Morgunblaðið - 05.01.1984, Side 18

Morgunblaðið - 05.01.1984, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANtJAR 1984 ____en þar er íslensk- an grundvallaryidmiðun“ Samtal við Gösta Holm fyrr- verandi prófessor í norrænum fræðum við háskólann í Lundi Gösta Holm prófessor afhendir Karli Gústaf konungi eintak af saensk-íslensku orðabókinni. Benedikt Gröndal sendiherra fylgist meó. — eftir Pétur Pétursson Það var grámyglulegur dagur í desember þegar fréttamaður Morgunblaðsins barði að dyrum hjá prófessor Gösta Holm í Dóc- entgötu númer níu. Tilefnið var að kynnast ripkkru nánar þeim manni sem staðið hefur bak við nýju sænsk-íslensku orðabókina sem út kom fyrir réttu ári. Til- drögum og útgáfu þessarar bókar hefur nokkuð verið lýst áður í Mbl. (20/12 1982, 15/6 og 29/6 1983). Þessari bók, sem er sú fyrsta sinnar tegundar, hefur verið fagn- að hér í Svíþjóð sem menningar- viðburði. í blaðagrein var hún kölluð „ný og betri brú yfir haf málleysisins milli íslands og Skandinavíu. I október sl. færði prófessor Gösta konungi Svíþjóð- ar skrautinnbundið eintak við formlega athöfn í konungshöll- inni. Aður hafði forseta lslands verið fært eintak. íslenskir námsmenn hér í Sví- þjóð, sem nú eru fjölmargir, hafa tekið þessari bók fegins hendi. Hún hefur ekki aðeins gildi sem handhægt uppflettirit heldur hef- ur hún einnig fræðilegt gildi vegna þess hversu nákvæmlega er farið út í blæbrigði orða og orða- sambanda. Hinar greinargóðu leiðbeiningar um beygingar- og hljóðfræði eftir Aðalstein Dav- íðsson menntaskólakennara, sem unnið hefur að bókinni samhliða Gösta Hölm, gera bókina frábær- lega vel úr garði fyrir Svía, bæði almenning og fræðimenn sem vilja setja sig inn í íslenskt mál. Prófessor Gösta bauð komu- manni til sætis í stofu sinni og kveikti upp í arninum. Brátt tók eldurinn að loga vel og gaf nota- lega birtu og yl. íslandsvinurinn bauð upp á sterkt kaffi og góða íslensku og virtist himinlifandi yf- ir því að fá tækifæri til að tjá sig á því máli. „Við Aðalsteinn höfum unnið að þessari bók í 13 ár. Hann hefur oft komið hingað því það var nauð- synlegt að við ynnum náið saman við samanburð orða og orðskýr- inga og ræddum ýmis vafaatriði. Ætli við höfum ekki setið við þannig beint saman í u.þ.b. tvö ár samanlagt, ef við reiknum vinnu- vikuna frá kl. 7 að morgni til kl. 11 að kveldi sjö daga vikunnar. f gegnum þetta samstarf höfum við orðið perluvinir. Mikil vinna hefur farið fram auk þessa og þar hafa auk okkar komið við sögu nemend- ur mínir í norrænu deildinni hér við háskólann og ýmsir fleiri. Ólafur Sigurðsson verkfræðingur í Malmö og dr. Sigurður heitinn Þórarinsson lásu yfir próförk að allri bókinni. Þessi bók er að mínu viti einstök í heiminum að því leyti að hér eru tæmandi leiðbein- ingar um beygingu hvers einasta íslensks orðs. Þetta gerir bókina ekki síður notadrjúga fyrir Svía en fslendinga." Nú hefur þú nýlega verið í Stokkhólmi og fært konungi eintak af bókinni. Hvernig brást hann við? „Jú, hann vildi fá að vita hversu lengi ég hefði unnið að henni, einnig spurði hann um ýmislegt varðandi innihald hennar. Sendi- herra fslands, Benedikt Gröndal, var þarna viðstaddur og lagði hann áherslu á hversu vel hún væri úr garði gerð. óskaði kon- ungur mér þá innilega til ham- ingju með bókina." Heldur þú að konungur hafí áhuga á íslenskri menningu? „Það veit ég ekki, en ég veit að drottningin hefur það, en hún var því miður ekki viðstödd." Hvernig stóð á því að þú fékkst svo mikinn áhuga á íslenskunni? „Það byrjaði eiginlega þegar ég var meðal bænda í Norður-Svíþjóð og var að rannsaka viss orðasam- bönd í talmáli þeirra. Þetta var á fjórða áratugnum. Sem norrænu- fræðingur hef ég að sjálfsögðu ætíð gert mér grein fyrir mikil- vægi íslenskunnar einkum þegar um er að ræða samanburðar- rannsóknir á skandinavískum mállýskum, en þar er íslenskan grundvallarviðmiðun. Ég fór þó ekki til íslands fyrr en 1956 og þá með það fyrir augum að læra mál- ið. Ég vann þar alls konar vinnuu, byggingarvinnu, sveitastörf o.s.frv. Ég tel það nauðsynlegt til þess að læra málið að starfa með fólkinu og taka þátt í daglegu lífi þess í raun og veru. Síðan hef ég oft farið til íslands, svo oft að ég kem ekki tölu á þær ferðir. Ég á margar minningar um gott fólk og frábærar móttökur." Þú ert formaður Sænsk-íslenska félagsins fyrir Suður-Svíþjóð. „Já, frá 1965 eða þar um bil, og ég hef verið það síðan. Félagið var endurreist rétt um það leyti en það hafði verið starfandi með vissu millibili allt frá þriðja eða fjórða áratug þessarar aldar. Við stofnuðum tímarit félagsins sem heitir „Garðar", og er árbók fé- lagsins. Hliðstætt félag er einnig starfandi í Stokkhólmi og er það mun eldra en okkar. Við höfum rúmlega 300 félaga og komum saman á fundum nokkrum sinnum á ári. En það vinsælasta hjá okkur, og það sem íslendingarnir sækja mest með börnum sínum, er Luciuhátíðin sem er einskonar jólahátíð félagsins. Það er takmark okkar nú að fá Vigdísi forseta hingað til Lundar til þess að halda fyrirlestur um íslenska leiklist. Hún hefur lofað mér því að koma og hér ríkir mikil tilhlökkun í tilefni þessa." Finnst þér sem áhugi á tslandi og íslenskum málum hafí aukist í Sví- þjóð? „Já, alveg tvímælalaust og þessi áhugi birtist á ýmsan hátt og ég get nefnt nokkur dæmi. Bæjar- Græskulaust gaman? eftir Þórð Kristinsson Vinsælt umræðuefni þessa daga í veröldinni er stríð, eða nánar til- tekið sú hætta sem yfir öllu vofir vegna þeirra tóla sem maðurinn hefur dundað við að finna upp og smíða. Hættan sem af þessum smíðisgripum stafar er kölluð kjarnorkuvá og tólin í einu lagi kjarnorkuvopn eða gereyðingar- vopn, en afbrigðin eru fjölmörg og heita aðskiljanlegustu nöfnum sem við kunnum ekki að éta upp, enda skipta þau engu. Sammæli er meðal umræðenda að tólin séu af hinu illa sem svo er kallað og reyndar svo ill að helst megi ekki nota þau, en leiðir skipt- ast um það hvort grípa megi til þeirra í nauðvörn eða alls ekki hvað sem í skerst. Sammæli er nefnilega um djöfullegar afleið- ingar verði tólunum beitt. Nauð- vörn gerir ráð fyrir að sótt sé að þeim er verst, en allir sem einn hafa aðiljar svarið og sárt við lagt PÉTIJH Sveinbjarnarson hef- ur selt hjónunum Sigurlaugu Sveinsdóttur og Arngrími Friógeirssyni veitingahúsið Ask á Laugavegi í Reykjavík. Mun staðurinn hljóta nafniö Hjá kokknum, innan tíöar, en Pétur mun áfram eiga nafniö Ask og reka veitingastaðinn á Suðurlandsbraut undir því nafni. Pétur Sveinbjarnarson sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gær, að sala Asks á að sókn sé þeim fjærst hugðar- efna, svo vörnin virðist aldrei þurfa að koma til standi menn við loforðin. En loforð eru bara loforð og menn keppast við að auka og endurbæta tólin, lagfæra þau og finna þeim nýja og nýja staði. Segja sumir að nú sé svo komið, reyndar fyrir margt löngu, að sprengja megi heiminn oftar en einu sinni með þessu dóti, þótt engum sé ljós akkurinn af slíkum óþörfum og vísast ókleifum endur- tekningum. Nú virðist ljóst að allt þetta brambolt er út í hött með því eng- inn segist ætla að sækja og því þarf enginn að verjast. Samt sem áður er smíðakeppninni haldið áfram og sífellt meira og meira lagt undir. Astæðan sýnist eink- um sú að á einhvern dularfullan hátt hefur til einföldunar orðið samkomulag um að mannfólkið skiptist í tvær fylkingar sem kunna ekki að sættast. Skiptingin Laugavegi væri liður í áætlunum fyrirtækisins að fækka rekstrar- einingum um leið og aðrar yrðu stækkaðar. Veitingamaðurinn hf. myndi áfram reka Höfðakaffi og kjötvinnsludeild sína í Fellagörð- um, Askur á Laugavegi yrði áfram starfræktur og rangt væri, sem fram hefði komið í blöðum, að fyrirtækið hefði selt veitingabíl- ana. „Við erum síður en svo að daga saman seglin," sagði Pétur, „og við reiknum með því að þegar í aprílmánuði næstkomandi muni matarsala okkar verða orðin jafn- mikil og var áður en við seldum Ask á Laugavegi." mun víst ráðast af ólíkum skoðun- um um það hvers konar mannlífi skuli lifað í veröldinni, og verður þeim ekki hnikað. En svo óheppi- lega vill til að veröldin er einungis ein og því ekki í önnur hús að venda, a.m.k. ekki enn sem komið er. Af þeim sökum eru dregnar línur millum fylkinga og kapp lagt á nýsmíði svo annar troði hinn ekki undir. Smíðarnar síðan sagð- ar stundaðar í þeim tilgangi að viðhalda jafnvægi millum fylk- inga og á báða bóga er gripið til samhljóma hugtaka, svo sem eins og „réttlætis" og „hagsmuna fjöld- ans“, til réttlætingar. Það sem hér um ræðir kallast sjálfhelda með því bógarnir báðir segjast vilja „frið“, en neyðin reki þá út í ófögnuðinn; m.ö.o. geti þeir ekki hætt þessum leik, tólin verði að smíða til að týna ekki friðnum. Ef við gefum okkur að allÍT vilji frið, þá virðist vandinn sem sjálfheldumenn hafa gert upp við sig vera þessi: Að téður viðbúnað- ur sé, þegar öllu er á botninn hvolft, síðri djöfull en að láta troða upp á sig lífsgildum sem þeir hafa megnustu óbeit og fyrir- litningu á, og sem sjálfhelduklaf- inn leyfir þeim alltjent að halda frá sér. Og svo er „lifað“ í voninni um betri tíð þótt vitað sé að eng- inn verður sigurvegarinn. Út af fyrir sig kann þetta svo- sem að hljóma ágætlega; á meðan passað er upp á jafnvægið verður alltílagi; á meðan enginn fiktar í tólunum verður alltílagi. En ef við lítum til sögunnar þá hefur mað- urinn sjaldan í raun og veru þekkkt eiginlegan frið; „friður" er ekki eiginlegur ef hann styðst við ofbeldi, vopnavald. Ofbeldi elur nefnilega af sér ofbeldi. Og „frið- ur“ við slíkar aðstæður er aldrei eiginlegur né varanlegur. Sagan er uppfull af friðarhreyfingum og hrópum um frið, en fyllri af blóð- ugum átökum og algeru miskunn- arleysi mannsins við manninn. Þóréur Kristinsson „En ef við lítum til sög- unnar, þá hefur maður- inn sjaldan í raun og veru þekkt eiginlegan frið; „friður“ er ekki eiginlegur ef hann styðst við olbeldi, vopnavald. Ofbeldi elur nefnilega af sér ofbeldi. Og „friður“ við slíkar aðstæður er aldrei eigin- legur né varanlegur.“ Loforð eru nefnilega bara loforð eins og við sögðum, þau eru mannasetningar sem maðurinn treystir ekki, þau eru m.ö.o. orðin tóm. Og þar stendur grefils hníf- urinn einmitt í kúnni: Menn sjá þverbrestinn í vopnuðum friði, en óttinn rekur þá áfram; óttinn og vantraustið. Þeir þora alls ekki að hætta djöfulæðinu, því hugsunin er ein og hin sama; ef ég hætti þá er ég varnarlaus og hvernig dettur þá hinum í hug að hætta? Áfram er því haldið að basla við jafnvæg- ið í þeirri undarlegu von að ekkert beri útaf, þótt öllum sé ljóst, nenni þeir að gefa því gaum, að þvílíku bauki lýkur einungis á einn veg; með þvf sem menn kalla gjöreyð- ingu. Og þá er náttúrulega sjálf- hætt. Málið er í eðli sínu svo grát- lega einfalt; á meðan til eru vopn er ætíð hætta á því að þau verði notuð; ef þau eru ekki til verða þau ekki notuð. Verst hvað um- búðirnar eru flóknar. En í þeim efnum virðist sama reglan einmitt gilda um mennina og um rollurn- ar; Á meðan ekki fer ein fer engin, en þegar ein er farin er annarri hætt. Við vitum öll hver staðan er, við þekkjum raunveruleika mannsins eins og hann er, og við höfum hugmyndir um hvernig hann gæti orðið ef maðurinn nýtti sér mögu- leika sína til fulls. Vandinn er að velja og enginn velur fyrir mann- inn nema hann sjálfur. Vandinn er að koma manninum til nokkurs siðgæðisþroska; fá hann til að sjá og skilja hverjir eiginlegir hags- munir hans eru, ef hann hefur þá einhvern áhuga á því. Sumir velja sér guði og biðja að hjálpa sér; aðrir biðja hann fyrirgefningar á verkum sínum, þeir réttlæta verkin fyrir sjálfum sér með því að telja sér trú um að guð hafi fyrirgefið þeim. Tíðum eru þetta sömu mennirnir, en til allrar óhamingju fyrir þá og alla aðra kemur enginn þeim til hjálpar nema þeir sjálfir. Og á endanum hlýtur málstaður allra manna að vera hinn sami, að gera lífið sem þeim er trúað fyrir sem bæri- legast. Réttlætingamenn stríðs og oflbeldis vaða því í villu þótt þeir kunni að vita betur; en því miður er óttinn rökvísinni yfirsterkari. Erfiðasta leiðin er eina leiðin; að leggja niður vopnin. En máske er það einber mis- skilningur eða saklausir draumór- ar að ætla manninum annað hlutskipti en að farast í eldi gjör- eyðingarinnar; a.m.k. virðist fátt í sögunni benda til annars. Og það er náttúrulega lausn út af fyrir sig. Þórður Kristinsson er prófstjóri Háskóla íslands. Askur á Laugavegi skiptir um eigendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.