Morgunblaðið - 05.01.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1984
Fisklandanir erlendis á síöasta ári:
32.483 lestir ad verð-
mæti 715 milljónir króna
Á síðasta ári lönduðu íslenzk
flskiskip alls 288 sinnum í Bretlandi
og l>ýzkalandi samtals 32.483 lest-
um aö verðmKti um 715 milljónir
króna mióað við gengi nú eftir ára-
mótin. Árið 1982 lönduðu íslenzk
skip alls 290 sinnum í sömu löndum
samtals 29.775 lestum að verðmæti
um 648 milljónir króna miðað við
sama gengi.
Á árinu 1983 lönduðu alls 173
skip í Bretlandi samtals 13.619,2
lestum að verðmæti 7.970.425
pund eða tæplega 331 miiljón
króna. Meðalverð þessa afla á kíló
var 0,59 pund eða 24,49 krónur.
Árið 1982 lönduðu skipin alls 196
sinnum samtals 15.125,5 lestum að
verðmæti 8.605.636 pund eða 357
milljónum króna. Meðalverð var
0,57 pund eða 23,66 krónur.
í Þýzkalandi lönduðu skipin á
síðasta ári 115 sinnum samtals
18.836,9 lestum að verðmæti
36.629.059 mörk eða 385 milljónir
króna. Meðalverð var 1,94 mörk
eða 20,37 krónur. 1982 lönduðu
skipin þar 94 sinnum samtals
14.649,8 lestum að verðmæti
27.735.518 mörk eða 291 milljón
króna. Meðalverð var 1,89 mörk
eða 19,85 krónur. Tekið skal fram,
að í útreikningum er miðað við
gengi í upphafi þessa árs.
Raufarhöfn:
Loðnan var vítamínsprauta
Raufarhörn, 2. janúar.
ÁRIÐ HEFUR verið þolanlegt, veð-
ur gott og atvinna einnig, miðað við
það sem búast mátti við. Aflabrögð
hafa hinsvegar verið léleg, heima-
skipiö Rauðinúpur fékk á árinu 1890
tonn heimalandað og erlendis land-
aði hann 111 tonnum. Við fengum
474 tonn af Stakfelli, heimabátar
fengu 562 tonn þannig að til vinnslu
í frystihúsinu Jökli hf. komu 2932
tonn til vinnslu. Framleiðsla í frysti-
húsinu var 1020 tonn af freðfiski, 82
tonn af saltfiski, 4 tonn af hertum
þorskhausum og 43 tunnur af þorsk-
hrognum. Hólmsteinn Helgason hf.
verkaði 143 tonn af saltfiski, 5 tonn
af hertum þorskhausum og 4—5
tonn af skreið. Svo fengum við hér
vítamínsprautu sem var loðnan. Við
tókum á móti nákvæmlega 24.666
tonnum og 822 kflóum af loðnu.
Meiri parturinn hefur þegar verið
bræddur og vinnsla á því sem eftir
er verður sett í gang á morgun.
Eins og alþjóð veit var í sam-
vinnu Þórshafnar og Raufarhafn-
ar keyptur togarinn Stakfell ÞH
360. En samvinna hefur gengið
mjög stirt og er ástæðan móðu-
harðindi af manna völdum. Af
framkvæmdum er bygging sund-
laugar það sem helst snýr að
Raufarhafnarhreppi en þær voru
á árinu upp á rúmar fjórar millj-
ónir króna. Þar voru gufuböð og
heilsurækt tekin í notkun í des-
ember og áætlað að sundlaugin
komist í gagnið í vor. Lögð var
olíumöl á 760 metra og kostaði það
um það bil 2,3 milljónir. Slökkvilið
hér bætti við miklu af tækjum og
eignaðist nýja bifreið' sem keypt
var gömui frá Englandi. Af hafn-
arframkvæmdum er að nefna
smábátahöfn og innsiglingarljós
en það gengur ákaflega hægt að
ljúka þeim framkvæmdum. Hér er
verið að hlúa að leikskóla.
Bankaafgreiðsla hefur verið hér
■frá Landsbankanum á Akureyri í
mörg ár en nú hafa verið byggð
hér bæði bankahús og íbúðarhús
fyrir væntanlegan bankastjóra og
verður útibú opnað hér innan tíð-
ar og leggst þá afgreiðslan að lík-
indum niður.
Hér héldu allir gleðileg jól. Lítið
var um snjó þar til á gamlárskvöld
en nú er hér allt á kafi. Samgöng-
ur við Raufarhöfn í lofti, sjó og
landi hafa gengið með afbrigðum
vel. Viljum við óska öllum gleði-
legs árs með ósk um að það nýja
verði ekki verra en það gamla. Við
vonumst til að sjá loðnubátana
sigla í höfn innan tíðar.
Zorba — matsölustaöur með gríska rétti
NÝR matsölustaður, Zorba, hefur
tekið til starfa við Hlemm í Reykja-
vík, nánar tiltekið þar sem veitinga-
húsið Mamma Rósa var til skamms
tíma. Eins og nafnið gefur til kynna
er þarna um grískan veitingastaö að
ræða og eigandi hans er Mikael
Lyras Magnússon, sem er ættaður
frá Píreus en hefur búið á íslandi í
átján ár.
Þarna verða á boðstólum að-
skiljanlegir réttir frá Grikklandi,
nefna má hið fræga gríska salat
með feta, grískum geitaosti, tzatz-
iki, souvlaki og ótal marga fleiri
rétti, matreiddum af grískum
kokki upp á grískan máta; salt-
fiskur, grilluð lúða, kótilettur og
er þá fátt eitt talið. Þjóðardrykk-
urinn ouzo til að dreypa á fyrir
máltíð, grísk létt vín eða ölkolla
með matnum, allt hinir herlegustu
drykkir og Mikael Lyras bauð
blaðamönnum að gæða sér á ýms-
um af þeim krásum, sem þarna
verður boðið upp á. Sú nýbreytni
er m.a. að hægt er að fá Zorba-
disk með souvlaki, kótilettu, bift-
eki o.fl. á hagstæðara verði, þegar
þrír eða fjórir panta sér hann
samtímis. Til prýði eru myndir,
keramik, diskar, ofnar töskur og
fleiri grískir munir og búzúkí-tón-
list hljómar svo fyrir gesti meðan
þeir skola niður þessum gómsætu
réttum.
27
□
Kennsla
hefst
mánudagirín
9. janúar
Byrjendaflokkur tvisvar í viku. 70 mín. kennslustund.
26 tímar. = 2.300 kr.
Framhaldsflokkur þrisvar í viku. 80 mín. 36 tímar. = 3.200 kr.
Framhaldsflokkur fjórum sinnum í viku. 80 mín.
48 tímar. = 3.800 kr.
Endurnýjun skírteina í Suðurveri
laugardaginn 7. janúar.
Framhaldsflokkur kl. 2. Byrjendur frá i haust kl. 4. Nýir nem
endur kl. 5.
Mætiö meö stundaskrá.
Strákar ath.
• Pas de Deux-tímar
hefjast aftur og eru á laugardögum. Fram-
hald og byrjendur
Innritun í síma
40947.
Eigendur og
vélstjórar
Caterpillar
bátavéla
Látiö skrá ykkur
strax í dag
á námskeiöiö 11.—13.
- janúar1984
CATERPILLAR
SALA S tUQNUSTA
Caterpillar, Cat ogEeru skrásett vörumerki
Opwtil kU9
mánudaga
þriðjudaga
miðvikudaga
fimmtudaga
TT A /*1 TT ATip Skeifunni 15
ililu íiAU 1 Reykjavík