Morgunblaðið - 05.01.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984
7
Talskólinn
Námskeið í framsögn og taltækni. 5 vikur 20 kennslu-
stundir. Námskeiðin hefjast:
9. og 10. janúar
13. og 14. febrúar
19. og 20. mars
Innritun daglega í síma 17505 kl. 16.00—19.00. Þeir
sem hafa þegar skráð sig vinsamlega staðfestið innritun
fyrir morgundaginn, 6. janúar.
Talskólinn,
Skúlagötu 61, aími 17505.
ópavogsbuár
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem:
ermanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
lástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opið fra kl. 9—18 á virkum dögum
og kl. 9—12 á laugardögum.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
Alfabrenna á
Víðivöllum
Hestamannafélagið Fákur verður með barna- og fjöl-
skylduskemmtun á Víðivöllum laugardaginn 7. jan. nk.
kl. 16.00. Skemmtunin hefst á þvi að álfakóngur og
drottning, ásamt fylgdarliði, koma ríöandi inná völlinn
og tendra báliö. Ýmsar uppákomur verða við brennuna.
Veitingar verða í félagsheimilinu v/Bústaðaveg eftir
brennuna og eitthvaö í poka handa börnunum.
Áramótagleði
Áramótadansleikur verður í félagsheimilinu v/Bústaöa-
veg laugardaginn 7. jan. og hefst hann kl. 21.00.
Hljómsveit Auðuns Valdimarssonar leikur.
Miöasala á skrifstofunni og viö innganginn.
Skemmtinefndin.
Ragnheiðarstaðir
Síöasta ferð frá Ragnheiöarstöðum verður sunnud. 8.
jan. kl. 14.00. Allir hestar eru nú komnir á vetrarfóöur og
veröa þeir hesteigendur sem ekki taka hesta sína núna
að hafa samband við skrifstofuna strax og ganga frá
samningi um vetrarfóðrið. Þeir sem ekki gera það, mega
eiga von á að hestar þeirra verði auglýstir og seldir á
uppboði fyrir áföllnum kostnaöi.
Fimm hestar eru nú í óskilum á Ragnheiðarstöðum og
verði þeirra ekki vitjað, verða þeir seldir á uppboði
innan tíðar.
Tamningastöð Fáks
Tamningastöö Fáks tekur til starfa 15. jan. nk. Tamn-
ingamaður verður Hermann Ingason.
Nánari upplýsingar er aö fá á skrifstofu félagsins.
Óskilahestar
Nokkrir hestar eru enn í haustbeitarlöndum félagsins.
Verði hestar þessir ekki teknir fyrir 8. jan. nk. verða þeir
afhentir gæslumanni Kjalarneshrepps, sem óskilahestar.
Hestamannafélagiö Fákur.
Á MYNDINNI SJÁST BRESKAR ORRUSTUÞOTUR ELTA SOVÉSKA HERVÉL AF BEAR-
GERÐ, EN ÞÆR ERU ALGENGUSTU, ÓBOONU VÉLARNAR i LOFTINU VIÐ ÍSLAND.
Radarmál á Flateyri
Eins og kunnugt er hafa farið fram athuganir á hagkvæmni þess aö
settar verði upp radarstöðvar á Vestfjörðum og Langanesi sem
gera myndu kleift að halda uppi stööugu eftirliti dag og nótt með
ferðum flugvéla er nálgast landið úr norðri, hvort heldur þær færu
austan við það eða vestan. Frá völlum sovéska hersins á Kóla-
skaga fyrir austan Noreg koma þær flugvélar sem tilkynna ekki
fyrirfram um ferðir sínar við ísland. Er mikilvægt að unnt sé að sjá
þær eins langt undan landi og frekast er kostur, til þess yrðu hinar
nýju radarstöðvar. Radarinn er hvorki árásar- né ógnarvopn, þótt
andstæðingar varnarsamstarfs íslands og Bandaríkjanna séu þeirr-
ar skoðunar að hann kalli á sovéska kjarnorkusprengju á landið
eins og fram kom í umræöum um radarmálin á Flateyri sem sagt er
frá í Staksteinum í dag.
Gamalli aðferð
beitt á Flateyri
Athyglisvert var að lesa
lýsingu Einars Odds Krist-
jánssonar, framkvæmda-
stjóra á Flateyri, hér í hla<V
inu í gær á því hvernig það
bar til á borgarafundi á
Flateyri að þar voru sam-
þykkt mótmæli gegn
„radarstöð, sem heyrst
hefði að hugsanlega, ef til
vill, yrði reist á Vestfjörð-
um einhvemtíma," eins og
Einar Oddur lýsir máj-
flutningi „friðarsinna"
sem fyrir tillögunni mælti.
Á þessum borgarafundi
Flateyringa var þeirri að-
ferð beitt af þeim sem fyrir
tillögunni stóðu að hún var
ekki flutt fyrr en þorri
manna var farinn af fundi.
Það var klukkan 20 að
kvöldi 8. desember sem
fundurinn hófst en fjórum
tímum og 25 mínútum síð-
ar, eða klukkan 00.25, þeg-
ar bekkir voru orðnir
þunnskipaöir kvaddi „frið-
arsinninn“ sér hljóðs og
vakti máls á nauðsyn þess
að mótmælt yrði hugsan-
legri radarstöð. Þegar tiF
lögunni var andmælt og
spurt „hvaða nauð ræki
þessa góðu menn til að
læðast um nótt með þetta
hjartans mál sitt, þeir hlytu
að eiga margan betri kost,
ef þeir af einlægni vildu
kanna hug Flateyringa til
þessa máls“ gerði einn til-
lögumanna kröfu um að
mælendaskrá yrði lokað.
Sú krafa var að engu höfð
og gengið til atkvæða
klukkan 1.10, |>á voru 26 á
fundi, 13 greiddu atkvæði
með mótmælunum, 10 á
móti, 3 sátu hjá. Frá þess-
ari samþykkt var síðan
sagt í frétt sem slegið var
upp yfir þvera baksíðu
Þjóðviljans 21. desember
síðastliðinn.
Lýsingin á því sem gerð-
ist á borgarafundinum á
Flateyri kemur heim og
saman við aðferðir sem
skjólstæðingar og fylgis-
menn Þjóðviljans hafa
beitt allt frá því Kommún-
istaflokkur fslands var
stofnaður 1930, að sitja
lengst á fundum og færa
sér í nyt tímaskort, þreytu
eða óþolinmæði þorra
fundarmanna í þeim til-
gangi að flytja vafasamar
og óvinsælar tillögur þegar
öruggt er talið að skoðana-
bræður sitji eftir og myndi
meirihluta á fundinum.
I>essari aðferð hefur ekki
aðeins verið beitt hér á
landi óteljandi sinnum
heldur einnig í útlöndum
og eru til margar kunnar
sögur af slíkum fundum.
Hin greinargóða frásögn
Einars Odds Kristjánsson-
ar af radarmálinu á Flat-
eyri er kærkomin í þennan
sagnaflokk, sem lýsir
glöggt vinnubrögðum
þcirra sem vita að |>eir ent
minnihluti en beita brögð-
um til að ná sínu fram og
kynna það síðan f nafni
þeirra sem farnir voru af
þeim fundi sem sagður er
hafa ályktað.
Hræðslu-
áróður
Um málflutning radar-
andstæðinga á Flateyri
segir Einar Oddur Krist-
jánsson meðal annars:
„Röksemdin var gamal-
kunn í þá veru að bágt sé
að fá 1 hausinn — atóm-
bombu, og því vart hygg-
inna manna háttur að hafa
nærri sér þau mannvirki
sem vakið gætu tortryggni
góðra vina í Austri." Á
Flateyri hafa tillögumenn
gegn radar sem sé gripið til
hræðshtáróðursins sem
herstöðvaandstæðingum
hefur verið svo kæn Ef
haldið er uppi vörnum á ís-
landi, kasta Kremlverjar á
okkur kjarnorkusprengju!
Þeir sem þennan
hræðshiáróður stunda hér
á landi eru eins og kunn-
ugt er þcirrar skoðunar að
í grundvallaratriðum séu
Sovétríkin ívið betra risa-
veldi en Bandaríkin og
Sovétmenn geri ekkert á
hlut annarra þjóða nema
vegna þess að Bandaríkja-
mcnn komi þeim til þr*ss,
samanber til dæmis áróð-
urinn eftir að sovésk her-
þota sendi eldflaug á varn-
arlausu suður-kóresku far-
þcgavélina um að sú árás
hafl í raun verið Banda-
ríkjamönnum að kenna
eða að innrásin í hið hlut-
lausa og grandalausa Af-
ganistan sem stóð utan
hernaðarbandalaga hafl
verið nauðsynleg vegna
þess að Bandaríkjamenn
væru að leggja landið und-
ir sig sem þó hafði lotið
stjórn marxista og leppa
Kremlverja í rúmt ár.
Hræðsluáróðurssinnar
bæði hér á landi og erlend-
is leggja höfuðáherslu á að
Kremlverjar muni láta þá
finna fyrir kjarnorku-
sprengjunni sem liggja
ekki flatir fyrir, en dæmin
um suður-kóresku farþega-
vélina og Afganistan sýna,
að það eru einmitt þeir
sem sýna andvaraleysi eða
villast af leið sem verða
sovéskum vopnum að bráö.
Er ekki nær að taka mið af
þcim staðreyndum heldur
áróðri þeirra manna á
Vesturlöndum sem hafa
haft rangt fyrir sér í um-
ræðum um utanríkis- og
varnarmál í 40 ár? Þjóðvilj-
inn er málsvari þeirra sem
alla jafnan taka rangan pól
í hæðina þegar öryggi ís-
lensku þjóöarinnar kemur
til umræðu enda miða þeir
staðarákvarðanir sínar við
það að sólin komi bæði upp
og setjist í austri.
Poppe-
loftþjöppur
1
Útvegum þessar
heimsþekktu loft-
þjöppur í öllum stærö-
um og styrkleikum,
meö eöa án raf-,
Bensín- eöa Diesel-
mótórs.
SöojiiF(la(ui@(uioj
Vesturgötu 16.
Sími 14680.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
731Qamatkaðutinn
^•tettifýötu 12-18
Toyota Crown diasal Station 1961
Hvítur. Eklnn 52 þú». km. sjáltskiptur, afl-
stýrl, útvarp. segulband. snjó- og sumar-
dekk. Verö 395 pús. (Skiptl.)
Oaihatsu Taft diesel 1982
Hvitur. Eklnn aöeins 9 þús. km. Sporttelgur
o.fl. Verö 410 þús.
Datsun Cherry GL 1963
Blásans. Eklnn 20 þús. km. 5 gira, útvarp.
silsalistar, grjótgrind. Verö 265 þús. (Sklpti.)
Toyota Crown diesel 1982
Blágrár. Ekinn 33 þús. Sjáltskiptur, aflstýri,
útvarp. segulband, snjó-dekk, sumardekk,
grjótgrlnd, overdrlt. Verö 490 þús. Skiptl á
ódýrari.
Daihatsu Charada XTE 1961
Rauöur. Eklnn 41 þús km. Sparneytlnn
framdrifsbill. Verö kr. 185 þús. Góö lán.
Datsun Klng — Cap 1980
Rauöur. Ekinn 56 )>ús. km. Útvarp o.fl.
Plymouth Volaire Premier
1979. Grænn m. vlnyltoppl. Ekinn 23 þúa.
km. sjálfskiptur, sflstýri, útvarp, segulband.
snjó- og sumardekk. Vandaóur bfll. Verö
270 þús. (Skipti.)
International Scout 1979
Blár og hvitur, 8 cyl., sjálfskiptur með öllu.
Utvarp og segulband, breiö dekk. sporttelg-
Volvo 245 GL 1962
Gráblár. Eklnn 33 þús. Aflstýri. útvarp, seg-
ulband, snjó- og sumardekk, overdrive.
silsalistar, grjótgrind, dráttarkúla, litaö gler
Verö 460 þús. Skipti BMW o.tl.