Morgunblaðið - 05.01.1984, Síða 11

Morgunblaðið - 05.01.1984, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 11 Fyrsta ræningjaskipið kom að landi í Grindavík, hélt þaðan fyrir Reykjanes og inn á Skerjafjörð, síðan vestur undir Snæfellsnes og lét þaðan í haf. Nokkru síðar komu tvö skip að landi í Lóni, sigldu því næst inn á Berufjörð og þaðan norður með landi allt til Reyðar^jarðar. Þau hittu hið þriðja, er þau héldu aftur suður um, og fóru öll til Vestmannaeyja. Teikning Halldórs Péturssonar í bókinni Tyrkjarínið eftir Jón Helgason. Þessu Ifk hafa þau verið ræningjaskipin þrjú sem sigldu vestur með suðurströnd íslands í júlímánuði 1627. Þau námu staðar austan undir Heimaey. Teikning Halldórs Péturssonar Tyrkjaránið Ránskapur Algeirsborgara í Grindavík, á Austfjörðum og í Vestmannaeyjum árið 1627 er nafnkunnasta herhlaup til Islands á fyrri öldum. Fáir viðburðir hafa lostið þjóðina með slíku afll, enda voru a.m.k. 40 íslendingar vegnir, 364 hnepptir í þrældóm og margir særðir. Tyrkjaránið 1627 er af- drifaríkasta og nafnkunn- asta herhlaup til íslands á fyrri öldum. „Tyrkirnir“, sem raunar voru serkneskir sjóræningjar frá Algeirsborg í Norður-Afríku, gerðu hér mikinn usla, einkum á Aust- fjörðum og í Vestmannaeyj- um; drápu fólk, særðu og herleiddu, og rændu öllu fémætu sem þeir komust yf- ir. Vitað er um 40 íslendinga sem vegnir voru af ræningj- unurn, en samtals hnepptu þeir 364 íslendinga, þ.á m. konur og börn, í ánauð og fluttu með sér til Algeirs- borgar. Að auki felldu þeir hér marga Dani og herleiddu áhöfn dansks kaupskips. Um helstu þætti atburðanna 1627 höfum við fulla vitneskju. Varðveittar eru margvíslegar rit- heimildir um þá, og hefur þeim helstu verið safnað saman í bók- inni Tyrkjaránið á íslandi sem Sögufélagið gaf út á árunum 1907—09. Því miður hefur ekkert fræðirit, sem uppfyllir kröfur nú- tímalegrar sagnfræði um heimildarýni, verið samið, en sú bók sem næst kemst því er rit Jóns Helgasonar Tyrkjaránið sem kom upphaflega út fyrir tveimur áratugum en hefur nú verið gefið út á ný. Sú bók er fróðleg og skemmtileg, og afar vel skrifuð. A Tyrkjaránið er svo auðvitað minnst í öllum yfirlitsritum um íslandssögu 17. aldar, ýtarlegast í Sögu íslendinga (V. bindi) eftir Pál Eggert Ólason. Varnarleysi íslendinga Á 17. öld var ekkert varnarlið á Islandi, og vopnabúnaður lands- manna fátæklegur. Dönsk herskip voru af og til úti fyrir ströndum landsins, einkum til að vernda fiskiskip og kaupför, en eftirliti með landinu sjálfu var illa sinnt, og megnaði ekki að hindra strandhögg og ránskap á borð við Tyrkjaránið. Að vísu höfðu varn- arvirki verið reist í Vestmanna- eyjum og á Bessastöðum, að frum- kvæði danskra valdsmanna, en þeim var ekki haldið við sem skyldi, og virkið í Eyjum kom t.d. ekki að haldi þegar þangað kom enskur ræningjaflokkur og lét greipar sópa árið 1614. Vestmann- eyingar virðast heldur ekki hafa dregið neinn lærdóm af herför Englendinga og viðbúnaður var lítill þegar Algeirsborgarar gerðu herhlaup sitt tæpum hálfum öðr- um áratug síðar. „Kom þessi ráns- ferð á landsmenn sem þruma úr heiðríkju," segir Páll Eggert Óla- son í sögubók sinni. Algeirsborgarar voru alkunnir ræningjar í suðurhöfum, um Mið- jarðarhaf og víðar. Segja má að ránskapur hafi á tímabili verið beinn l r innuvegur ýmissa smá- ríkja múhameðstrúarmanna á norðurströnd Afríku. Tóku menn þúsundum saman þátt í þessum atvinnuvegi, enda studdu stjórn- endur þessara smáríkja beinlínis að því, með því að taka toll af arð- inum. Ekki voru ránsferðir þessar eingöngu farnar í því skyni að ræna skipum og varningi þeirra eða ganga á land upp og gera strandhögg; tilgangurinn var engu síður eða jafnvel, er stundir liðu, mest í því fólginn að ræna mönnum, og virðist það hafa verið arðvænleg tekjulind. Fangarnir voru seldir mansali víðs vegar, en börn þau sem handtekin voru, alin upp í múhameðstrú. Þó var ætt- ingjum eða öðrum oftast gefinn kostur á því að leysa fanga, en lausnargjaldið var jafnan geysi- hátt. Þegar fram liðu stundir efld- ust ræningjaþjóðir þessar svo að herskip þeirra tóku að fara norður eftir höfum, og varð þeirra vart bæði í Spánarflóa, í Norðursjó og við Englandsstrendur. Meðal þeirra sem fengu að kenna á ræn- ingjunum voru kaupför Björgvinj- ar- og Hamborgarmanna. Stund- um héldu serkirnir stórum flotum í víking, gengu þá á land upp og rændu og henpptu menn í fjötra hundruðum saman. Ræningjar sigla norður til íslands Ekki er vitað hver voru tildrög þess að Algeirsborgarar sigldu til íslands, en samkvæmt vitnisburði íslendinga sem leystir voru úr ánauð var það danskur bandingi Algeirsborgara, sem hér hafði ein- hvern tíma dvalið, sem vísaði þeim á landið gegn fyrirheiti um lausn. Hugsanlegt er þó að þau fjögur ræningjaskip sem hingað komu, og munu hafa tilheyrt stærri flota, hafi borið af leið, og ránið á Islandi hafi ekki verið ásetningur Algeirsborgara frá upphafi. Hinn 20. júní 1627 kom eitt ræn- ingjaskip Algeirsborgara til Grindavíkur. Þeir gengu á land og létu ófriðlega, fóru með ránum, særðu fólk og tóku höndum 12 ís- lendinga og nokkra Dani í þjón- ustu kaupmanns þar. Þeir tóku ennfremur tvö dönsk kaupför og rændu, þar af öðru með allri áhöfn. Ræningjaskipið og rænda kaupfarið sigldu síðan inn á Faxa- flóa og voru komin nálægt höfn hjá Bessastöðum að kvöldi 23. júní. Höfuðsmanni Dana á Islandi, Holgeiri Rósenkrantz, sem aðset- ur hafði á Bessastöðum, höfðu þá borist fregnir af viðburðum í Grindavík; hann efndi til liðssafn- aðar og lét gera virki (skans) við sjóinn og flytja þangað byssur. Skip hans sjálfs lá á Seylu við Bessastaði, en að auki stefndi hann til sín tveimur skipum öðr- um, úr Keflavík og Hafnarfirði. Þegar Algeirsborgarar voru komnir í skotfæri við Bessastaði, skutu þeir á land upp, en fengu þá svar úr virkinu. Hlýtur þeim að hafa orðið bylt við, því sennilega hafa þeir ekki átt von á vörn frem- ur en áður. Þeir reyndu að sigla á brott, en þá tókst svo slysalega til að aðalskip þeirra sigldi á grunn. Var logn og ládeyða og tóku ræn- ingjarnir það ráð að flytja varning og fanga af skipi þessu yfir í kaup- farið, uns það var laust, og sigldu síðan báðum skipunum á brott, en tvo daga voru þeir að losa skipið. Á Bessastöðum voru margir þeirr- ar skoðunar að nota ætti tækifær- ið meðan ræningjarnir væru í þessum vanda og ráðast til atlögu við þá. Er ekki ósennilegt að unnt hefði verið að sigra þá. Holgeir Rósenkrantz höfuðsmaður féllst ekki á þetta sjónarmið, og vildi ekki taka áhættuna. „Er bleyði hans í minnum höfð síðan, því að hann hafði hest söðlaðan og bund- inn að húsabaki á Bessastöðum, til þess að geta verið viðbúinn að geta riðið í burt ef í hart færi,“ sagði Páll Eggert ólason. Ræningjarnir lögðu á haf út frá Bessastöðum 25. júní og virðast hafa ætlað að sigia vestur um og norður með landi. Þeir breyttu hins vegar um stefnu og sigldu heimleiðis nokkru síðar, og hafa þeir líklega frétt af herskipum sem Englendingar höfðu þá úti fyrir Vestfjörðum. Ránskapur á Aust- fjörðum og í Eyjum Af félögum ræningjanna í hin- um skipunum þremur er það að segja að eitt var þá enn ókomið að landi, en hin tvö héldu til Aust- fjarða og tóku land i Berufirði 5. júlí. Rændu þeir síðan þar, í Djúpavogi og um næstu byggðir, í Hamarsfirði, Breiðdal og Fá- skrúðsfirði. Þeir tóku höndum 110 (eða 112) íslendinga og 12—13 Dani, drápu 5—6 manns og særðu allmarga. Fjöldi manna náði að flýja til fjalla eða upp á Fljóts- dalshérað. Bárust tíðindi af þess- um atvikum skjótt um land allt, og setti ugg að fólki hvarvetna. Hinn 17. júlí komu austanskipin tvö og hið fjórða, sem þá hafði borið að landinu og slegist með í för, til Vestmannaeyja. í Eyjum bjuggu þá um 400—500 manns, en ræningjarnir sem þangað komu hafa sennilega verið um 200. Uppi- vaðsla ræningjanna stóð í tvo daga, teknir voru 242 fangar, en a.m.k. 34 íslendingar féllu. Mörg hús voru brennd til grunna og fólkinu sýnd fádæma grimmd. Lýsingar sjónarvotta á fólsku- verkum Algeirsborgara eru hroða- legar. Til marks um hrottaskapinn verða hér tilgreind dæmi úr rit- gerð Kláusar lögréttumanns Eyj- ólfssonar frá 1627: „Á meðal annarra varð fyrir þeim (Algeirsborgurum — innskot Mbl.) í sama áhlaupi maður einn af nafni Bjarni Valdason. Þann sama hjuggu þeir og er hans kona, sem með honum gekk, sá það, féll hún strax yfir líkamann með stóru veini. Þeir tóku hennar fætur og drógu hana sem annað hræ ofan af líkamanum, svo fötin komust fram yfir höfuð, og hjuggu þann dauða líkama í stykki eins og sauð til spaðs brytjaðan. En konuna drógu þeir suður að Dönsku-hús- um og snöruðu henni í fanga- flokkinn. Framar fundu þeir eina kvensvift á ferð hlaupandi sem hraðast kunni, en þeir hlupu eftir, þar til hún fæddi sitt fóstur, og datt þar dauð niður, bæði hún og svo fóstrið." Og ennfremur: „Einn mann eltu þeir, að nafni Erlend Runólfsson, fram á hamra; þar tóku þeir hann, færðu úr fötum og settu til eins skotmáls fram á bjarginu, skutu hann síðan í hel, svo hann féll þar 100 faðma ofan af. Kvenpersón- urnar lágu dauðar, sumar stungn- ar, sumar í sundur höggnar við sínar bæjardyr, og svo svívirðilega við skilið, að fötum var flett fram yfir höfuðið, og voru þær þar helst naktar sem síst skyldi. Einn mað- ur, Ásmundur að nafni, lá á sinni sóttarsæng; hann höfðu þeir þrí- stungið í gegn svo hans sæng var rauðlituð í blóði, því það var þeirra mesta lyst og gaman þá framliðnu sem mest sundur að saxa ..." I ánauð Þegar Algeirsborgarar höfðu fengið nægju sína af því að ræna og pynta og skelfa Vestmanney- inga fóru þeir á brott með góss sitt og fanga. Ferðin til Algeirsborgar tók mánuð. Þar voru íslend- ingarnir (og Danirnir) seldir mansali og dreifðust; um örlög flestra þeirra er ekkert vitað, en varla hafa þessum mállausu band- ingjum verið búin góð kjör í barb- aríinu. Vitað er að margir íslend- inganna dóu fljótlega, þoldu ekki loftslagið og þrældóminn. Öðru hvoru slapp einn og einn heim á leið. Presturinn Ólafur Egilsson (höfundur Reisubókar sem er merkileg heimild um Tyrkjaránið og aðbúnað Islendinga í Álgeirs- borg) var sendur gagngert árið eftir norður til að afla lausnar- fjár, en hlaut litlar undirtektir. Það var ekki fyrr en tæpum ára- tug síðar að 35 Islendingar voru keyptir úr ánauð fyrir lausnar- gjald, sem goldið var að boði Danakonungs, og fluttir til Dan- merkur. Eitt fyrsta verkið var að fræða leysingjana um höfuðatriði kristindóms; og hafa menn vænt- anlega álitið að þeir hafi orðið fyrir áhrifum frá múhameðstrú meðan á fangavistinni stóð. Þeirri fræðslu gegndi Hallgrímur skáld Pétursson, og er frægt í sögunni að hann kvæntist síðar einni hinna herteknu kvenna, Guðríði Símonardóttur (Tyrkja-Guddu). Sumarið 1637 komu fangarnir loks til íslands, en voru þá einungis 27 eftir; hinir voru látnir eða horfnir. Ótti við „Hund-Tyrkjann“ Tyrkjaránið var geigvænlegur atburður, og mikil skelfing greip þjóðina. Má segja að fáir viðburðir fyrri alda hafi lostið þjóðina með slíku afli og þetta rán. Manntjónið eitt var gífurlegt og jafnast á við að 5000 Danir hefðu horfið úr landi í einni svipan. En óttinn við „Hund-Tyrkjann“, en svo voru ræningjarnir stundum nefndir af því að Algeirsborg laut yfirráðum Tyrkja-soldáns, var ekki betri. Hvenær máttu menn eiga von á því að þessir heiðnu villimenn birtust aftur? Hefur verið fullyrt að allt fram á 19. öld hafi kristni- hald í kirkju og heimahúsum alið íslendinga upp í ótta við „Tyrkj- ann“ og þess gætt að þeir gleymdu ekki þeim voðatíðindum er gerðust hér á landi 1627. Samantekt GM.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.