Morgunblaðið - 05.01.1984, Page 3

Morgunblaðið - 05.01.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 3 Rafmagnsleysi á Reykjanesi og í Borgarfirði: Viðgerðarmenn lutu í lægra haldi fyrir veðurofsanum Símasambandslaust við Snæfellsnes í gærkvöld „ÞAÐ HEFUR verið nær al- veg rafmagnslaust á Reykja- nesi allt frá því kl. 12.30 í dag og ekki hefur verið hægt að ráða við neitt sökum veður- ofsa og ófærðar. Reyndar fóru menn frá okkur áleiðis til þess að kanna þessa bilun, en hvernig þeim miðar er ekki gott að segja,“ sagði Guðjón Guðmundsson hjá Rafmagns- veitum ríkisins er Morgun- blaðið innti hann eftir því síð- degis í gær hvaöa áhrif veður- ofsinn hefði haft á raforku- kerfi landsmanna. „Við höfum ekki getað gert annað en að bíða eftir að veðrinu slotaði þar til fyrir nokkru. Tvær línur liggja út á Reykjanesið og þær hafa báðar verið óvirk- ar að mestu. Reyndar hafa þær virkað af og til en að- eins í skamman tíma þannig að um stöðugan straum hef- ur ekki verið að ræða.“ — Línurnar hafa þá ekki slitnað? „Nei, það virðist ekki vera. Við höfum ályktað að þetta stafi aðallega af veðurofsan- um. Salt og krapi hafa líkast til valdið yfirslætti á línun- um. Þó vitum við ekkert fyrir víst, þar sem ekki hef- ur verið unnt að kanna hvað það er nákvæmlega sem veldur." — Hvað um rafmagns- leysi á öðrum svæðum? „Það virðist ekki hafa ver- ið tilfinnanlegt, en annars höfum við ekki fullkomnar upplýsingar um ástandið því erfitt hefur verið að ná símasambandi við ýmsa staði á landinu. Við höfum reynt að notast við talstöðv- ar og vitum að rafmagnið fór af í Búðardal um kl. 13 og um svipað leyti í Reyk- holtsdal í Borgarfirði. Síð- degis höfðum við fregnir af frekara rafmagnsleysi í Borgarfirðinum, bæði í Norðurárdal svo og á Mýr- um. Við vitum ekki um frek- ara rafmagnsleysi, en þess ber þó að gæta að veðrið er að ganga austur og norður yfir landið. Byggðalínur hafa haldist alveg í lagi og ég veit ekki annað en annars staðar sé ástand raf- magnsmála með felldu,“ sagði Guðjón. Að sögn Harðar Bjarna- sonar hjá Pósti og síma var álagið á símakerfið í gær heldur meira en venjulega, en ekki þó svo að vandræði hlytust af. Undir kvöldmat- arleytið í gær bárust hins vegar fregnir af því að síma- sambandslaust væri við Snæfellsnes, að Stykkis- hólmi undanskildum. Grafið frá bíl í verstu hryðjunum í Hafnarfirði laust eftir hádegið í gær. Grjóthríðin braut allar rúður bflsins „Ég vissi til þess í gær, að bfll á okkar vegum fór áleiðis í Borgar- fjörð til þess að kanna hvað ylli raf- magnsleysinu þar, en hann komst aldrei lengra en undir Hafnarfjall," sagði Guðjón Guðmundsson hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Sagðist Guðjón hafa haft af því fregnir, að þegar þangað var kom- ið hefðu viðgerðarmennirnir neyðst til þess að stöðva bifreiðina vegna grjóthríðar, sem dundi á henni. Brotnuðu um síðir allar rúður í bifreiðinni og urðu einnig frekari skemmdir á bifreiðinni vegna grjóthríðarinnar. Engan viðgerðarmannanna mun hafa sakað. Þá tjáði Guðjón blm., að við- gerðarmennirnir hefðu orðið vitni að því að mannlaus jeppi af Blazer-gerð fauk út af veginum í einni hviðunni. Að þeirra sögn var gífurlega hvasst undir fjallinu í verstu hviðunum. Kópavogur: Strætisvagn- ar óku nem- endum heim „ALLAR ferðir strætisvagnanna voru felldar niður um hádegi í dag,“ sagði Ólöf P. Hraunfjörð, ritari hjá Strætisvögnum Kópavogs, í spjalli við Mbl. í gær. „Tveir vagnar eru nú fastir í bænum og var leitað til Slysa- varnafélagsins, Hjálparsveitar skáta og lögreglunnar til að losa fólk úr vögnunum og koma þeim heim. Allt er ófært hérna í Kópa- vogi, skyggni mjög slæmt og snjó- þungt. í dag voru strætisvagnar sendir í alla grunnskóla í Kópavogi og óku þeir börnunum heim. Margir hafa hringt hingað í dag og verið mjög áhyggjufullir vegna að- standenda, sem voru á ferðinni með strætisvögnunum, en eins og ég sagði áðan hefur hjálparstarf staðið yfir við að koma fólki, sem sat fast í vögnunum, heim á leið.“ BÍLL ÁRSINS ~"Uno! Bílasérírœðingar 53 blaða í Evrópu greiða atkvœði um athyglisverðasta nýja bílinn á hverju ári. FIAT UNO varð í íyrsta sœti og var þar með kjörinn bíll ársins 1984 í Evrópu. FIAT verksmiðjurnar hafa lagt mikla alúð við hönnun og framleiðslu á UNO og gáfu honum naín sem segir glöggt hvers þeir vœnta af þessum nýja bíl. UNO þýðir fyrsti á ítölsku, nú varð UNO íyrstur og á vafalaust eítir að verða það víða og lengi. Við óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegs árs og þökkum viðskiptin á liðnu ári. Sérstakar hamingjuóskir til þeirra fjölmörgu sem þegar hafa keypt FIAT UNO, sem nú heíur verið kjörinn bíll ársins. " 1929 EGILL VILHJÁLMSSON HF. Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Simar 77200 - 77202 1984

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.