um sinn. Gunnar Berg, Akureyri Þegar ég lít til baka í lok ársins 1983 sem Akureyringur er því miður fátt sem gleður hugann í sambandi við okkar fagra bæjar- félag. Starfa míns vegna hef ég setið alla bæjarstjórnarfundi síð- astliðið ár og fyrir mér hefur farið eins og litlu börnunum, ég hef orð- ið „hissari og hissari" með hverri þeirri samkundu sem liðið hefur. Það hefur vart farið framhjá nein- um bæjarbúa, að atvinnuástand hefur farið hríðversnandi, fyrir- tæki á sviði verslunar og iðnaðar hafa lent í greiðsluerfiðleikum og jafnvel hætt starfsemi! Önnur eru við það að hætta og jafnvel dæmi þess að fyrirtæki hafi flutt starf- semi sína á höfuðborgarsvæðið. Atvinnuleysi nú í árslok er veru- legt og því ekki bjart framundan. Á meðan atvinnulíf okkar virðist vera að brenna upp, hefur bæjar- stjórn Akureyrar helst leikið á fiðlur jafnréttismála og leiktækja- sala. Það virðist eftir fundum bæj- arstjórnar Akureyrar vera þau mál, sem heitast brenna um þess- ar mundir. Hvort Útgerðarfélagi Akureyringa verði gert kleift að kaupa nýjan togara og hvort Slippstöðinni verði heimilað að smíða það skip, virðist aukaatriði. Bæjarstjórnin eyðir bara fé okkar skattborgaranna í vitleysu eins og gerð skýrslu um jafnréttismál, þar sem helst merkilegra atriða kem- ur fram, að út um allan okkar fagra bæ er til fullt af góðu fólki, dagmæðrum, öfum og ömmum, sem gæta barna fyrir foreldra sem út á vinnumarkaðinn sækja. Mikið létti okkur bæjarbúum við að fá að vita þetta!!! Þá get ég ekki látið hjá líða að geta annars máls, sem ég hef nokkuð kynnst vegna starfa míns fyrir Morgunblaðið. Á ég þar við „útburðarmálið" svokallaða, þar sem nú í árslok Hæstiréttur okkar Islendinga kemst að þeirri furðu- legu niðurstöðu, að eina leiðin til þess að setja niður deilur tveggja aðila sem húseign eiga saman, sé sú, að meina öðrum aðilanum, hjónum ásamt fimm börnum þeirra, að búa í húseign sinni. Réttarvitund mín segir mér, að svona dóma geti Hæstiréttur ekki fellt á seinni hluta tuttugustu ald- ar. Ég ætla ekki að leggja neinn dóm á sökudólg í þessi máli, en útburður á hjónum ásamt fimm börnum úr löglegri eign þeirra samrýmist einhvern veginn ekki mínum hugmyndum um réttarfar sem réttlátt getur kallast. Ég get ekki annaö en vorkennt starfsfólki fógetaembættisins á Akureyri að þurfa að framfylgja slíkum dómi, sem er jafnfjarri réttlætiskennd almennings og raun ber vitni. Þá ósk á ég heitasta fyrir hönd okkar Akureyringa, að á því margumtalaða ári 1984 breytist hugarfar núverandi meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar gagn- vart atvinnumálum til betri vegar, ellegar að nýr meirihluti myndist, sem tekur það hlutverk sitt alvar- lega, að stuðla að bættu atvinnu- lífi og mannlífi í höfuðstað Norð- urlands. Athugasemd: Sjálfstæöismenn felldu að lækka útsvarið — segir Guðrún K. Þorbergsdóttir bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi MORGUNBLAÐINU barst eftir- farandi athugasemd frá Guðrúnu K. Þorbergsdóttur bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins á Seltjarn- arnesi síðastliðinn miðvikudag: „Vegna fréttar frá bæjarstjór- anum á Seltjarnarnesi um fjár- hagsáætlun bæjarins fyrir árið 1984, sem birt er í Morgunblaðinu í dag, 29. desember, tel ég rétt, að eftirfarandi atriði úr fundargerð bæjarstjórnar um fjárhagsáætl- unina komi einnig fram.“ Guðrún K. Þorbergsdóttir, bæj- arfulltrúi Alþýðubandalagsins, lagði fram eftirfarandi tillögu: „Bæjarstjórn samþykkir að álagningarprósenta útsvars árið 1984 verði 8,5—9% til þess að greiðslubyrði útsvarsgjaldenda verði ekki aukin frá því sem nú er árið 1983. Greinargerð. Álagn- ingarprósenta hefur undanfarin ár verið 10,5%. Með sömu prósentutölu á árinu 1984 og á ár- inu 1983 mun greiðslubyrði út- svarsgreiðenda þyngjast um þriðj- ung. Tillagan var felld með 5 at- kvæðum gegn einu, Guðmundur Einarsson sat hjá. Meirihluti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun: „Miðað við stöðu bæjarsjóðs sem er mjög slæm er ekki hægt að samþykkja frekari lækkun útsvara en fram kemur í tillögu fjárhagsnefndar eða 10,5% álagningu." Sú staðreynd, að meirihluti sjálfstæðismanna felldi tillögu um að útsvarið fyrir árið 1984 yrði það sama og fyrir árið 1983 þ.e. 8,5—9%, og samþykkti að halda 10,5%-tölunni, hefur í för með sér um þriðjungs raunhækkun út- svarsgreiðslu Seltirninga á árinu 1984.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.