Morgunblaðið - 05.01.1984, Page 1

Morgunblaðið - 05.01.1984, Page 1
48 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 3. tbl. 71. árg. FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaösins Hrakningar í vonsku- veðri í gær Þessar myndir voru teknar um miðjan dag í gær þegar vegurinn á milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar var í þann veginn að verða ófær öllum bílum, hvað þá smábílum eins og þessum, sem verið er að koma tógi í á Hraunsholti í Garðabæ. Bak við hann bíður vörubíll með ýtutönn eftir því að komast að en skömmu síðar lokaðist vegurinn alveg. Hin myndin var tekin á Kringlumýrarbraut en þar máttu margir bíða svo klukkutímum skipti í langri bílalest. Ljósmyndir Mbl. Friöþjófur og Rax. Sjá nánari fréttir af óvedrinu á bls. 2, 3, miðopnu og baksíðu. Reagan fagnar flugmanninum Beirút og Washington, 4. jan. AP. BANDARÍSKI flugmaðurinn Robert O. Goodman kom í dag aftur heim til Bandaríkjanna eftir mánaðardvöl sem fangi Sýrlendinga. Var fyrirhug- að, að hann og séra Jesse Jackson hittu Reagan forseta að máli í Hvíta húsinu í dag, en Jackson átti mestan þátt í því að fá Goodman lausan úr höndum Sýrlendinga. ísraelskar herþotur réðust í dag á stöðvar skæruliða, sem hlynntir eru írönum, í Bekaadal í austurhluta Lí- banons. Sagði ríkisútvarpið í Beirút í dag, að yfir 60 manns hefðu verið drepnir og meira en 300 særzt í loft- árásinni, sem stóð í eina klukku- stund. Var þettan annan daginn í röð, sem ísraelar gerðu loftárás á þessar stöðvar. Nabim Berri, leiðtogi Shíta í Líbanon, fordæmdi þessar árásir harðlega í dag. Charles Percy, formaður utan- ríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings, bar í dag fram þá tiilögu, að bandaríska herliðið í Líbanon yrði kallað heim, „svo fljótt sem auðið er“. Sagði Percy, sem er repúblikani eins og Reagan forseti: „Við erum ekki lengur jákvætt afl í friðarsveitunum i Líbanon." Thomas P. O’Neill, for- seti fulltrúadeildar Bandaríkja-' þings, spáði því í dag, að þingið myndi bráðlega binda enda á dvöl herliðsins í Líbanon nema því að- eins, að Reagan forseti legði meiri áherzlu á að finna pólitíska lausn á innanlandsstyrjöldinni í Líban- on. Sjá: Af erlendum vettvangi bls. 20. é* W* M M Robert Goodman ásamt konu sinni við komuna til Bandaríkjanna í gærmorgun. Kyrrt í Túnis eftir uppþotin TúnLsborg, 4. janúar. AP. JBb ^HL TúnLsborg, 4. janúar. AP. KYRRÐ RÍKTI að mestu í Túnisborg í dag eftir vikulangar óeirðir, sem byrjuðu í suðurhluta Túnis, en breiddust síðan út til borganna í norðurhluta landsins, eftir að verð á brauði þar hafði verið tvöfaldað. f Túnisborg var talin mikil hætta á, að upp úr kynni að sjóða þrátt fyrir að allt virtist með felldu þar á yfirborðinu. Varð- flokkar hermanna og lögreglu gengu þar um götur og skriðdrek- ar og brynvarðar bifreiðir stóðu þar í viðbragðsstöðu á öllum götu- hornum reiðubúnar til þess að láta til sín taka, ef með þyrfti. f sum- um úthverfum borgarinnar mátti enn heyra skothvelli á stangli. Út- göngubann var í borginni frá kl. 6 síðdegis til kl. 5 að morgni. Habib Achaour, aðalritari verkamannasambands Túnis, sem eru einu viðurkenndu samtök verkamanna í landinu, sagði í dag, að allsherjarverkfall væri ekki útilokað, ef stjórnvöld bættu ekki „nægilega" upp þá hækkun, sem orðið hefði á brauði og öðrum helztu matvælum. Til allsherjar- verkfalls kom í landinu í janúar 1978 og fylgdu miklar ofbeldisað- gerðir í kjölfarið í þriggja daga óeirðum, þar sem 30 manns biðu bana en fjöldi manns var handtek- inn. Skoðanakönnun Jyllandsposten: íhalds- flokknum spáð stórsigri kaupmannahofn, 4. janúar. Frá fréttaritara Morjpinblaösins. Ib Bjornbak SKOÐANAKÖNNUN á vegum blaðsins Jyllandsposten bendir til þess, að íhaldsflokkurinn muni nær tvöfalda þingfylgi sitt og fá 51 þingsæti í stað 26 nú í þingkosningum þeim, sem fram eiga að fara í Danmörku nk. þriðjudag. Miðdemókratar, sem aðild eiga að ríkisstjórninni, munu hins vegar missa 8 þing- sæti og fá aðeins 7 í stað 15 nú. Svo virðist sem Mogens Glistrup, stofnandi Framfara- flokksins, sem nú afplánar 3Vfe árs fangelsisdóm fyrir skattsvik, verði kosinn þing- maður á ný. Nái hann kosn- ingu, verður hann varinn af friðhelgi þeirri, sem þjóðþing- ið nýtur og fær þá að fara úr fangelsinu. Þingið gæti hins vegar samþykkt að svipta hann þinghelginni og yrði hann þá settur aftur í fangels- ið til þess að afplána dóm sinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.