Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 Engin óhöpp á miðunum ALLMÖRG skip voru í gær á mið- unum umhverfis landið, en sam- kvæmt upplýsingum Tilkynn- ingaskyldunnar voru þau ekki í teljandi vandræðum. Eitt skip, Sigurður Bjarnason GK 100, bilaði þó í gærmorgun. Var skipið þá statt um 14 sjómílur vestnorðvest- ur af Sandgerði. Björgunarskipið Goðinn kom skipinu til hjálpar og kom með það til Njarðvíkur um klukkan 17 í gær. Skipverjar voru ekki taldir í hættu vegna þessa Flugleiðir: Aðeins flogið til Akureyrar Millilandaflugið erfitt INNANLANDSFLUG Flugleiða lá alveg niðri í gær vegna veðursins utan það, að ein ferð var farin til Akureyrar og aftur tii Reykjavíkur í gærmorgun. Að sögn Sæmundar Guðvinssonar, blaðafulltrúa Flug- leiða, var öllu öðru flugi frestað og biðu hundruð manna því eftir fari með vélum félagsins víðs vegar um landið. Á vegum Flugleiða var flogið til London í gærmorgun og átti sú vél að koma til baka síðdegis, en síðar var sú ákvörðun tekin, að vélin yrði í London í nótt og kæmi hingað í morgun. Ætlunin er síðan að hún haldi til Osló og Gauta- borgar um hádegi í dag og komi við í Glasgow. Þar á hún að taka 55 farþega úr vél frá New York, sem ekki gat ient hér á leið sinni austur í gær á leið til Luxemborg- ar og millilenti því í Glasgow og koma með þá hingað. Þá féll niður í gær ferð til New York frá Kefla- vík, en ein vél frá Flugleiðum fór til Kanaríeyja í gærmorgun með 156 farþega. Áætlað var að hún kæmi hingað til lands í gærkvöldi eftir millilendingu í London og færi í morgun til Luxemborgar og Kaupmannahafnar með þá far- þega, sem ekki komust til Lux- emborgar í gær. Sú vél mun síðan fara til New York síðdegis í dag, standist áætlanir Flugleiða. Allt flug Arnarflugs féll niður „Við höfum ekki komið flugvélun- um út úr skýlunum í dag, svo ekkert hefur verið reynt að fljúga, og ég sé ekki fram á að það verði reynt,“ sagði Sigurjón Alfreðsson, af- greiðslustjóri hjá innanlandsdeild Arnarflugs er rætt var við hann síð- degis í gær. Sigurjón sagði að í gær hefðu verið áætlaðar sjö ferðir á vegum innanlandsdeildarinnar. Tvær til Siglufjarðar, ein til Fáskrúðs- fjarðar, tvær á Flatey, ein á Suð- ureyri og ein til Stykkishólms. „F’ullbókað var í flestar ferðanna, og töluverður hluti þeirra sem áttu bókuð sæti, er skólafólk, sem var úti á landi um jól og áramót, en þarf nú að komast í bæinn. Hópur nemenda við Reykjanes- skóla við ísafjarðardjúp er fastur í Reykjavík og við stefnum að því að koma þeim vestur á morgun. Undir venjulegum kringumstæð- um fljúgum við fjórum sinnum í viku á Suðureyri og Flateyri, en í janúar í fyrra voru til dæmis að- eins þrjár ferðir þangað á tíu dög- um, þannig að slíkt veður er ekk- ert einsdæmi." Ekkert millilandaflug var á veg- um Arnarflugs í gær, en í kvöld er von á einni vél frá Amsterdam. akreinarnar til beggja hliða eru Morgunblaðid/Rax Nærri mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar þegar veður var tekið að ganga niður. Myndin er tekin á eyjunni ófærar vegna fastra smábfla, betur búnir bflar fóru eftir gangstéttum eða eyjunni. Fólk veðurteppt á Holtavörðuheiði Borý»arn< si, 4. janúar. OFSAVEÐUR gekk hér yfir um miðjan dag í dag. í verstu hviðunum fór vindstyrkurinn yfir 90 hnúta sem er um 15 vindstig en það telst fárviðri, en var um 11 vindstig að meðaltali. Síðdegis gekk veðrið niður hér í Borgarnesi og jafnframt gerði frostleysu en um kl. 18 var ennþá vitlaust veður á Holtavörðu- heiði og fjöldi fólks þar veðurtepptur. Ófært var um allt héraðið vegna veðursins og snjóa og stöðvuðust bílar þar sem þeir voru niðurkomn- ir þegar veðrið brast á. Sex fólks- flutningabifreiðir á leið frá Reykja- vík vestur og norður um land stöðv- uðust í Hvalfirði og var ætlunin að snúa þeim til baka til Reykjavíkur í kvöld. Snjóruðningstæki fóru úr Reykjavík í dag til að hjálpa þeim suður. Undir Hafnarfjalli og í Leirár- sveit tepptust nokkrir bílar, sumir foknir út af veginum. Jeppabifreið fauk út af veginum undir Hafnar- fjalli og eftir að fólkið sem í honum var, hjón með smábarn, hafði yfir- gefið hann, valt bíllinn heila veltu og á hjólin aftur og skemmdist mik- ið. Jeppabifreið á leið með sjúkling frá Bifröst sem færa átti á sjúkra- hús á Akranesi lenti í erfiðleikum í Stafholtstungum og fór þar út af veginum. ' Snjóruðningstæki Vegagerðar- innar í Borgarnesi sem fóru á móti jeppanum komust ekki nema að Svignaskarði þar sem 3 metra háir snjóskaflar voru á veginum. Átti að moka þar í kvöld, en snjóbíll lagði af stað úr Norðurárdalnum til að flytja sjúklinginn til móts við sjúkrabíl úr Borgarnesi. 1 morgun lögðu margir bílar af stað yfir Holtavörðuheiði beggja megin frá. Um það leyti sem bíla- lestirnar mættust skammt vestan við sæluhúsið skall veðrið á, svo all- ir bílarnir stöðvuðust þar. Klukkan 18 var sama óveðrið á heiðinni og ekki vitað um líðan fólksins, þar sem ekki var fært á milli bíla en snjóruðningstæki til taks á heiðinni tilbúin að ryðja fyrir bílana í Hrútafjörð þegar veðrið lægir. Hér í Borgarnesi var fólk í vand- ræðum með að komast milli húsa, en engin slys urðu á fólki. HBj. Á Arnarneshæð laust eftir hádegiö í gær. Konu hjálpað úr sínum bfl yfir í vel búinn bfl björgunarsveitarmanna. - Morgunblaðií/ Friðþjðfur Átta farþegar og vagnstjóri hírðust í kulda í 7 klukkustundir í strætisvagni á Ártúnshöfða: næst með mér 800 bók og koníak“ „Tek síðna — sagði Illugi Jökulsson, einn farþeganna átta „Ég verð nú að viðurkenna, að ég hef oft skemmt mér betur en þennan tíma," sagði Illugi Jökuls- son, blaðamaður, er Morgunblaðið náði tali af honum á sjöunda tím- anum í gær. Hann var þá nýstiginn inn úr dyrunum eftir að hafa með 7 öðrum farþcgum og bílstjóranum þurft að hírast í strætisvagni frá því klukkan 11 um morguninn. Vegna veðurofsans var ekki talið ráðlegt að fólk legði eitt síns liðs út í sortann og því var ákveðið að bíða uns veðrinu slot- aði. Sú bið var orðin mun lengri en nokkurn óraði fyrir loks þeg- ar hjálp barst. „Þegar ég lagði af stað var sæmilegasta veður,“ hélt Illugi áfram. „Þarna uppfrá var aftur á móti komið snarvitlaust hríð- arkóf. Ég ákvað því að hraða mér sem mest ég mátti til baka og tók næsta strætó. Eftir að okkur hafði miðað um hálfan kílómetra á hálfri klukkustund taldi vagnstjórinn vænlegast að sleppa því að fara upp í Árbæ og koma sér sem fyrst niður í bæ. Hins vegar komumst við litlu lengra því vagninn festist ör- fáum augnablikum síðar og varð ekki haggað. Það var því ekki annað að gera en að bíða. Ekki kom til tals að fara út í einum hóp því í raun er fátt hægt að fara þarna um slóð- ir. Hefðu menn gert sér grein fyrir að biðin yrði svona löng held ég, að a.m.k. einhverjir hefðu freistað þess að brjóta sér leið á eigin spýtur. En þar sem alltaf var sagt í talstöðinni, að von væri á hjálp á hverri stundu hættu menn við öll slík áform, enda veðurhamurinn ekki árennilegur. Hjálpin barst hins vegar ekki fyrr en seint og síðar meir og þá hafði veðrinu slotað nokkuð. Vindinn lægði nokkuð um kl. 16 og það var mest ergj- andi hversu seint þetta gekk eft- ir það. Við höfum sennilega losnað klukkustundu síðar og þá þurfti að snúa við til að freista þess að komast niður í bæ eftir annarri götu. Ekki tók betra við því vagninn festist á ný. Þá voru hins vegar komin snjóruðnings- tæki á vettvang og gekk tiltölu- lega fljótlega að losa vagninn. — Hvernig brugðust farþegar við þessari óvæntu röskun? „Menn tóku þessu með jafnað- argeði, hvort heldur það voru rosknar konur eða táningar. Við gripum þó ekki til fjöldasöngs þótt skrambi kalt væri í bílnum. Kuldinn var eiginlega það versta, miðstöðin dugði skammt. Það má því með sanni segja, að þetta hafi ekki verið einn af mínum betri dögum og það veit ég fyrir víst, að næst þegar ég fer í strætó hef ég með mér 800 síðna bók og koníakspela," sagði Ulugi að endingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.