Morgunblaðið - 05.01.1984, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984
25
iftir bestu getu að hjálpa því við að koraast
Ljósm. Mbl./Lárus Karl.
lögreglu
um borgarinnar, þannig að snjó-
ruðningstæki kæmust leiðar sinnar.
Þá hafði lögreglan samband við all-
ar björgunarsveitir á höfuðborg-
arsvæðinu og lögðu því margir hönd
á plóginn við að hjálpa vegfarend-
um og ökumönnum sem áttu í erfið-
leikum vegna veðurs og ófærðar.
Unnur Þórðardóttir með bókina sem
hún hugðist lesa meðan á biðinni
Stæði. Ljósm. Mbl./Lárus Karl.
„Búin að
bíða í 5
tíma“
„ÉG KR búin að bíða þess að komast
heim í Fífuselið frá því að ég hætti að
vinna á hádegi í dag, fyrst í biðskýlinu
á Hlemmi, en síðan fór ég hingað yfir
á lögreglustöðina,“ sagði llnnur Þórð-
ardóttir, þegar blaðamaður hitti hana
á lögreglustöðinni við Hverfisgötu.
„Það var orðið kalt að bíða á
Hlemmi svo að maður varð fegin því
að koma hingað á stöðina þar sem
tekið var á móti fólkinu með heitu
kaffi. Jú, ég hef nú lent í svona
klandri áður,“ sagði Unnur aðspurð,
„en þá þurfti ég ekki að bíða nema í
þrjá tíma. Hvenær farið verður í
Breiðholtið hefur ekki verið sagt
ennþá, svo að maður bíður bara
rólegur," sagði Unnur og var í óða
önn að taka umbúðir utan af bók
sem hún hugðist lesa meðan á bið-
inni stæði. „Mestar áhyggjur hef ég
af því að lenda í erfiðleikum við að
komast inn til mín, ég talaði við
eiginmanninn áðan og skilst að það
hafi skafið all rækilega fyrir úti-
dyrnar!" sagði Unnur Þórðardóttir
að lokum.
Bjargaðist inn í næsta hús
— og var drifinn þar í þurr
föt, kaffi og meðlæti
ÞÓRIR Ingibergsson trésmiður var
ásarat félaga sínum við vinnu í ný-
byggingu efst í Seljahverfi Breið-
holts í gærmorgun þegar illviðrið
skall á. Um klukkan ellefu ákváðu
þeir að hætta og freista þess að kom-
ast yfir á verkstæði fyrirtækisins í
Árbæjarhverfi.
„Við ætluðum að fara hvor á
sínum bíl og vera í samfloti," sagði
Þórir, þegar blaðamaður Mbl. hitti
hann að máli í Bíóhöllinni í
Mjóddinni þegar veðrið var tekið
að ganga niður um kaffileytið.
„Það tókst þó ekki betur til en svo,
að ég sat fastur efst á Seljabraut-
inni og þar með missti ég af hon-
um. Bílar voru stopp bæði fyrir
framan mig og aftan, þar á meðal
strætisvagn. Fljótlega kom snjó-
ruðningstæki og losaði örlítið um
en fljótlega varð allt stopp aftur
og enginn fékk sig hreyft. Þá var
klukkan hálf eitt eða eitt.
Svo sat ég bara rólegur í bílnum
og beið, hlustaði á óveðurs- og
ófærðarfréttir í útvarpinu og von-
aði að veðrið færi eitthvað að
skána. Þá heyrði ég í útvarpinu, að
fólki væri safnað saman hér í Bíó-
höllinni og ákvað að reyna að
brjótast hingað niður eftir. Veðrið
var i einu orði brjálað og þegar
best lét sá maður 10 eða 20 metra
fram fyrir sig. Þegar ég var búinn
að ganga hundrað metra eða svo
var ég alveg að gefast upp. Veðrið
henti manni áfram þrjá og fjóra
metra í hverju skrefi og þegar
sköflunum sleppti datt ég kylli-
flatur hvað eftir annað. Eg taldi
því best að reyna að komast í skjól
í næsta húsi.“
Þórir sagðist hafa brotist að
næsta húsi, barið þar dyra og
varla verið búinn að segja eitt ein-
asta orð, þegar hann var drifinn
inn. „Mér var boðið kaffi og með
því í hvelli og fengin þurr föt til að
Þórir Ingibergsson bíður heimferðar
í Bíóhöllinni: „Eftir hundrað metra
taldi ég ráðlegast að banka upp á í
næsta húsi, blautur og hrakinn.1*
Þórir er félagi í Hjálparsveit skáta í
Hafnarfirði og bjó vafalaust að þjálf-
un SÍnní. Morgunblaöiö/ÓV.
fara í. Hjá þessu góða fólki hafði
ég það mjög gott í rúman klukku-
tíma en þá var veðrinu farið að
slota, svo ég ákvað að ganga
hingað niður eftir," sagði hann.
„Þetta góða fólk á skilið mikið
þakklæti fyrir hjálpina."
Þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins kom í Bíóhöllina í Mjódd-
inni um kl. 16 í gær höfðu dunið í
útvarpi tilkynningar um að verið
væri að safnað þangað fólki, sem
lent hefði í hrakningum á Breið-
holtsbraut og nágrenni. Þar var
hins vegar fáa að hitta nema af-
greiðslufólk á rólegri vakt og lið-
lega hálfan tug björgunarsveitar-
manna, sem höfðu fengið boð um
að safnast saman þar og bíða nán-
ari fyrirmæla. Afgreiðslumaður í
bíóinu sagðist hafa fengið ósk um
það frá björgunarsveitum að taka
á móti 60—70 manns, blautu og
hröktu fólki, en það hefði aldrei
látið sjá sig. Greinilega hefði verið
um einhvern misskilning að ræða.
„Það hefur eiginlega ekkert fólk
verið hér nema björgunarmenn-
imir,“ sagði hann. „Þú hefur ekki
misst af neinu."
Snjóflóð á ísafirði:
Mikil snjóflóðahætta á
ísafirði og í Hnífsdal
- Fólk flutt úr húsum á báðum stöðum
SNJÓFLÓÐ féll í svokölluðu Holta-
hverfi á ísafirði í gær og féll á hús
við Kjarrholt 4, sem er einbýlishús í
hverfinu. Fór flóðið inn í húsið og
um öll gólf, en ekki urðu slys á fólki,
samkvæmt upplýsingum sem Mbl.
fékk hjá Haraldi Haraldssyni, full-
trúa í Almannavarnanefnd ísafjarð-
ar í gær.
Bjóst Haraldur við því að vinna
við hreinsun á húsinu væri að
hefjast, þegar Mbl. ræddi við hann
síðdegis í gær, en þá var mikil
snjóflóðahætta í Holtahverfinu og
í Hnífsdal og sagði hann að fólk
hefði verið flutt úr húsum á svæð-
inu.
Björgiuiarsveitin Ingólfur:
Aðstoðaði við
sjúkraflutninga
FÉLAGAR í björgunarsveitinni Ing-
ólfi stóðu í ströngu í gær eins og
félagar þeirra í björgunarsveitum
víðs vegar um landið. Þeir fóru með-
al annars á móti sjúkrabifreið frá
Selfossi, sem átti í erfiðleikum við
Litlu kaffistofuna í Svínahrauni.
Þangað fóru þeir á stórri bifreið
með snjóplógi og tóku sjúklinginn
og fluttu hann á sjúkrahús. Þá
lánuðu þeir slökkviliðinu einn tor-
færubíl og tvo snjóbíla til neyð-
arvaktar vegna sjúkraflutninga og
hugsanlegra eldsvoða. Einnig tóku
félagar í björgunarsveitinni að sér
að aðstoða lækna á neyðarvakt
auk þess, sem þeir aðstoðuðu
fjölda fólks víðs vegar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Að sögn Hannesar Hafstein,
framkvæmdastjóra SVFÍ, voru
allar björgunarsveitir félagsins
frá Akranesi til Suðurnesja
önnum kafnar við að aðstoða fólk,
sem lent hafði í hrakningum. Eftir
því sem næst verður komist hafa
björgunarsveitir á nær öllum vest-
urhelmingi landsins tekið mikinn
þátt í því að aðstoða fólk.
Vegir um allan
vesturhluta
landsins ófærir
„ÞAÐ ER nánast hægt að draga línu
þvert í gegnum landið, frá Eyjafjarð-
arbotni og niður í gegnum mitt Suð-
urlandið, allir vegir vestan hennar
eru ófærir," sagði viðmælandi Morg-
unblaðsins hjá vegaeftirlitinu um
miðjan dag í gær.
Sagði hann jafnframt, að verið
væri að reyna að ryðja Holta-
vörðuheiði og þar væri löng bíla-
lest í kjölfar snjóruðningstækja.
Hvort tækist að komast norðuryf-
ir heiðina væri óvíst því það væri
ekki aðeins ófærðin, heldur og lé-
legt skyggni, sem gerði mönnum
afar erfitt fyrir.
Þessi mynd skýrir e.t.v. betur en margt annað hvert ástand skapast í
Reykjavík þegar illviðri á borð við það, sem gerði í gær, skellur á. Hundruð
bfia eru stopp víðsvegar um borgina, stórvirk snjóruðningstæki eru í vand-
ræðum með að komast leiðar sinnar og bfieigendur blautir og hraktir að
moka farartæki sín úr þykkum sköflum.
Morfcunbladið/ RAX
Löng æfing hjá Sinfóníu-
hljómsveit íslands
MEDLIMIR í Sinfóníuhljómsveit
íslands, á milli 60 og 70 manns,
urðu að sitja af sér veðrið í Há-
skólabíói í allan gærdag, en
hljómsveitin var á morgunæfingu í
bíóinu þegar veður tók að versna.
„Þegar æfingu lauk upp úr
hálf eitt, var ekki talið ráðlegt
að ana út í veðurofsann og flestir
tóku þá ákvörðun að doka aðeins
við,“ sagði Rut Ingólfsdóttir
fiðluleikari í Sinfóníunni. „Þeir
sem lögðu í að fara út komu
fljótt til baka, snjóugir upp fyrir
haus. Öll hljómsveitin hélt því
kyrru fyrir í bíóinu um daginn,
sem var að mörgu leyti skemmti-
legt, menn notuðu tímann til æf-
inga og nokkrir góðir djassistar
djömmuðu svolítið á sviðinu.
Það versta var að engan mat-
arbita var að fá í húsinu og við
vorum orðin þálfsvöng þegar
líða tók á daginn. En þeir svöng-
ustu brutu sér leið á milli hryðja
að Hótel Sögu og fengu sér þar í
gogginn. Það var svo ekki fyrr en
veðrið fór að ganga niður síðdeg-
is að menn fóru að tygja sig af
stað.
Yfir 20 stræt-
isvagnar fastir
vegna ófærðar
ALLUR akstur Strætisvagna
Reykjavíkur stöðvaðist um hádeg-
isbilið í gær. Fór áætlun vagnanna
að raskast um ellefuleytið og var
ákveðið að leggja áætlun þeirra
niður þar til veðrinu slotaði. Um
miðjan dag í gær voru á milli 20
og 25 strætisvagnar fastir á víð og
dreif um borgina, ýmist vegna
ófærðar eða fólksbíla sem voru
fastir og tepptu þannig leiðina.
Álíka margir strætisvagnar voru
komnir á verkstæði SVR og voru
menn þar í biðstöðu fram til
klukkan 19, er akstur hófst á ný á
leiðum, er færar voru.