Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.01.1984, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984 piurjjitinífrlafoiifo Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, simi 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakið. Aflakvótinn og starfshættir Alþingis Frumvarp til ákvörðunar aflamarks, svokallað kvótafrumvarp, var mikilvæg- asta mál Alþingis það sem af er vetri, e.t.v. að fjárlögum einum undanskildum. Það vakti því verðskuldaða athygli þegar Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, forseti Sameinaðs þings, greindi frá því í fréttaviðtali við Morgunblaðið, að efri deild Alþingis hafði málið aðeins einn sólarhring til umfjöllunar og afgreiðslu. Svo hratt vóru trippin rekin í önnum síðustu starfsdaga Alþingis fyrir jóla- hlé. Þessi ummæli leiða hugann að starfsháttum Alþingis, sem m.a. koma fram í því, að mál eru afgreidd á hraðferð í skammtíma fyrir þinghlé um jól og þinglausnir að vori. í annan tíma virðist hægagangur á þingstörfum. Hyggilegra væri að dreifa verkefnum jafnar á starfstímann. Um árabil hafa verið flutt frumvörp til breytinga á þing- skaparlögum og svo er enn á j þessu þingi. Heildarendurskoð- : un á þingsköpum fór síðast ! fram hjá milliþinganefnd, sem j kosin var af Alþingi 1966 og | lögfest 1972. Eftir þann tíma hafa þær breytingar einar verið , gerðar, er varða fjölda manna í | fjárveitinganefnd. Árið 1978 1 var kjörin þingnefnd til endur- | skoðunar á þingskaparlögum, er vann allnokkurt starf sem leiddi ekki til breytinga á þeim. 1 Samkomulag hefur nú orðið ! milli forseta Alþingis og for- manna þingflokka að setja níu manna þingnefnd, sem þegar hefur verið kosin, til að endur- skoða gildandi lög um þingsköp Alþingis. Skai nefndin leggja niðurstöður sínar fyrir þingið svo fljótt sem við verður komið. Nauðsynlegt er að setja tillög- um til þingsályktunar, fyrir- I spurnum og umræðum utan dagskrár skýrari mörk, en þess- ir þrír þættir þingstarfa hafa vaxið mjög mikið hin síðari ár- in og þrengt að meginverkefni , Alþingis, löggjafarstarfinu. Þorvaldur Garðar Kristjáns- ! son lét þá skoðun í ljós í viðtali við Mbl., að fresta hefði mátt t afgreiðslu frumvarps um afla- mark „fram yfir áramót, svo betri tími gæfist til athugunar þess“. — Fljótaskrift geti orðið á þingstörfum fyrir þingfrestun og þingslit, en það sé ekki til fyrirmyndar. Auk þess bar að hafa í huga alvöruþunga þessa máls, sem um var að ræða, og grundvallarþýðingu þess fyrir undirstöðuatvinnuveg þjóðar- innar. — „Standa verður á verði um að störf Alþingis fari vel úr hendi. Með deilda- skiptingu Alþingis á að vera svo um hnúta búið að lagagerð megi vera sem vendilegast unn- in. Það getur svo bezt verið gert, að síðari þingdeild, sem fær frumvarp til meðferðar, gefist ráðrúm til þess að vega og meta það sem frá fyrri þing- deild kemur og leiðrétta og breyta því sem efni standa til. Að mínu áliti mátti koma við slíkum vinnubrögðum við með- ferð frumvarps um kvótakerfi, þar sem ekki ræki nauður til að málið væri afgreitt áður en Al- þingi frestaði fundum sínum vegna jólahátíðar," sagði for- seti þingsins í tilvitnuðu viðtali við Morgunblaðið. Hann sagði það ekki koma sér á óvart að fresta hafi þurft aðgerðum í þessum efnum þar til síðla í febrúarmánuði. Kristján Ragnarsson, for- maður og framkvæmdastjóri LIU, telur hinsvegar, að „þörf hafi verið á því, að Alþingi markaði stefnuna í málinu og á grundvelli þess sé verið að vinna að málinu og það eigi að vera hægt að kynna endanlegar niðurstöður vel áður en vertíð hefst fyrir alvöru." „Ef Alþingi hefði ekki veitt heimild til ákvörðunar aflamarks, hefðum við ekki tekið þátt í því að vinna það verk, sem þarna er um að ræða,“ sagði formaður LÍÚ í viðtali við Mbl. Það vóru alvarleg tíðindi þeg- ar fiskifræðingar kunngjörðu niðurstöður sínar um stofn- stærð þorsks fyrir skömmu og gerðu tillögur um nær helmingi minni afla 1984 en á land fékkst tveimur árum fyrr, 1982. Það var óhjákvæmilegt að bregðast við af ábyrgð og festu. Engu að síður, og hvað sem efnisatrið- um hinna nýju laga um veiðar í fiskveiðilandhelginni líður, verður það að teljast „fljóta- skrift á þingstörfum", svo not- uð séu orð forseta Sameinaðs þings, að knýja svo mikilvægt mál fram á jafn skömmum tíma og raun varð á, ekki sízt með hliðsjón af því hver drátt- ur verður á framkvæmdinni. Er ekki að efa að einstök atriði kvótamálsins verða hvort eð er rædd á þingi er það kemur sam- an aftur. Þetta mál varðar at- vinnu tugþúsunda fólks, af- komu fjölda sjávarplássa og þjóðarbúskapinn í heild, enda eru sjávarafurðir rúmlega þrír fjórðu af útflutningstekjum okkar. Það er ekkert flýtisverk að ráða slíkum málum til far- sælla lykta. Afgreiðsla þessa máls hefur sett starfshætti Alþingis í smá- sjá almannaathygli. Alþjóð mun því hiusta grannt eftir því, hvað heyrist frá þingnefnd, sem nú vinnur að endurskoðun laga um þingsköp Alþingis. Það var margt um manninn á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í gær. Þangað kom fólk strax um hádegi, en lögreglan reyndi < heim. Fjöldi manns leitaði aðstoðar ÞAÐ VAR fjölmennt á lögreglustöð- inni við Hverfisgötu þegar blaðamað- ur og Ijósmyndari komu þangað á sjötta tímanum í gærkvöldi. Þar beið fólk þess að komast til síns heima, en á vegum lögreglunnar voru tvær stórar flutningabifreiðir, auk lögreglubif- reiða sem óku fólkinu heim þar sem því var við komið. Farnar höfðu verið ferðir í Vesturbæinn, miðbæinn, Árbæ og Neðra-Breiðholt, en ekki var unnt að komast í Efra-Breiðholt. Þeir sem lengst höfðu beðið komu á stöðina um hádegisbilið, kom lög- reglan skilaboðum í útvarp og bað fólk að vera ekki á ferli nema nauð- syn krefði. Margir komu síðan á lögreglustöðina þegar Strætisvagn- ar Reykjavíkur hættu að ganga um hádegisbilið. Þá voru í gær á vegum lögregl- unnar þrír kranabílar og jeppar við að fjarlægja minni bifreiðar af göt- „Ævintýri sem maður hefur gaman af eftir á“ Gunnar Jónsson, sem var einn hinna fjölmörgu sem biðu þess að fá heim- ferð með lögreglunni í gær. Ljósm. Mbl./Lárus Karl. „ÉG ÆTLAÐI að ná leið 3 í Háaleitið og var búinn að bíða á Hlemmi í tvo tíma, fór þá hingað og ætli ég sé ekki búinn að vera hér í klukkustund,“ sagði Gunnar Jónsson í spjalli við blaðamann á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í gær. „Síðan ég kom hef ég setið hér sem fastast og hinkra í rólegheitun- um eftir því að fá far heim. Lögregl- an á þakkir skilið fyrir hvernig þeir hafa tekið á móti okkur hér á stöð- inni, en reyndar var ekki laust við að ég færi hjá mér þegar ég kom hingað inn, því að ég var ekki fyrr kominn í gættina en einn lögreglu- maðurinn kallaði hvellum rómi: „Þennan þekki ég!“ rétt eins og ég væri góðkunningi lögreglunnar. Eins og gefur að skilja varð ég hálf feiminn við svona yfirlýsingar lög- reglunnar og skildi ekkert hvað þessi orð áttu að þýða. En fljótlega kom í ljós að maðurinn meinti ekk- ert nema vel, hann er víst ættaður úr Borgarfirðinum líka. „Nei, ég hef nú aldrei lent í svona nokkru áður, en þetta gengur yfir og líklegast hefur maður bara gaman af þessu ævintýri eftir á,“ sagði Borgfirðingurinn Gunnar Jónsson að lokum. Beðið eftir ferð í Breiðholtið Steinunn, Signý og Aðalsteinn „VIÐ ERUM nú ekki búnar að bíða hérna nema í hálftíma, vor- um að koma frá því að sækja Að- alstein á barnaheimili Landspítal- ans og þar þurftum við að bíða nokkra stund,“ sögðu þær Stein- unn Pétursdóttir og Signý Gests- dóttir, hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum. Þær voru á leið í Breiðholtið með Aðalstein Hákon- arson, son Signýjar, og var ekki annað að sjá én að sá stutti hefði gaman af ævintýrinu. Aðalsteinn Hákonarson sat hinn rólegasti á lögreglustöðinni við Hverfisgötu meðan beðið var eftir ferð í Breiðholtið. Ljósm. Mbl./Lárus Karl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.